Eins og áður segir er föstudagslagið komið í pásu yfir hátíðarnar. Áskorendaröðin heldur áfram þann 6. janúar 2023. En í tilefni áramótanna skellum við auðvitað í lagið Happy new year með ABBA. Það er fastur liður á mínu heimili að spila það á gamlárskvöld ásamt öðrum hefðbundnum áramótalögum.
Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla!
Textinn:
“Happy New Year”
No more champagne And the fireworks are through Here we are, me and you Feeling lost and feeling blue It’s the end of the party And the morning seems so grey So unlike yesterday Now’s the time for us to say…
Happy new year Happy new year May we all have a vision now and then Of a world where every neighbour is a friend Happy new year Happy new year May we all have our hopes, our will to try If we don’t we might as well lay down and die You and I
Sometimes I see How the brave new world arrives And I see how it thrives In the ashes of our lives Oh yes, man is a fool And he thinks he’ll be okay Dragging on, feet of clay Never knowing he’s astray Keeps on going anyway…
Happy new year Happy new year May we all have a vision now and then Of a world where every neighbour is a friend Happy new year Happy new year May we all have our hopes, our will to try If we don’t we might as well lay down and die You and I
Seems to me now That the dreams we had before Are all dead, nothing more Than confetti on the floor It’s the end of a decade In another ten years time Who can say what we’ll find What lies waiting down the line In the end of eighty-nine…
Happy new year Happy new year May we all have a vision now and then Of a world where every neighbour is a friend Happy new year Happy new year May we all have our hopes, our will to try If we don’t we might as well lay down and die You and I
Rétt fyrir jól var íslenskur texti settur á fræga fræðslumynd Háskólans í Cardiff í Wales um andlegt álag á sjó “Seafarers fatique”. Myndin er búin að vera aðgengileg á Youtube á ensku og að frumkvæði Samgöngustofu var ákveðið að höfðu samráði við Slysavarnaskóla sjómanna að láta útbúa íslenskan texta.
Í myndinni eru tekin viðtöl við sérfræðinga sem rannsakað hafa þessi mál og gefa þeir innsýn hvernig þessi mál hafa orðið meira áberandi um allan heim á síðustu árum.
Við gerum hlé á föstudagslaginu yfir hátíðarnar en næsti föstudagslagspistill mun birtast þann 6. janúar á næsta ári. Í tilefni jólanna er þó ástæða til að setja inn eins og eitt jólalag. Lagið á vel við á þessum tímum sem við lifum; mannskepnan virðist aldrei ætla að læra og enn erum við að horfa upp á óþarfa stríðsátök víða í heiminum m.a. í Úkraínu.
Lagið Happy xmas (war is over) gáfu þau John Lennon og Yoko Ono út árið 1971 og var það samið m.a. sem mótmæli gegn Víetnamstríðinu sem stóð yfir frá 1959 til 1975. Vonandi næst þessi boðskapur einhverntímann í gegn og við náum takmarkinu um frið á jörðu.
Við viljum minna á að heildarstefnu Samgöngustofu fyrir tímabilið 2022-2024 má nálgast á sérstökum stefnuvef stefna.samgongustofa.is. Stefnan er sá vegvísir til þeirrar framtíðar sem við viljum byggja á komandi árum og því ástæða til að kíkja reglulega á vefinn góða og rifja upp hvert við ætlum að stefna.
Nú er búið að setja inn flýtileið á innri vefinn á Stefnuvefinn:
Stefnuvefurinn er mikilvægur vettvangur til að hafa stefnuna aðgengilega fyrir okkur sem störfum eftir henni og ekki síður fyrir ytri samstarfsaðila sem tengjast starfi stofnunarinnar, en gott samstarf er lykilatriði væntinga og árangurs. Stefnuvefurinn er lifandi vefur þar sem m.a. má sjá helstu verkefni í vinnslu sem miða að því að tryggja framgang stefnunnar. Þar er einnig að finna siðareglur Samgöngustofu.
