Á samfélagsmiðlum Samgöngustofu er í gangi leikur þar sem hægt er að vinna Innipúkabrúðu. Endilega takið þátt og bendið fólki á að taka þátt í kringum ykkur sem gæti langað í Innipúka.

Á samfélagsmiðlum Samgöngustofu er í gangi leikur þar sem hægt er að vinna Innipúkabrúðu. Endilega takið þátt og bendið fólki á að taka þátt í kringum ykkur sem gæti langað í Innipúka.


Eftir helgina tökum við stórt skref í þjónustu, því þá byrjum við að hnippa í eigendur ökutækja í gegnum Ísland.is.
Það þýðir að fyrsta virka dag fyrsta skoðunarmánaðar ökutækisins sendum við eigandanum (aðaleiganda eða umráðamanni) póst í gegnum Ísland.is um að nú sé komið að skoðun.
Einnig munum við hnippa í eigendur ökutækja um tveimur vikum áður en vanrækslugjald fellur á.
Ábyrgð á því að færa ökutæki til skoðunar liggur auðvitað áfram hjá eiganda eða umráðamanni.
Hnippið á Ísland.is er valkvæð þjónusta sem léttir fólki lífið. Við erum sannarlega ánægð með þennan áfanga og ætlum að taka halda áfram á sömu braut, til dæmis gagnvart skírteinishöfum í flugi og siglingum.
Samgöngustofa heldur Umferðarþing föstudaginn 20. september 2024 í Gamla Bíói.
Að þessu sinni verður þemað samspil ólíkra vegfarendahópa. Munu fulltrúar vegfarendahópa greina frá sínum fararmáta, hvað er gott við hann og hvaða áskorunum þau mæta. Er ætlunin að allir vegfarendahópar geri sér grein fyrir sérstöðu og áskorunum hvers annars og munu þá öll vonandi sýna hvert öðru betri skilning í umferðinni. Markmiðið er að gera umræðuna lausnamiðaða og því höfum við fengið ríkissáttasemjara með okkur í lið. Hann mun leggja línurnar fyrir daginn og er ætlunin að nýta hans aðferðarfræði við að ná árangri. Einnig mun hann stýra pallborði í lok þingsins.


Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, á afmæli í dag og því blaktir íslenski fáninn hér fyrir utan í Ármúlanum. Þetta er í síðasta skiptið sem fáni er dreginn að húni á afmælinu Guðna, því sem kunnugt er mun Halla Tómasdóttir taka við embætti forseta Íslands 1. ágúst nk. Hún á afmæli 11. október og þá ætlar Snorri að flagga íslenska fánanum aftur.

Fólkið sem gerir okkur hinum kleift að fara í sumarfrí er mætt til starfa. Að þessu sinni eru þau fimmtán sem ráðin voru. Á myndinni eru, frá vinstri:
Hekla Maren Jónasdóttir, leyfisveitingar og ökunám
Viktor Steinarsson, skráningar og þjónusta
Ludvig Árni Guðmundsson, lögfræði og réttindi farþega
Sara Stefánsdóttir, skráningar og þjónusta
Kristinn Örn Gunnarsson, skráningar og þjónusta
Daníel Karl Þrastarson, skráningar og þjónusta
Karen Eva Ómarsdóttir, skráningar og þjónusta
Jakub Buraczewski, skráningar og þjónusta
Benóný Svanur Sigurðsson, skráningar og þjónusta
Stefán Fannar Hallgrímsson, skráningar og þjónusta
Eva Gísladóttir, skráningar og þjónusta
Auk þeirra sem náðust á mynd vinna hér einnig í sumar:
Smári Örn Ómarsson, skráningar og þjónusta
Heiðbjört Fjóla Guðjónsdóttir, siglingasvið
Aron Dagur Beck, siglingasvið
Tómas Bent Magnússon, upplýsingatæknideild
Bjóðum þau velkomin til starfa hjá Samgöngustofu!

