Fræðsla um persónuvernd

Í gær fengum við fræðslu frá Rakel Jensdóttur persónuverndarfulltrúa um reglur sem gilda um persónuvernd. Markmiðið er að allt starfsfólk Samgöngustofu þekki til þeirrar skyldu sem stofnunin ber sem stjórnvald og hvert og eitt okkar fari rétt með persónuupplýsingar í daglegu starfi.

Hér má finna glærurnar frá kynningu Rakelar.


Alþjóðleg úttekt á menntun og þjálfun sjómanna

Í byrjun september komu fulltrúar frá Siglingaöryggisstofnun Evrópu (EMSA) og Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) til Íslands. Erindið var úttekt á því hvort menntun og þjálfun sjómanna og skírteinisútgáfu til alþjóðlegra atvinnuskírteina til starfa á farþega- og flutningaskipum uppfyllti kröfur Evrópusambandsins og alþjóðasamninga. 

Þetta er í þriðja sinn sem slík úttekt fer fram, fyrri úttektir voru gerðar árin 2012 og 2018. Að þessu sinni heimsótti hópurinn mennta- og barnamálaráðuneytið, Tækniskólann og Samgöngustofu. Á meðfylgjandi mynd má sjá starfsfólk þeirra stofnana sem komu að verkefninu.

Úttektin beindist sérstaklega að:

  • innihaldi námskráa í skipa- og vélstjórn,
  • gæðastjórnun hjá stofnunum og við útgáfu atvinnuskírteina,
  • framkvæmd þjálfunar nema um borð í skipum.

Hópurinn lagði áherslu á jákvæð atriði eins og kennslufyrirkomulag, aðstöðu og notkun Skútunnar (skipaskrá, lögskráning sjómanna og eftirlit). Bent var á atriði sem betur megi fara og á næstu vikum er að vænta skýrslu um úttektina og þau frávik sem bæta þarf úr.



Skjáhættan á innviðaþingi

Á fimmtudaginn hélt innviðaráðuneytið innviðaþing þar sem fjallað var um flest málefni ráðuneytisins. Þar á meðal fjallaði Gunnar Geir um herferðina Ekki taka skjáhættuna og hversu mikið sú herferð hefur sparað ríkinu með bættri hegðun og fækkun slysa.

Niðurstaða erindisins var sú að þeim fækkaði um 8,6% á einu ári sem eiga það til að lesa eða skrifa skilaboð eða nota símann í netið eða samfélagsmiðla á meðan þau aka. Þessi fækkun skilar sé svo í sparnaði upp á 718 milljónir króna fyrir samfélagið . Herferðin kostaði okkur um 27 milljónir króna og arðsemin af herferðinni því 25 til 30 föld á einu ári sem hlýtur að teljast gríðargóður árangur.


Starfshópur um strandsiglingar

Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra, hefur skipað starfshóp sem á að leggja fram aðgerðaáætlun til að efla strandsiglingar við Ísland. Markmiðið er að draga úr álagi á þjóðvegum og minnka umhverfisáhrif.

Starfshópnum er ætlað að skila tillögum fyrir 1. desember 2025. Í honum sitja m.a. fulltrúar frá Samgöngustofu, Vegagerðinni, Samtökum atvinnulífsins og Samtökum verslunar og þjónustu. Jón Gunnar Jónsson er fulltrúi Samgöngustofu í starfshópnum.

Sjá nánar í frétt á vef Stjórnarráðsins.


Stafræn vegferð í júlí

Nýjustu tölur frá Stafrænu Íslandi sýna að uppflettingar í ökutækjaskrá nutu mikillar aðsóknar í júlí, en alls voru skráðar rúmlega 48 þúsund heimsóknir í mánuðinum. Þessi mikla aðsókn undirstrikar mikilvægi ökutækjaskrár fyrir almenning.

Samhliða heldur notkun Ísland.is áfram að aukast. Forsíða vefsins var heimsótt yfir 230 þúsund sinnum og notkun á Mínum síðum jókst um tæp helming milli ára. Þá hefur Ísland.is appið fest sig í sessi sem lykill að stafrænni þjónustu, með nærri 230 þúsund uppsetningar í júlí. Í stafræna pósthólfinu var einnig mikið líf, þar sem yfir 1,2 milljón skjöl voru send og rúmlega 600 þúsund lesin.