Nú er tólfta og síðasta rafræna veggspjaldið í röðinni 12 hnútar komið út. Umfjöllunarefnið er sú hætta sem stafað getur af skorti á nærgætni og virðingu fyrir samstarfsfólki. Umhyggja og kærleikur er jú boðskapur jólanna og því eiga þessi skilaboð vel við núna en reyndar eiga þau alltaf vel við.
Spjaldið ber yfirskriftina „Virðingarleysi fyrir félögum” og í fyrirbyggjandi aðgerðum er lögð áhersla á að fólk beri virðingu fyrir tilfinningum, skoðunum og persónugerð annarra. Sýni nýliðum, ungmennum og starfsfólki af erlendum uppruna sérstaka tillitsemi og uppræti allt baktal, lítillækkun, einelti og hverskonar ofbeldi og áreiti. Bent er á að með því að gera lítið úr öðrum er maður í raun að lítillækka sjálfan sig.
12 hnútar eru unnið með helstu sérfræðingum í öryggismálum sjómanna, sem eru skólastjóri, kennarar og leiðbeinendur Slysavarnaskóla sjómanna. Við viljum þakka sérstaklega fyrir stuðningur ykkur við þetta verkefni en dreifing og kynning á þessu er mjög mikilvæg og getur leitt til mun betri öryggismenningar á sjó.
Dagatal á íslensku og ensku
Vakin er sérstök athygli á því að nú í lok árs verða sent út dagatal sem gert hefur verið og byggir á spjöldunum 12. Því verður dreift til útgerðaraðila og helstu hagsmunaaðila í sjávarútvegi. Hægt verður að panta enska útgáfu dagatalsins ef þess er óskað með því að senda tölvupóst merktan „12 hnútar” á fraedsla@samgongustofa.is.
Frumvarp til laga um leigubifreiðaakstur var samþykkt á Alþingi föstudaginn 16. desember. Ný löggjöf um leigubifreiðar felur það í sér að endurskoða þarf stjórnvaldsfyrirmæli sem sett hafa verið á grunni gildandi laga en gera má ráð fyrir að þeirri vinnu verði lokið snemma á næsta ári. Þá þykir rétt að gefa aðilum sem starfa á leigubifreiðamarkaði ákveðinn aðlögunartíma áður en ný löggjöf öðlast gildi.
Stórum áfanga í stafvæðingu ökunáms er nú náð með virkjun stafrænnar ökunámsbókar Samgöngustofu. Með þessum áfanga gefst ökukennurum kostur á að staðfesta verklega ökutíma fyrir almenn ökuréttindi með rafrænum hætti í gegnum Ísland.is. Innan skamms munu því ökunemar geta fylgst með framvindu ökunáms á Mínum síðum á Ísland.is.
Þá styttist einnig í að ökunemar þurfi ekki að halda sérstaka ökunámsbók, sem á það til að týnast og gleymast, því hún verður brátt aðgengileg á stafrænu formi.
Með stafrænni ökunámsbók munu ökunemar hafa aðgang að grunnupplýsingum ökunáms ásamt yfirliti yfir verklega ökutíma, ökuskóla og ökupróf á einum stað. Grunnupplýsingar ökunáms eru til dæmis hvenær ökunám hófst, nafn ökukennara og fjöldi lokinna ökutíma.
Með stafrænu ökunámi er stefnt að því að einfalda ferlið frá umsókn til útgáfu ökuskírteinis til muna, fyrst og fremst fyrir ökunema en einnig þau sem að ökunámi koma.
Stafræn ökunámsbók er liður í stóru samstarfsverkefni innviðaráðuneytisins, Samgöngustofu, sýslumanna, Ríkislögreglustjóra og Stafræns Íslands um stafrænt ökunámsferli frá A-Ö. Fyrri áfangar í verkefninu voru stafvæðing á umsókn um námsheimild, staðfestingu á akstursmati og umsókn um fullnaðarskírteini en þær voru allar kynntar á árinu.
