Jóladagatalið byrjar á morgun


Jóladagatal Samgöngustofu 2022 hefst 1. desember og það má finna á vefnum joladagatal.umferd.is. Um er að ræða 24 leikna þætti þar sem Hurðaskellir og Skjóða (og Grýla) ferðast um í fjársjóðsleit og lenda að sjálfsögðu í ýmsum ævintýrum þar sem þau neyðast til að læra á umferðina – og kenna áhorfendum sínum á hana í leiðinni. Hægt er að sjá kynningu á jóladagatalinu hér:

Í ár verður hægt að horfa á þættina á slóðinni www.samgongustofa.is/joladagatal en þar verður einnig hægt að taka þátt í getraun á hverjum degi frá 1. til 24. desember. Í lok hvers þáttar spyrja Hurðaskellir og Skjóða spurningar úr þættinum (endilega horfið til enda svo þið missið ekki af þeim spyrja spurningarinnar) en einnig er hægt að sjá spurninguna og svarmöguleikana undir þættinum.

Verða tveir heppnir þátttakendur dregnir út á hverjum degi og hljóta þeir veglegan endurskinsbakpoka í vinning. Þátttakendur geta merkt svör sín skóla og bekk og kemst bekkurinn þá í sérstakan pott. Í byrjun janúar verður svo einn bekkur dreginn út og hlýtur sá bekkur pizzuveislu og nokkur borðspil í verðlaun. Einnig fær umsjónarkennari þess bekkjar óvæntan jólaglaðning.

Við hvetjum foreldra til að sýna börnum sínum jóladagatalið og jafnvel ræða við þau um viðfangsefni þáttar dagsins. Endilega hjálpið okkur við að láta sem flesta vita svo að sem flest börn fái að njóta þessara skemmtilegu og gagnlegu þátta.

Malbikunarframkvæmdir við Ármúlann

Eins og væntanlega flest ykkar hafa tekið eftir þá er unnið að malbikun plansins Ármúlamegin. Í dag á að klára að gera klárt fyrir malbikun sem á samkvæmt áætlun að fara fram á morgun fimmtudag. Hugsanlega verður hægt að leggja aftur í stæðin á föstudag en ef ekki þá eftir helgi.

Þekkið þið mennina tvo sem eru við appelsínugula valtarann? Eitthvað sætt undir tönn í verðlaun fyrir þann sem sendir rétt svar fyrst(ur) á vefur@samgongustofa.is.





Mun Samgöngustofa hita upp fyrir Sufjan Stevens?


Þær eru yfirleitt frekar alvarlegar fréttirnar af okkur hjá Samgöngustofu enda snúast okkar daglegu störf ekki um eitthvað grín og glens. Í dag komumst við hinsvegar í liðinn Lífið hjá Fréttablaðinu og við gefum okkur að sjálfsögðu nokkur rokkstig fyrir þann árangur. Það sem skilar okkur svona ofarlega á Spotify eru náttúrulega vinirnir í Kátugötu sem við gefum út en bækurnar eru allar aðgengilegar á veitunni og greinilega mikið spilaðar fyrir börnin 🙂

Fréttin hljóðar svo:

„Samgöngustofa hitar upp fyrir Sufjan Stevens

Notendur tónlistarstreymisveitunnar Spotify bíða í ofvæni eftir Spotify Wrapped-listanum, árlegu tónlistaruppgjöri sem gefur notendum innsýn í sinn eigin tónlistarsmekk og hlustunarmynstur.

Nú á meðan beðið er hafa notendur þó fengið aðgang að eins konar forsmekk, en vefsíða sem kallast instafest.app gerir notendum kleift að sjá hvernig tónlistarhátíð, byggð á þeirra eigin hlustunarmynstri, myndi líta út. Niðurstaðan er plakat fyrir þriggja kvölda tónlistarhátíð í anda Airwaves eða Hróarskeldu.

Íslenskir foreldrar ungra barna hafa margir hverjir hlegið sig máttlausa yfir niðurstöðunum en algrímið tekur ekki tillit til þess að Samgöngustofa og Leikhópurinn Karíus eigi hugsanlega ekki heima, eða stingi í það minnsta í stúf, á dagskrá við hliðina á popprisunum Dua Lipa, Beck og The Weeknd. Í hjálögðu dæmi lokar Kristjana Skúladóttir lokakvöldinu með sögum fyrir yngstu börnin á borð við Geiturnar þrjár, að loknu teknókvöldi með Berlínarbandinu Moderat og Íslandsvinunum í Metronomy.

