Nú er allt að gerast í stóru jólaskreytingakeppninni og tvísýnt með hvernig leikar fara. Verður það gangur 2C með sinn sveiflandi jólaálf eða gangur 3C með sitt skemmtilega Grinch-þema? Allt mun þetta ráðast á fimmtudaginn kl. 10 þegar dómnefnd hefur störf og kveður svo upp úrskurð sinn. Það er enn tími til þess að gefa í og landa sigrinum.
Vefstjóri fór í leiðangur og tók stöðu á göngunum, myndbönd segja meira en 2000 orð:
Drög að frumvarpi að nýjum heildstæðum lögum um rekstur og uppbyggingu flugvalla og flugleiðsöguþjónustu hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Frumvarpið felur í sér innleiðingu varaflugvallargjalds. Hægt er að senda inn umsögn eða ábendingar til og með 5. desember nk.
Með frumvarpinu er lagt til að ný heildstæð lög komi í stað óskýrra og dreifðra lagaákvæða sem nú eru í gildi. Skort hefur í lögum skýr ákvæði um verkefni samgönguyfirvalda á þessu sviði og þau markmið sem stýra eiga för við framkvæmd þeirra. Meginmarkmiðið er að flugvellir landsins og þjónusta við flugumferð þjóni þörfum samfélagsins með skilvirkni, hagkvæmni og öryggi í fyrirrúmi í samræmi við stefnu stjórnvalda í samgöngumálum, eins og hún birtist m.a. í flugstefnu og samgönguáætlun.
Frumvarpið kynnir jafnframt til sögunnar varaflugvallargjald. Er því ætlað að bregðast við og tryggja fjármagn til uppbyggingar innviða á innanlandsflugvöllum. Markmiðið er að flugvellirnir geti sinnt hlutverki sínu sem mikilvægar gáttir inn í landið og varaflugvellir fyrir Keflavíkurflugvöll með fullnægjandi hætti. Til að svo megi vera er nauðsynlegt að ráðast í framkvæmdir á völlunum.
Í frumvarpinu er jafnframt kveðið á um brottfall úreltra laga og lagaákvæða á þessu sviði. Það mun því fela í sér töluverða einföldun regluverks og jafnframt draga fram verkefni stjórnvalda á þessu sviði með mun skýrari hætti en í gildandi lögum.
Það skal tekið fram að um almennar kröfur til starfrækslu flugvalla, rekstrarstjórnunar flugumferðar og veitingu flugleiðsöguþjónustu fer samkvæmt lögum um loftferðir, nr. 60/1998, og reglugerðum settum á grundvelli þeirra.
Í gær bauð Farsýslan upp á skemmtilega og notalega jólaskemmtun í Guðmundarlundi í Kópavogi. Skjóða mætti á staðinn og leiddi okkur í gegnum skóginn í lund þar sem hún og bróðir hennar buðu upp á skemmtilega jólasögu. Þegar jólasagan var búin læddust tveir dularfullir rauðklæddir menn í gegnum skóginn og slógust í för með Skjóðu og bróður hennar og fóru með gamanmál. Dansað var í kringum jólatré og helstu jólalögin tekin.
Að því loknu fórum við í halarófu að grillhúsi sem er innar í Guðmundarlundi þar sem boðið var upp á flatkökur með hengikjöti, kleinur og kakó. Kakóið var eitt það besta sem undirritaður hefur smakkað enda meistarakokkurinn Bjössi sem hafði lagað það fyrir okkur.
Það er ástæða til þess að þakka stjórn Farsýslunnar kærlega fyrir þessa virkilega vel heppnuðu jólastund. Góð gæðastund með samstarfsfólkinu, börnum og barnabörnum þeirra. Hér að neðan eru nokkrar myndir frá því í gær:
Skjóð tók á móti gestunum og leiddi okkur svo í gegnum skóginn þar sem hún sagði jólasögu. Anna Guðrún Sigfúsdóttir og Birta vinkona hennar eru með henni á myndinni.Hluti lögfræðideildarinnar ásamt afkvæmum
Skjóða leiddi okkur í gegnum skóginn inn í lund þar sem hún sagði okkur jólasögu við undirspil bróður síns
Jólasveinarnir mæta á svæðiðOg svo var dansað í kringum jólatré og helstu jólalögin tekinSædís Birta ásamt eiginmanni og dótturVefstjóri tekur sjálfu af sér og sinni heittelskuðuPósað með jólasveininumHeitt kakó Bjössakakó svíkur enganSjálfa með Skjóðu
Námskeið í trefjaplastsmíði verður haldið af Fjölbrautaskóla Norðurlands Vestra á vorönn 2023 í samstarfi við Samtök skipaiðnaðarins, Iðuna og Samgöngustofu. Í reglugerð nr. 592/1994 um smíði og búnað báta með mestu lengd allt að 15 metrum er kveðið á um að smíði og viðgerðir á skipum úr trefjaefni skuli unnin af vönum starfsmönnum undir stjórn verkstjóra sem hefur samþykki Samgöngustofu til að annast smíði og viðgerðir á bátum úr trefjaplasti.