Fram undan er áframhaldandi vinna með ökuskólum til að gera þeim kleift að staðfesta með rafrænum hætti lok ökuskóla í stafræna ökunámsbók. Þá er einnig vinna í gangi við undirbúning fyrir rafræna próftöku fyrir bókleg ökupróf og stefnt að innleiðingu árið 2023.
Undanfarin ár hefur starfsfólk samskiptadeildar föndrað rafræn jólakort sem hvert og eitt getur sent sínum tengiliðum hjá Samgöngustofu. Að þessu sinni efndum við til skemmtilegrar samkeppni um ljósmynd til að nota á kortið.
Dómnefnd hefur nú lokið störfum og valdi þrjár myndir sem hægt er að velja úr til að senda samstarfsaðilum. Einar Magnús sérfræðingur á öryggis- og fræðsludeild hlýtur fyrsta sætið fyrir mynd sína af Selvogsvita. Einstaklega falleg mynd og ekki skemmir tengingin við hluta af starfsemi okkar þar sem vitar hafa jú vísað mörgum sjómönnunum leiðina heim í gegnum tíðina. Þeir Halldór deildarstjóri siglinga- og hafnaeftirlits og Pétur skipeftirlitsmaður deila svo 2.-3 sætinu og útbjuggum við einnig jólakort úr þeirra myndum. Kortin þrjú eru hér að neðan bæði á íslensku og ensku og hægt að vista þau og senda í tölvupósti:
Jólagjafir frá Samgöngustofu eru afhentar í dag, 15. desember. Sendum einnig af stað pakkana út á land í dag. Hægt er að skipta hjá Cintamani, það má skipta í eitthvað annað en peysu ef fólk vill. Skiptimiði er á hverri flík, dagsett 15. janúar en það er líka í góðu að skipta eftir þann tíma. Besta úrvalið er í Cintamani, Austurhrauni í Garðabæ.
Samgöngustofa hlaut jafnlaunavottun 2020 og gildir sú vottun til ársins 2023.
Nýlega var jafnlaunstefna Samgöngustofu uppfærð lítillega, nýjasta útgáfa er í Gæsku, kemur í CCQ eftir áramót. Einnig má nálgast jafnlaunastefnu á síðu um jafnlaunastjórnunarkerfið hér á innri vefnum sem og á ytri vef.
Fyrr í mánuðinum voru niðurstöður launagreiningar september mánaðar 2022 kynntar fyrir starfsfólki.
Innri úttekt er lokið, rýni stjórnenda fer fram í þessari viku og formleg úttekt jafnlaunastjórnunarkerfis 2022 fer fram 20. desember nk.
Upplýsingasíða um jafnlaunastjórnunarkerfi Samgöngustofu hér á innri vef hefur nú verið uppfærð og eru allar helstu upplýsingar um kerfið þar, t.d. jafnlaunastefnan, kynning launagreiningar til starfsfólks auk upplýsinga um fjölda og kynjahlutfall í starfaflokkum, viðmið og stigagjöf.
Á morgun, fimmtudaginn 15. desember, verður jóladagur Samgöngustofu. Starfsfólki verður boðið upp á jólamat í hádeginu og jólagjöfin verður afhent. Borðhald hefst kl. 11:30.
Því miður er ekki í boði að koma með gest í mat á þessum degi.
Við hvetjum allt starfsfólk til að mæta í einhverju jólalegu eða með jólahúfu og eiga saman notalega stund 🙂
Jón Gunnar flutti hátíðarræðu við útskrift ökukennara í Endurmenntun Háskóla Íslands föstudaginn 9. desember síðastliðinn. Þar talaði hann um hversu mikilvægt hlutverk ökukennarar skipa í því að undirbúa unga fólkið fyrir ábyrga þátttöku í umferðinni. Líkt og ökukennslan sjálf hefur umferðin breyst gríðarlega á tiltölulega stuttum tíma og mikilvægara en aldrei fyrr að þjóðin tileinki sér örugga umferðarmenningu.
