
Nú í vikunni mun nýr handbókarvefur opna á Ísland.is. Vefurinn var unnin af Stafrænu Íslandi með þarfir Samgöngustofu og annarra sambærilegra stofnana að leiðarljósi.
Handbækur eru opnar öllum en fyrst og fremst hugsaðar fyrir fagaðila sem vinna samkvæmt fyrirmælum stofnunarinnar. Þær eru því skrifaðar á fagmáli, sem er ólíkt því sem almennt gengur og gerist á vef Ísland.is.
Fyrstu bækurnar sem við setjum á nýja vefinn eru skoðunarhandbók ökutækja og handbók um skráningarreglur ökutækja. Skoðunarhandbókin flyst yfir á hinn nýja handbókarvef án efnislegra breytinga. Skráningareglur var líka að finna á eldri vef Samgöngustofu en þessi nýja handbók er hönnuð frá grunni og er verulega aukin og endurbætt með þarfir þeirra sem sinna skráningarstarfsemi eða skráningum í ökutækjaskrá af einhverju tagi, svo sem skoðunarstofum ökutækja og bílaumboðum.
Samgöngustofa hefur átt í mjög góðu samstarfi við Stafrænt Ísland um þetta verkefni og vinnur nú að gerð fleiri handbóka sem gefnar verða út á næstu mánuðum.

















