Föstudagslagið í boði Ástu

Það er hún Ásta Björk sem velur föstudagslagið að þessu sinni. Um val sitt segir Ásta:

Ég vel lagið Red red wine með UB40. Við vinkonurnar tókum okkur stundum “langt“ (skróp) matarhlé í skólanum til að fara heim að lesa Ísfólkið. Þá var hlustað á UB40 á kassettu og þetta lag var í miklu uppáhaldi.

Ég skora á Soffíu J Gestsdóttur að koma með næsta föstudagslag 🙂






Gestakokkurinn Vivek

Bjössi, Vivek og Örn að störfum. Mynd: Ólafur Ragnarsson

Í hádeginu var bryddað upp á þeirri nýbreytni að fá gestakokk í matseldina en það var hann Vivek Sharma eftirlitsmaður hafnarríkiseftirlits sem eldaði með þeim Bjössa og Erni að þessu sinni. Boðið var upp á Butter kjúkling, hrísgrjón, sósu go naan brauð.

Undirritaður var mjög spenntur enda mikill aðdáandi indversks matar. Það er óhætt að segja að rétturinn hafi staðið undir væntingum og fær hann 10 af 10 mögulegum í einkunargjöf vefstjórans.

Takk kærlega Vivek, Bjössi og Örn! (væri hægt að endurtaka leikinn sem fyrst? :))



Fréttir af ráðningarmálum

Gengið hefur verið frá ráðningu fagstjóra í fjármáladeild. Ráðin var Erna Guðmundsdóttir.
Erna hefur BS gráðu í viðskiptafræði, með áherslu á verkefnastjórn, frá háskólanum á Bifröst. Síðastliðin rúmlega tuttugu ár hefur Erna starfað hjá LSR og gegnt ýmsum störfum þar, síðast sem verkefnastjóri.

Erna hefur störf 14. febrúar næstkomandi, verður staðsett á annarri hæðinni.

Hressandi morgunverk

Í vetartíð er mikilvægt að aðkoman sé örugg og góð. Snorri mætir alltaf snemma og tryggir að stéttin sé mokuð fyrir viðskiptavini og okkur hin. Í morgun kölluðu önnur verkefni en þá greip Atle Vivås skófluna og dreif í að hreinsa gönguleiðina. Þessi snjór mokar sig víst ekki sjálfur, takk fyrir þjónustuna!







Fundur um rafmagnsbruna í skipum

Mynd: Einar Magnús Magnússon


Í gær var haldinn fundur um rafmagnsbruna í skipum í Flugröst. Fundurinn var haldinn til að opna vettvang til að meta hvað þarf að gera í regluverki, þjálfun og viðbragði ef eldar koma upp í vélbúnaði rafknúinna skipa eða ef eldar koma upp í rafmagnsbílum um borð.

Ólafur Ragnarsson fagstjóri hafnarríkiseftirlits sagði frá fundi sem hann sótti í Noregi á haustdögum. Þar var farið yfir bruna í farþegabátnum Brim sem tók slökkvilið 7 daga að slökkva. En eldurinn braust út í rafgeymum skipsins.

Í kjölfarið stjórnaði Halldór Zoega deildarstjóri siglinga- og hafnareftirlits umræðum en þátttakendur voru frá slökkviliði, Húsnæðis-og manvirkjastofnun, tryggingarfélögum, Landhelgisgæslunni, flokkunarfélögum, Vegagerðinni og Samgöngustofu.

Niðurstaða fundarins var að stofna hóp til að halda vinnufund eða ráðstefnu til að fara betur yfir þessi mál. Á fundinn á að fá fyrirlesara frá Noregi og aðilum hér innanlands sem skoðað hafa þessi mál. Samgöngustofa mun leiða þetta starf.




