
Hér er dagskrá Farsýslunnar fram á sumarið. Eins og þið sjáið er líf og fjör framundan og næg tækifæri til þess að hafa gaman saman 🙂

Hér er dagskrá Farsýslunnar fram á sumarið. Eins og þið sjáið er líf og fjör framundan og næg tækifæri til þess að hafa gaman saman 🙂

Deildarstjóri lögfræðideildar og lögfræðingur flugmála sóttu námskeið í alþjóðlegum geimrétti hjá Geimvísindastofnun Evrópu (ESA – European Space Agency). Námskeiðið var haldið dagana 18. – 20. janúar sl. í Nordwijk í Hollandi. Þátttakendur á námskeiðinu voru rúmlega þrjátíu og komu frá mismunandi löndum. Áberandi margir þátttakenda voru lögfræðingar frá innlendum geimstofnunum sinna landa sem eru (eins og við skiljum það) í flestum tilvikum sjálfstæðar einingar undir því ráðuneyti sem hefur geimmál á sínu ábyrgðarsviði í viðkomandi landi. Fyrirlesarar voru í flestum tilvikum sérfræðingar frá Geimvísindastofnuninni sem og sérfræðingar í geimmálum nokkurra landa.
Námskeiði var yfirgripsmikið og vandlega farið yfir regluverk geimmála. Í grófum dráttum voru kynningar í alþjóðlegum geimrétti þar sem farið var yfir gildandi geimsamninga Sameinuðu þjóðanna s.s. Útgeimssamninginn (The Outer Space Treaty), Samning um björgun geimfara (Rescue & Return Agreement) , Samning um skráningu hluta sem varpað er í himingeiminn (Registration Convention) o.fl. Þá voru kynningar ýmissa landa á eigin regluverki geimmála, umfjöllun um tryggingamál og áhugaverðar umræður um ýmis álitaefni tengd geimskotum.
Þátttakendur á námskeiðinu fengu þar góða yfirsýn yfir alþjóðasamninga á sviði geimmála auk þess að verða hluti af tengslaneti sérfræðinga geimmála á Norðurlöndum og í Evrópu.



Á starfsmannafundum í vikunni tókum við púlsinn á starfseminni og verkefnunum framundan. Meðal efnis voru drög að rekstrarniðurstöðum síðasta árs og ýmsar tölulegar staðreyndir um umsvif starfseminnar sem er ágætt að kannast við. Litið var yfir niðurstöður síðustu HR Monitor könnunar og til hliðar niðurstöður sömu könnunar frá desember 2021. Með samanburði má víða sjá framfarir sem eru hvetjandi fyrir áframhaldandi úrbætur á hverju sviði. Einnig var stefnumótun rifjuð upp, skilgreind markmið og nokkur verkefni framundan sem munu hjálpa okkur að komast þangað sem við stefnum í árslok 2024. Við ræddum stöðu húsnæðismála sem hafa verið okkur ofarlega í huga. Kynninguna frá starfsmannafundum má finna hér.
Í föstudagskaffinu voru umhverfismálin til umfjöllunar og hugleitt hvernig skýra má betur hlutverk Samgöngustofu í þessum málaflokki svo það styðji sem best við markmið Íslands. Einnig hvernig við sem einstaklingar og hópur getum gert betur. Ákveðið hefur verið til hvatningar að hækka samgöngustyrk og heilsustyrk í hámark skattleysismarka. Kynninguna úr föstudagskaffinu má finna hér.
Gengið hefur verið frá ráðningu eftirlitsmanns í flugleiðsögu í deild flugleiðsögu, flugvalla og flugvernd. Ráðinn var Lorik Abdullahu. Lorik er með BA próf í stjórnun, MS í markaðsfræðum og Ph.D gráðu í stjórnun markaðssetningar sem snýr að flugvöllum frá háskólanum í Prishtina í Kosovo. Lorik starfaði við flugumferðarstjórn í Prishtina á árunum 2004-2017 en þá hóf hann störf hjá Isavia sem ATS Specialist og síðar sem ATS Specialist, Instructor / Assessor.
Lorik hefur störf 6. mars nk. og verður staðsettur á annarri hæðinni.