Samgöngustofa tók þátt í ráðstefnu á vegum European Microlight Federation þann 14. júní sl. í samstarfi við Fisfélag Reykjavíkur.
European Microlight Federation eru samtök fisfélaga, með yfir 60.000 meðlimi í 23 löndum innan Evrópu.
Ráðstefnan var haldin í Flugröst og tókst vel. Þar hittu fulltrúar EMF íslenska hagaðila sem koma að fisflugi á Íslandi, m.a. frá Isavia og Flugmálafélaginu auk allra flugtengdra deilda Samgöngustofu. Nokkrir fulltrúar EMF kynntu meðal annars hvernig staða fisflugs og útfærslur á regluverki eru í þeirra löndum. Óhætt er að segja að það sé með ýmsu móti en þarna kom í ræðustól fólk frá m.a. Frakklandi, Tékklandi, Hollandi og Svíþjóð. Einnig tók til máls fulltrúi frá EASA, Vladimir Foltin, sem sér þar um málefni tengd almannaflugi.
Meðfylgjandi mynd var smellt af hópnum á pallinum við Flugröst, ljósmyndari er Jón Svavarsson.

Talsverð umfjöllun hefur verið í fjölmiðlum um eftirlit lögreglu með leigubílum um helgina. Lögreglan kannaði þá leyfi 105 leigubíla og ökumanna þeirra. Í næstum helmingi tilfella voru gerðar athugasemdir sem lögregla mun fylgja eftir.
Guðrún Huld, starfsmaður Samgöngustofu, var með í för til að styðja við aðgerðirnar og leiðbeina um lög og reglur sem gilda um leyfi til leigubílaaksturs. En skv. lögum sér lögregla um vettvangseftirlit með leigubílaakstri en Samgöngustofa sinnir stjórnsýslueftirliti.
Eftirlitið sneri m.a. að því að kanna hvort tilskilin leyfi væru til staðar og hvort leyfishafar og leigubílar uppfylla skilyrði um:
Dagana 6.-7. júní fengum við góða gesti úr norrænni samstarfsnefnd (CPC) um menntun atvinnubílstjóra (CPC=Driver Certificate of Professional Competence). Farið var yfir stöðuna í hverju landi fyrir sig en einnig voru álitamál út evróputilskipun rædd sem og mismunandi sýn á útfærslu. Samstarfsnefndina skipa fulltrúar frá SGS, Noregi, Danmörku, Finnlandi og Svíþjóð. Hópurinn skellti sér saman í flug yfir Ísland að loknum fyrri fundardegi og náðist meðfylgjandi mynd í háloftunum.


Í gær var stigið skref í átt að fullri aðild Íslands að Eurocontrol sem tekur gildi í janúar 2025. Um var að ræða undirritun samnings um stuðning stofnunarinnar við Ísland, í formi mannauðs, þekkingar og tæknilausna, til dæmis varðandi verkefni sem stuðla að samræmingu rekstrarstjórnunar flugumferðar.
Eurocontrol er milliríkjastofnun sem styður við flug og flugleiðsögu í Evrópu. Sjá einnig frétt um aðlögunarsamning Íslands við Eurocontrol.

Frá vinstri: Páll, Hlín, Guðmundur Sigurðsson, Kjartan Briem framkvæmdastjóri Isavia ANS og Jón Gunnar.
Hinn 1. júní sl. tók Guðmundur Sigurðsson, fyrrum deildarstjóri Flugfjarskipta hjá Isavia ANS við stöðu tengiliðs Íslands hjá Eurocontrol. Hlutverk hans verður að efla þekkingu og tengsl og styrkja aðildarstarf Íslands, m.a. með þátttöku í vinnuhópum.

