Uppfærð gjaldskrá

Þann 1. janúar 2025 tekur gildi ný gjaldskrá Samgöngustofu. Verður hún birt á vef stjórnarráðsins á næstu dögum.  Almenn hækkun gjaldskrárliða nemur 3%  og er ætlað að mæta hækkunum á rekstrarkostnaði stofnunarinnar milli ára. Áhersla er lögð á að gjaldskrá endurspegli raunkostnað stofnunarinnar hverju sinni.