Þeir Spotify-notendur sem vilja prófa að vera með og sjá hvernig þeirra tónleikahátíð liti út, geta farið á vefsíðuna Instafest.app og skráð sig inn með Spotify-aðgangi.

Í framhaldinu birtast möguleikar, að unnið sé úr hlustunargögnum síðasta hálfa árs, síðasta heila árs eða frá stofnun aðgangsins. Leikurinn er ókeypis.“

Tónlistarhátíð Fúsans

Undirritaður prufaði síðuna góðu (instafest.app) og fékk eftirfarandi auglýsingaplaggat fyrir tónlitarhátíð sniðna að Spotifyspiluninni:

Þess ber að geta að aðgangur undirritaðs er notaður fyrir spilun allrar fjölskyldunar og skal ekki dæma tónlistarsmekkinn alfarið útfrá þessu. En þetta er þó nokkuð nærri lagi 🙂

Prufið endilega að gera ykkar plaggat.

Opið samráð um evrópska reglugerð um strangari losunarviðmið fyrir bifreiðar

Samkvæmt frétt á vef innviðaráðunteysins hefur Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hafið opið samráð um tillögu að reglugerð um Euro 7, um strangari losunarviðmið fyrir bifreiðar. Tillagan er hluti af umhverfisáætlun Evrópusambandsins; e. European Green Deal. Hún fjallar um strangari losunarviðmið fyrir allar bifreiðar sem brenna bensíni og dísil, allt frá fólksbílum til sendiferðabifreiða, flutningabifreiða og hópbifreiða.

Frestur til að koma að athugasemdum og sjónarmiðum er til og með 16. janúar 2023.

Föstudagslagið í boði Auðar


Það er hún Auður Lísa í NorType sem velur föstudagslagið að þessu sinni. Um val sitt segir hún:

Ég fékk áskorun frá Kristínu Björk um næsta föstudagslag og ákvað að velja lagið „Bohemian Rhapsody“ með Freddie Mercury. Þetta er lag sem þarf að hækka í botn og gleðjast að það er kominn föstudagur.
Ég skora á Jóhönnu Guðný Guðjónsdóttir í forskráningunum að velja næsta föstudagslag.



Jólapeysutíminn


Næstu föstudaga fram að jólum hvetjum við fólk til að klæðast jólalegum fatnaði og byrjum við núna föstudaginn 25. nóvember. Þetta geta verið jólapeysa, jólakjóll, jólabindi eða annað jólalegt sem ykkur dettur í hug. Sem sagt mikið jóleríjól framundan 🙂

Aðventudagskráin

Að venju verður bryddað upp á ýmsu skemmtilegu á aðventunni og hér að ofan má sjá dagskránna framundan. Nú þegar myrkrið læðist yfir og vetur konungur farinn að minna á sig er gott að hafa það kósí saman. Borða t.d. ristaðar möndulur og sötra heitt kakó 🙂

Jóladagatal Samgöngustofu

Jóladagatal Samgöngustofu verður á sínum stað á joladagatal.umferd.is. Að þessu sinni verður dagleg getraun 1.-24. desember og munu einn strákur og ein stelpa fá endurskinsbakpoka í vinning á hverjum degi.

Í byrjun næsta árs verður svo einn heppinn bekkur dreginn út og hlýtur hann pizzuveislu og borðspil í vinning. Endilega bendið börnum og barnabörnum ykkar á dagatalið og hvetjið þau til að taka þátt.

Skráningarsíða fyrir umráðamenn dróna

Mynd_droni-002-litil

Við höfum nú opnað skráningarsíðuna www.flydrone.is þar sem umráðendur dróna hafa þann kost að skrá sig, kynna sér námsefni og taka próf í undirflokki A1/A3 fyrir opna flokkinn. Eftir að hafa lokið prófi með viðunandi árangri mun viðkomandi fá útgefið hæfnisvottorð sem gildir í öllum aðildarríkjum Evrópusambandsins.

Skráningargjaldið er byggt á útseldri tímavinnu Samgöngustofu og er kr. 5.500 fyrir hverja skráningu.

Eftir skráningu er hægt að taka A1/A3 prófið án endurgjalds.

Minningardagurinn í gær

Gæti verið mynd af 15 manns og útivist

Minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa var í gær og haldin var athöfn við Landspítalann Fossvogi. Þar komu saman fjöldi viðbragðsaðilum ásamt gestum. Í erindum dagsins kom fram þakklæti til viðbragðsaðila fyrir þeirra störf á vettvangi slysa og við björgun fólks. Jafnframt eru haldnir fjöldi viðburða víða um land í tilefni dagsins.

Forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson lagði áherslu á ábyrgð okkar allra í umferðinni og boðaði síðan mínútu þögn til að heiðra minningu þeirra sem látist hafa í umferðinni. Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra talaði m.a. um mikilvægi þess að þeir sem verða valdir að umferðarslysum gleymist ekki við andlega aðhlynningu og hjálp í kjölfar slysa.

Að loknum erindum þeirra sagði Jónína Snorradóttur frá reynslu sinni en hún varð völd að banaslysi fyrir 30 árum síðan. Örstutta stund fór athygli hennar af veginum og varð þess valdandi að hún ók á lítinn dreng og móður hans en drengurinn lést í slysinu. Jónína sagði frá hvernig þessi hörmulega reynsla hefur markað líf hennar alla tíð síðan.

Athöfninni stýrði Bergþóra Þorkelsdóttir forstjóri Vegagerðarinnar.#minningardagur

Gæti verið mynd af 3 manns, people standing og útivist
Gæti verið mynd af 1 einstaklingur, standing og útivist

Gæti verið mynd af 1 einstaklingur
Gæti verið mynd af 1 einstaklingur, standing og útivist

Gæti verið mynd af 3 manns, people standing og útivist

Gæti verið mynd af 1 einstaklingur og body of water

Gæti verið mynd af 3 manns, people standing og body of water

Gæti verið mynd af 12 manns og útivist

Úttekt ESA og EMSA á búlk stöðvum

Hópurinn sem kom að úttektinni

Í síðust viku var sendinefnd frá ESA og EMSA á landinu til að taka út búlk stöðvar, þar sem lausum farmi er landað. Teknar voru út tvær stöðvar á Grundartanga, eina í Straumsvík og eina í Reyðarfirði.

Sendinefndin skoðaði hlítni Íslands við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2001/96/EB frá 4. desember 2001 um samræmdar kröfur og aðferðir að því er varðar örugga lestun og losun búlkaskipa, sem innleidd er á Íslandi með reglugerð 204/2004 um samræmdar kröfur og aðferðir að því er varðar örugga lestun og losun búlkaskipa.

Það var deild siglinga- og hafnaeftirlits sem hafði umsjón með úttektinni fyrir hönd Samgöngustofu.

Dirty Dozen breiðir úr sér

Dirty Dozen er fræðsluefni sem Samgöngustofa hefur útbúið og tiltekur þá mannlegu þætti sem leitt geta til slysa í flugi og flugtengdri starfsemi og leggur til ráð um hvernig hægt er að fyrirbyggja slys af þeirra völdum. EASA hefur hrósað Samgöngustofu mikið fyrir efnið og hafa bæði Lufthansa og Airbus Helicopters beðið okkur um að fá að nota efnið í sínu innra starfi. Nú í vikunni fengum við fyrirspurn frá frönskum svæfingalækni sem bað um að fá að nota efnið í starfsþjálfun skurðlækna, skurðhjúkrunarfræðinga og svæfingarlækna. Væntanlega mun sá franski uppfæra myndefnið svo það tengist skurðlækningum frekar en flugi en mannlegu brestirnir eru þeir sömu alls staðar og leiðir til að koma í veg fyrir að þessir brestir leiði til slysa eru að langmestu leyti þær sömu í skurðlækningum og í flugi.

Auk þessa hefur Samgöngustofa verið að útbúa sambærileg spjöld fyrir siglingar og sjómennsku og kallast það verkefni 12 hnútar. Í desember munum við svo gefa út dagatöl ársins 2023, bæði með Dirty Dozen spjöldunum fyrir flugið og 12 hnúta spjöldunum fyrir siglingar og sjómennsku.

Föstudagslagið í boði Kristínar

Abusos sexuales en su infancia, drogas y un talento descomunal: así fue la  vida de Whitney Houston | Cultura | EL PAÍS


Það er hún Kristín Þorsteinsdóttir sem velur föstudagslagið þessa vikuna. Um val sitt segir hún:

Mitt lag er með Whitney Houston – eða Whitney vinkonu eins og ég kýs að kalla hana – og er I wanna dance with somebody. Eitt af hennar frábæru lögum og við þurfum að halda minningu þessarar einstöku söngkonu á lofti.

Líf hennar var erfitt þrátt fyrir frægð og frama og hún fékk ekki að vera hún sjálf – eins og kemur glöggt fram í myndinni Can I be me?

Ég skora á Auði Lísu Antonsdóttur í NorType að velja næsta föstudagslag

Ást og friður
K.