Tölurnar sýna glöggt vaxandi traust á rafrænni þjónustu hins opinbera. Auknar væntingar um einfaldar og aðgengilegar lausnir hvetja til áframhaldandi þróunar á stafrænni þjónustu.

  • Forsíða Ísland.is fékk 233.492 heimsóknir
  • Tryggingastofnun fékk 48.506 heimsóknir
  • Uppfletting í ökutækjaskrá fékk 48.304 heimsóknir
  • Vinnumálastofnun fékk 30.851 heimsóknir


Samstarf evrópskra flugmálstjórna

Jón Gunnar, forstjóri Samgöngustofu, skrifaði í gær undir uppfærðan sáttmála Evrópusamtaka flugmálayfirvalda (ECAC) Samgöngustofa fer með aðild Íslands að ECAC.

ECAC var stofnað árið 1955 og á Ísland aðild frá upphafi. Í dag taka 44 ríki þátt í samstarfinu sem hefur aðsetur í París. Markmiðið er að efla öruggar, skilvirkar og sjálfbærar flugsamgöngur í Evrópu.

Helstu áherslur ECAC snúa að öryggi í flugi, hagkvæmni í rekstri flugiðnaðarins og umhverfismálum.


Samgöngustofa hafnar órökstuddum fullyrðingum

Fyrrverandi ráðherra samgöngumála var í viðtali á Bylgjunni í fyrradag. Þar kom fram að hann telur ýmislegt hafa farið úrskeiðis í undirbúningi og framkvæmd laga nr. 120/2022 um leigubifreiðaakstur, laga sem hann sjálfur lagði fram, mælti fyrir og skrifaði undir.

Við höfum brugðist við og höfnum þeim órökstuddu fullyrðingum að stofnunin framfylgi ekki lögunum. Þvert á móti eru gildandi lög og reglugerðir grundvöllur starfseminnar, í leigubifreiðamálum sem öðrum. Við höfum undirstrikað að starfsfólk Samgöngustofu vinnur af heilindum að lögbundnum verkefnum, svo sem að veita starfsleyfi, sinna eftirliti og beita þeim heimildum sem lögin kveða á um. Það á einnig við um lög um leigubifreiðaakstur.

Við tökum málefnalegri gagnrýni alvarlega og nýtum ábendingar um það sem betur má fara til umbóta. Órökstuddar fullyrðingar eru hins vegar ekki viðeigandi né til þess fallnar að efla traust á því hlutverki stofnunarinnar að efla öryggi í samgöngum.







Frammistöðuáætlun í flugleiðsöguþjónustu

Samgöngustofa hefur gefið út frammistöðuáætlun Íslands 2025-2029 í flugleiðsöguþjónustu. Áætlunin byggir á alþjóðlegum kröfum og er liður í innleiðingu markmiða um örugga, hagkvæma og umhverfisvæna flugleiðsögu í sam-evrópska loftrýminu (Single European Sky).

Áhersla er lögð á öryggi, umhverfi, afköst og kostnaðarhagkvæmni með það að markmiði að stuðla að sjálfbærni, betri nýtingu loftrýmis og minni losun gróðurhúsalofttegunda.

Hér má sjá áætlunina og nánari upplýsingar sem varða hana.


U.S. Coast Guard í heimsókn

Dagana 18.–21. ágúst voru fulltrúar frá U.S. Coast Guard (bandarísku strandgæslunni) í heimsókn á Íslandi til að kynna sér framkvæmd siglingaverndar hér á landi.

Með í för voru fulltrúar frá bandaríska sendiráðinu á Íslandi, sem jafnframt eru tengiliðir sendiráðsins við Samgöngustofu í siglingaverndarmálum. Heimsóknin var hluti af alþjóðlegu samstarfsverkefni U.S. Coast Guard, International Port Security Programme, sem miðar að því að efla og samræma eftirlit með siglingavernd á heimsvísu.

Stefán Alfreðsson, fagstjóri í siglingavernd hjá Samgöngustofu, skipulagði heimsóknina í samstarfi við U.S. Coast Guard og bandaríska sendiráðið og var í forsvari fyrir Samgöngustofu.

