Samgöngustofa tilnefnd til sex verðlauna

Í gær var tilkynnt um tilnefningar til Lúðursins, íslensku auglýsingaverðlaunanna, sem eru veitt til bestu auglýsinga ársins 2024. Hlaut Samgöngustofa sex tilnefningar. Föstudaginn 7. mars kemur svo í ljós hver uppskeran verður, þ.e. hvort við hljótum einhvern lúður.

Fimm af þessum tilnefningum voru fyrir herferðina Ekki taka skjáhættuna sem við stóðum fyrir með Sjóvá og er ein fyrir Sjáumst // Ekki herferðina sem við stóðum fyrir með 66°Norður. Erum við tilnefnd fyrir Skjáhættuauglýsinguna í flokkunum Herferð ársins, Prentauglýsingar, Kvikmyndaðar auglýsingar – styttri, Veggspjöld og skilti og PR (Almannatengsl). Sjáumst herferðin er svo tilnefnd í flokknum Stafræn auglýsing.

Svona verðlaun eru ekki bara hégómi því þetta sýnir okkur að þau verkefni sem við höfum farið í og þær aðferðir sem við höfum notað til að koma skilaboðum okkar á framfæri eru að virka. Auk þess er öll umfjöllun um slíkar viðurkenningar af hinu góða þar sem hún varpar ljósi á skilaboð auglýsinganna.


Rafrænn tiltektardagur í málakerfi í dag

Í dag, 28. febrúar er rafrænn tiltektardagur í málakerfinu. Nú er tíminn til að fara yfir mál liðins árs og loka þeim. Það er einfalt að loka málum í Mitt One eins og sést á myndinni. Í næstu viku lokar skjalateymi málum sem eru frá 2021 eða eldri. Fólk getur fundið leiðbeiningar um hvernig það leitar að lokuðum málum á innri vef, undir skjalakerfi. Starfsmenn skjalateymis aðstoða í allan dag, best að senda okkur línu á Teams eða til skjalastjorn@samgongustofa.is.

Loka máli í Mitt One
Máli lokað í Mitt One

Tillögur um breytingar á lögum um leigubifreiðaakstur í samráðsgátt

Drög að frumvarpi um breytingu á lögum um leigubifreiðaakstur hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Helstu breytingar eru eftirfarandi:

  1. Felld er brott heimild rekstrarleyfishafa til að reka leigubifreiðastöð án starfsleyfis leigubifreiðastöðvar þar sem ein leigubifreið sem hann er skráður eigandi eða umráðamaður að hefur afgreiðslu.
  2. Kveðið er á um skyldur rekstrarleyfishafa til að veita leigubifreiðastöð nauðsynlegar upplýsingar svo að leigubifreiðastöðin geti fullnægt eigin skyldum.
  3. Skyldur leigubifreiðastöðvar eru auknar og tilgreindar þær upplýsingar sem leigubifreiðastöð skal búa yfir.
  4. Leigubifreiðastöð er gert að taka við upplýsingum úr rafrænni skrá um upphafs- og endastöð hverrar seldrar ferðar rekstrarleyfishafa sem hefur afgreiðslu á stöðinni, um staðsetningu á meðan á ferðinni stendur og um greiðslu sem skráð er í gjaldmæli eða með öðrum fullnægjandi hætti að ferð lokinni.
  5. Skyldur til varðveislu gagna í 60 daga eru alfarið færðar frá rekstrarleyfishafa til leigubifreiðastöðvarinnar. Kveðið er á um árlega úttekt stafrænna kerfa leigubifreiðastöðvar svo að öryggi og gæði gagna séu tryggð.
  6. Leigubifreiðastöð er gert að bjóða farveg fyrir kvartanir neytenda um verð og gæði þjónustu. Leyfishöfum er um leið gert að upplýsa og leiðbeina neytendum um þann möguleika og möguleika til að kvarta til annarra viðeigandi stjórnvalda.

Sjá nánar í frétt á vef innviðaráðuneytisins.


Vegna umfjöllunar um sjúkraskrá

Vegna umfjöllunar í fjölmiðlum um sjúkraskrá og missi atvinnuflugmannsréttinda er rétt að eftirfarandi komi fram:

Samkvæmt samningi við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins hafði trúnaðarlæknir Samgöngustofu aðgang að sjúkraskrá um árabil. Nýttist hann þegar leggja þurfti sérstakt mat á heilbrigði umsækjenda um leyfi til flugstarfa. Heilsugæslunni láðist hins vegar að afla lögbundins samþykkis ráðherra fyrir samningnum. Í kjölfar úrskurðar Persónuverndar frá 23. september 2024 var samningnum rift.