23 nemendur útskrifuðust úr ökukennaranáminu til almennra réttinda. Námið er jafnan þrjú misseri og höfðu nemendur því upplifað tímana tvenna í gegnum Covid faraldurinn með öllum þeim óvæntu uppákomum sem áttu sér stað yfir tímabilið. En allt fór vel að lokum og fulltrúi nemenda, Jac Norðquist, minntist á það í ræðu sinni að hópurinn hefði bundist einstaklega nánum böndum á meðan á náminu stóð. Jac sagðist vera þakklátur fyrir að hafa kynnst öllu því frábæra fólki sem hann kynntist í náminu, bæði nemendum og kennurum og rifjaði upp skemmtilegar minningar úr vettvangsferðum og kennslustundum við mikla kátínu áheyrenda. Halla Jónsdóttir, endurmenntunarstjóri, hrósaði nemendum fyrir dug og þor í gegnum krefjandi tíma og Þuríður B. Ægisdóttir, formaður Ökukennarafélags Íslands, fór stuttlega yfir sögu ökukennslu á Íslandi og hvað hún hefur tekið miklum stökkbreytingum frá fyrri tímum.
Elín Ey spilaði ljúfa tóna af einstakri snilld á milli ræðuhalda og lét engan ósnortinn og að athöfn lokinni skáluðu nemendur með sínu nánasta fólki fyrir þessum merka áfanga. Starfsfólk Endurmenntunar þakkar nýútskrifuðum ökukennurum innilega til hamingju með útskriftina og óskar þeim alls hins besta í framtíðinni.
Þuríður B. Ægisdóttir (fyrrum starfsmaður Samgöngustofu) formaður Ökukennarafélags Íslands hélt ræðu.Halla Jónsdóttir Endurmenntunarstjóri Jac Norðquist fulltrúi nemenda hélt ræðu
Um helgina birtist viðtal við Þórhildi í Morgunblaðinu. Viðtalið er um ný heildarlög um áhafnir og má nálgast í PDF formi hér en það er einnig hér að neðan fyrir áhugasama:
10. desember 2022 | Blaðaukar | 960 orð | 3 myndir
Ný heildarlög um áhafnir öðlast gildi
Ný heildarlög um áhafnir skipa taka gildi um áramótin og eiga þau að skila skýrari regluverki og skilvirkara eftirliti. Þá verður Landhelgisgæslunni veitt heimild til að leggja á stjórnvaldssektir fyrir brot gegn ákvæðum laganna, en slíkt hefur ekki verið heimilt til þessa. Þó nokkrar breytingar eru gerðar á lögunum sem taka gildi 1. janúar næstkomandi, en er eitthvað sem útgerðir og sjófarendur þurfa sérstaklega að huga að á nýju ári?
Þó nokkrar breytingar eru gerðar á lögunum sem taka gildi 1. janúar næstkomandi, en er eitthvað sem útgerðir og sjófarendur þurfa sérstaklega að huga að á nýju ári?
„Með gildistökunni er verið að sameina og uppfæra eldri lög. Þótt nýju lögin taki gildi um áramótin eru breytingarnar ekki þess eðlis að þær hafi bein áhrif á útgerðir strax 1. janúar. Samgöngustofa tekur vissulega við hlutverki undanþágu- og mönnunarnefndar og einhverjar undanþágur sem áður þurfti að sækja um eru nú skrifaðar inn í lögin svo ekki mun lengur þurfa að sækja sérstaklega um þær. Þá er skilgreint hvaða skip þurfa matsvein eða bryta, miðað við hversu lengi skipið er úti, en ekki stærð þess líkt og áður var. Einnig eru innleiddar með lögunum stjórnvaldssektir fyrir brot á lögunum,“ svarar Þórhildur Elínardóttir, samskiptastjóri Samgöngustofu.
