Hlaðvarp í fríið

Auðnast heldur úti hlaðvarpi þar sem er farið um víðan völl í málefnum sem tengjast félagslegri, andlegri og líkamlegri heilsu.

Um hlaðvarpið:
Félagsleg, andleg og líkamleg heilsa, velsæld og vinnustaðir, heilbrigðisvísindi, meðferð og ráðgjöf – ekkert er Auðnast óviðkomandi í þessum málaflokkum. Í hverjum þætti fara Ragnhildur og Hrefna yfir viðfangsefni sem tengist þeirra daglegu störfum í Auðnast. Þær miðla út frá reynslu sinni og þekkingu en einnig fara þær yfir hvað vísindin hafa til málanna að leggja.
Í hlaðvarpsþáttunum taka þær Hrefna og Ragnhildur einnig á móti góðum gestum. Fagfólk sem sest í stólinn hjá þeim mun ræða um fjölbreytt málefni líðandi stundar, út frá fræðum og reynslu.  

Hlaðvarpið má finna á helstu hlaðvarpsveitum t.d. Spotify og Apple Podcast

Gleðilega hlustun! 🎧🌞

Fréttir af ráðningum

Það hefur verið mikið líf og fjör í ráðningum undanfarnar vikur.

Fyrr í mánuðinum gengum við frá ráðningu á sérfræðing í flugöryggi. Elísabet Eggertsdóttir var ráðin í stöðuna.
Elísabet hefur starfað undanfarin ár sem kennari við Menntaskólann við Sund. Þar áður starfaði hún sem flugmaður hjá Icelandair. Hún hóf störf fyrr í vikunni og bjóðum við hana velkomna til okkar.

Í síðustu viku var gengið frá ráðningu fulltrúa í NorType og var Lína María Ingólfsdóttir ráðin.
Lína María hefur starfað sem fulltrúi í þjónustudeild síðan s.l. haust. Hún mun hefja störf hjá NorType með haustinu.

Nú er hins vegar tækifæri til að sækja um starf sérfræðings í skipatæknideild en umsóknarfrestur er til 7. júlí n.k. Hægt er að kynna sér starfið hér: https://island.is/starfatorg/x-42648

Þá erum við í ráðningarferli á starfi sérfræðings í gagnavinnslu og greiningu og starfi sérfræðings í deild tæknimála og innviða.

Mannauðsdeildin orðin pappírslaus

Við í mannauðsdeildinni höfum stigið stórt skref og erum nú orðin alveg pappírslaus!
Frá síðustu áramótum hættum við að taka við gögnum á pappír og hefur það gengið mjög vel.
Þá hafa öll gögn hjá okkur verið skönnuð inn og vistuð rafrænt.
Þessi breyting er liður í sjálfvirknivæðingu ferla okkar og markmiða er skýrara verklag, hraðari þjónustu og betra utanumhald gagna.

Við hlökkum til að halda áfram að bæta þjónustuna og þökkum ykkur fyrir samstarfið!

Stafrænar skráningar ökutækja í mikilli sókn

Samgöngustofa hefur undanfarin misseri unnið markvisst að því að stafvæða skráningarferli ökutækja. Þetta nær til eigendaskipta, nýskráninga og afskráninga. Deild skráninga og þjónustu setti sér skýr markmið og gerði aðgerðaráætlun. Breytingarnar hafa þegar skilað verulegum árangri: Auknum hraða, bættu öryggi og betri þjónustu fyrir notendur. 

Stafræn eigendaskipti

Þann 1. maí sl. hættu skoðunarstöðvar að taka á móti eigendaskiptum á pappír að beiðni Samgöngustofu. viðskiptavinir eru þess í stað hvattir til að nýta stafræna þjónustu á Ísland.is. Eigendaskipti á pappír taka nú allt að viku, þar sem báðir aðilar fá tilkynningu í sitt stafræna pósthólf áður en breytingin er skráð, til að tryggja öryggi og koma í veg fyrir villur. Árangurinn hefur ekki látið á sér standa. Hlutfall stafrænna eigendaskipta fór úr 87,6% í apríl í 92,9% í maí, sem er tæplega 6% aukning á einum mánuði.