Mætum á minningardaginn á sunnudag

Á sunnudaginn 20. nóvember er alþjóðlegur minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa. Líkt og undanfarin ár verður haldin athöfn kl. 14:00 við þyrlupallinn við Landspítalann Fossvogi. Þar munu forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson og Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra flytja stutt erindi. Að því loknu mun Jónína Snorradóttir sem varð völd að banaslysi segja sína sögu.

Starfsfólk Samgöngustofa hefur unnið kappsamlega að undirbúningi þessa dags og viljum við hvetja ykkur til að mæta sé þess kostur. Sjá má nánari upplýsingar á www.minningardagur.is.






IMO málþing um siglingar og starfsemi á heimskautasvæðum

Hópurinn sem mætti á málþingið, Kristín Helga um miðju (við súluna) og Sverrir lengst til hægri

Alþjóðasiglingamálastofnunin IMO og The Nautical Institute héldu sameiginlegt málþing um mál tengd siglingum og starfsemi á heimskautasvæðum (Polar Maritime Seminar) í höfuðstöðvum IMO dagana 31. október til 1. nóvember síðastliðinn. Á málþinginu var fjallað um þróun siglinga og tengdrar starfsemi á hafsvæðum norður- og suðurskautsins. Ísland var í pallborði um öryggi fiskiskipa á norðurslóðum og flutti erindi um góðan árangur í slysavörnum á sjó undanfarin ár.

Að málþinginu loknu sátu fulltrúar Íslands fund siglingaöryggisnefndar IMO, Maritime Safety Committee (MSC). Á fundinum voru m.a. teknar fyrir breytingar á alþjóðasamningum IMO um siglingaöryggi, STCW-samþykktarinnar um menntun og þjálfun sjómanna, málefni sjálfsiglandi skipa, sjórána, netöryggis, rafrænnar leiðsögu og uppfærslu á neyðarfjarskiptakerfinu GMDSS. Fundinn sóttu Kristín Helga Markúsdóttir framkvæmdastjóri stjórnsýslusviðs og Sverrir Konráðsson fagstjóri í siglingum á stjórnsýslusviði.

Sverrir og Kristín Helga sóttu þingið fyrir okkar hönd





Umfjöllun um siglingaöryggi í Kveik í gær

Eins og við sögðum í frétt hér á innri vefnum á mánudag var umfjöllun í Kveik í gær um skipulag strandsvæða og siglingaöryggi í tengslum við aukið sjókvíaeldi í fjörðum á Austurlandi og Vestfjörðum.

Fyrir áhugasama er hægt að nálgast þáttinn hér, umfjöllunin er í upphafi þáttar.

Málið varðar skipulag strandsvæða á Austfjörðum og Vestfjörðum og athugasemdir við tillögur þar um. Meðal annarra skilaði Samgöngustofa umsögn. Þar var vakin athygli á mikilvægi þess að við leyfisveitingar um sjókvíaeldi þyrfti fyrst og fremst að tryggja siglingaöryggi. Eftirspurn eftir svæði í flóum og fjörðum til matvælaframleiðslu fer vaxandi en pláss er takmörkuð auðlind. Sjófarendur eiga mikið undir greiðum og öruggum aðgangi að höfnum landsins og áríðandi að öruggar siglingaleiðir séu rétt merktar og án hindrana.

Sjá nánar:

Frétt á vef Skipulagsstofnunnar um hafsskipulag
Athugasemdir við strandsvæðisskipulag Vestfjarða 2022
Athugasemdir við strandsvæðisskipulag Austfjarða 2022






Úttekt ESA og EMSA á búlk stöðvum

Grundartangi - Hafnakort
Grundartangi

Í þessari viku, dagana14. til 18. nóvember, er á landinu sendinefnd frá ESA og EMSA til að taka út búlk stöðvar, þar sem lausum farmi er landað. Áætlað er að taka út tvær stöðvar á Grundartanga, eina í Straumsvík og eina í Reyðarfirði.

Sendinefndin mun skoða hlítni Íslands við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2001/96/EB frá 4. desember 2001 um samræmdar kröfur og aðferðir að því er varðar örugga lestun og losun búlkaskipa, sem innleidd er á Íslandi með reglugerð 204/2004 um samræmdar kröfur og aðferðir að því er varðar örugga lestun og losun búlkaskipa.

Það er deild siglinga- og hafnaeftirlits sem hefur umsjón með úttektinni fyrir hönd Samgöngustofu.

Skipulag strandsvæða – umfjöllun Kveiks

Eins og kom fram í föstudagspistli forstjóra þá hafði Kveikur (RÚV) samband við okkur vegna umfjöllunar um uppbyggingu á sjókvíaeldi sem þau voru að vinna að og óskuðu eftir viðtali í því sambandi og í tengslum við umsögn okkar. Að sjálfsögðu brugðumst við vel við því eins og meðfylgjandi mynd sýnir. Fyrirhugað er að sýna þáttinn á RÚV nú á þriðjudagskvöldið.