Föstudagslagið er að þessu sinni í boði Auðar Diljár en um val sitt segir hún:
Það er varla til meiri föstudagsfílingur en Fjólublátt ljós við barinn með Klíkunni. Við systkinin gátum endalaust spilað þetta lag og sungið með í löngum ferðalögum. Mæli með að hlusta á leiðinni heim úr vinnunni og hækka vel í græjunum J
Ég ætla skora á Björgvin Pál Rúnarsson
Þriðjudaginn 7. febrúar býður Samgöngustofa starfsfólki upp á fræðslu gegn kynferðislegri áreitni. Markmið fræðslunnar er að starfsfólk og stjórnendur þekki birtingarmyndir og afleiðingar kynferðislegrar áreitni og fái verkfæri til að vinna gegn slíkri hegðun. Lögð er áhersla á aukna vitund og kynntar eru leiðir sem vinnustaðir geta nýtt sér til að búa til betra starfsumhverfi og opnari umræðu um málefnið. Sérstök áhersla er einnig lögð á ábyrgð stjórnenda og mikilvægi góðrar vinnustaðamenningar.
Boðið verður uppá tvær tímasetningar 7. feb, kl. 10:00 og kl. 13:00. Fræðslan tekur um eina klukkustund. Ólöf mannauðsstjóri hefur þegar sent út fundarboð á allt starfsfólks fyrir fundina.
Allt starfsfólk er hvatt til að mæta.
Frekari upplýsingar og fræðsluefni er hægt að nálgast t.a.m. á heimasíðu Jafnréttisstofu.


Síðastliðinn föstudags hélt Guðmundur Kristinn í skipatæknideild erindi í föstudagskaffinu. Erindið má nálgast hér. Guðmundur fór m.a. yfir helstu verkefni deildarinnar en þau eru m.a.:
Auk þess að fara yfir þessu helstu verkefni fór Guðmundur einnig um þær breytingar sem eru framundan er varða eldsneyti skipa. Evrópusambandi hefur sett sér viðmið um að minnka losun gróðurhúsalofttegunda um að minnsta kosti 55% fyrir árið 2030. Ísland hefur sett sér orkustefnu sem snýr að því að draga úr notkun jarðefnaeldsneyta en nota þess í stað endurnýjanlega orkugjafa.
Guðmundur benti á að í kjölfarið á orkustefnunni kom svo út viðamikil skýrsla starfshóps um græn skref í sjávarútvegi árið 2021. Í skýrslunni er velt m.a. upp ýmsum möguleikum á nýorku til framtíðar og var Verkfræðistofunni Eflu falið að skoða möguleikana og flokka eftir fýsileika.
Til leiks voru nefndir 13 orkugjafar sem bornir voru saman við jarðolíu.
Orkugjafarnir voru svo skoðaðir með tilliti til:
• Að geta mætt þörf árið 2030
• Að geta nýtt innviði: birgðatanka, reglur o.s.frv.
• m.t.t. Kostnaðar við framleiðslu orkugjafans og smíði eða breytingar á skipum
• Samdráttar í losun
• Vélbúnaðar, þ.e.as, er hann til staðar fyrir þessa orkugjafa
Þeir nýorkugjafar sem taldir eru núna að muni skipta mestu við að snúa við kolefnislosun og skila okkur inn í framtíð án jarðefnaeldsneytis eru samkvæmt Guðmundi:
Ammoníak
Vetni
Metanól
Rafmagn
Líf-dísil (þar með talin repjuolía)
Ef við skoðum nefnda orkugjafa með tilliti til framboðs, innviða, kostnaðar, vélbúnaðar og samdrátt í losun
má sjá, samkvæmt Guðmundi, að það er einungis einn orkugjafi sem skorar mjög hátt í öllum flokkum, það er Lífdísil. skorar 22 punkta hérna.
M.t.t. losunarþáttarins eingöngu, þá sést að tveir orkugjafar skora áberandi lægst, Ammoníak og olía,
en þar sem olían er á útleið, þá er spurning hvort við höldum í Ammoníakið eitthvað áfram.
Vetni skorar næst-lægst og þá sérstaklega vegna innviða og kostnaðar.
Metanól og Rafmagn eru þarna á svipuðu róli, þó skora innviðir og kostnaður hærra en Vetnið.
Þar sem losunarþáttur orkugjafa er í miklum fókus núna, væri vel hægt að henda því fram
að orkugjafar eins og: Lífdísil, Metanól, Rafmagn og Vetni muni verða okkar helst orkugjafar til framtíðar.
Hvort þetta verður raunveruleikinn, mun framtíðin leiða í ljós.
Árið 2022 var umfangsmikið ár hjá NorType en það ár tók NorType á móti 2028 gerðarviðurkenningum fyrir fólks- og sendibíla frá evrópskum gerðarviðurkenningaryfirvöldum. Af þessum 2028 skráði NorType 1920 gerðarviðurkenningar. Þessar 1920 skiptust þannig að 1548 voru fyrir fólksbíla og 372 fyrir sendibíla. Úr þessum 1920 gerðarviðurkenningum skráði starfsfólk NorType 1191109 mismunandi útfærslur. Þessar 1191109 útfærslur skiptust þannig að 520434 voru fyrir fólksbíla og 670675 fyrir sendibíla.