Stafrænar nýskráningar

Flest bílaumboð nota nú stafræna vefþjónustu til nýskráninga. Í apríl var ákveðið að loka svokallaðri biðskrá, sem byggði á pappírsgögnum og handvirkri vinnslu. Þetta hafði þegar veruleg áhrif. Hlutfall stafrænna nýskráninga hefur aukist um rúm 20% síðan í mars, fór úr 76,1% í mars í 94,8% í apríl og náði 97,4% í maí.

Stafrænar afskráningar

Við eigum í samstarfi við Stafrænt Ísland og Úrvinnslusjóð um að auka stafrænar afskráningar þegar ökutæki fara til úrvinnslu. Ferlið hefur verið betrumbætt ásamt því að gefa minni móttökuaðilum eins og sveitafélögum kleift að skila inn stafrænum skilavottorðum.



Nýtt starfsfólk

Við bjóðum velkomnar til starfa Guðrúnu Margréti, Heiði Magný og Vigdísi Höllu!

Guðrún Margrét starfar sem sérfræðingur í flugleiðsögu-, flugvalla- og flugverndardeild, hún er staðsett á gangi 2B.

Heiður Magný starfar sem sérfræðingur í flugrekstrar- og skírteinadeild, hún er staðsett á gangi 3B.

Vigdís Halla starfar sem sérfræðingur í fjármáladeild, hún er staðsett á gangi 2A.

Guðrún Margrét, Vigdís Halla og Heiður Magný.

Stofan – nýr vettvangur hjá mannauði

Við viljum kynna fyrir ykkur nýtt og öflugt verkfæri sem við í mannauði erum farin að nýta – 50Skills Journeys. Kerfið gerir okkur kleift að setja upp sjálfvirka ferla fyrir ýmis mál tengd mannauðsmálum og styður við bæði skilvirkni og betri upplifun starfsfólks.

Þetta er ekki enn eitt kerfið sem þarf að læra á – hlekkur á Journeys er nú þegar aðgengilegur á innra netinu undir „Stofan“. Ferlið er einfalt og aðgengilegt, og nú þegar er hægt að sækja um heilsustyrki og fylla út beiðni um samgöngusamning.

Hvað gerir Stofuna (Journeys) gagnlega?

  • Sjálfvirkni – ferlar keyra sig sjálfir og minnka handvirka vinnu
  • Skýrleiki – starfsfólk fær leiðsögn í gegnum hvert skref
  • Yfirsýn – stjórnendur og mannauður hafa betri innsýn og eftirfylgni

Við munum smám saman bæta fleiri ferlum við, bæði fyrir starfsfólk og stjórnendur. Ef þið hafið spurningar eða hugmyndir að ferlum sem gætu nýst í starfi mannauðs, endilega sendið okkur línu á mannaudur@samgongustofa.is.

Vettvangseftirlit með köfun

Köfun er vinsæl tómstundaiðja og mikilvæg atvinnugrein á Íslandi. Hún er einkum stunduð í ferðaþjónustu, til dæmis í Silfru á Þingvöllum, en einnig í tengslum við störf eins og mannvirkjagerð, laxeldi og aðrar framkvæmdir undir yfirborði vatns.

Til þess að tryggja öryggi notenda gilda skýrar reglur um köfun hér á landi. Þær má finna í lögum nr. 81/2018 og reglugerð nr. 535/2001. Þar er meðal annars kveðið á um kröfur til þeirra sem stunda köfun eða kenna hana, sem og til búnaðar sem notaður er við köfun.