Samkvæmt niðurstöðu Persónuverndar starfaði trúnaðarlæknir Samgöngustofu innan aðgangsheimilda sinna, samkvæmt almennu verklagi stofnunarinnar. Öflun gagna fór fram í samræmi við umræddan samning og var öryggi þeirra í meðförum tryggt.

Á Samgöngustofu hvíla ríkar skyldur í tengslum við eftirlit með flugmálum og einstaklingum sem eru handhafar réttinda. Strangar heilbrigðiskröfur eru gerðar til þeirra sem fá útgefið skírteini atvinnuflugmanna.  Ákvarðanir um sviptingu heilbrigðisvottorðs og þar með missi réttinda eru teknar alvarlega og með flugöryggi að leiðarljósi.

Dagur sjaldgæfra sjúkdóma og heilkenna

Föstudaginnn 28. febrúar er dagur sjaldgæfra sjúkdóma og heilkenna.

Sokkabuxnakonan – sokkabuxur og sokkar!

Ísland í fremstu röð

Ráðherra okkar, Eyjólfur Ármannson, var staddur í Marrakesch nú á dögunum á alþjóðlegri ráðherraráðstefnu um umferðaröryggi, þeirri fjórðu í röðinni. Á síðustu ráðstefnu, sem fór fram í Stokkhólmi í febrúar árið 2020, skrifuðu ráðherrar undir yfirlýsingu þar sem ýmsu fögru var heitið, m.a. að fækka banaslysum um a.m.k. 50% frá árinu 2020 til 2030. Þar sem árið 2020 var á margan hátt skrítið vegna heimsfaraldurs Covid19 þá hefur verið miðað við meðaltal áranna 2017-2019 sem upphafspunkt.

Til að vera á réttri braut þyrftu lönd að vera búin að fækka látnum í umferðinni um 18,8% árið 2023 m.v. upphafspunktinn. Ísland er eitt af aðeins sjö ríkjum heimsins sem hefur náð þeim árangri og er árangur Íslands sá besti á heimsvísu (sjá mynd). Upphafspunktur Íslands (meðaltal 2017-2019) er 13,3 látnir en árið 2023 létust 8 manns á Íslandi sem er tæplega 40% fækkun. Til þess að ná þessum markmiðum árið 2030 mega ekki fleiri en 6 manns látast það ár í umferðinni.

Þar sem tölur yfir fjölda látinna í umferðinni eru lágar á Íslandi og sveiflur því miklar er rétt að taka þessum tölum með ákveðnum fyrirvara. Engu að síður er ánægjulegt að sjá Ísland fremst meðal jafningja þegar kemur að umferðaröryggismálum og alveg ljóst að við eigum góðan möguleika á að ná þessum markmiðum og hugsanlega vera eitt af fáum löndum sem það gera.


Áhættumat

Síðastliðinn föstudag sendi Auðnast út rafrænt áhættumat á allt starfsfólk Samgöngustofu í tölvupósti.
Það tekur nokkrar mínútur að fylla út áhættumatið.

Til að niðurstöðurnar verði sem nákvæmastar er þátttaka alls starfsfólks mikilvæg. Þið þekkið best aðstæðurnar sem þið vinnið við, og því viljum við biðja ykkur um að gefa ykkur tíma til að svara spurningalistanum af einlægni.

Hér er hlekkur á spurningalistann: https://www.research.net/r/SAMGONG

Við hvetjum ykkur til að taka þátt og að leggja ykkar að mörkum við að tryggja öryggi og heilbrigði á vinnustaðnum okkar.

Ef þið hafið einhverjar spurningar varðandi áhættumatið má senda þær á audnast@audnast.is  

Flugöryggi í forgrunni

Alþjóða flugmálastofnunin ICAO hefur skilgreint 20. febrúar ár hvert sem alþjóðlegan minningardagur um fórnarlömb flugslysa og aðstandendur þeirra. Dagurinn minnir ekki síst á þýðingu þess að efla flugöryggi og koma í veg fyrir slys.

Stöðug áhersla á öryggismál hefur skilað þeim mikla árangri að flug er einn öruggasti samgöngumáti veraldar. Þó flugslys séu sjaldgæf hefur skráðum atvikum fjölgað á undanförnum árum. Það áréttar mikilvægi þess að flugöryggi sé ávallt haft í öndvegi.

Eitt af hlutverkum ICAO er að huga að aðstoð við fórnarlömb flugslysa og aðstandendur þeirra með nýjum stöðlum, þjálfun og alþjóðlegu samstarfi. Á síðasta ári var haldin ráðstefna um málefnið í Hollandi, og í lok árs 2025 verður haldin svæðisbundin vinnustofa í samstarfi við Flugöryggisstofnun Evrópu, ECAC.