Nýjar valdheimildir
Undanþágunefnd og mönnunarnefnd hafa séð um að veita tilteknar undanþágur til starfa um borð í skipum og ákveða frávik frá mönnunarkröfum. Eins og fyrr segir færist þetta hlutverk til Samgöngustofu, en samhliða því er úrlausn brota einfölduð með því að Landhelgisgæslunni verður veitt heimild til að taka ákvarðanir um stjórnvaldssektir. Það kann að hljóma einkennilega að Landhelgisgæslan hafi ekki haft þessa heimild til að leggja á stjórnvaldssektir fyrir brot á lögum um áhafnir skipa, hvorki á fiskiskipum né farþega- og flutningaskipum.
Þórhildur útskýrir að Landhelgisgæslan hafi þurft að kæra öll mál til lögreglu. „Slíkt ferli hefur verið óþarflega þunglamalegt og dýr umsýsla að einföld brot þurfi alltaf að rata fyrir dóm. Með nýju lögunum fær Landhelgisgæslan heimild til að sekta aðila fyrir að stjórna skemmtibát án tilskilinna réttinda, fyrir að brjóta reglur um lögskráningu, svo sem að lögskrá rétt og vera með réttar tryggingar áður en siglt er af stað.
Þá verður Gæslunni líka heimilt að sekta skipstjóra fyrir að fela öðrum en þeim sem hefur réttindi til þess hlutverk um borð í skipi, til dæmis ábyrgð á siglingavakt í brú. Svo verður heimilt að sekta útgerð ef hún getur ekki framvísað heilbrigðisvottorði fyrir alla skipverja þegar innleiddar hafa verið viðeigandi heilbrigðiskröfur fyrir allar stöður. Svo mun Landhelgisgæslan geta sektað útgerð eða skipstjóra séu aðrir en lögmætir skírteinishafar ráðnir til starfa sem krefjast skírteina, að ekki sé til skrá yfir skipverja og stöður þeirra um borð í skipinu og að mönnun skipsins sé röng miðað við lög eða ákvörðun um mönnun í tilviki annarra skipa en fiskiskipa.“
Ná einnig til erlendra skipa
Nýju lögin gera ráð fyrir að það séu sömu mönnunarkröfur og áður fyrir fiskiskip en „skerpt er á því að það þarf stýrimann í öll skip sem er lengur úti en 14 tíma, enda er hámarksvinnutími sjómanna, sama hvaða stöðu þeir gegna, 14 tímar á sólarhring. Þetta hefur verið í lögum um langa hríð en ekki allir verið sammála um að það væri nægilega skýrt svo það var skrifað skýrar,“ segir Þórhildur.
Nýtt er í lögunum að þau taka jafnt til íslenskra skipa sem og erlendra sjófara sem hafa verið við Íslandsstrendur í 30 daga samfleytt eða 90 daga á ári. Eiga því ákvæði laganna einnig við um áhafnir erlendra þjónustuskipa laxeldis, dýpkunarskipa, dráttarskipa, farþegabáta og farþegaskipa í útsýnis- og skoðunarferðum.
