Starfsmannafélag Samgöngustofu ber nafnið Farsýslan.
Ef þú óskar eftir því að vera meðlimur í Farsýslunni getur þú haft samband á netfangið farsyslan@samgongustofa.is.

Stjórn Farsýslunnar, september 2024-2025
Rannveig Garðarsdóttir- formaður
Klara Kristjánsdóttir – gjaldkeri
Markús Benediktsson – innkaupastjóri
Guðbjörn Jensson
Hákon Varmar Önnuson
Ludvig Árni Guðmundsson
Vivek Sharma
Aðalbókari:
Friðjón Axfjörð Árnason
Endurskoðandi:
Berglind Magnúsdóttir
Stjórn Farsýslunnar, september 2023-2024
Anney Þórunn Þorvaldsdóttir – formaður
Berglind Magnúsdóttir- Gjaldkeri
Bjarki Sigþórsson – meðstjórnandi
Rannveig Garðarsdóttir- meðstjórnandi
Aðalbókari:
Friðjón Axfjörð Árnason
Endurskoðendur:
Halldóra S. Sigurþórsdóttir og Erna Guðmundsdóttir
Stjórn Farsýslunnar, september 2022-2023
Aron Freyr Jóhannsson – formaður
Hulda Finnsdóttir – Gjaldkeri
Anney Þórunn Þorvaldsdóttir – meðstjórnandi
Díana Björk Eyþórsdóttir – meðstjórnandi
Fanney Lára Sandholt – meðstjórnandi
Gunnar Karl Gunnarsson – meðstjórnandi
Una Björg Einarsdóttir – meðstjórnandi
Stjórn Farsýslunnar, september 2021-2022
Aron Freyr Jóhannsson – formaður
Hafdís Bára Ólafsdóttir – gjaldkeri
Hugrún Ósk Guðmundsdóttir – meðstjórnandi
Róbert Marel Kristjánsson – meðstjórnandi
Díana Björk Eyþórsdóttir – meðstjórnandi
Andri Rúnar Gunnarsson – meðstjórnandi
Rósa Dögg Ómarsdóttir – meðstjórnandi
Aðalbókari:
Friðjón Axfjörð Árnason, mannvirki og leiðsaga
Endurskoðendur:
Laufey Kristinsdóttir, skrifstofa forstjóra
Halldóra S. Sigurþórsdóttir
Stjórn Farsýslunnar, september 2020-2021 (enginn aðalfundur vegna Covid)
Aron Freyr Jóhannsson, stjórnsýsla og þróun
Edda Doris Meyer, mannvirki og leiðsaga
Egill Vignir Reynisson, stjórnsýsla og þróun
Hafdís Bára Ólafsdóttir, umferð og þjónusta
Hrafnhildur Guðmundsdóttir, skrifstofa forstjóra
Hugrún Ósk Guðmundsdóttir, umferð og þjónusta
Róbert Marel Kristjánsson, flug og siglingar
Aðalbókari:
Friðjón Axfjörð Árnason, mannvirki og leiðsaga
Endurskoðendur:
Halla G. Torfadóttir, skrifstofa forstjóra
Laufey Kristinsdóttir, skrifstofa forstjóra
Stjórn Farsýslunnar, kosin á aðalfundi 4. október 2019
• Edda Björk Eggertsdóttir, rekstrarsvið
• Einar Örn Héðinsson, farsvið
• Fanney Lára Sandholt, (ritari) þjónustusvið
• Hildur Guðjónsdóttir, (gjaldkeri) samhæfingarsvið
• Guðjón Atlason, mannvirkja- og leiðsögusvið
• Rúnar Stanley Sighvatsson, ( formaður) farsvið
• Egill Vignir Reynisson, samhæfingarsvið
• Edda Doris Meyer, mannvirkja- og leiðsögusvið
Endurskoðendur:
- Halla G. Torfadóttir, rekstrarsviði
- Laufey Kristinsdóttir, rekstrarsviði
Stjórn Farsýslunnar, kosin á aðalfundi 28. september 2018
- Edda Björk Eggertsdóttir, rekstrarsvið
- Einar Örn Héðinsson, farsvið
- Fanney Lára Sandholt, þjónustusvið
- Helga x Finnsdóttir, (formaður), þjónustusvið
- Hildur Guðjónsdóttir, (gjaldkeri), samhæfingarsvið
- Guðjón Atlason, mannvirkja- og leiðsögusvið
- Rúnar Stanley Sighvatsson, farsvið
Aðalbókari:
Friðjón Axfjörð Árnason
Endurskoðendur:
- Halla G. Torfadóttir, rekstrarsviði
- Laufey Kristinsdóttir, rekstrarsviði
Stjórn Farsýslunnar, kosin á aðalfundi í september 2017
- Anna Margrét Björnsdóttir (formaður), samhæfingarsviði
- Björn Albertsson, rekstrarsviði
- Friðrik Hjörleifsson, rekstrarsviði
- Markús Benediktsson, farsviði
- Ólöf Anna Rúdolfsdóttir, rekstrarsviði
- Thelma Dögg Haraldsdóttir, þjónustusviði
- Þóra Halldórsdóttir, mannvirkja- og leiðsögusviði
Endurskoðendur:
- Halla G. Torfadóttir, rekstrarsviði
- Laufey Kristinsdóttir, rekstrarsviði
Stjórn Farsýslunnar 2016-2017 skipuðu:
- Anna Margrét Björnsdóttir (formaður), samhæfingarsviði
- Björn Albertsson, rekstrarsviði
- Friðrik Hjörleifsson, rekstrarsviði
- Markús Benediktsson, farsviði
- Thelma Dögg Haraldsdóttir, rekstrarsviði
- Kristján Pétur Hilmarsson (gjaldkeri), farsviði
