Stafræn vegferð í júlí

Nýjustu tölur frá Stafrænu Íslandi sýna að uppflettingar í ökutækjaskrá nutu mikillar aðsóknar í júlí, en alls voru skráðar rúmlega 48 þúsund heimsóknir í mánuðinum. Þessi mikla aðsókn undirstrikar mikilvægi ökutækjaskrár fyrir almenning.

Samhliða heldur notkun Ísland.is áfram að aukast. Forsíða vefsins var heimsótt yfir 230 þúsund sinnum og notkun á Mínum síðum jókst um tæp helming milli ára. Þá hefur Ísland.is appið fest sig í sessi sem lykill að stafrænni þjónustu, með nærri 230 þúsund uppsetningar í júlí. Í stafræna pósthólfinu var einnig mikið líf, þar sem yfir 1,2 milljón skjöl voru send og rúmlega 600 þúsund lesin.

Tölurnar sýna glöggt vaxandi traust á rafrænni þjónustu hins opinbera. Auknar væntingar um einfaldar og aðgengilegar lausnir hvetja til áframhaldandi þróunar á stafrænni þjónustu.

  • Forsíða Ísland.is fékk 233.492 heimsóknir
  • Tryggingastofnun fékk 48.506 heimsóknir
  • Uppfletting í ökutækjaskrá fékk 48.304 heimsóknir
  • Vinnumálastofnun fékk 30.851 heimsóknir


Samstarf evrópskra flugmálstjórna

Jón Gunnar, forstjóri Samgöngustofu, skrifaði í gær undir uppfærðan sáttmála Evrópusamtaka flugmálayfirvalda (ECAC) Samgöngustofa fer með aðild Íslands að ECAC.

ECAC var stofnað árið 1955 og á Ísland aðild frá upphafi. Í dag taka 44 ríki þátt í samstarfinu sem hefur aðsetur í París. Markmiðið er að efla öruggar, skilvirkar og sjálfbærar flugsamgöngur í Evrópu.

Helstu áherslur ECAC snúa að öryggi í flugi, hagkvæmni í rekstri flugiðnaðarins og umhverfismálum.


EM leikarnir í körfubolta 🏀

…í matsalnum

Ertu á fundi?

Dæmi um hvernig eigi að skilja fundarherbergi eftir sig:

Samgöngustofa hafnar órökstuddum fullyrðingum

Fyrrverandi ráðherra samgöngumála var í viðtali á Bylgjunni í fyrradag. Þar kom fram að hann telur ýmislegt hafa farið úrskeiðis í undirbúningi og framkvæmd laga nr. 120/2022 um leigubifreiðaakstur, laga sem hann sjálfur lagði fram, mælti fyrir og skrifaði undir.

Við höfum brugðist við og höfnum þeim órökstuddu fullyrðingum að stofnunin framfylgi ekki lögunum. Þvert á móti eru gildandi lög og reglugerðir grundvöllur starfseminnar, í leigubifreiðamálum sem öðrum. Við höfum undirstrikað að starfsfólk Samgöngustofu vinnur af heilindum að lögbundnum verkefnum, svo sem að veita starfsleyfi, sinna eftirliti og beita þeim heimildum sem lögin kveða á um. Það á einnig við um lög um leigubifreiðaakstur.

Við tökum málefnalegri gagnrýni alvarlega og nýtum ábendingar um það sem betur má fara til umbóta. Órökstuddar fullyrðingar eru hins vegar ekki viðeigandi né til þess fallnar að efla traust á því hlutverki stofnunarinnar að efla öryggi í samgöngum.







Móttaka og sending bréfa- og bögglapósts flyst til afgreiðslunnar 1. september

Um langt skeið hefur mikill meirihluti alls bréfapósts sem berst Samgöngustofu verið viðfangsefni Skráninga og þjónustu, og sama gildir um bréfapóst sem við sendum frá okkur. Gerð var úttekt vorið 2024 sem sýndi þetta í tölum.
Þess vegna hefur verið ákveðið að móttaka og sending bréfapósts, böggla og hraðsendinga verði í afgreiðslunni frá og með 1. september.
Afgreiðsla tekur öll bréf, böggla og hraðsendingar sem eiga að fara út úr húsi. Starfsmenn fara með þau þangað en ekki til skjalateymis frá og með 1. september.
Skjalateymi mun áfram ganga frá gögnum sem send eru hingað og ekki tilheyra Skráningum og þjónustu, en sækir þau til afgreiðslunnar.

Large Image

Frammistöðuáætlun í flugleiðsöguþjónustu

Samgöngustofa hefur gefið út frammistöðuáætlun Íslands 2025-2029 í flugleiðsöguþjónustu. Áætlunin byggir á alþjóðlegum kröfum og er liður í innleiðingu markmiða um örugga, hagkvæma og umhverfisvæna flugleiðsögu í sam-evrópska loftrýminu (Single European Sky).

