
Ný herðanuddtæki eru komin í hús



Rafræn próftaka í bóklegum prófum fyrir aukin ökuréttindi (ÖR-próf) hefst föstudaginn 31. janúar næstkomandi um allt land.
Prófinu hefur verið breytt á sambærilegan hátt og B-prófunum, þannig að í stað 30 spurninga með 3 svarmöguleikum verða 50 fullyrðingar sem svarað er rétt/rangt. Hver fullyrðing gefur eitt stig og próftaki þarf að fá 45 stig til að standast prófið.
Ekki verður lengur um A og B hluta að ræða heldur er prófið ein heild.
30 fullyrðingar tengjast umferðarmerkjum, forgangi, merkjum lögreglu o.s.frv. en 20 fullyrðingar eru almenns eðlis.
Prófin verða í boði á íslensku, ensku, pólsku og arabísku. Upplestur er í boði fyrir alla próftaka á öllum tungumálum með aðstoð vefþulu.
Lífshlaupið (https://lifshlaupid.is) hefst miðvikudaginn 5. febrúar og hvetjum við öll til að taka þátt og skrá sig til leiks. Samgöngustofa tekur að sjálfsögðu þátt í vinnustaðakeppninni og er eitt lið komið á lista. Hægt er að bæta sér í það eða stofna nýtt lið. https://lifshlaupid.is/lifshlaupid/leidbeiningar/.
Jákvæð og skemmtileg samkeppni innan stofnunar er alltaf hvetjandi.
Endilega kommentið hér fyrir neðan ef þið viljið vera með. Það er mín heitasta (kannski ekki heitasta en mjög heit) að við náum met-þátttöku í ár!
Hvað má skrá?
Alla miðlungserfiða eða erfiða hreyfingu sem stunduð er utan vinnutíma.
Til þess að fá einn dag skráðan þarf að hreyfa sig að lágmarki í 30 mínútur sem skipta má upp í nokkur skipti yfir daginn, t.d. 10 – 15 mínútur í senn.
Hvað má ekki skrá?
Ekki er heimilt að skrá þá hreyfingu sem fellst í starfi einstaklinga. Til dæmis ef einstaklingur vinnur við það að bera út póst 8 klukkustundir á dag er honum ekki heimilt að skrá 8 klukkustundur í göngu fyrir þann dag.
Framlag hvers og eins telur:
Í anda almenningsíþrótta er leikurinn byggður upp með það að markmiði að framlag hvers og eins telur, ef starfsmaður skráir einn dag þá telur það.
Allt er betra en ekkert!


Stefnumótunin okkar fyrir árin 2025-2029 hefur nú fengið sýnilegt form. Efnið á stefnuvefnum og hönnunarvefnum hefur verið uppfært í takt við niðurstöðu vinnunar sem kynnt var á stefnumótunarfundinum okkar í byrjun desember.
Við eigum síðar eftir að fá fleiri frábærar ljósmyndir inn á hönnunarvefinn. Jafnframt er stefnt að því að fjölga powerpoint-útfærslum.
Væri gaman að heyra hvað ykkur finnst!

Nú fá sjómenn stafrænt hnipp í pósthólfið sitt á Ísland.is. Í því felst að þremur mánuðum áður en gildistími námskeiða sjómanns (öryggisfræðsla smábáta og grunnöryggisfræðslunámskeið) rennur út fær sjómaður póst gegnum Ísland.is um að gera ráðstafanir.
Á næstu vikum verður hnippið nýtt fyrir fleiri þætti í þágu sjómanna, t.d. í tengslum við önnur námskeið hjá Slysavarnaskóla sjómanna, atvinnuskírteini, sjóferðabækur, sjómannalæknisvottorð og skemmtibátaskírteini.
Allir einstaklingar sem fá útgefna kennitölu og allir lögaðilar sem skráðir eru í fyrirtækjaskrá hafa aðgang að sínu eigin stafræna pósthólfi á Ísland.is. Hægt er að stilla pósthólfið þannig að það sendi hnipp til eiganda þess þegar póstur hefur borist.
Þrjú störf eru nú laus til umsóknar hjá Samgöngustofu, þekkir þú eða ert þú rétti einstaklingurinn?
Kynnið ykkur störfin nánar hér ásamt umsóknarfrest: https://island.is/starfatorg?q=samg%C3%B6ngustofa

Við minnum á að allar reykingar eru bannaðar á lóð Samgöngustofu. Þetta á við um bæði sígarettur og rafrettur.
Takk fyrir!

Vinsamlegast taktu þátt í þessari stuttu könnun hér: https://forms.office.com/e/9a5duKh4c5
Könnunin er opin út þriðjudaginn 29. janúar og er nafnlaus!

Til að nýta fundarherbergin okkar sem best mun ný virkni taka gildi næstkomandi mánudag:
Staðfesting á notkun:
Ljúka bókun fyrr ef fundur reynist styttri en áætlað var:
Bókanir til framtíðar:
Nýja fundarherbergið í matsalnum:
Þessar breytingar eru okkur öllum í hag með því að stytta þann tíma sem fundarherbergi eru frátekin en ónotuð. Förum vel með plássin okkar með því að bóka lítil herbergi fyrir litla fundi og stóru fundarherbergin helst aðeins fyrir stærri fundi.
Takk fyrir samvinnuna, áfram Ísland!