Þetta er næst mesti fjöldi gerðarviðurkenninga sem NorType hefur skráð frá upphafi, en mest hefur starfsfólk NorType skráð 2197 árið 2021.

Hvað fjölda útfærslna varðar þá var 2022 langstærsta árið en næst mest hafði NorType skráð 899288 árið 2021.
NorType er samnorrænn gagnagrunnur um tækniupplýsingar ökutækja sem við hjá Samgöngustofu rekum fyrir öll löndin sem eru í samstarfinu. Helstu verkefni deildarinnar eru:
Deildarstjóri: Kristinn Gretarsson
Netfang: nti@icetra.is
Staðsetning: 2. hæð, álma 2A

Föstudagslagið er að þessu sinni í boði Kristófers Egilssonar. Um val sitt segir hann:
Lagið sem ég valdi er This guy‘s in love with you með Herb Alpert og The Tijuana Brass.
Enginn sérstök ástæða af hverju ég valdi þetta lag önnur en sú að þetta lag er æðislegt.
Ég skora á Auði Diljá Heimisdóttur að koma með næsta föstudagslag 🙂

Í næstu viku mun lögfræðideildin halda stjórnsýslunámskeið fyrir okkur starfsfólkið. Þar verður farið yfir helstu meginreglur stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og álitamál sem þeim kunna að tengjast. Helsta markmið laganna er að tryggja réttaröryggi borgaranna í samskiptum við stjórnvöld. Þau skilgreina til dæmis rannsóknarskyldu, andmælarétt og meðalhóf.
Stjórnsýslulögin skipta máli í öllum ákvörðunum Samgöngustofu og því mikilvægt að við kunnum öll skil á innihaldi þeirra. Gott er að rifja helstu atriðin upp með því að sækja námskeið lögfræðideildar annað slagið.
Næsta námskeið verður haldið fimmtudaginn 26. janúar frá kl. 10-11 samanber fundarboð sem allt starfsfólk fékk.

Hér á innri vefnum er upplýsingasíða um Flugröst en það er funda- og veislusalur í eigu okkar. Upplýsingarnar á síðunni hafa nú verið uppfærðar en síðuna er hægt að nálgast undir Verkfærakistan – Flugröst.
Flugröst hentar vel sem fundarsalur fyrir lengri fundi eða námskeið á vegum Samgöngustofu, panta má veitingar eða kaffi hjá mötuneytinu. Kerfisrekstur aðstoðar með tæknimál ef þarf.
Salurinn tekur ca. 60 manns í sæti, í eldhúsinu er kaffivél (uppáhellt), tveir kæliskápar, uppþvottavél og allt helsta leirtau og borðbúnaður er til staðar.

Starfsfólki Samgöngustofu býðst að leigja salinn fyrir viðburði á eigin vegum, ekki er heimilt að framselja leigunni eða selja inn á viðburði í Flugröst. Greitt er þrifagjald, 25.500 kr., greiða skal fyrir viðburð. Leigutaki ber ábyrgð á salnum, sér um uppvask ef eitthvað er og fer út með rusl.
Mannauðsdeild sér um bókanir, bæði fundi og viðburði á vegum stofnunarinnar og einkaviðburði.
Lyklar að Flugröst eru afhentir hjá mannauðsdeild.

