NorType – tölfræði ársins 2022

Árið 2022 var umfangsmikið ár hjá NorType en það ár tók NorType á móti 2028 gerðarviðurkenningum fyrir fólks- og sendibíla frá evrópskum gerðarviðurkenningaryfirvöldum. Af þessum 2028 skráði NorType 1920 gerðarviðurkenningar. Þessar 1920 skiptust þannig að 1548 voru fyrir fólksbíla og 372 fyrir sendibíla. Úr þessum 1920 gerðarviðurkenningum skráði starfsfólk NorType 1191109 mismunandi útfærslur. Þessar 1191109 útfærslur skiptust þannig að 520434 voru fyrir fólksbíla og 670675 fyrir sendibíla.


Þetta er næst mesti fjöldi gerðarviðurkenninga sem NorType hefur skráð frá upphafi, en mest hefur starfsfólk NorType skráð 2197 árið 2021.

Hvað fjölda útfærslna varðar þá var 2022 langstærsta árið en næst mest hafði NorType skráð 899288 árið 2021.

En hvað er NorType?

NorType er samnorrænn gagnagrunnur um tækniupplýsingar ökutækja sem við hjá Samgöngustofu rekum fyrir öll löndin sem eru í samstarfinu. Helstu verkefni deildarinnar eru:

  • Skráning tækniupplýsinga ökutækja úr evrópskum gerðarviðurkenningum í gagnagrunn
  • Rekstur sannreyningarkerfis fyrir rafræn skráningarvottorð ökutækja
  • Þjónusta við Noreg, Svíþjóð, Finnland og Ísland vegna þessara gagna
  • Samskipti við gerðarviðurkenningaryfirvöld í evrópu

Vefur NorType

Deildarstjóri:  Kristinn Gretarsson

Netfang: nti@icetra.is

Staðsetning: 2. hæð, álma 2A