Í heimsókninni var m.a. farið til Faxaflóahafna í Reykjavík, Akureyrarhafnar og Eimskips. Þá var haldinn kynningarfundur hjá Samgöngustofu þar sem farið var yfir hlutverk stofnunarinnar í siglingaverndarmálum og almenna starfsemi hennar kynnt.


Innviðaþing

Innviðaþing á vegum innviðaráðuneytisins fer fram næstkomandi fimmtudag á Reykjavík Hótel Nordica. Yfirskrift þingsins er Sterkir innviðir – sterkt samfélag. Sjónum verður beint að uppbyggingu og öryggi innviða í samgöngum og fjarskiptum, þar á meðal fjárfestingum og samfélagslegum ávinningi.

Auk þriggja ráðherra munu fjölmargir flytja erindi á þinginu og taka þátt í pallborði. Þeirra á meðal er okkar eigin Gunnar Geir Gunnarsson, deildarstjóri öryggis- og fræðsludeildar.

Nánari upplýsingar og skráningu á innviðaþingið má finna hér á vef ráðuneytisins.


Nýjar ljósmyndir í anddyri

Í síðustu viku voru hengdar upp nýjar ljósmyndir í anddyrinu hér í Ármúla. Myndirnar sýna fólk að störfum í öllum helstu samgöngugreinum og eru afrakstur ljósmyndaverkefnis okkar. Fyrirsæturnar eru úr hópi starfsfólks og ljósmyndarinn einnig, Einar Magnús Magnússon. Með þessu styrkjum við ásýnd Samgöngustofu og gerum starfið okkar enn sýnilegra.

Ætlunin er að halda ljósmyndaverkefninu áfram og stækka smátt og smátt safn okkar af vönduðum kynningarmyndum. Nú í haust munu til dæmis bætast við glæsilegar ljósmyndir sem Einar Magnús tók nýlega um borð í togara, af störfum sjómanna.




Kærleikur í verki

Samprjón fyrir vökudeild Landspítalans – „Búbblur og prjón“ leitar fleiri þátttakenda!

Hópurinn „Búbblur og prjón“ stendur nú fyrir fallegu verkefni þar sem markmiðið er að prjóna húfur fyrir litlu hetjurnar á vökudeild Landspítalans. Þetta er kærleiksverkefni sem sameinar handavinnu, samveru og umhyggju.

Við ætlum að taka mið af því að prjóna fram að miðjum desember, og síðan afhenda glaðninginn fyrir jól. Allir sem hafa áhuga – hvort sem þú ert vanur prjónari eða nýbyrjaður – eru hjartanlega velkomnir í hópinn.

Ætlunin er einnig að hittast reglulega og prjóna saman, fyrir þá sem vilja njóta samverunnar í persónu.

Upplýsingasíðan um fyrirbura mælir með því að nota þessar uppskriftir:

Þau ykkar sem hafið áhuga á að vera með endilega óskið eftir aðgangi í facebook hópinn „Búbblur og prjón“ og takið þátt í samræðum þar.


Fögnum fjölbreytileikanum

Samgöngustofa styður mannréttindi, fjölbreytileika og jafnrétti. Við erum hluti af samfélagi þar sem öll eiga að geta verið þau sjálf, óháð kynhneigð og kynvitund. Hinsegin dagar standa fram á sunnudag og því höfum við með stolti flaggað regnbogafánum með merki stofnunarinnar.

Ökutækjaskráin vinsæl

Nýjustu tölur sýna að uppfletting í ökutækjaskrá Samgöngustofu var næstvinsælasta þjónusta Ísland.is í júní, með 45.173 heimsóknir. Aðeins þjónusta Tryggingastofnunar fékk fleiri heimsóknir, eða tæplega 56 þúsund.

Í maí fór metfjöldi umsókna í gegnum umsóknakerfi Ísland.is. Þá voru tilkynningar um eigendaskipti ökutækja alls 7.865. Var fjöldi þeirra í öðru sæti á eftir umsóknum um evrópska sjúkratryggingakortið.

Á vef Stafræns Íslands má sjá reiknivél sem notuð er í tilraun til að meta ávinning stafrænna ferla. Hann er margvíslegur, bæði fjárhagslegur og samfélagslegur. Hægt er að setja upp tilbúin dæmi og fá áætlun um hversu mikið stafræna vegferðin sparar í tíma, peningum og umhverfisáhrifum.





