
Gleðileg jól🎄



Þann 1. janúar 2025 tekur gildi ný gjaldskrá Samgöngustofu. Verður hún birt á vef stjórnarráðsins á næstu dögum. Almenn hækkun gjaldskrárliða nemur 3% og er ætlað að mæta hækkunum á rekstrarkostnaði stofnunarinnar milli ára. Áhersla er lögð á að gjaldskrá endurspegli raunkostnað stofnunarinnar hverju sinni.



Þau tíðindi hafa orðið, að fyrstu rafrænu umsóknirnar um flugstarfaskírteini eru orðnar virkar. Nú er hægt að sækja rafrænt um endurútgáfu skírteina fyrir atvinnuflugmenn (ATPL/CPL) og einkaflugmenn (PPL/LAPL) á vefnum okkar, með beinni tengingu við One skjalakerfið.
Þar með verður ekki lengur hægt að koma landleiðina með þessar umsóknir á pappír, sem eru tímabærar framfarir. Frábært skref!


Fyrir rúmu ári hóf Samgöngustofa kynningu á ábendingakerfinu Bendli í kjölfar þess að umbótahópur hafði verið skipaður til að fylgja verkefninu úr hlaði og koma umbótaverkefnum í farveg. Undirtektir voru góðar og enn er unnið að því að þróa verklagið. Starfsfólk hefur spurt hvað verði um ábendingarnar og hvort tekið sé mark á þeim. Stutta svarið er já, en eins og ávallt gildir um innleiðingu þá er það þolgæðið sem skiptir máli. Skemmst er frá því að segja að á þessu ári hafa borist 73 ábendingar og þar af 13 frá ytri aðilum.
Á meðal þeirra ábendinga sem hafa verið innleiddar eru meðal annars að bæta við kennslu á hönnunarstaðli Samgöngustofu og að kynna betur undirskriftir í tölvupósti við nýliðakynningu. Önnur er svo að hafa minna áberandi merkingar á völdum bílum Samgöngustofu vegna ótilkynnts eftirlits og brugðist hefur verið við báðum þessum ábendingum. Dæmi um stærri tillögur sem hafa komið í gegnum ábendingakerfið er meðal annars að þverfaglegir verkefnahópar verði settir á laggirnar og að skilvirkari stýring verkefna verði innleidd.
Starf umbótahópsins, uppbygging á virku stjórnunarkerfi og stöðugar umbætur sem kynntar voru á stefnumótunarfundinum á Nordica í vikunni eru staðfesting á að ekki verður staðar numið. Við ætlum að halda áfram í að gera vinnustaðinn enn betri og ábendingakerfið Bendill er öflugt verkfæri í þeirri vegferð.

Sjöundi desember 2024 markar 80 ára afmæli undirritunar Chicago-samningsins um alþjóðaflug, sem fram fór í Chicago í Bandaríkjunum. Í átta áratugi hefur þessi tímamótasamningur verið grundvöllur þróunar á alþjóðaflugi til hagsbóta fyrir þjóðir heims. Til að fagna þessum mikilvæga áfanga skipulagði Alþjóðaflugmálastofnunin (ICAO) viðburði dagana 4. og 5. desember á Hilton Chicago hótelinu, áður þekkt sem The Stevens Hotel, þar sem samningurinn var samþykktur og stofnunin á uppruna sinn. Þrátt fyrir að þessi viðburður gefi tækifæri til að líta til baka og meta mikilvæga áfangasigra síðustu áttatíu ára, þá er enn mikilvægara að hann skapi vettvang fyrir umræðu allra hagsmunaaðila um hvernig ICAO mun áfram styðja við þróun flugsins á komandi áratugum.
Í bókinni “Saga flugvalla og flugleiðsögu á Íslandi” eftir Arnþór Gunnarsson er eftirfarandi texti: Á árunum 1942–1944 hófu stjórnmála- og embættismenn markvissan undirbúning að almennu alþjóðaflugi að styrjöldinni lokinni. Mest var unnið að þessum málum í Bandaríkjunum, Bretlandi og Kanada. Árið 1944 tóku Bandaríkin af skarið og buðu 53 ríkjum ásamt fulltrúum tveggja annarra til alþjóðlegrar flugmálaráðstefnu í Chicago. Þáðu 52 boðið. Var ráðstefnan haldin á gömlu og virðulegu hóteli, Stevens Hotel, og hófst 1. nóvember 1944. Ætlunin var að ráðstefnan stæði í 25 daga en áður en yfir lauk urðu dagarnir 37.
Það er ótrúlegt að Ísland hafi tekið þátt og gerst í kjölfarið stofnaðili að Alþjóðaflugmálastofnuninni á þessum tímum stríðs og umróta, sama ár og þjóðin hlaut fullveldi. Síðan þá hafa ýmsir samningar verið staðfestir og má þar sérstaklega nefna samninga um stjórnun flugleiðsögu yfir Atlandshafinu sem enn eru í gildi. Valdís Ásta Aðalsteinsdóttir fulltrúi Íslands hjá ICAO tók þátt í viðburðinum í Chicago fyrir Íslands hönd.


Ísland hefur innleitt nýjar reglur Evrópusambandsins um drónaflug með útgáfu reglugerðar nr. 1360/2024. Reglurnar skipta starfsemi dróna í þrjá flokka:
Allir drónanotendur þurfa nú að skrá sig á www.flydrone.is. Flugmenn með dróna yfir 250 g þurfa að taka próf og fá hæfnivottorð.
Markmið nýju reglnanna er aukið öryggi og samræmi við reglur annarra Evrópuþjóða (reglugerðir Evrópusambandsins nr. 2019/945 og 2019/947).
Frekari upplýsingar eru á ytri vefnum okkar.


Ársskýrsla Samgöngustofu fyrir árið 2023 hefur loks litið dagsins ljós. Þar má lesa um starfsemi okkar og sum þeirra verkefna sem unnin voru á síðasta ári og gott getur verið að blaða í gegnum. Ekki síst eru í ársskýrslunni nokkrar af nýju ljósmyndunum okkar, þar sem starfsfólk situr fyrir.