Samgöngustofa og Landhelgisgæsla Íslands hafa samkvæmt lögum heimildir til að sinna eftirliti með köfunarstarfsemi. Nú hefur verið ákveðið að efla eftirlit á vettvangi á næstu mánuðum. Eftirlitið verður í höndum Landhelgisgæslunnar og hefst í Silfru á Þingvöllum. Í kjölfarið verður farið í skoðanir á öðrum stöðum þar sem köfun fer fram. Markmiðið er að stuðla að öruggri og faglegri köfunarþjónustu fyrir alla notendur.


Kyrrsetning vegna matarskorts

Laugardaginn 31.05.2025 framkvæmdi hafnarríkiseftirlitið skoðun um borð í flutningaskipinu Musky (IMO 9688855) í Straumsvík. Skipið siglir undir fána Marshall-eyja og hefur 19 manns í áhöfn.

Við skoðun kom í ljós að matvara um borð var nánast engin og það litla sem til var hafði að mestu skemmst. Áhöfnin hafði því orðið fyrir matarskorti síðustu 3-4 daga siglingarinnar frá Brasilíu til Íslands.

Vegna þessa ástands var skipið kyrrsett. Skilyrði fyrir afléttingu var að matvæli til hið minnsta 30 daga væru komin um borð.

Þessi gerð skipa er að mörgu frábrugðin öðrum, því oft liggur ekki fyrir hver næsta viðkomuhöfn verður.  Í þessu tilfelli er óljóst hvert skipið fer næst. Mögulegir áfangastaðir eru meðal annars Ástralía, sem krefst um 40 daga siglingar með a.m.k. einni viðkomu á leiðinni, eða Suður-Ameríka sem tekur um 25 daga.

Hlutverk hafnarríkiseftirlitsins er að tryggja öryggi m.a. skipsáhafna með því að kanna aðbúnað um borð. Að öðru leyti en þessu reyndist hann vera í lagi. Kyrrsetningu skipsins var aflétt í fyrradag, eftir að gengið hafði verið úr skugga um að vistir fyrir rúmlega mánuð væru komnar um borð.




Sumarfólkið okkar

Vorboðarnir ljúfu, sumarstarfsfólkið er nú byrjað mæta til starfa. Aðkoma þeirra er nauðsynleg til að við getum tekið orlof og hlaðið batteríin.

Á myndinni eru, frá vinstri:
Kristinn Örn Gunnarsson, skráningar og þjónusta
Jakub Buraczewski, skráningar og þjónusta
Stefán Fannar Hallgrímsson, skráningar og þjónusta
Daníel Karl Þrastarson, skráningar og þjónusta
Sara Stefánsdóttir, skráningar og þjónusta
Eva Gísladóttir, skráningar og þjónusta
Karen Eva Ómarsdóttir, skráningar og þjónusta

Auk þeirra er Alex Breki Elmarsson staðsettur á Ísafirði, siglingasvið

Bjóðum þau velkomin til starfa hjá Samgöngustofu!

Nýr samstarfssamningur um NorType-verkefnið undirritaður

Harpa Þ. Böðvarsdóttir, staðgengill forstjóra Samgöngustofu, undirritaði nýjan samstarfssamning um NorType verkefnið á stjórnarfundi NorType þann 20. maí sl. í Split í Króatíu. 

Markmiðið með undirrituninni var að endurnýja samkomulagið um þetta mikilvæga samstarfsverkefni en fyrri samningur var frá árinu 2009. Endurnýjunin markar mikilvægt skref í áframhaldandi þróun og samstarfi aðildarlanda.

NorType er norrænt samstarfsverkefni Íslands, Noregs, Svíþjóðar og Finnlands um gagnaöflun og miðlun upplýsinga sem tengjast heildargerðarviðurkenningum ökutækja. Verkefnið hefur það að markmiði að færa tæknigögn úr heildargerðarviðurkenningum yfir á tölvutækt form til að auka skilvirkni og öryggi í skráningu ökutækja.

Verkefnið hefur verið starfrækt á Íslandi frá árinu 2000 og fagnar því 25 ára afmæli á þessu ári.