Heimsókn frá Noregi

Á þriðjudag fengum við heimsókn frá frændum okkar í Noregi. Þar á bæ hefur vetrarferðamennska aukist til muna á skömmum tíma og samhliða því hefur slysum á erlendum ferðamönnum að vetri til fjölgað töluvert. Þau komu því til okkar til þess að læra af okkur og heyra hvernig við hefðum brugðist við þeirri aukningu sem við sáum í vetrarferðamennskuslysum fyrir um 10 árum síðan. Hópurinn var skipaður fulltrúum frá Trygg Trafikk (norska umferðaröryggisráðið), norsku vegagerðinni, samtökum atvinnulífsins í Noregi, félagi bifreiðaeigenda í Noregi og lögreglunni í N-Noregi. Einnig kom með þeim gestur frá Íslandsstofu sem hefur haldið utan um ferð hópsins hér á landi.

Hópurinn var ánægður með fundinn og við gátum gefið þeim góð ráð um hvernig best er að snúa sér í þessu en einnig hvað ber að varast. Það er alltaf gott að geta miðlað af reynslu og vonandi höfum við hjálpað til við að draga úr slysum á erlendum ferðamönnum að vetri til í Noregi.


Hugrekki til sjós

Alþjóðasiglingamálstofnunin (IMO) óskar eftir tilnefningum til verðlauna fyrir einstakt hugrekki til sjós. Samgöngustofa tekur við tilnefningum frá aðilum sem telja sig hafa upplýsingar um einstakling eða hóp sem hafi sýnt slíkt hugrekki.

Verðlaunin hafa verið veitt árlega frá árinu 2007. Þjóðir eða samtök geta tilnefnt einstakling eða hópa sem hafa sýnt óvenjulegt hugrekki við björgun eða aðstoð á sjó.

Samgöngustofa tekur við tilnefningum frá aðilum sem telja sig hafa upplýsingar um einstakling eða hóp sem hafi sýnt slíkt hugrekki. Atvikið sem tilnefningin varðar skal hafa átt sér stað á tímabilinu 1. mars 2024 – 28. febrúar 2025.

Tilnefningar skulu sendar til Samgöngustofu eigi síðar en mánudaginn 7. apríl 2025 á netfangið samgongustofa@samgongustofa.is merktar „Einstakt hugrekki til sjós“.

Dæmi um hugrekki á sjó

Meðal þeirra sem hlutu verðlaunin árið 2024 var Avhilash Rawat skipstjóri og áhöfn hans á olíuflutningaskipinu Marlin Luanda. Þau voru heiðruð fyrir að sýna einstakt hugrekki, staðfestu og úthald við að stýra slökkvistarfi og koma í veg fyrir frekar tjón þegar kviknaði í skipinu eftir eldflaugaárás.

Hér má sjá myndband frá verðlaunaafhendingunni.

Frekari upplýsingar má nálgast á vef Alþjóðasiglingmálastofnunarinnar.

EKKO Fræðsla

Í síðustu viku fengum við EKKO fræðslu frá Auðnast. Þetta er málefni sem varðar okkur öll og nauðsynlegt er að vera meðvituð um málaflokkinn í heild sinni.
Stefna og aðgerðaráætlum Samgöngustofu er að finna í CCQ (STE-0015) og í starfsmannahandbók má finna upplýsingar. Hér er stutt samantekt frá Auðnast.

paper icon
EKKO samantekt

Heimsókn frá Kósovó

Þessa vikuna fara fram fundir KFOR, alþjóðlegs friðargæsluliðs NATO í Kósovó og flugleiðsöguteymis FFF (flugleiðsaga, flugvellir og flugvernd).

Vegna þess að Kósovó er ekki að fullu viðurkennt sem sjálfstætt ríki fer KFOR með yfirráð yfir loftrými landsins. Í þeim tilgangi að auðvelda innleiðingu nýrra flugleiða var árið 2020 gert samkomulag um stuðning Íslands, sem Samgöngustofa veitir. Sá stuðningur felst meðal annars í eftirliti með flugleiðsögu, stjórnun loftrýmisins og aðstoð við innleiðingu Evrópureglugerða.

Lífshlaupið í fullum gangi, skrá sig með!