Framtíð virkra ferðamáta og smáfarartækja

Nýlega skilaði starfshópur tillögum að fyrstu heildarstefnu stjórnvalda um virka ferðamáta og smáfarartæki, ásamt ítarlegri aðgerðaáætlun. Þar er meðal annars horft til gangandi, hjólandi og notenda smáfarartækja, með það að markmiði að bæta öryggi, aðgengi og stuðla að meiri skilningi milli vegfarenda. Starfshópinn skipaði fjölbreyttur hópur sérfræðinga, þar á meðal Gunnar Geir Gunnarsson hjá Samgöngustofu.

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra tók við skýrslunni og sagði tillögurnar verða hryggjarstykkið í nýrri stefnu sem kynnt verður formlega í haust samhliða samgönguáætlun til næstu fimmtán ára.

Í skýrslu starfshópsins er sett fram sú framtíðarsýn að Ísland sé samfélag sem styður fjölbreytta ferðamáta. Öruggir innviðir fyrir gangandi, hjólandi og smáfarartæki stuðla að raunhæfu vali á milli fjölbreyttra samgöngukosta. Umhverfi virkra ferðamáta er aðlaðandi og aðgengilegt, allt árið um kring.

Meginmarkmið sem varða leiðina að þessari framtíðarsýn verði öryggi, aðgengi og skilningur.

Fimmtán aðgerðir eru lagðar til sem miða m.a. að því að bæta innviði, efla vetrarþjónustu, samræma skipulag og styðja við fræðslu og upplýsingagjöf. Lögð er áhersla á samstarf ríkis og sveitarfélaga og skýra ábyrgðarskiptingu.

Sjá nánar í frétt á vef innviðaráðuneytisins.

Gæðastefna uppfærð

Nú hefur verið gefin út uppfærð gæðastefna Samgöngustofu sem nær til alls starfsfólks. Hún endurspeglar framtíðarsýn okkar um að tryggja faglega starfsemi, skýra ábyrgð og traust samskipti.

Stefnan leggur áherslu á að skapa vinnuumhverfi þar sem gæði eru sjálfsagður hluti af daglegu starfi, starfsfólk ber sameiginlega ábyrgð og veitir samfélaginu góða og skilvirka þjónustu. Hún byggir áfram á viðurkenndum stöðlum og lagalegum kröfum. Með henni er lagður grunnur að skipulegri eftirfylgni, rýni og umbótum til að bæta árangur og auka ánægju.

Sjá í stuttu máli á vefnum okkar.

Sjá gæðastefnuna í heilu lagi í CCQ.



Stafrænar skráningar ökutækja í mikilli sókn

Samgöngustofa hefur undanfarin misseri unnið markvisst að því að stafvæða skráningarferli ökutækja. Þetta nær til eigendaskipta, nýskráninga og afskráninga. Deild skráninga og þjónustu setti sér skýr markmið og gerði aðgerðaráætlun. Breytingarnar hafa þegar skilað verulegum árangri: Auknum hraða, bættu öryggi og betri þjónustu fyrir notendur. 

Stafræn eigendaskipti

Þann 1. maí sl. hættu skoðunarstöðvar að taka á móti eigendaskiptum á pappír að beiðni Samgöngustofu. viðskiptavinir eru þess í stað hvattir til að nýta stafræna þjónustu á Ísland.is. Eigendaskipti á pappír taka nú allt að viku, þar sem báðir aðilar fá tilkynningu í sitt stafræna pósthólf áður en breytingin er skráð, til að tryggja öryggi og koma í veg fyrir villur. Árangurinn hefur ekki látið á sér standa. Hlutfall stafrænna eigendaskipta fór úr 87,6% í apríl í 92,9% í maí, sem er tæplega 6% aukning á einum mánuði.

Stafrænar nýskráningar

Flest bílaumboð nota nú stafræna vefþjónustu til nýskráninga. Í apríl var ákveðið að loka svokallaðri biðskrá, sem byggði á pappírsgögnum og handvirkri vinnslu. Þetta hafði þegar veruleg áhrif. Hlutfall stafrænna nýskráninga hefur aukist um rúm 20% síðan í mars, fór úr 76,1% í mars í 94,8% í apríl og náði 97,4% í maí.