Verkefnastofa um sjálfbæra og gagnsæja gjaldtöku af vegasamgöngum

Fjármála- og efnahagsráðuneytið og innviðaráðuneytið hafa sett á fót verkefnastofu sem falið verður að vinna með ráðuneytunum að mótun tillagna um nýtt fyrirkomulag tekna af vegasamgöngum til framtíðar samkvæmt frétt á vef innviðaráðuneytisins.

Í fréttinni segir:

Undanfarin ár hefur tæknileg og samfélagsleg þróun orðið til þess að tekjur ríkisins af umferð og ökutækjum hafa dregist mikið og hratt saman. Fram hafa komið nýir orkugjafar og sparneytnari ökutæki sem losa minni koltvísýring. Stjórnvöld hafa sett fram stefnumörkun um að hraða orkuskiptum og auka notkun hreinna orkugjafa í samgöngum, þar á meðal með ívilnunum, sem hefur sömuleiðis í för með sér að tekjur ríkisins fara þverrandi. Samhliða ríkulegum hvötum til orkuskipta hefur mikill árangur náðst í orkuskiptum bílaflotans. Fyrir vikið greiðir stækkandi hópur afar lítið fyrir notkun vegakerfisins.

Það er stefna stjórnvalda sem birtist í fjármálaáætlun fyrir árin 2022-2026 að tekjur af þessu tagi nái sínu fyrra sögulega meðaltali, enda hafa þær verið mikilvægur þáttur í tekjuöflunarkerfi ríkisins. Hefur einna helst verið til skoðunar að taka upp almenna innheimtu á gjöldum af notkun ökutækja, s.s. kílómetragjald.

Á sama tíma hafa stjórnvöld metnaðarfull áform um áframhaldandi uppbyggingu og viðhald samgönguinnviða, meðal annars verkefni sem fjármögnuð verði með umferðar- eða veggjöldum. Annars vegar er um að ræða uppbyggingu samgangna á höfuðborgarsvæðinu, sem sérstöku opinberu hlutafélagi, Betri samgöngum, hefur verið falið að annast um á grundvelli svonefnds samgöngusáttmála. Hins vegar eru nokkur stærri þjóðhagslega mikilvæg innviðaverkefni sem til stendur að fjármagna með notkunargjöldum. Þessi áform fela í sér að unnt verði að hækka fjárfestingastigið á komandi árum með hraðari uppbyggingu stærri og arðbærra samgönguinnviða en hefðbundin framlög í fjárlögum til samgönguáætlunar gera kleift.

Þessi áform kalla á að mótuð verði heildstæð framtíðarsýn um breytt fyrirkomulag gjaldtöku af ökutækjum, eldsneyti og afnotum vegakerfisins sem geti orðið sjálfbært til langrar framtíðar. Þannig verði dregið úr sértækum gjöldum á borð við eldsneytisgjöld, vörugjöld o.fl. og tekið upp gagnsærra og sanngjarnara kerfi sem miðast í auknum mæli við notkun.

Samráð fjármála- og efnahagsráðuneytisins og innviðaráðuneytisins hefur byggst á þeim sjónarmiðum að eftirsóknarvert sé að nýtt fyrirkomulag feli í sér heildstætt, hagkvæmt og samræmt gjaldtökukerfi á landsvísu, að forðast margs konar gjaldtöku á hendi fjölda aðila og að gagnsæi og einfaldleiki kerfisins verði sem mestur gagnvart greiðendum.

Verkefnastofunni er ætlað að vinna að úrlausnarefnum á þessu sviði í samstarfi við ráðuneytin. Stýrinefnd með fulltrúum ráðuneytanna tveggja ásamt fulltrúa forsætisráðuneytis mun hafa yfirumsjón með framgangi í vinnu verkefnastofunnar og verða vettvangur samráðs um stefnumarkandi tillögur og ákvarðanir um fyrirkomulag tekjuöflunarkerfisins.