Fyrir ári síðan var Skútunni, tölvukerfi fyrir skipaskrá og lögskráningu sjómanna, hleypt af stokkunum, eftir langt og strangt tímabil þróunar og smíði. Skútan geymir upplýsingar um skip á skipaskrá, skírteini og skoðanir, svo og málefni sjómanna í tengslum við útgáfu atvinnuskírteini þeirra og siglingatíma. Í stuttu máli má segja að Skútunni sé treyst fyrir upplýsingum um grundvallaratvinnuveg þjóðarinnar og því er mikið í húfi.
Reynslan þetta fyrsta ár hefur verið góð því almenn ánægja hefur verið meðal notenda með Skútuna og fáar kvartanir borist. Eins og lofað var í upphafi þá hefur þróun á kerfinu haldið áfram. Meðal gagnlegra framfara sem bæst hafa við á þessu fyrsta ári má nefna:
Og Skútan mun halda áfram að batna. Þau verkefni sem eru fram undan:
Til hamingju með fyrsta afmæli Skútunnar!

Hin skipulögðu, fræðandi og vel sóttu erindi sem gjarnan er boðið upp á með föstudagskaffinu eru nú komin í sumarfrí. Þráðurinn verður tekinn aftur upp í september.

Nýlega fengum við kynningu á umbótum í flugleiðsögu- flugvalla- og flugverndardeildar. Þær snúa að stjórnkerfi sem tryggir að strangar kröfur um hæfni eftirlitsmanna séu uppfylltar, m.a með starfsþjálfun og viðhaldsþjálfun. Áhersla er lögð á samræmingu og samþættingu verklags fyrir þessa þrjá málaflokka, sem sameinaðir voru í eina deild árið 2022.
Stjórn Farsýslunnar minnir á skráningu viðburða sem verða á næstunni:
Suðrænt sumarpartý í Flugröst 7. júní.
Skráning: https://forms.office.com/e/TuaCtwqSuk
Fjölskyldugleði Samgöngustofu og Farsýslunnar í Húsdýragarðinum 9. júní.
Skráning: https://forms.office.com/e/dFYLVA0z6e
Endilega skrá mætingu sem fyrst.

Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins. Ferðakostnaður innanlands er reiknaður út frá verðkönnun þar sem kannað er vænt verð á algengum gististöðum, á höfuðborgarsvæðinu og utan þess. Almennt er ferðakostnaði innanlands breytt tvisvar sinnum á ári, að vori og að hausti, til þess að endurspegla árstíðarsveiflu í kostnaði gistingar.
Dagpeningar þessir gilda frá og með 1. júní 2024. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 2/2023.
Athygli er vakin á að meginreglan er að greiða skal kostnað vegna ferðalaga innanlands, s.s. fargjöld, fæði og gistingu, eftir reikningi. Fæðiskostnaður er uppreiknaður miðað við breytingar á viðeigandi vísitölu sem útgefin er af Hagstofu Íslands
Uppfært skjal má finna inní CCQ og heitir skjalið ”Ferðareikningur innanlands”.

Sumarið 2020 hlaut Samgöngustofa jafnlaunavottun, vottun um að stofnunin starfræki launakerfi sem stenst kröfur jafnlaunastaðalsins ÍST 85:2012. Með innleiðingu staðalsins hefur Samgöngustofa komið upp stjórnunarkerfi sem tryggir að málsmeðferð og ákvörðun í launamálum byggist á málefnalegum sjónarmiðum og feli ekki í sér kynbundna mismun. Stefna Samgöngustofu er að allt starfsfólk, óháð kyni, njóti jafnra launa og sömu kjara fyrir sömu eða jafnverðmæt störf þannig að enginn ómálefnalegur launamunur sé til staðar.
Árlega skal kynna helstu niðurstöður launagreiningar til starfsfólks. Undanfarin ár höfum við boðið upp á kynningu í matsalnum en í ár ætlum við að breyta til og voru niðurstöðurnar sendar öllu starfsfólki í tölvupósti. Niðurstöðurnar má einnig finna hér á innra netinu.
Það hjálpar okkur og kerfinu að fá endurgjöf frá starfsfólki. Ekki hika við að senda á okkur línu ef þið eruð með athugasemdir, ábendingar, gagnrýni eða spurningar. Það er hægt að gera með því að senda póst á laun@samgongustofa.is eða senda inn ábendingu í gegnum Bendil.
Hér á innri vefnum má einnig finna fleiri upplýsingar um jafnlaunastjórnunarkerfið
Niðurstöður launagreiningar 2024