Áhersla er lögð á öryggi, umhverfi, afköst og kostnaðarhagkvæmni með það að markmiði að stuðla að sjálfbærni, betri nýtingu loftrýmis og minni losun gróðurhúsalofttegunda.

Hér má sjá áætlunina og nánari upplýsingar sem varða hana.


U.S. Coast Guard í heimsókn

Dagana 18.–21. ágúst voru fulltrúar frá U.S. Coast Guard (bandarísku strandgæslunni) í heimsókn á Íslandi til að kynna sér framkvæmd siglingaverndar hér á landi.

Með í för voru fulltrúar frá bandaríska sendiráðinu á Íslandi, sem jafnframt eru tengiliðir sendiráðsins við Samgöngustofu í siglingaverndarmálum. Heimsóknin var hluti af alþjóðlegu samstarfsverkefni U.S. Coast Guard, International Port Security Programme, sem miðar að því að efla og samræma eftirlit með siglingavernd á heimsvísu.

Stefán Alfreðsson, fagstjóri í siglingavernd hjá Samgöngustofu, skipulagði heimsóknina í samstarfi við U.S. Coast Guard og bandaríska sendiráðið og var í forsvari fyrir Samgöngustofu.

Í heimsókninni var m.a. farið til Faxaflóahafna í Reykjavík, Akureyrarhafnar og Eimskips. Þá var haldinn kynningarfundur hjá Samgöngustofu þar sem farið var yfir hlutverk stofnunarinnar í siglingaverndarmálum og almenna starfsemi hennar kynnt.


Innviðaþing

Innviðaþing á vegum innviðaráðuneytisins fer fram næstkomandi fimmtudag á Reykjavík Hótel Nordica. Yfirskrift þingsins er Sterkir innviðir – sterkt samfélag. Sjónum verður beint að uppbyggingu og öryggi innviða í samgöngum og fjarskiptum, þar á meðal fjárfestingum og samfélagslegum ávinningi.

Auk þriggja ráðherra munu fjölmargir flytja erindi á þinginu og taka þátt í pallborði. Þeirra á meðal er okkar eigin Gunnar Geir Gunnarsson, deildarstjóri öryggis- og fræðsludeildar.

Nánari upplýsingar og skráningu á innviðaþingið má finna hér á vef ráðuneytisins.


Aðalfundur Farsýslunnar 2025

Stjórn Farsýslunnar boðar til aðalfundar föstudaginn 12. september kl 16:00 í matsalnum í Ármúla 2. Að fundi loknum verður boðið uppá mat og drykk og ætlum við síðan að fjölmenna á Snooker & pool stofuna í Lágmúla og skella okkur í pílu. Skráning fer fram hér.

Tillögur að reglubreytingum þurfa að berast stjórn Farsýslunnar í síðasta lagi fyrir 12 á hádegi föstudaginn 5. september. Reglurnar eru aðgengilegar á innri vef á meðfylgjandi hlekk:

https://samgongustofa.viska.dev/starfsmannafelagid-farsyslan/ 

Dagskrá fundarins:

  1. Skýrsla félagsstjórnar um starf s.l. árs.
  2. Endurskoðaðir reikningar félagsins skulu lesnir og bornir upp til samþykktar.
  3. Reglubreytingar, ef fram koma.
  4. Ákvörðun um félagsgjald.
  5. Kosning stjórnar og endurskoðenda samkvæmt 4. gr.
  6. Önnur mál

Laus sæti eru í næstu stjórn Farsýslunnar og hvetjum við öll sem hafa áhuga á því að bjóða sig fram að hafa samband við eitthvert okkar í núverandi stjórn, sem eru:

Rannveig Garðarsdóttir – formaður

Klara Kristjánsdóttir – gjaldkeri

Ludvig Árni Guðmundsson – ritari

Guðbjörn Jensson

Hákon Varmar Önnuson

Markús Benediktsson

Vivek Sharma

Nýjar ljósmyndir í anddyri

Í síðustu viku voru hengdar upp nýjar ljósmyndir í anddyrinu hér í Ármúla. Myndirnar sýna fólk að störfum í öllum helstu samgöngugreinum og eru afrakstur ljósmyndaverkefnis okkar. Fyrirsæturnar eru úr hópi starfsfólks og ljósmyndarinn einnig, Einar Magnús Magnússon. Með þessu styrkjum við ásýnd Samgöngustofu og gerum starfið okkar enn sýnilegra.