Nýtt starfsfólk

Við bjóðum velkomin til starfa Bryndísi Blöndal og Yngva Hommersand.

Bryndís starfar sem sérfræðingur þjálfunar- og skírteinamála, hún er staðsett á gangi 3B.

Yngvi starfar sem lögfræðingur, hann er staðsettur á gangi 2C.

Hafnarríkiseftirlit í seglskipi


Í síðustu viku skoðaði hafnarríkiseftirlitið skólaskipið Danmark þar sem það lá við bryggju í Reykjavík en skipið gefur einstaka innsýn í fornar sjómennskuhefðir í verki.  Skipið, sem sjósett var árið 1933, er í eigu danska ríkisins og er starfrækt sem fljótandi skólastofa þar sem ungt fólk fær þjálfun í hefðbundnum siglingastörfum.

Að þessu sinni voru 80 nemendur um borð, aðallega frá Danmörku en einnig frá Hollandi, Þýskalandi og Svíþjóð auk þess sem einn Íslendingur var um borð.  Nemendur eru flestir á aldrinum 17 – 20 ára og um borð læra þau gamaldags siglingatækni, að setja upp segl, binda hnúta, beisla vindinn og tileinka sér almenn vinnubrögð um borð undir stjórn áhafnarinnar sem einnig sinnir almennri kennslu um allt sem viðkemur siglingum, þar með talið hafnarríkiseftirlit.

Lífið um borð í Danmark gefur nemendum góða verklega reynslu af siglingum.  Nemendur sofa í hengirúmum, hjálpa til við eldamennsku og klifra jafnvel upp í hæstu möstur sem hluta af þjálfuninni.  Heimsóknin var einstakt tækifæri til að sjá hvernig ungt fólk fær þjálfun í hefðbundnum siglingum.




 

Flugdagurinn um helgina

Flugrekstrar- og skírteinadeild Samgöngustofu tók virkan þátt í Flugdeginum sem haldinn var á Reykjavíkurflugvelli laugardaginn 31. maí. Við vorum með kynningarbás þar sem fjöldi gesta leit við og við áttum góð samtöl um ýmis málefni sem tengjast málaflokknum.

Hátíðin fór vel fram í blíðskaparveðri og mikil ánægja var með dagskrána, sýnt var allt frá litlum þyrilflugum og upp í stórar þotur. Eyjólfur Ármannsson, nýr innviðaráðherra, setti hátíðina formlega og lagði í ræðu sinni áherslu á mikilvægi grósku í íslenskum flugsamgöngum og hlutverk Reykjavíkurflugvallar í því samhengi.

Við þökkum öllum sem lögðu leið sína til okkar og hlökkum til að taka þátt að nýju á næsta ári!


Dagpeningar innanlands – breytt upphæð frá og með 1.júní 2025

Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins. Ferðakostnaður innanlands er reiknaður út frá verðkönnun þar sem kannað er vænt verð á algengum gististöðum, á höfuðborgarsvæðinu og utan þess. Almennt er ferðakostnaði innanlands breytt tvisvar sinnum á ári, að vori og að hausti, til þess að endurspegla árstíðarsveiflu í kostnaði gistingar.

  1. Gisting og fæði í einn sólarhring kr. 55.900
  2. Gisting í einn sólarhring kr. 38.600
  3. Fæði hvern heilan dag, minnst 10 tíma ferðalag kr. 17.300
  4. Fæði í hálfan dag, minnst 6 tíma ferðalag kr. 8.650

Dagpeningar þessir gilda frá og með 1. júní 2025. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 2/2024.

Athygli er vakin á að meginreglan er að greiða skal kostnað vegna ferðalaga innanlands, s.s. fargjöld, fæði og gistingu, eftir reikningi. Fæðiskostnaður er uppreiknaður miðað við breytingar á viðeigandi vísitölu sem útgefin er af Hagstofu Íslands.

Uppfært skjal má finna inní CCQ og heitir ,,Ferðareikningur innanlands”