Sjá frétt á vef innviðaráðuneytisins

Frétt um rafræn ökupróf

Í Fréttablaðinu í dag birtist stutt frétt um stafræn ökupróf og var Þórhildur til viðtals um þau. Fréttin í heild sinni:

Samgöngustofa vinnur nú að því að gera bóklega ökuprófið stafrænt. Samhliða verður fræðilega prófið og fyrirkomulagið endurskoðað og uppfært. Ökunámsbókin hefur nú þegar verið færð á stafrænt form en unnið er að því að gera allt ökunámsferlið starfrænt.

Í nýlegri greiningu breska bílaráðgjafafyrirtækisins Confused er Ísland talið meðal þeirra landa sem auðveldast er að ná ökuprófi. Aðeins Eistland, Bandaríkin og Tyrkland eru talin hafa léttari próf. Á 45 mínútum svari nemendur tvisvar sinnum 15 spurningum, og megi aðeins hafa 2 villur í fyrri hluta og 5 í seinni. Það er 77 prósent.

Þórhildur Elínardóttir, samskiptastjóri Samgöngustofu, segir greininguna ekki gefa rétta mynd. Próftaki þurfi að hafa 92 prósent rétt svör en ekki 77.

Aðspurð um hversu stórt hlutfall stendur ökuprófið segir hún það vera um 50 prósent. Í fyrra hafi þó aðeins 47 prósent náð því. Segir hún íslenska ökuprófið frekar hafa verið gagnrýnt fyrir að vera of strangt en of létt en það sé í samræmi við próf á hinum Norðurlöndunum og í Hollandi til dæmis. „Miðað við það má því ætla að íslenska prófið sé af svipuðu erfiðleikastigi og í þeim löndum sem við viljum bera okkur saman við,” segir hún.

Við hverja spurningu geta 1, 2 eða 3 valmöguleikar átt við. Prófið er 90 stig og 1 dregið frá fyrir hverja villu. Próftakar þurfi að hafa 43 stig í fyrri hluta og 83 í öllu prófinu. „Það þýðir að próftaki þarf að hafa 92% rétt svör,“ segir hún.


Ráðstefna um innviðafjárfestingar -upptaka

Þann 2. febrúar síðastliðinn var haldin ráðstefna á vegum Landssamtaka lífeyrissjóða og innviðaráðuneytisins á Grandhóteli í Reykjavík um möguleika á samvinnuverkefnum hins opinbera og lífeyrissjóða við uppbyggingu innviða. Sérstök áhersla var á samgöngumannvirki og snérust flestir fyrirlestrarnir um þau. Mörg áhugaverð erindi voru flutt á ráðstefnunni og má nálgast upptöku af ráðstefnunni hér.

Frummælendur komu úr mörgum áttum hérlendis og erlendis. Innviðaráðherra Sigurður Ingi Jóhannsson ávarpaði fundarmenn í upphafi og sat síðan ráðstefnuna til enda. Fleiri ráðuneytismenn voru á mælendaskrá, fulltrúar lífeyrissjóða, verktaka, sveitarfélaga og íslenskra og erlendra ráðgjafar- og fjármögnunarfyrirtækja. Meðal frummælenda var líka fyrrverandi stjórnarformaður Spalar, reynslunni ríkari af sjálfu umfjöllunarefni dagsins í framkvæmd.

Dagskrá ráðstefnunnar
Frétt um ráðstefnuna





Isavia ohf. afhent starfsleyfi

Jón Gunnar afhendir Önnu Björk Bjarnadóttur starfsleyfið. Anna Björk er framkvæmdastjóri þjónustu og rekstrar hjá Isavia ohf.

Sl. föstudag fékk Isavia ohf. afhent starfsleyfi sem veitandi flugumferðarþjónustu og mun veita flugturnsþjónustu í flugstjórnarsviði Keflavíkurflugvallar. Í flugumferðarþjónustu felst m.a. flugstjórnarþjónusta, viðbúnaðarþjónusta og flugupplýsingaþjónusta. Flugstjórnarsviðið nær 18 km. umhverfis Keflavíkurflugvöll og nær frá jörðu upp í 3.000 fet.