Fjölbrautarskóli Norðurlands Vestra (FNV) mun á vorönn 2023 halda námskeið í trefjaplastsmíði, sem Samgöngustofa metur fullnægjandi til öðlast samþykki. Síðast var slíkt námskeið haldið árið 2012 af FNV sem liður í samstarfsverkefni sem styrkt var af Leonardo hluta menntaáætlunar Evrópusambandsins.
Samgöngustofa hvetur þau sem áhuga hafa á að starfa við plastbátasmíðar, að kynna sér námsskeiðið frekar.
Vakin er athygli á að umsóknarfrestur er til 15. desember 2022.
Undanfarin ár hafa Þórhildur og Sigfús föndrað rafræn jólakort sem hvert og eitt getur sent sínum tengiliðum hjá Samgöngustofu. Að þessu sinni ætlum við að efna til skemmtilegrar samkeppni um ljósmynd til að nota á kortið. Nú er tækifærið! Hvetjum við ykkur öll eindregið til að smella af þegar tilefni gefst eða draga upp jólalega ljósmynd úr albúminu ykkar sem þið eruð tilbúin til að leyfa okkur að nota í ár.
Sendið tillögur að jólakortamynd 2022 á samskipti@samgongustofa.is, í síðasta lagi föstudaginn 9. desember.
Vegleg súkkulaðiverðlaun verða veitt fyrir ljósmyndina sem notuð verður í jólakort Samgöngustofu J
Hér fyrir neðan má sjá dæmi um nokkur kort frá fyrri árum:
Óhætt að mæla með áhugaverðri frétt á mbl.is um starfslok Sigríðar Einarsdóttur sem var fyrsta íslenska konan sem var ráðin atvinnuflugmaður hjá Icelandair.
„Sigríður varð árið 1984 fyrst kvenna flugmaður hjá félaginu og árið 1996 varð hún flugstjóri. Í dag starfa tæplega 80 konur sem flugmenn og flugstjórar hjá Icelandair en voru fáar lengi framan af ferli Sigríðar. Konur sem í dag sinna þessum störfum hjá Icelandair stóðu heiðursvörð á Keflavíkurflugvelli þegar Sigríður kom inn í Leifsstöð ásamt sinni áhöfn, sem eingöngu var skipuð konum í Kaupmannahafnarfluginu.“
Stefna Samgöngustofu er að styðja og styrkja starfsfólk sem vill efla heilsu sína og vellíðan með ástundun líkamsþjálfunar. Starfsfólk getur árlega fengið styrk til iðkunar líkamsþjálfunar.
Hámarksfjárhæð er 55.000 kr. árið 2022.
Hámarksfjárhæð er ákvörðuð árlega og eru styrkir einungis greiddir út gegn afhendingu frumrits reiknings (ath. rafræna reikninga má senda beint á laun@samgongustofa.is). Á reikningi skal koma fram nafn og kennitala starfsmanns og gildistími kortsins/námskeiðsins. Styrkurinn er greiddur innan almanaksársins, reikningur og gildistími korts/námskeiðs skal eiga við það ár sem sótt er um styrk fyrir. Ekki er hægt að greiða styrki aftur í tímann.
Reikningum fyrir árið 2022 skal í síðasta lagi skila 15. desember.
Starfsfólkið á gangi 2A hefur orðið vart við mikinn álfagang undanfarna daga. „Það er ástand við erum öll í sjokki“ segir talsmaður 2A sem ekki vill koma fram undir nafni að svo stöddu.
„Eftir að við byrjuðum að skreyta fyrir jólin bar jólaálf að garði. Við sjáum honum bregða fyrir öðru hvoru. Hann hefur verið að taka snúrur úr sambandi og klárar allt nammið á ganginum. Til dæmis pakkaði hann inn allskonar dóti á skrifborðum starfsfólks á ganginum og tafði vinnu um nokkur skeið.“
Í gær lék álfurinn sér í ísskápnum og margir ráku upp stór augu þegar þeir opnuðu hann (sjá mynd neðar í þessari frétt). Nú er álfurinn búinn að koma sér vel fyrir við inngang 2A og um að gera að kíkja og heilsa upp á kauða. Það er aldrei að vita hverju hann tekur upp á næst. Verið því á varðbergi!
Að lokum: Ef þið sjáið honum bregða fyrir vinsamlegast ekki stíga ofan á hann. Hann gæti fjölgað sér mjög hratt!
Álfurinn á það til að pakka inn ólíklegustu hlutum, eitthvað að misskilja jólapakkahefðirnarEkki þægilegt að opna ísskápinn og matvælin hreinlega stara á mann…Heimili álfsins, farinn að þvo og hengja upp föt fyrir jólin, ákaflega kósí hjá honum…Dálítið manískur í innpakkningunni fyrir jólinGripinn glóðvolgur við að stela nammi úr skreytingum, passið ykkur á því!