Á morgun, miðvikudaginn 18. janúar frá 9-10, stendur Vegagerðin fyrir morgunfundi um vetrarþjónustu. Fyrirkomulag vetrarþjónustu og starfsemi vaktstöðvar Vegagerðarinnar verða til umfjöllunar og fulltrúar ferðaþjónustufyrirtækja lýsa reynslu sinni af starfseminni um vetur á Íslandi.
Morgunfundurinn verður haldinn í húsnæði Vegagerðarinnar, Suðurhrauni 3 í Garðabæ. Opið er á meðan húsrúm leyfir og það verður heitt á könnunni.
Fundinum verður einnig streymt á vef Vegagerðarinnar, www.vegagerdin.is og á Facebook. Streymt verður á eftirfarandi slóð: https://livestream.com/accounts/15827392/events/10739920
Hægt verður að senda inn fyrirspurnir á Slido.com . Lykilorðið er Vetur
Fundarstjóri: G. Pétur Matthíasson, forstöðumaður samskiptadeildar Vegagerðarinnar.
Sjá nánar á vef Vegagerðarinnar
Gengið hefur verið frá ráðningu eftirlitsmanns flugverndar, ráðin var Ásdís Adolfsdóttir.
Ásdís þekkir flugvernd vel en hún starfaði síðast sem gæða- og öryggisstjóri hjá Airport Associates frá árinu 2008.
Ásdís hefur störf 18. janúar nk.

Nú eru fjögur störf auglýst til umsóknar hjá Samgöngustofu.
Auglýsingarnar hafa þegar verið birtar á heimasíðu Samgöngustofu, Starfatorgi og Alfreð. Nú um helgina birtist auglýsing í Morgunblaðinu sem og næsta fimmtudag.
Auglýst eru:
* Sérfræðingur flugrekstrar og skírteinadeildar
* Fagstjóri fjármáladeildar (endurtekin auglýsing þar sem ekki varð af ráðningu þegar sama staða var auglýst í desember)
* Eftirlitsmaður flugvalla
* Sérfræðingur í skipatæknideild, með áherslu á rafmagnsþekkingu






Föstudagslagið er að þessu sinni í boði Daníels Freys. Um val sitt segir Daníel:
Ég vel lagið Það birtir alltaf til með Kristmundi Axel (MC Krizz) og Elínu Lovísu. Lagið er valið í tilefni þess að staða sólu fer hækkandi á ný. Megi sumarið koma sem fyrst.
Ég skora á Kristófer Egilsson fyrir næsta föstudag.

Hér á innri vefnum er sérstök síða með yfirliti yfir fundarherbergin í Ármúlanum. Tengill er á síðuna vinstra meginn á vefnum (sjá mynd að ofan) en hana er einnig að finna undir Verkfærakista – Fundarerbergi í veftrénu. Á síðunni er hægt að nálgast upplýsingar um hvernig hvert fundarherbergi er útbúið tæknilega (t.d. hvort það sé sjónvarp, tölva, eðatússtafla?) og hversu mörg sæti eru. Mynd er af hverju fundarherbergi ásamt stuttu myndskeiði (mjög spennandi myndefni :)).
Þessi síða var sett upp eftir ábendingu starfsfólks. Fólki fannst vanta síðu þar sem hægt væri að nálgast þessar upplýsingar í stað þess t.d. að ganga á milli hæða og kanna hvaða útbúnað sé að finna í hverju fundarherbergi og hversu mörg sæti.
Upplýsingatæknideild og samskiptadeild hafa nú uppfært allar upplýsingar á þessari síðu með tilliti til þess tæknibúnaðar sem er til staðar í þeim í dag. Upplýsingarnar verða uppfærðar jafnóðum og breytingar verða á einstaka fundarherbergjum.
Þið megið gjarnan senda ábendingar á vefur@samgongustofa.is ef þið takið eftir að misræmi er í upplýsingunum á síðunni og þeim útbúnaði sem er í hverju fundarherbergi.