Hingað til hefur Isavia ohf. haft samning við dótturfyrirtæki sitt Isavia ANS um að veita þjónustuna en fyrirtækið hefur nú sótt um og fengið starfsleyfi sjálft. Isavia ohf. mun þó áfram verða í miklu samstarfi með og nota þjónustu dótturfyrirtækisins vegna nokkurra þátta eins og þjálfunar flugumferðarstjóra. Vottunarferlið hefur verið í undirbúningi allt síðastliðið ár.

Hægra megin við Jón Gunnar, Hlín og Þröst standa fulltrúar frá Isavia ohf.: Anna Björk Bjarnadóttir, Helga R. Eyjólfsdóttir og Júlía Guðbjörnsdóttir.





Undirbúningur vegna leiðtogafunds Evrópuráðsins

Eins og fram hefur komið í fréttum að undanförnu verður leiðtogafundur Evrópuráðsins haldinn í Reykjavík 16. og 17. maí næstkomandi. Þetta er einn umfangsmesti fundur sem íslensk stjórnvöld hafa skipulagt og þarf að huga að mörgu þegar kemur að framkvæmdinni.

Utanríkisráðuneytið leiðir nú starf vinnuhóps til undirbúnings fundarins en talið er að allt að 46 þjóðarleiðtogar muni sækja fundinn. Að undirbúningnum koma auk ráðuneytisins, Ríkislögreglustjóri, Landhelgisgæslan, Faxflóahafnir, Isavia ohf, Isavia ANS, Samgöngustofa o.fl.

Við hjá Samgöngustofu höfum hlutverki að gegna í undirbúningnum og tekur starfsfólk flugleiðsögu-, flugvalla- og flugverndardeildar þátt í undirbúningnum fyrir hönd okkar. Verkefnin sem snúa að okkur eru m.a.:

  • Tímabundið flugbann dróna og almannaflugs á ákveðnum svæðum
  • Skipulagningu afgreiðslu og stæðaúthlutana loftfara á flugvöllunum í Reykjavík og Keflavík
  • Undanþágur vegna flugverndar. 




Ísland í 2. sæti hjá tímaritinu Autopista

Samkvæmt spænska tímaritinu Autopista er Ísland í öðru sæti yfir þau lönd þar sem öruggast er að aka (á eftir Noregi). Af því tilefni bað Mexíkóska sjónvarpsstöðin TV4 Guanajuato (í héraðinu Guanajuato í Mexíkó) um viðtal við Gunnar Geir til að spyrja hverju við þökkum þennan árangur og hvort aðrar þjóðir getir lært eitthvað af okkur.

Talað er yfir viðtalið á spænsku og því ekki víst að margir Íslendingar skilji hvað fer fram en það er gaman að þjóðir heimsins skuli taka eftir árangri okkar þegar kemur að öryggi í umferðinni. Gunnar Geir er “döbbaður” í viðtalinu og ef einhver hér innanhúss er sleip(ur) í spænskunni væri gaman að fá þýðingu 🙂

Viðtalið byrjar á mínútu 2:10:40 (smellið á myndina) :


Eða smellið á linkinn hér




Deild lögfræði og réttinda farþega – kynning í morgunkaffinu

Law and order


Í morgun kynnti deild lögfræði og réttinda farþega deildina og helstu verkefni. Þar kom m.a. fram að lögfræðihluti deildarinnar aðstoðar sérfræðinga Samgöngustofu við meðferð mála og töku stjórnvaldsákvarðana og kemur þannig við öll svið stofnunarinnar. Þá er lögfræðihlutinn í miklum samskiptum við innviðaráðuneyti sem óskar eftir umsögnum Samgöngustofu við drög að lögum/reglugerðum og erindum sem berast.