Málið varðar skipulag strandsvæða á Austfjörðum og Vestfjörðum og athugasemdir við tillögur þar um. Meðal annarra skilaði Samgöngustofa umsögn. Þar var vakin athygli á mikilvægi þess að við leyfisveitingar um sjókvíaeldi þyrfti fyrst og fremst að tryggja siglingaöryggi. Eftirspurn eftir svæði í flóum og fjörðum til matvælaframleiðslu fer vaxandi en pláss er takmörkuð auðlind. Sjófarendur eiga mikið undir greiðum og öruggum aðgangi að höfnum landsins og áríðandi að öruggar siglingaleiðir séu rétt merktar og án hindrana.

Sjá nánar:

Frétt á vef Skipulagsstofnunnar um hafsskipulag
Athugasemdir við strandsvæðisskipulag Vestfjarða 2022
Athugasemdir við strandsvæðisskipulag Austfjarða 2022





Jeppaferð Vatnadreka á Hellisheiði

Þann 15. október síðastliðinn fóru Vatnadrekar í langþráða jeppaferð. Þar sem liðið var langt inn í október var erfitt að skipuleggja ferðina með miklum fyrirvara, þar sem þurfti að athuga með veður og færð áður en farið var. Vegna veðurs og færis á hálendinu var ákveðið að fara styttri ferð og aðeins nær höfuðborgarsvæðinu. Föstudaginn 14. október var legið yfir kortum og leiðum þar sem óvissa var í veðurkortunum, spáð var vaxandi norðanátt þegar liði á daginn með tilheyrandi kulda og mögulegum skafrenning. Því var ákveðið að hittast um 9 leytið á Orku bílastæðinu við Vesturlandsveg og fara leið sem er stundum kölluð Þúsundvatnaleiðin. Þrátt fyrir að vindurinn blési kaldri norðanátt á okkur í ferðinni þá var gott skjól í heitum jeppunum og ekki væsti um okkur.

Leiðin

Beygt var af þjóðveginum við Litlu kaffistofuna og haldið norður fyrir Svínahraun í átt að Heillisheiðarvirkjun, en vegna lokunar á slóðum á virkjunarsvæðinu var tekin lengri leið upp á Hellisheiði framhjá skíðaskálanum í Hveradölum. Eftir að hafa skoðað virkjanasvæðið var haldið inn í Innstadal en þurftum að snúa við þegar vegaslóðinn var orðinn ansi torfærinn og grýttur. Það má segja að við höfum tekið hring í kringum Orustuhólshraun en við keyrðum niður Hengladalaá og komum aftur inn á þjóðveginn á miðri Hellisheiði.

Myndband:

Það var mat þeirra sem fóru í ferðina að þessi ferð hefði heppnast gríðarlega vel og ekki væri alltaf þörf að keyra langt frá höfuðborgarsvæðinu til þess að komast í alvöru jeppaferð (þó stutt væri). Þrátt fyrir að kuldi væri í loftinu var útsýnið upp á 10 eins og svo oft er málið þegar norðanvindur blæs á Höfuðborgarsvæðinu á haustin.

Þeir sem fóru í ferðina voru: Ólafur Arnar Gunnarsson á Grænum Nissan Patrol, Guðbjörn Jensson á Svörtum Hilux og Jón Hjalti Ásmundsson á Hvítum Mercedez Benz Sprinter. Farþegar voru Markús Benediktsson og Jón Ragnars.

Hafið samband við Bubba/Guðbjörn ef þið viljið taka þátt í ævintýrum framtíðar með Vatnadrekum. Öll velkomin!

Sjá myndir:

Föstudagslagið í boði Sigurjóns

Guns N' Roses - Everything That Hard Rock And Heavy Metal Should Be

Það er hann Sigurjón Hreinsson sem velur föstudagslagið að þessu sinni. Um val sitt segir Sigurjón:

Lagið sem ég valdi er November Rain með Guns N´ Roses, titill lagsins átti vel við veðuraðstæður á leið til vinnu einn morguninn. Þetta er ekki þekktasta lag með Axl Rose og félögum en líklega það best samda. Þar sem ég hef gaman af flottum gítarsólóum og riffum, standa hér upp úr tveir frábærlega spilaðir kaflar af meistara Slash.

Ég skora á Kristínu B. Þorsteinsdóttur að koma með næsta föstudagslag.