Samgöngustofa var með ,,halda á lofti” keppni í matsalnum frá fyrsta leik Íslands til dagsins í dag. Uppi stóðu 2 sigurvegarar, Erla Vinsý og Tómas Bent. Fengu þau í verðlaun ,,Fyrir Ísland” fótbolta. Óskum þeim innilega til hamingju með árangurinn 🎉
Tökurnar sem farið var í á Keflavíkurflugvelli eru hluti af ljósmyndarverkefni Samgöngustofu. Markmið verkefnisins er að byggja upp ljósmyndabanka með myndum sem tengjast starfsemi stofnunarinnar. Starfsfólk Samgöngustofu getur nýtt þessar myndir í kynningarstarfi, á samfélagsmiðlum og annars staðar þar sem þörf er á faglegum ljósmyndum af starfseminni. Við þökkum starfsfólki sem tók þátt í þessu verkefni enn og aftur fyrir þátttökuna, virkilega skemmtileg stemming myndaðist í kringum það. Myndbönd voru tekin af stemmingunni á bakvið tjöldin í tökunum og fyrsta myndbandið er komið inn á samfélagsmiðlana okkar.
Nýjustu tölur sýna að uppfletting í ökutækjaskrá Samgöngustofu var næstvinsælasta þjónusta Ísland.is í júní, með 45.173 heimsóknir. Aðeins þjónusta Tryggingastofnunar fékk fleiri heimsóknir, eða tæplega 56 þúsund.
Í maí fór metfjöldi umsókna í gegnum umsóknakerfi Ísland.is. Þá voru tilkynningar um eigendaskipti ökutækja alls 7.865. Var fjöldi þeirra í öðru sæti á eftir umsóknum um evrópska sjúkratryggingakortið.
Á vef Stafræns Íslands má sjá reiknivél sem notuð er í tilraun til að meta ávinning stafrænna ferla. Hann er margvíslegur, bæði fjárhagslegur og samfélagslegur. Hægt er að setja upp tilbúin dæmi og fá áætlun um hversu mikið stafræna vegferðin sparar í tíma, peningum og umhverfisáhrifum.
Nýlega skilaði starfshópur tillögum að fyrstu heildarstefnu stjórnvalda um virka ferðamáta og smáfarartæki, ásamt ítarlegri aðgerðaáætlun. Þar er meðal annars horft til gangandi, hjólandi og notenda smáfarartækja, með það að markmiði að bæta öryggi, aðgengi og stuðla að meiri skilningi milli vegfarenda. Starfshópinn skipaði fjölbreyttur hópur sérfræðinga, þar á meðal Gunnar Geir Gunnarsson hjá Samgöngustofu.
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra tók við skýrslunni og sagði tillögurnar verða hryggjarstykkið í nýrri stefnu sem kynnt verður formlega í haust samhliða samgönguáætlun til næstu fimmtán ára.
Í skýrslu starfshópsins er sett fram sú framtíðarsýn að Ísland sé samfélag sem styður fjölbreytta ferðamáta. Öruggir innviðir fyrir gangandi, hjólandi og smáfarartæki stuðla að raunhæfu vali á milli fjölbreyttra samgöngukosta. Umhverfi virkra ferðamáta er aðlaðandi og aðgengilegt, allt árið um kring.
Meginmarkmið sem varða leiðina að þessari framtíðarsýn verði öryggi,aðgengi og skilningur.
Fimmtán aðgerðir eru lagðar til sem miða m.a. að því að bæta innviði, efla vetrarþjónustu, samræma skipulag og styðja við fræðslu og upplýsingagjöf. Lögð er áhersla á samstarf ríkis og sveitarfélaga og skýra ábyrgðarskiptingu.
Nú hefur verið gefin út uppfærð gæðastefna Samgöngustofu sem nær til alls starfsfólks. Hún endurspeglar framtíðarsýn okkar um að tryggja faglega starfsemi, skýra ábyrgð og traust samskipti.
Stefnan leggur áherslu á að skapa vinnuumhverfi þar sem gæði eru sjálfsagður hluti af daglegu starfi, starfsfólk ber sameiginlega ábyrgð og veitir samfélaginu góða og skilvirka þjónustu. Hún byggir áfram á viðurkenndum stöðlum og lagalegum kröfum. Með henni er lagður grunnur að skipulegri eftirfylgni, rýni og umbótum til að bæta árangur og auka ánægju.