Þórhildur segir þegar til staðar leiðir til að fylgjast með dvalartíma erlendra skipa á innsævi landsins. „Skip tilkynna stöðu sína reglulega til Vaktstöðvar siglinga og skulu almennt tilkynna stöðu sína með sjálfvirkum tilkynningarbúnaði. Þannig liggja fyrir rafrænar upplýsingar um skip á íslensku yfirráðasvæði á hverjum tíma. Samgöngustofa mun hafa eftirlit með þessum skipum líkt og almennt gengur og gerist með samstarfi við hafnaryfirvöld, Landhelgisgæsluna og önnur yfirvöld. Eftirlit Landhelgisgæslunnar á hafi úti er svo órjúfanlegur þáttur í þessu eftirliti þar sem líklegast væri að upp kæmist um brot.“
Fiskarar
Þórhildur upplýsir að sérstaklega hafi verið gætt að því að orðalag þeirra væri kynhlutlaust, en þó ekki þannig að það nái til tiltekinna hugtaka sem hafa unnið sér til hefðar að vera sérstaklega kynjuð. Frá áramótum verður því í lögunum notað hugtakið „fiskari“ í stað „fiskimanns“ eins og áður var, sem og „útgerð“ í stað „útgerðarmanns“.
Spurð hvort lögin séu til þess fallin að ýta undir bætta stöðu jafnréttismála á sjó, svarar Þórhildur: „Lögin ein og sér tryggja auðvitað ekki fullkominn árangur í jafnréttismálum á sjó, heldur þarf menningin og umhverfið að fylgja. Það er verkefni sem þarf stöðugt að þróa í öllum greinum og nær ekki eingöngu yfir jafnrétti kynjanna heldur bara almennt um gott vinnuumhverfi þar sem virðing er borin fyrir öllu fólki. Orðfæri nýju laganna er lítið en mikilvægt skref í þá átt.“
Helstu atriði nýju laganna
Auk allra íslenskra skipa ná lögin nú einnig til erlendra skipa sem notuð eru í atvinnuskyni á íslensku innsævi í 30 daga samfleytt, eða samtals 90 daga á ársgrundvelli. Það gildir t.a.m. um skírteinakröfur, lágmarksmönnun, vaktstöðu, vinnu- og hvíldartíma og vinnuskilyrði.
Undanþágunefnd og mönnunarnefnd skipa eru lagðar niður og Samgöngustofa tekur við hlutverki þeirra. Lagaskilyrði, um veitingu á undanþágum til þeirra sem ekki hafa tilskilin atvinnuréttindi til skip- og vélstjórnar, eru þrengd.
Ákvæði um að ávallt skuli vera tveir skipstjórnarmenn með tilskilin réttindi um borð smáskipa sem eru innan við 15 metra þegar útivist þeirra fer yfir 14 klukkustundir er skýrara og þrengra. Þó er gert ráð fyrir að þegar eigandi smáskips er lögskráður sem skipstjóri og smáskipavélavörður og er einn um borð, þurfi ekki stýrimann eða annan smáskipavélavörð þótt útivist fari fram yfir 14 klukkustundir.
Kröfum um að borð séu matsveinar eða brytar er breytt þannig að miðað verður við útivist skips en ekki stærð þess eins og gildandi lög kveða á um.
Dregið var úr karllægni í orðfæri laganna. Þannig er orðið „fiskari“ notað í stað „fiskimanns“ og „útgerð“ í stað „útgerðarmanns“.
Með lögunum fá Landhelgisgæsla Íslands og Samgöngustofa heimild til að leggja á stjórnvaldssektir fyrir brot á tilteknum ákvæðum laganna og reglum samkvæmt þeim.
Nú hafa rúmlega 70 svarað könnuninni um innri vefinn og Planið. Við viljum gjarnan ná hærra svarhlutfalli og biðjum ykkur sem eigið eftir að svara könnunni um að taka ykkur 2 mínútur í að svara henni. Lokað verður á könnunina eftir daginn í dag:
Dómnefndin lauk yfirferðinni í Winter Working-land en sá gangur hlaut verðlaun fyrir flokkinn „Stemning og mútur.“
Dómnefndin í jólaskreytingakeppni Samgönustofu lauk störfum í dag og var sigurvegarinn krýndur í morgunkaffinu. Hér er samantekt dómnefndar ásamt myndum og myndböndum neðar:
Níu gagnrýnir samstarfsfélagar lögðu af stað í könnunarleiðangur um ganga Samgöngustofu í gærmorgun…
Bjössi tekur út stjórnsýsluganginn
Þau trítluðu upp stigann í halarófu alla leið upp á þriðju hæð þar sem dásamlegur ilmur af jólaglögg og ristuðum möndlum lokkaði þau inn á stjórnsýsluganginn. Þar voru allir í jólapeysum, búið var að hengja upp skreytingar, greni og jólaseríur og mála jólatré á glugga. Áður en þau héldu för sinni áfram fengu þau ‚live‘ einkatónleika frá stjórnsýslukórnum – VÁ, þvílíkur klassi.