Ætlunin er að halda ljósmyndaverkefninu áfram og stækka smátt og smátt safn okkar af vönduðum kynningarmyndum. Nú í haust munu til dæmis bætast við glæsilegar ljósmyndir sem Einar Magnús tók nýlega um borð í togara, af störfum sjómanna.




Leigubílamálin í Brennslunni

Í morgun var rætt við Þórhildi samskiptastjóra í útvarpsþættinum Brennslan á FM957 um leigubílamálin sem hafa verið talsvert í umræðunni síðasta sólarhringinn. Þar komu meðal annars fram upplýsingar um leyfismálin og að fólk þarf að uppfylla skilyrði til að fá og viðhalda leyfi. Viðtalið var jákvætt tækifæri til að upplýsa um okkar hlutverk og segja frá þeirri vinnu sem við tökum þátt í um að bæta gildandi regluverk.

Hægt er að hlusta á viðtalið hérna og hefst þegar ca 1 klst og 15 mínútur eru liðnar af þættinum

Markaðstorg Samgöngustofu

♻️ Markaðstorg Samgöngustofu – gefum hlutunum nýtt líf 🌱

Umhverfishópurinn hefur sett á laggirnar markaðstorg á Teams – stað þar sem við getum látið hluti ganga áfram, í stað þess að láta þá safna ryki eða fara í ruslið.
Markmiðið er að draga úr sóun, efla endurnýtingu og styðja við sjálfbærni.

Það er jafn velkomið að gefa hluti og að selja – aðalmálið er að þeir fái nýtt líf hjá einhverjum öðrum.

Hvað má auglýsa?

Allt sem er í lagi en þú notar ekki lengur – hvort sem það kemur úr skrifstofunni, geymslunni eða heimilinu.
Hugmyndir að flokkum:

  • Skrifstofuvörur – möppur, skápar, skjástandar
  • Tæki og búnaður – prentarar, smá raftæki
  • Heimilis- og frístundagripir – barnahjól, sleðar, rammar, bækur, skrautmunir, íþróttadót

Við sköpum saman umhverfisvænna umhverfi og sýnum að sjálfbærni byrjar oft í litlu hlutunum.

Þú finnur markaðstorgið hér: Markaðstorg | SGS-Allir | Microsoft Teams

Kærleikur í verki

Samprjón fyrir vökudeild Landspítalans – „Búbblur og prjón“ leitar fleiri þátttakenda!

Hópurinn „Búbblur og prjón“ stendur nú fyrir fallegu verkefni þar sem markmiðið er að prjóna húfur fyrir litlu hetjurnar á vökudeild Landspítalans. Þetta er kærleiksverkefni sem sameinar handavinnu, samveru og umhyggju.

Við ætlum að taka mið af því að prjóna fram að miðjum desember, og síðan afhenda glaðninginn fyrir jól. Allir sem hafa áhuga – hvort sem þú ert vanur prjónari eða nýbyrjaður – eru hjartanlega velkomnir í hópinn.

Ætlunin er einnig að hittast reglulega og prjóna saman, fyrir þá sem vilja njóta samverunnar í persónu.

Upplýsingasíðan um fyrirbura mælir með því að nota þessar uppskriftir:

Þau ykkar sem hafið áhuga á að vera með endilega óskið eftir aðgangi í facebook hópinn „Búbblur og prjón“ og takið þátt í samræðum þar.


Fögnum fjölbreytileikanum

Samgöngustofa styður mannréttindi, fjölbreytileika og jafnrétti. Við erum hluti af samfélagi þar sem öll eiga að geta verið þau sjálf, óháð kynhneigð og kynvitund. Hinsegin dagar standa fram á sunnudag og því höfum við með stolti flaggað regnbogafánum með merki stofnunarinnar.

EKKO stefna Samgöngustofu

Auðnast framkvæmdi áhættumat fyrir Samgöngustofu sl. vetur. Niðurstöður voru kynntar starfsfólki í júní sl. Eitt af verkefnunum sem kom fram var að uppfæra þurfti stefnu og viðbragðsáætlun Samgöngustofu varðandi EKKO (einelti, kynferðisleg áreitni, kynbundin áreitni og ofbeldi). Jafnframt var bent á að þörf væri á að endurskoða og tryggja að starfsfólk hafi greiðan aðgang að upplýsingum um EKKO á innri vef stofnunarinnar.

Stefna og viðbragðsáætlun vegna eineltis, kynferðislegrar áreitni, kynbundinnar áreitni og ofbeldi (EKKO) hefur nú verið uppfært í CCQ og er starfsfólk hvatt til að lesa stefnuna. Stefnuna er að finna hér.

Í vinnslu er að uppfæra innri vef stofnunarinnar og gera hann aðgengilegri fyrir starfsfólk.