Það kom einnig fram að lögfræðihlutinn hefur að markmiði að tryggja að starfsemi Samgöngustofu rúmist innan gildandi laga og reglna. Deildin heldur regluleg námskeið fyrir starfsmenn stofnunar, m.a. námskeið um stjórnsýslulög, upplýsingalög og Evrópureglur.

Farþegahluti deildarinnar sér um móttöku og afgreiðslu kvartana farþega sem ferðast með loftförum, skipum eða hópferðabifreiðum. Nánast eingöngu er um að ræða kvartanir vegna fluga sem aflýst er eða seinkað. Yfir 700 kvartanir bárust Samgöngutofu á árinu 2022.

Kynninguna má nálgast í heild sinni hér





Föstudagslagið í boði Björgvins


Það er hann Björgvin Páll sem velur föstudagslagið að þessu sinni. Um val sitt segir hann:

Ég vel lagið Closing Time sem föstudagslag vikunnar og læt skemmtilegt atriði fylgja með úr bestu þáttum sem gerðir hafa verið.

Ég legg til að þessi hefð verði tekin upp hér í húsinu, Jón gæti komið syngjandi inn á deildirnar um þrjú leytið 🙂

Ég skora á Ástu Björk Long að koma með föstudagslagið í næstu viku

Atriðið úr The Office US:

Lagið:





3. feb – klæðumst rauðu

Á morgun, 3. febrúar er alþjóðlegur klæðumst rauðu dagur haldinn til að vekja athygli á meðfæddum hjartagöllum.
Hvetjum öll til að finna rauðu flíkurnar í fataskápnum og sýna lit 🙂

Klæðumst rauðu 3.febrúar – Neistinn.is | Styrktarfélag hjartveikra barna

Hjartagallar – Neistinn.is | Styrktarfélag hjartveikra barna

Nýr tölfræðivefur – skyrslur.samgongustofa.is


Búið er að opna innri tölfræðivef Samgöngustofu en hann er eingöngu aðgengilegur fyrir starfsfólk Samgöngustofu. Á vefnum er hægt að sjá ýmsa tölfræði síðustu ára úr ökutækjaskrá, eins og til dæmis nýskráningar, afskráningar, skoðanir og eigendaskipti. Einnig er að finna tölfræði tengda skipstjórnar- og vélstjórnarskírteinum og NorType tölfræði varðandi uppfærslur á gerðum og gerðarviðurkenningum.

Vefurinn er enn í vinnslu og mun fleira bætast við í náinni framtíð.

Slóð vefsins er skyrslur.samgongustofa.is

Upplýsingar um vefinn gefur Markús Benediktsson, það má líka hafa samband varðandi hugmyndir að tölfræði sem ætti heima inni á vefnum.




Sumarstörf hjá Samgöngustofu – almenn umsókn

Opnað hefur verið fyrir almennar umsóknir um sumarstörf hjá Samgöngustofu. Starfsfólki er velkomið að benda áhugasömum ungmennum á að leggja inn umsókn, miðað er við að hafa náð 18 ára aldri.
Hér er hlekkur: Sumarstarf – almenn umsókn

Könnun í Nýsköpun og viðskiptaþróun

Háskóli Íslands - Wikipedia, frjálsa alfræðiritið

Nemandi í Nýsköpun og viðskiptaþróun við Háskóla Íslands bað okkur um að koma eftirfarandi könnun á framfæri:

Góðan daginn,

Ég er að vinna meistararitgerðina mína núna sem hluti af náminu mínu í Nýsköpun og viðskiptaþróun þar sem Dr. Magnús Þór Torfason er leiðbeinandinn minn. 

Rannsóknin felur í sér samanburð á einstaklingum sem starfa hjá hinu opinbera samanborið við á almenna markaðnum.Ég var að velta fyrir mér hvort að það væri einhver möguleiki á að hægt væri að deila könnuninni með einhverju starfsfólki Samgöngustofu. Tekur aðeins örfáar mínútur og er hægt að vinna gjafabréf í tennis eða padel! 

