Dagpeningar innanlands – breytt upphæð frá og með 1. október 2024

Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins. Ferðakostnaður innanlands er reiknaður út frá verðkönnun þar sem kannað er vænt verð á algengum gististöðum, á höfuðborgarsvæðinu og utan þess. Almennt er ferðakostnaði innanlands breytt tvisvar sinnum á ári, að vori og að hausti, til þess að endurspegla árstíðarsveiflu í kostnaði gistingar.

  1.  Gisting og fæði í einn sólarhring kr. 40.000
  2.  Gisting í einn sólarhring kr. 23.400
  3.  Fæði hvern heilan dag, minnst 10 tíma ferðalag kr. 16.600
  4.  Fæði í hálfan dag, minnst 6 tíma ferðalag kr. 8.300

Dagpeningar þessir gilda frá og með 1. október 2024. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 1/2024.

Athygli er vakin á að meginreglan er að greiða skal kostnað vegna ferðalaga innanlands, s.s. fargjöld, fæði og gistingu, eftir reikningi. Fæðiskostnaður er uppreiknaður miðað við breytingar á viðeigandi vísitölu sem útgefin er af Hagstofu Íslands.

Uppfært skjal má finna inní CCQ og heitir ”Ferðareikningur innanlands”.

Ný þjónustuhandbók

Í september var tekin í notkun ný þjónustuhandbók fyrir starfsfólk skráningar og þjónustudeildar. Þjónustuhandbókin er afrakstur rúmlega 6 mánaða vinnu verkefnahóps sem skipaður var áhugasömu starfsfólki deildarinnar. Hópurinn vann undir dyggri verkefnastjórn Unu Bjargar, verkefnastjóra umferðarsviðs.

Markmið verkefnisins var að búa til nýja þjónustuhandbók sem byggir á viðeigandi lögum og reglugerðum, efni skráningarhandbókar, uppfærðu efni úr eldri þjónustuhandbók deildarinnar sem og kröfum sem aðrar deildir og svið hafa sett fram til að tryggja gæði varðandi þjónustu stofnunarinnar.

Þjónustuhandbókar-verkefninu var skipt upp í fjóra fasa og hver fasi tók u.þ.b. einn og hálfan mánuð. Haldnir voru vikulegir stöðufundir þar sem verkefnahópurinn fór yfir hvað gekk vel og hvort það væru einhverjar hindranir í verkefninu sem þyrfti að leysa. Verkefnið var svo endurmetið eftir hvern fasa. Tímalínur verkefnahópsins stóðust og afrakstur verkefnisins er ný, stöðluð, gæðastýrð og handhæg þjónustuhandbók fyrir framlínu skráningar og þjónustudeildar. Hún mun tryggja samræmt verklag innan deildarinnar, góða þjálfun starfsfólks og stuðla að öflugra innra starfi.



Viðurkenning fyrir 9 stafræn skref

Samgöngustofa fékk í gær viðurkenningu frá Stafrænu Íslandi fyrir að hafa stigið öll níu stafrænu skrefin. Viðurkenningin var veitt á ráðstefnunni “Tengjum ríkið”. Höfum við þar með fengið formlega titilinn stafrænn opinber aðili. Samstarfið við Stafrænt Ísland hefur verið farsælt og hraðað þeirri stafrænu vegferð sem við erum á. Sú vegferð snýst fyrst og fremst um fólk og upplifun þess í samskiptum við stofnanir.

Samnýting hins opinbera á stafrænum innviðum er skilvirk aðferð við að hámarka gæði, spara tíma og fara vel með okkar sameiginlegu sjóði. Við erum stolt og glöð yfir því hvað okkur hefur gengið vel. Til hamingju við öll!


Öryggið í fyrsta sæti

Hinn árlegi alþjóðasiglingadagur er haldinn í dag. Þemað að þessu sinni er Navigating the future: safety first! Það gæti útlagst sem Öryggi í fyrsta sæti – til framtíðar! Dagurinn er haldinn til að vekja athygli á mikilvægi siglinga og áherslan minnir okkur á að öryggið skiptir öllu fyrir framtíð greinarinnar.