Stjórnsýslukórinn hélt tónleika fyrir dómnefndina
Leiðin lá næst inn á óhugnalegan gang, þar hafði sá græni stolið jólunum og skilið lítið eftir. Starfsmenn á þeim gangi voru greinilega mikið skelkaðir eftir þjófnaðinn svo gagnrýnu samstarfsfélagarnir drifu sig burt…
Grinchgangurinn frægi
Þeir trítluðu þá að síðasta ganginum þar sem stórt og mikið skilti blasti við þeim: „Velkomin í jólaskóg!“. Jólaálfarnir í skóginum voru fljótir að stökkva út og taka vel á móti gagnrýnu gestunum. Hver krókur og kimi var skreyttur og lýstur með fallegum seríum, meira að segja gólf og hurðar. Gestirnir gengu þá meðfram ekta grenitrjám og við enda gangsins tóku fleiri jólaálfar á móti þeim og buðu þeim sæti við arineld. Þar var þeim boðið upp á ljúffengt kaffi og vöfflur, smákökur og konfekt sem var mjög heppilegt því þá náðu þau almennilega að jafna sig eftir áfallið á ganginum áður…
Velkomin í jólaskóg!
Gagnrýnu samstarfsfélagarnir ákváðu þá að skella sér niður á aðra hæð. Þar birtist skyndilega Jóla-Thelma og DJ Fúsi sem sýndu þeim ganginn sinn og kynntu þau fyrir JólaSveinu sem gat reyndar ekkert spjallað því hún var á skíðum. DJ Fúsi hélt uppi stuðinu í stutta stund með jólalögum áður en gestirnir fengu kynningu á jólasafngripum gangsins. Fyrst var það rauður antík-plastpoki sem búið var að líma upp til sýnis og svo var blikkandi jólabindi hangandi á einni skrifstofuhurðinni. Gagnrýnu gestirnir héldu þá för sinni áfram…
Allt benti til þess að sá græni hafi líka stolið jólunum af flug-ganginum. Áður en hann náði öllu þá hefur Orri náð að hrekja hann burt því hann fékk að halda jólapeysunni sinni með ljósum og bjöllum. Gagnrýnu gestirnir drifu sig áfram…
Jólaálfarnir á 2. hæð tóku ákaflega vel á móti dómnefndinni
Þeir trítluðu inn síðasta ganginn á annarri hæðinni þar sem þeir fengu frábærar móttökur frá jólaálfum með bjöllur. Gangurinn var einstaklega vel skreyttur og við hverja skrifstofu og skrifborð var að sjá mynd af þeim álfum sem áttu þar heima. —- Á meðan gestirnir gæddu sér á veitingum hvöttu álfarnir alla til þess að lauma pakka undir jólatréið þeirra fyrir börn sem þurfa á hjálp okkar að halda.
