
Hurðaskellir og Skjóða mættu í Langholtsskóla í hádeginu í dag og afhentu 1. bekk stóra vinninginn úr jóladagatali Samgöngustofu. Vinningurinn var pizzaveisla fyrir bekkinn, nokkur borðspil og endurskinsmerki og svo fékk kennari bekkjarins óskaskrín að gjöf.
Í þáttum jóladagatalsins lærðu Hurðaskellir og Skjóða umferðarreglur ásamt Grýlu. Það var frábær þátttaka í spurningaleik jóladagatalsins en þar þurftu þátttakendur að svara spurningu sem Hurðaskellir og Skjóða spurðu í lok hvers þáttar. Á hverjum degi fram að jólum í desember voru tvö börn dregin út og unnu endurskinsbakpoka. Í lokin var svo dregið úr öllum svörum og var það Aðalbjörg í 1. bekk í Langholtsskóla sem vann fyrir hönd bekkjarins.
Mikil gleði ríkti meðal krakkanna að hitta þau Hurðaskelli og Skjóðu og það var einstaklega gaman að geta fagnað þrettándanum og hvatt jólin með þessum hætti.