Stafrænar afskráningar

Við eigum í samstarfi við Stafrænt Ísland og Úrvinnslusjóð um að auka stafrænar afskráningar þegar ökutæki fara til úrvinnslu. Ferlið hefur verið betrumbætt ásamt því að gefa minni móttökuaðilum eins og sveitafélögum kleift að skila inn stafrænum skilavottorðum.



Vettvangseftirlit með köfun

Köfun er vinsæl tómstundaiðja og mikilvæg atvinnugrein á Íslandi. Hún er einkum stunduð í ferðaþjónustu, til dæmis í Silfru á Þingvöllum, en einnig í tengslum við störf eins og mannvirkjagerð, laxeldi og aðrar framkvæmdir undir yfirborði vatns.

Til þess að tryggja öryggi notenda gilda skýrar reglur um köfun hér á landi. Þær má finna í lögum nr. 81/2018 og reglugerð nr. 535/2001. Þar er meðal annars kveðið á um kröfur til þeirra sem stunda köfun eða kenna hana, sem og til búnaðar sem notaður er við köfun.

Samgöngustofa og Landhelgisgæsla Íslands hafa samkvæmt lögum heimildir til að sinna eftirliti með köfunarstarfsemi. Nú hefur verið ákveðið að efla eftirlit á vettvangi á næstu mánuðum. Eftirlitið verður í höndum Landhelgisgæslunnar og hefst í Silfru á Þingvöllum. Í kjölfarið verður farið í skoðanir á öðrum stöðum þar sem köfun fer fram. Markmiðið er að stuðla að öruggri og faglegri köfunarþjónustu fyrir alla notendur.


Kyrrsetning vegna matarskorts

Laugardaginn 31.05.2025 framkvæmdi hafnarríkiseftirlitið skoðun um borð í flutningaskipinu Musky (IMO 9688855) í Straumsvík. Skipið siglir undir fána Marshall-eyja og hefur 19 manns í áhöfn.

Við skoðun kom í ljós að matvara um borð var nánast engin og það litla sem til var hafði að mestu skemmst. Áhöfnin hafði því orðið fyrir matarskorti síðustu 3-4 daga siglingarinnar frá Brasilíu til Íslands.

Vegna þessa ástands var skipið kyrrsett. Skilyrði fyrir afléttingu var að matvæli til hið minnsta 30 daga væru komin um borð.

Þessi gerð skipa er að mörgu frábrugðin öðrum, því oft liggur ekki fyrir hver næsta viðkomuhöfn verður.  Í þessu tilfelli er óljóst hvert skipið fer næst. Mögulegir áfangastaðir eru meðal annars Ástralía, sem krefst um 40 daga siglingar með a.m.k. einni viðkomu á leiðinni, eða Suður-Ameríka sem tekur um 25 daga.

Hlutverk hafnarríkiseftirlitsins er að tryggja öryggi m.a. skipsáhafna með því að kanna aðbúnað um borð. Að öðru leyti en þessu reyndist hann vera í lagi. Kyrrsetningu skipsins var aflétt í fyrradag, eftir að gengið hafði verið úr skugga um að vistir fyrir rúmlega mánuð væru komnar um borð.




Nýr samstarfssamningur um NorType-verkefnið undirritaður

Harpa Þ. Böðvarsdóttir, staðgengill forstjóra Samgöngustofu, undirritaði nýjan samstarfssamning um NorType verkefnið á stjórnarfundi NorType þann 20. maí sl. í Split í Króatíu. 

Markmiðið með undirrituninni var að endurnýja samkomulagið um þetta mikilvæga samstarfsverkefni en fyrri samningur var frá árinu 2009. Endurnýjunin markar mikilvægt skref í áframhaldandi þróun og samstarfi aðildarlanda.

NorType er norrænt samstarfsverkefni Íslands, Noregs, Svíþjóðar og Finnlands um gagnaöflun og miðlun upplýsinga sem tengjast heildargerðarviðurkenningum ökutækja. Verkefnið hefur það að markmiði að færa tæknigögn úr heildargerðarviðurkenningum yfir á tölvutækt form til að auka skilvirkni og öryggi í skráningu ökutækja.

Verkefnið hefur verið starfrækt á Íslandi frá árinu 2000 og fagnar því 25 ára afmæli á þessu ári.