Gæðamoli vikunnar

Myndin sýnir vinnuumhverfi lögfræðinga Samgöngustofu. Töfrandi, myndu sum jafnvel segja.

,,Ný lög, hver er?” er eitthvað sem ég myndi kannski skrifa ef þetta væri vikulegt brandarahorn. Þetta er hins vegar háalvarlegur vikulegur gæðamoli þar sem við reynum að koma upplýsingum tengdum gæðamálum til skila til starfsfólks í fullri alvöru og án alls gríns.

Í gæðamola þessarar viku vil ég vekja athygli ykkar á vinnulýsingu 17 – VIN-0017. Í stuttu máli þá tilgreinir vinnulýsingin hvernig lögfræðingar Samgöngustofu vakta Stjórnartíðindi. Þar sjá lögfræðingar Samgöngustofu þegar ný lög eða reglur taka gildi og hafa eftir þörfum samband við sérfræðinga innanhúss ef þeir þurfa að vita af nýjum lögum/reglum. Einstaklega vel skrifuð vinnulýsing – við í gæðateyminu verðum stolt og klökk við að sjá samstarfsfólk okkar standa sig svona vel í gæðamálum.

Eins og ég segi þá er þetta vel skrifuð vinnulýsing og margt hægt að taka til fyrirmyndar við hana. Það er hins vegar ekki eina ástæðan fyrir því að vinnulýsingin er tekin sérstaklega fyrir. Ég vil sérstaklega vekja athygli á feitletraðri setningu úr vinnulýsingunni:

Vakin er sérstök athygli á að það er á ábyrgð deildarstjóra að koma upplýsingum um breytingar til starfsmanna sinna og sjá til þess að vinnugögn séu rétt uppfærð.

Það er sumsé ekki bara á ábyrgð lögfræðinganna að miðla upplýsingum um ný lög og reglur til starfsfólks. Deildarstjórar spila hér þátt en þeir fá pósta þegar ný lög og reglur sem þá varða eru tilkynnt í Stjórnartíðindum. Útsendingarlistinn (þau sem fá tilkynningar) er í viðhengi við gæðaskjalið en hann var síðast uppfærður í gær 19. mars.

2. sæti – markaðsvefur ársins á SVEF

Fyrir helgi fékk Samgöngustofa við önnur verðlaun fyrir www.uppabak.is í flokknum markaðsvefur ársins á SVEF verðlaununum sem veitt voru á föstudaginn. Við vorum enda kölluð upp á svið þar sem 2. sæti fékk sérstaka viðurkenningu í öllum flokkum. Í 1. sæti var onnujonuson.com sem Haraldur Þorleifsson, fyrrverandi eigandi Ueno, dýrasta vef- og hönnurfyrirtæki Íslandssögunnar, heldur úti. Það má segja að hann hafi verið að keppa í sinni eigin deild og því frábært að okkar vefur hafi verið bestur af öllum hinum.

Skjáskot af heimasíðunni

Fimmta græna skrefið

Starfsmaður Samgöngustofu tekur við veraldlega hluta fimmta skrefsins.

Í dag fékk Samgöngustofa fimmta græna skrefið vottað. Það var heldur betur kominn tími til enda rúm 2 ár síðan við fengum skref 2-4 vottuð. Þessu ber að fagna!

Fimmta skrefið er ólíkt fyrstu fjóru skrefunum. Í fyrstu fjórum skrefunum eru alls konar skilyrði listuð upp og stofnunum gert að uppfylla í það minnsta 90% þeirra. Fimmta skrefið er ólíkt því – það er svokallað umhverfisstjórnunarkerfi. 5. skrefið er byggt á ISO 14001 staðlinum sem er umhverfis- og öryggisstaðalll og er 5. skrefið í raun bara umhverfishluti ISO 14001. 5. skrefið er í grunninn rammi sem er ætlað að halda utan um kröfur og skilyrði fyrstu 4 skrefanna og passa að þau séu uppfyllt.

Á næstunni ætlum við að fagna vottun fimmta skrefsins saman. Jafnvel fá okkur smá köku og kaffi saman, hver veit? Nánari upplýsingar um fögnuðinn koma á næstunni.

Lúður!

Á föstudagskvöldið fór fram afhending íslensku auglýsingaverðlauna Ímark. Samgöngustofa og 66°Norður fengu Lúður fyrir herferðina Sjáumst í flokki veggspjalda og skilta. Við erum stolt af þessari viðurkenningu og kunnum hinni eins manns auglýsingastofu Bien miklar þakkir fyrir frábært samstarf.

Til hamingju við öll!


Hver verður nýi Björgvin? – Fréttir af ráðningarmálum

Birt hefur verið auglýsing þar sem starf fulltrúa í skráningum og þjónustu er auglýst til umsóknar.

Við leitum að nýjum Björgvini eins og sjá má á auglýsingu sem birtist á facebook síðu Samgöngustofu rétt í þessu.

Auglýsingin er birt á Starfatorgi, heimasíðu Samgöngustofu á island.is, á Alfreð og samfélagsmiðlum Samgöngustofu.