Siglingaöryggi hefur djúpstæð áhrif fyrir okkur sem fiskveiðiþjóð. Um miðja síðustu öld þótti nánast eðlilegt að missa jafnvel tugi manna í sjóslysum á hverju einasta ári. Með betra regluverki, menntun og þjálfun og tækniþróun, svo nokkuð sé nefnt, hefur orðið bylting í öryggisvitund sjófarenda. Undanfarna áratugi hafa þessir samverkandi þættir skilað stórstígum framförum í öryggismálum, svo dauðaslys á sjó eru sem betur fer orðin mjög fátíð.


Vel heppnað umferðarþing

Á föstudaginn stóðum við fyrir umferðarþingi. Yfirskriftin var: Saman í liði – Samspil ólíkra vegfarendahópa. Fulltrúar ólíkra vegfarendahópa komu saman og greindu frá ólíkum áskorunum. Mikið var lagt uppúr því að umræður dagsins væru lausnamiðaðar og til þess fallnar að auka skilning og samvinnu í umferðinni.

Ríkissáttasemjari var með hugvekju í upphafi dags og setti tóninn fyrir daginn. Bæði með lausnamiðaðri aðferðafræði sinni en svo tók hann einnig lagið með Svandísi Svavarsdóttur Innviðaráðherra, við góðar undirtektir gesta. Í lok dags stýrði hann svo pallborðsumræðum þar sem fulltrúar vegfarendahópanna áttu gott samtal um lærdóm dagsins og mikilvæg næstu skref.

Að sjálfsögðu voru svo vöfflur á boðstólum eins og venja er þegar vel gengur hjá ríkissáttasemjara.  

Hádegismatur 23-27 september

Nýr símsvari tekinn í notkun

Á dögunum var tekinn í notkun nýr símsvari á skiptiborðinu okkar. Hann beinir viðskiptavinum beint á hópa innan Samgöngustofu og kynnir símatíma ef þeir eru til staðar. Með þessu er tilgangurinn að
– fjölga þeim sem ná sambandi án þess að tala við skiptiborð
– stytta biðtíma
– minnka álag á starfsfólk á skiptiborði.

Árangur áfram, ekkert stopp!


Bendill á ytri vef

Undanfarna mánuði hefur umbótahópurinn unnið að því að koma ytra ábendingaformi á heimasíðu Samgöngustofu. Formið er núna komið inn á heimasíðuna undir heitinu “Sendu okkur ábendingu”:

Tilgangurinn er að auðvelda fólki að láta okkur vita af því sem vel er gert eða betur má fara. Einnig er grundvallaratriði að með þessu er tryggð viðeigandi úrvinnsla ábendingu sem berast til okkar.

Í gæðahandbók Samgöngustofu er fjallað um ábendingar, skráningu og úrvinnslu: 

Ábendingar (VER-1942) 

Ábendingar: skráning VIN-2042 

Ábendingar: móttaka og val á úrvinnsluaðila VIN-2043 

Ábendingar: úrvinnsla og eftirfylgni VIN-2044 




Samgönguvika hófst í dag

Margir góðir viðburðir verða í Evrópskri samgönguviku sem hefst mánudaginn 16. september og stendur til 22. september, en þema vikunnar að þessu sinni er Almannarými – virkir ferðamátar.

Samgöngustofa samgönguvika 2024

Frá árinu 2002 hafa borg og bæjarfélög á Íslandi tekið þátt í samstilltu átaki sveitarfélaga í Evrópu til að ýta undir sjálfbærar samgöngur. Umhverfis- orku og loftslagsráðuneytið hefur umsjón með vikunni á Íslandi.