Linkur: https://questionpro.com/t/AWxPSZvrAb 

Mátt endilega láta mig vita ef þú ert með einhverjar spurningar! 

Bestu kveðjur 

Selma Dagmar Óskarsdóttir 

Dagskrá Farsýslunnar framundan


Hér er dagskrá Farsýslunnar fram á sumarið. Eins og þið sjáið er líf og fjör framundan og næg tækifæri til þess að hafa gaman saman 🙂





Aukin þekking í geimmálum

Deildarstjóri lögfræðideildar og lögfræðingur flugmála sóttu námskeið í alþjóðlegum geimrétti hjá Geimvísindastofnun Evrópu (ESA – European Space Agency). Námskeiðið var haldið dagana 18. – 20. janúar sl. í Nordwijk í Hollandi. Þátttakendur á námskeiðinu voru rúmlega þrjátíu og komu frá mismunandi löndum. Áberandi margir þátttakenda voru lögfræðingar frá innlendum geimstofnunum sinna landa sem eru (eins og við skiljum það) í flestum tilvikum sjálfstæðar einingar undir því ráðuneyti sem hefur geimmál á sínu ábyrgðarsviði í viðkomandi landi. Fyrirlesarar voru í flestum tilvikum sérfræðingar frá Geimvísindastofnuninni sem og sérfræðingar í geimmálum nokkurra landa. 

Námskeiði var yfirgripsmikið og vandlega farið yfir regluverk geimmála. Í grófum dráttum voru kynningar í alþjóðlegum geimrétti þar sem farið var yfir gildandi  geimsamninga Sameinuðu þjóðanna  s.s. Útgeimssamninginn (The Outer Space Treaty), Samning um björgun geimfara (Rescue & Return Agreement) , Samning um skráningu hluta sem varpað er í himingeiminn (Registration Convention)  o.fl. Þá voru kynningar ýmissa landa á eigin regluverki geimmála, umfjöllun um tryggingamál og áhugaverðar umræður um ýmis álitaefni tengd geimskotum.

Þátttakendur á námskeiðinu fengu þar góða yfirsýn yfir alþjóðasamninga á sviði geimmála auk þess að verða hluti af tengslaneti sérfræðinga geimmála á Norðurlöndum og í Evrópu. 



Sigrún Henríetta og Vala í hópi annarra þátttakenda á námskeiði í alþjóðlegum geimrétti hjá Geimvísindastofnun Evrópu

Vala og Sigrún kynntu sér sjálfkeyrandi ökutæki

Kynningar frá starfsmannafundum og föstudagskaffi

Á starfsmannafundum í vikunni tókum við púlsinn á starfseminni og verkefnunum framundan. Meðal efnis voru drög að rekstrarniðurstöðum síðasta árs og ýmsar tölulegar staðreyndir um umsvif starfseminnar sem er ágætt að kannast við. Litið var yfir niðurstöður síðustu HR Monitor könnunar og til hliðar niðurstöður sömu könnunar frá desember 2021. Með samanburði má víða sjá framfarir sem eru hvetjandi fyrir áframhaldandi úrbætur á hverju sviði. Einnig var stefnumótun rifjuð upp, skilgreind markmið og nokkur verkefni framundan sem munu hjálpa okkur að komast þangað sem við stefnum í árslok 2024. Við ræddum stöðu húsnæðismála sem hafa verið okkur ofarlega í huga. Kynninguna frá starfsmannafundum má finna hér.

Í föstudagskaffinu voru umhverfismálin til umfjöllunar og hugleitt hvernig skýra má betur hlutverk Samgöngustofu í þessum málaflokki svo það styðji sem best við markmið Íslands. Einnig hvernig við sem einstaklingar og hópur getum gert betur. Ákveðið hefur verið til hvatningar að hækka samgöngustyrk og heilsustyrk í hámark skattleysismarka. Kynninguna úr föstudagskaffinu má finna hér.