Kristín Björg söng jólalag fyrir dómnefndina
Leiðin lá næst niður á fyrstu hæð. Á skjalaganginum tók Kristín Björg á móti gagnrýnu gestunum með skemmtilegum jólasöng og stuttu spjalli. Sá græni hafði ekki náð öllu frá þeim, það voru smá skreytingar eftir…
Frábærar móttökur í Winter Working-Land
Gagnrýnu samstarfsfélagarnir trítluðu þá að þjónustuversganginum þar sem þeim var hrósað hægri vinstri af Jóla-Hafsteini: „Vá, þið eruð fallegasti hópur sem ég hef séð!“. Hópurinn brosti út að eyrum þegar þau gengu inn að ganginum þar sem fínt og stórt skilti tók á móti þeim: „Winter Working-Land!“. Þar var allt skreytt með öllu mögulegu: jólaljósum, styttum, kertum, handgerðum snjókornum o.fl. Þeim var svo boðið sæti við arineld og fengu dásamlega ljúffenga köku, konfekt og heitt súkkulaði með sykurpúðum á glæsilegu kaffistelli sem er bara tekið út á jólunum. Nú voru gagnrýnu gestirnir orðnir ansi hamingjusamir eftir könnunarleiðangurinn en rúsínan í pylsuendanum var gjöfin sem þeir fengu frá vetrarlandinu: viskí, viskíglas og tveir galdradrykkir.
Þá var komið að erfiðri ákvörðun, hvernig á að vera hægt að velja besta ganginn? Það er ekki hægt… þess vegna var vinningunum fjölgað í fjóra!
Fyrir fallega hugsun til barna sem þurfa á hjálp okkar að halda um hátíðirnar hljóta álfarnir á annarri hæð viðurkenninguna „Fallegasta málefnið.“
Fyrir frábæran söng og góðar móttökur hlýtur stjórnsýslugangurinn viðurkenninguna „Klassísk fegurð.“
Fyrir snilldar-stemningu og gæða-mútur hlýtur Winter Working-land viðurkenninguna „Stemning og mútur.“
Fyrir hlýlegar móttökur, ljúffengar veitingar og framúrskarandi skreytingar hljóta álfarnir í jólaskóginum á þriðju hæð fyrstu verðlaun – fyrir jólalegasta ganginn!
Lag vikunnar er með uppáhalds söngkonunni minni PINK og lagið So what. Ég fór á tónleika með henni á Wembley 2019 og fæ enn gæsahúð að hugsa um það. Hún er stórkostlegur listamaður og tónleikarnir hennar eru þvílík sýning. Hún flaug m.a. yfir áhorfendur og leggur þvílikann metnað í tónleikana. Hún er einfaldlega GEGGJUÐ 🙂
Ég skora á Köru í þjónustudeildinni fyrir næstu viku.
Jólaálfarnir á gangi 2A hafa undir áhrifum álfsins hafið söfnun hjá starfsfólki Samgöngustofu til að fara með í hina árlegu pakkasöfnun Kringlunnar.
Álfarnir hvetja starfsfólk Samgöngustofu til að vera með og leggja ykkar að mörkum við að gleðja börn á Íslandi sem búa við bág kjör með því að gefa eina auka gjöf.
Hvað þarf að gera til að vera með?
Kaupa gjöf fyrir barn á aldrinum 0-18 ára
Pakka henni inn í jólapappír og koma með pakkann í Ármúla og leggja hann við tréð í miðrýminu á 2. hæð. Merkið pakkann með gjafamiða frá Kringlunni (gjafamiðar verða á 2. hæð) og setjið endurskinsmerki Samgöngustofu á pakkann.
Síðasti dagurinn til að vera með er 17. desember en þann dag mnum við fara með gjafirnar í Kringluna.
Það eru Fjölskylduhjálp Íslands, mæðrastyrksnefnd sem sjá um að koma gjöfunum í réttar hendur.
Alþjóðaflugmáladagurinn er í dag, 7. desember. Að þessu sinni er hann helgaður nýsköpun og þróun flugs á heimsvísu. Dagurinn er einn af árlegum alþjóðlegum dögum Sameinuðu þjóðanna (SÞ), sem opinberlega var lýst yfir af SÞ árið 1996 og haldinn hátíðlegur í öllum aðildarríkjum Sameinuðu þjóðanna.