Markmið vikunnar er að kynna íbúum í þéttbýli samgöngumáta sem eru allt í senn eru vistvænir, hagkvæmir og bæta heilsu fólks um leið og þeir hafa jákvæð áhrif á umhverfi og andrúmsloft.

Viðburðir verða haldnir á vegum félagasamtaka og sveitarfélaga, en nálgast má upplýsingar um dagskrá vikunnar á vef Stjórnarráðsins, á heimasíðum sveitarfélaganna, auk Facebook síðu vikunnar.

Samgöngustofa mun svo standa fyrir Umferðaþingi föstudaginn 20. september.

Vikan endar svo á Bíllausa deginum, 22. september, þegar almenningur er hvattur til þess að skilja bílinn eftir heima og til að auðvelda það verður frítt í landsbyggðarstrætó og í strætó á höfuðborgarsvæðinu.

Dagskrá Evrópskrar samgönguviku 2024

Hádegismatur 17-20.september

Aðalfundur Farsýslunnar og ný stjórn

Fimmtudaginn 12. september fór fram aðalfundur Farsýslunnar. Anney fór yfir skýrslu stjórnar fyrir starfsárið og lagði fram ársreikning til samþykktar. Ársreikningur var samþykktur og ný stjórn kjörin.

Ný stjórn Farsýslunnar fyrir starfsárið 2024-2025:

Rannveig Garðarsdóttir- formaður
Klara Kristjánsdóttir – gjaldkeri
Markús Benediktsson – innkaupastjóri
Guðbjörn Jensson
Hákon Varmar Önnuson
Ludvig Árni Guðmundsson
Vivek Sharma

Friðjón Axfjörð Árnason var kjörinn aðalbókari og Berglind Magnúsdóttir var kjörin endurskoðandi. Fráfarandi stjórn, aðalbókara og endurskoðanda þökkuð góð störf í þágu félagsins.  

Minnt er á facebook síðu Farsýslunnar

Stjórn Farsýslunnar 2024-2025:

F.v. Vivek, Ludvig, Klara, Markús, Guðbjörn, Rannveig. Á myndina vantar Hákon Varmar

Fráfarandi stjórn:

F.v. Bjarki, Una, Anney, Berglind, Markús, Rannveig

Í síðasta skiptið…

Í morgun var gamli milliveggurinn settur upp í síðasta skiptið. Eins og nýlega kom fram í pósti frá mannauðsstjóra, þá verður mötuneytið lokað 17. – 27. september. Þá verður settur upp nýr og betri milliveggur í matsal og gerðar breytingar á geymslu og uppþvottaaðstöðu. Meðan á þessu stendur verður hægt að nálgast hádegismat í miðrýmum á 2. og 3. hæð.


Fréttir af húsnæðismálum

Af húsnæðismálum er þetta helst: Í þessari viku er fyrsta vinnustofan þar sem fulltrúar sviða koma saman og vinna með arkitektunum Grétu og Grétari hjá Nordic. Er þetta hluti af þarfagreiningu og forhönnun í tengslum við endurbætur á húsnæðinu okkar. Seinni vinnustofan verður haldin 2. október nk. 

Fulltrúar sviða eru;
Skrifstofa forstjóra: Thelma Dögg og Hávarður
Stjórnsýsla: Egill Vignir, Berglind og Ísrael
Umferð: Sædís J. og Una Björg
Flug: Davíð Jón, Hlín og Þröstur
Siglingar: Bjarki og Ingólfur

Happdrætti á aðalfundi Farsýslunnar

Á aðalfundi Farsýslunnar 12. september nk. eiga skráðir félagar sem mæta möguleika á að vinna glæsilega vinninga.

Skráning hér: https://forms.office.com/e/BxGYyyTgAB

Gulur september

Gulur september er samvinnuverkefni stofnana og félagasamtaka sem vinna saman að geðrækt og sjálfsvígsforvörnum. Það er von undirbúningshópsins að gulur september, auki meðvitund fólks um mikilvægi geðræktar og sjálfsvígsforvarna, sé til merkis um kærleika, aðgát og umhyggju.