Síðastliðið vor kynnti Fjármála- og efnahagsráðuneytið breytta framkvæmd þjónustukannana fyrir stofnanir. Framkvæmdin býður upp á rauntímamælingu á þjónustu með það að markmiði að ná betur til notenda þjónustunnar. Kostir slíkra rauntímamælinga eru meðal annars þeir að notendur eru spurðir um upplifun sína stuttu eftir að þjónustan hefur verið veitt og því er upplifun notenda enn í fersku minni. Með rauntímamælingum gefst okkur tækifæri til að rýna niðurstöður í það minnsta mánaðarlega og því er hægt að sjá fljótlega hvort þjónusturof sé til staðar eftir mánuðum. Viðmótið er einfalt og við reiknum með fleiri svörum en áður.
Samgöngustofa hefur innleitt nokkrar dreifileiðir fyrir könnunina. Í afgreiðslu er að finna QR-kóða sem vísar á könnunina, bæði við setusvæðið og við afgreiðsluborð. Eins fá notendur sendan hlekk á könnunina þegar erindum er lokið á vefnum okkar, en nýjasta dreifileiðin er í gegnum spjallmennið. Þegar netspjalli er lokið fær notandi einnig sendan hlekk og beiðni um að svara könnuninni. Framkvæmdin gefur okkur tækifæri til að greina umbótatækifæri og bæta þjónustu okkar til framtíðar.

Milli jóla og nýárs hófum við herferð með Verði tryggingafélagi og Eimskip þar sem við bendum á hættuna á að sofna undir stýri. Rannsóknarnefnd samgönguslysa beindi þeim tilmælum til okkar að fjalla um þetta vandamál eftir það þau urðu vör við mikla aukningu á alvarlegum slysum vegna þessa.
Á næstu dögum munum við reyna að fá fjölmiðla til að fjalla um málefnið, undirstrika hversu hættuleg við erum ef við ökum of þreytt, tiltaka hverjir áhættuþættir og áhættuhópar eru og veita almenningi góð ráð um hvað við getum gert til að koma í veg fyrir að við sofnum við aksturinn.
Auglýsinguna í fullri lengd má sjá hér: https://www.youtube.com/watch?v=ZTC-RJ_5IKY og vefsíðu herferðarinnar má sjá hér: http://www.ekkigeispa.is.

Starfsfólk er hvatt til að fylgja Samgöngustofu á LinkedIn. Markmið okkar er að auglýsa fréttir, laus störf ofl. skemmtilegt úr starfsemi okkar á þessum skemmtilega miðli. Einnig gaman ef starfsfólk gæti bent vinum að fylgja okkur.

Í lok desember sl. var gengið frá tveimur ráðningum hjá Samgöngustofu;
Berglind Ýr Jónasdóttir var ráðin sem deildarstjóri flugreksturs- og skírteinadeildar. Berglindi hefur undanfarin tvö ár starfað sem sérfræðingur í flugrekstrar- og skírteinadeild Samgöngustofu. Þar áður starfaði hún sem sérfræðingur á flugrekstrarsviði hjá Wow air. Auk þess hefur hún starfað sem flugkostnaðarstjóri og flugfreyja hjá Wow air og Iceland Express. Berglind Ýr tók við starfinu 1. janúar sl.
Benedikt G. Waage var ráðinn sem sérfræðingu í deild siglinga- og hafnaeftirlits. Benedikt starfar í dag sem sérfræðingur í gæðadeild Nox Medical. Auk þess starfaði hann hjá Neytendastofu sem tæknilegur ábyrgðarmaður í mælifræði í 14 ár. Benedikt mun hefja störf 1. mars nk.

Frá 1. janúar 2025 er Ísland formlega orðið aðili að EUROCONTROL, hið 42. í röð Evrópuríkja.
EUROCONTROL er evrópsk milliríkjastofnun sem styður við flug og flugleiðsögu í Evrópu. Við Íslendingar höfum haft náið samstarf við stofnunina í meira en aldarfjórðung, í gegnum áheyrnaraðild. Aðildarviðræður stóðu yfir með hléum frá 2008, en haustið 2022 var undirritaður aðlögunarsamningur sem lagði grunninn að fullri aðild Íslands nú.
Samgöngustofa tekur þátt í starfinu fyrir Íslands hönd. Með aðildinni fáum við aðgang að kerfum, gagnabönkum, greiningarvinnu, tæknilausnum, þjálfun og stuðningi við ýmsa þætti flugmála sem snúa að rekstrarstjórnun flugumferðar, rekstri flugvalla, skilvirkni, öryggi og netvernd svo nokkuð sé nefnt.
Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu ferðakostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum erlendis á vegum ríkisins sem tók gildi frá 1.janúar 2025.
Uppfært excel skjal er komið inní CCQ.


Samgöngustefna Samgöngustofu er aðgengileg í CCQ, samgöngusamningurinn er viðhengi við stefnuna.
Starfsfólk sem hefur tök á að ferðast með vistvænum samgöngumáta til vinnu getur skrifað undir samgöngusamning, skilað honum til mannauðdeildar og fengið greiddan samgöngustyrk.
Samgöngustyrkur fyrir árið 2025 er 132.000 kr., 11.000 kr. á mánuði eða 5.500 kr. fyrir hálfan styrk
Uppfylla þarf eftirfarandi:
Að ferðast á rafmagnsbíl telst ekki til vistvænna ferðamáta skv. skattmati.
Athugið að endurnýja þarf alla samninga, þau sem ætla að hafa samgöngustyrk 2025 þurfa því að skila inn nýju skjali.
Heilsustyrkur
Upphæð heilsustyrks árið 2025 getur að hámarki orðið 81.000 kr.
Heilsustyrkur er greiddur með launagreiðslum, gegn innsendingu rafrænna reikninga úr viðurkenndu bókhaldskerfi með tölvupósti á laun@samgongustofa.is. Á reikningi skal koma fram nafn og kennitala starfsmanns og gildistími kortsins/námskeiðsins. Reikningur og gildistími korts/námskeiðs skal eiga við það ár sem sótt er um styrk fyrir. Ekki er hægt að greiða styrki aftur í tímann.