Fyrsti leikurinn í HM í handbolta er í kvöld og þar af leiðandi er síðasti séns að skrá sig í HM-leikinn okkar í dag. Hægt er að giska á leik allt að 10 mínútum fyrir viðkomandi leik þið hafið því tíma þar til 10-15 mínútum fyrir leikinn í kvöld til þess að vera með í leiknum. Þátttakan er orðin mjög góð og við erum komin 27 – verðum örugglega eitthvað yfir 30, þ.a. það er því til mikils að vinna. Ef einhver er í vandræðum með að skráningu í leikinn og langar að vera með, þá er sjálfsagt mál að heyra í Lárusi sem getur þá aðstoðað.
Hér eru leiðbeiningar:
Leikurinn fer fram á síðunni leikir.betra.is
=> Þeir sem eru ekki til sem notendur á þessari síðu, þurfa að byrja á því að Nýskrá sig:
http://leikir.betra.is/nyskraning.php
=> Þegar það er komið þá getið þið farið í “Einkadeildir” og finnið “Samgöngustofa”
og þá skráð þið ykkur inn og lykilorðið er sgs2023
=> Þið getið líka farið beint á þennan link þegar þið erðu komin með notanda:
http://leikir.betra.is/league.php?l=2617
password: sgs2023
=> Til þess að birtast í lista deildarinnar þurfið þið að hafa giskað á a.m.k. einn leik og staðfest.
Þetta gengur út á að giska á úrslit allra leikja og eru stig fyrir hvern leik sjá upplýsingar um reglurnar hér: http://leikir.betra.is/rules.php
Aðgöngumiðinn í leikinn er ein rauðvínsflaska c.a. 3000 kr. virði (+/- 300 kal) – svona til að hafa einhver viðmið.
Veitt verða verðlaun fyrir 1.-3. sætið.
Hvernig fjöldi flaskna skiptist á milli sætanna verður gefið út eftir fyrsta leik, þá sjáum við hvað við erum mörg.
Auðvitið fær 1. sæti lang mest (60-70% af flöskunum) / og svo 2. sætið eitthvað meira en 3. sæti.
Áfram Ísland!


Ráðstefna um uppbyggingu innviða verður haldin á Grand hóteli 2. febrúar á vegum Landssamtaka lífeyrissjóða og innviðaráðuneytisins. Ráðstefnan stendur yfir frá kl. 8:30 -16:15 og húsið opnar kl. 8.00 og verður boðið upp á morgunverð.
Í frétt á vef innviðaráðuneytisins segir: „uppbygging innviða er viðvarandi verkefni á Íslandi. Ljóst er að verkefnin eru fjölbreytt og að mörgu er að hyggja. Þar verða meðal annars umræður um fjármögnun innviða og reynt að varpa ljósi á tækifæri bæði frá innlendum og erlendum vettvangi…“
Nánari upplýsingar má nálgast hér ásamt skráningarformi.

Hurðaskellir og Skjóða mættu í Langholtsskóla í hádeginu í dag og afhentu 1. bekk stóra vinninginn úr jóladagatali Samgöngustofu. Vinningurinn var pizzaveisla fyrir bekkinn, nokkur borðspil og endurskinsmerki og svo fékk kennari bekkjarins óskaskrín að gjöf.
Í þáttum jóladagatalsins lærðu Hurðaskellir og Skjóða umferðarreglur ásamt Grýlu. Það var frábær þátttaka í spurningaleik jóladagatalsins en þar þurftu þátttakendur að svara spurningu sem Hurðaskellir og Skjóða spurðu í lok hvers þáttar. Á hverjum degi fram að jólum í desember voru tvö börn dregin út og unnu endurskinsbakpoka. Í lokin var svo dregið úr öllum svörum og var það Aðalbjörg í 1. bekk í Langholtsskóla sem vann fyrir hönd bekkjarins.
Mikil gleði ríkti meðal krakkanna að hitta þau Hurðaskelli og Skjóðu og það var einstaklega gaman að geta fagnað þrettándanum og hvatt jólin með þessum hætti.



Janúar er tíminn þegar mörg okkar fara að huga að því að efna áramótaheitin og eitt af þeim vinsælli er heitið um að koma sér í betra form á nýju ári. Þá er ágætt að vita að World Class býður starfsfólki Samgöngustofu 10% afslátt af árskortum í heilsurækt og í Betri stofuna. Til þess að fá þetta tilboð hafið þið samband við hana Árnýju á arny@worldclass.is úr vinnunetfanginu ykkar og pantið kortið (láta kennitöluna fylgja með). Fljótlega í kjölfarið getið þið svo hægt að ganga frá greiðslunni í næstu móttöku.
Upplýsingar um þetta tilboð (ásamt fleirum) er að finna hér á innri vefnum undir Starfsfólk – Tilboðshornið. Fleiri tilboð verða sett þar inn eftir því sem þau berast.
Upplýsingar um heilsustyrk til starfsfólks má nálgast undir Starfsfólk – Heilsustyrkur.