10. september er gulur dagur

Öll sem geta eru hvött til að taka þátt og sýna þannig stuðning við geðheilbrigði og sjálfsvígsforvarnir.

Á gulum degi klæðumst við gulu, skreytum með gulu, lýsum með gulu, borðum gular veitingar og tökum myndir af gulri stemmingu. Myndin getur verið sjálfa eða af vinum, fjölskyldu, samstarfsfólki, skreytingum eða gulum hlutum.

Til að vekja athygli sem víðast er lagt til að deila myndum á samfélagsmiðlum með myllumerkinu #gulurseptember.

Frekari upplýsingar um verkefnið “gulur september” er að finna á heimasíðunni gulur september.

Forvarnardagur í Borgarnesi

Samgöngustofa tók í dag þátt í forvarnardegi ungra ökumanna á Akranesi sem haldinn var í Menntaskóla Borgarfjarðar.

Dagurinn hófst þannig að allir nemendur skólans komu saman á sal og hlustuðu á þrjá fyrirlestra. Auk Samgöngustofu var Lögreglan og Neyðarlínan með erindi. Í lok dagsins var sviðsett slys eins og sjá má á myndunum sem fylgja fréttinni. Þar mátti sjá viðbragðsaðila bregðast við slysi, slökkviliðið t.d. klippti hurð af bíl til þess að ná í einstaklinga sem voru þar fastir inni. Það þurfti mikla samvinnu ólíkra viðbragðsaðila til að allt gengi vel upp sem það gerði. Það var einnig frábært að einn slökkviliðsmaðurinn var í krana og sá yfir allan vettvanginn og lýsti fyrir nemendum hvað væri í gangi. Eftir þetta fóru allir aftur inn og gafst nemendum tækifæri til að ræða við viðbragðsaðila og aðra sem stóðu að deginum.

Virkilega lærdómsríkur dagur að baki og ungmennin áhugasöm um þetta mikilvæga málefni.

Hér er hægt að sjá myndband frá deginum.

Starf fulltrúa í NorType auglýst

Staða fulltrúa í NorType er laust til umsóknar. NorType er samstarfsverkefni Íslands, Noregs, Svíþjóðar og Finnlands og varðar skráningar á tækniupplýsingum úr heildargerðarviðurkenningum ökutækja sem eru á ensku. Auglýsingin birtist á Starfatorgi, Alfreð og samfélagsmiðlum.

Fulltrúi í NorType | Ísland.is (island.is)

Golfmót Samgöngustofu

Í dag verður haldið golfmót Samgöngustofu – þetta er árlegt mót þar sem spilað er 4 manna texas scramble. Við spilum á Keili sem er af fagmönnum talinn einn flottasti golfvöllur landsins.

Búið er að skipa í liðin og er allt útlit fyrir mjög spennandi keppni í dag og ekki skemmir þetta veður sem við fáum. Erum þakklát fyrir góða þátttöku á mótinu í ár – þetta er kjörinn vettvangur til þess að pússa kylfurnar og æfa sveifluna. Umfram allt þá verður gleðin við völd í dag.



Tökum vel á móti nýju fólki

Í júlí og ágúst hófu fjórir nýir starfsmenn störf hjá Samgöngustofu.

Árni Elvar Emilsson starfar sem skipaeftirlitsmaður og er staðsettur á 3. hæð.

Dagný Björnsdóttir starfar sem fulltrúi í skráningar og þjónustudeild og er staðsett á 1. hæð. 

Guðrún Birna Jóhannsdóttir starfar sem sérfræðingur í deild stjórnunarkerfa og alþjóðamála og er staðsett á 3. hæð.

Gyða Marín Bjarnadóttir starfar sem sérfræðingur í mannauðsdeild og er staðsett á 2. hæð.

Tökum vel á móti þeim 🙂

Frá vinstri: Gyða, Árni, Guðrún, Dagný