Kynningar frá starfsmannafundum og föstudagskaffi

Á starfsmannafundum í vikunni tókum við púlsinn á starfseminni og verkefnunum framundan. Meðal efnis voru drög að rekstrarniðurstöðum síðasta árs og ýmsar tölulegar staðreyndir um umsvif starfseminnar sem er ágætt að kannast við. Litið var yfir niðurstöður síðustu HR Monitor könnunar og til hliðar niðurstöður sömu könnunar frá desember 2021. Með samanburði má víða sjá framfarir sem eru hvetjandi fyrir áframhaldandi úrbætur á hverju sviði. Einnig var stefnumótun rifjuð upp, skilgreind markmið og nokkur verkefni framundan sem munu hjálpa okkur að komast þangað sem við stefnum í árslok 2024. Við ræddum stöðu húsnæðismála sem hafa verið okkur ofarlega í huga. Kynninguna frá starfsmannafundum má finna hér.

Í föstudagskaffinu voru umhverfismálin til umfjöllunar og hugleitt hvernig skýra má betur hlutverk Samgöngustofu í þessum málaflokki svo það styðji sem best við markmið Íslands. Einnig hvernig við sem einstaklingar og hópur getum gert betur. Ákveðið hefur verið til hvatningar að hækka samgöngustyrk og heilsustyrk í hámark skattleysismarka. Kynninguna úr föstudagskaffinu má finna hér.