Fólk að hlaupa
Út að hlaupa

Lífshlaupið er eitthvað sem öll geta tekið þátt í, gengið, hjólað, stundað líkamsrækt, skíðað, farið út að ganga með hundinn, eða bara hreyfing af öllu tagi. Nú getur fólk skráð sig til leiks og skráð alla hreyfingu með börnunum eða sér sjálfum, hvort sem það er að skíða í fyrir norðan í vetrarfríinu eða skjótast út um helgina og njóta vetrarveðursins. Þið getið skráð alla miðlungserfiða eða erfiða hreyfingu sem stunduð er utan vinnutíma. Til þess að fá einn dag skráðan þarf að hreyfa sig að lágmarki í 30 mínútur sem skipta má upp í nokkur skipti yfir daginn, t.d. 10 – 15 mínútur í senn. Þið getið skráð hreyfingu sem þið hafið stundað síðastliðna viku, en um að gera að byrja strax að skrá!

Rafrænn tiltektardagur í málakerfinu 28. febrúar

Á hlaupársdag í fyrra héldum við rafrænan tiltektardag í málakerfinu, og fengum fólk til að loka málum. Við erum ekki svo heppin að hafa aukadag á þessu ári, en engu að síður verður aftur tiltektardagur í málakerfinu föstudaginn 28. febrúar. Kostir við að loka málum er að Mitt One stjórnborðið lítur mun betur út, sérstaklega hjá samstarfsfólkinu, og það hjálpar til við gagnaskil til Þjóðskjalasafns. Fólk verður að geta fundið mál sem búið er að loka, og einmitt hér eru leiðbeiningar um það. Þið getið alltaf komist í þessar leiðbeiningar undir Skjalakerfi hér á vefnum. Við hvetjum öll til að fara yfir mál hjá sér og loka þeim sem niðurstaða er komin. Skjalateymið mun svo í mars loka öllum málum frá 2021 og eldri. Ef þið þurfið aðstoð, sendið tölvupóst til skjalastjorn.

Mynd af snyrtilegu kerfi
Snyrtilegt kerfi

Jón Gunnar í Kastljósinu

Í Kastljósþætti gærkvöldsins fór Jón Gunnar vel yfir stöðu mála á Reykjavíkurflugvelli. Sem flestum er kunnugt, þá lokaði Samgöngustofa annarri flugbraut flugvallarins tímabundið, vegna þess að tré í Öskjuhlíð hafa vaxið upp í of mikla hæð. Sú staða ógnar bæði flugtaki og lendingum og nauðsynlegt var að bregðast við.

Hér má horfa á viðtalið við Jón Gunnar í Kastljósinu.

Í fréttum seint í gærkvöldi var sagt að undanþágubeiðni um sjúkraflug hafi verið hafnað. Svo var ekki, heldur reyndist ekki unnt að afgreiða beiðnina. Ástæða þess er að skoða þarf nánar með aðilum máls hvernig flugöryggi heilbrigðisstarfsfólks og sjúklinga verður tryggt. Óskað hefur verið eftir leiðréttingu í fjölmiðlum.





Grænt og gaman – vertu með!

Árshátíð Farsýslunnar og SGS 💃🕺

Skráning á árshátíð Farsýslunnar er í fullum gangi og gengur vel! Skráningu lýkur föstudaginn 14. febrúar og hvetjum við því öll ykkar sem eiga eftir að skrá sig að drífa í því 😊

Hvað er í matinn? Boðið verður upp á þriggja rétta matseðil:

  • SKELFISKSÚPA

Blandaður skelfiskur, karrý, kókos, kóríander, lime

  • HEILSTEIKT NAUTALUND

Bakað rótargrænmeti, beikonkartöflumús, rauðvínssósa

  • SÚKKULAÐI HRAUNKAKA

vanillusósa, ber

Að lokum vonum við í stjórninni að það sé vel tekið í það að sviðin hendi í eins og eitt skemmtiatriði til að toppa kvöldið!

Fyrir áhugasama er hægt er að fá 10% afslátt af gistingu með morgunverði á Grand hótel eða öðrum Íslandshótelum í Reykjavík! Hafið samband við Farsýsluna fyrir frekari upplýsingar.

Lífshlaupið – verið með!

Lífshlaupið er farið af stað en ekki of seint að skrá sig. Minnum á að það er alls ekki mikilvægt að ná hreyfingu á hverjum degi til að vera með. Lífshlaupið er þó hvatning til að gera aðeins meira en í síðasta mánuði. Við erum í 42. sæti í dag í okkar hópi vinnustaða með 70-149 starfsmenn. Við hækkum með hverjum starfsmanni sem kemur með. Við viljum því endilega fá fleiri í hópinn. Endilega skráið ykkur í eitthvað af liðunum!

http://www.lifshlaupid.is