- Þóra Halldórsdóttir, mannvirkja- og leiðsögusviði
Endurskoðendur:
- Halla G. Torfadóttir, rekstrarsviði
- Laufey Kristinsdóttir, rekstrarsviði
Stjórn Farsýslunnar 2015-2016 skipuðu:
- Anna Margrét Björnsdóttir, rekstrasvið/samhæfingarsvið
- Árni Friðriksson, fagsvið um flug, siglingar og umferð
- Friðjón Axfjörð Árnason (formaður), mannvirkja- og leiðsögusviði
- Helga Finnsdóttir, mannauðsmál
- Kara Ásta Magnúsdóttir, rekstrarsvið
- Kristján Pétur Hilmarsson (gjaldkeri), fagsvið um flug, siglingar og umferð
- Steinunn Skúladóttir, rekstrarsvið
Endurskoðendur:
- Halla G. Torfadóttir, rekstrarsviði
- Laufey Kristinsdóttir, rekstrarsviði
Stjórn Farsýslunnar 2014-2015 skipuðu:
- Árni Friðriksson, siglingasviði
- Friðjón Axfjörð Árnason (formaður), mannvirkja- og leiðsögusviði
- Helga Finnsdóttir, mannauðsmál
- Iðunn Dögg Gylfadóttir, umferðarsviði
- Irma Ösp Magnúsdóttir, umferðarsviði
- Nína Dís Ólafsdóttir (gjaldkeri), umferðarsviði
- Sigrún H. Kristjánsdóttir, samhæfingarsviði
Endurskoðendur:
- Guðlaug Íris Þráinsdóttir, rekstrarsviði
- Laufey Kristinsdóttir, rekstrarsviði
1. gr.
Félagið heitir Farsýslan og er starfsmannafélag Samgöngustofu.
2. gr.
Félagi getur hver sá orðið sem vinnur hjá eða fyrir Samgöngustofu.
Aðalfundur ákveður upphæð félagsgjalds og er það tekið af launum félagsmanna annarra en verktaka um hver mánaðamót. Umsamið framlag Samgöngustofu á móti hverjum félagsmanni, öðrum en verktökum, greiðist einnig mánaðarlega til félagsins.
3. gr.
Markmið félagsins er að stuðla að kynningu meðal félagsmanna og efla samstarf og samvinnu þeirra á félagslegum grundvelli.
Verkefni félagsins eru m.a.:
- að efla félagsstarf með skemmtunum, ferðalögum o.s.frv. fyrir félagsmenn
- að sjá um að gefa afmælisgjafir að fjárhæð kr. 20.000 til starfsmanna sem eiga stórafmæli (30, 40,
50, 60 og 70 ára)
- að örva stofnunina til þátttöku í starfi félagsins
- að styrkja önnur félög starfsmanna innan Samgöngustofu
4. gr.
Stjórn félagsins skipa sjö einstaklingar; formaður og aðrir stjórnarmenn sem eru gjaldkeri, ritari og fjórir meðstjórnendur. Æskilegt er að stjórnarmenn séu frá öllum sviðum stofnunarinnar. Stjórn félagsins er kosin af aðalfundi, formaður er kosinn sérstaklega til eins árs og þrír stjórnarmenn til tveggja ára. Stjórnin skiptir með sér verkum. Varamenn í stjórn eru allir félagsmenn Farsýslunnar og ef stjórnarmönnum fækkar er stjórn heimilt að kalla hvaða varamann sem er, að fengnu samþykki viðkomandi, til setu í stjórn án sérstakrar kosningar að undangenginni auglýsingu þar um. Endurskoðendur skulu vera tveir og eru þeir einnig kosnir af aðalfundi.
5. gr.
Stjórn félagsins skal framkvæma ákvarðanir félagsfunda. Formaður boðar stjórnarfundi. Stjórnarfundur er lögmætur ef meirihluti stjórnar mætir og ræður afl atkvæða úrslitum. Formönnum annarra félaga starfsmanna innan Samgöngustofu skal boðið að sitja stjórnarfund a.m.k. einu sinni á hverju starfsári.
6. gr.
Aðalfund skal halda í september ár hvert og boða skal til fundarins með a.m.k. tveggja vikna fyrirvara.
Tillögur um breytingu á reglum félagsins geta aðeins komið fram í tengslum við aðalfund. Þær skal kynna með minnst viku fyrirvara fyrir fundinn.
Dagskrá fundarins skal vera sem hér segir:
- Skýrsla félagsstjórnar um starf s.l. árs.
- Endurskoðaðir reikningar félagsins skulu lesnir og bornir upp til samþykktar.
- Reglubreytingar, ef fram koma.
- Ákvörðun um félagsgjald.
- Kosning stjórnar og endurskoðenda samkvæmt 4. gr.
- Önnur mál
Afl atkvæða ræður á fundinum. Þó þarf 2/3 hluta atkvæða til að reglubreyting nái fram að ganga.
7. gr.
Félagsstjórn boðar til fundar í félaginu þegar hún sér ástæðu til. Þó skal skylt að boða til félagsfundar ef a.m.k. 1/5 félagsmanna krefst þess, enda tilgreini þeir fundarefni. Til almennra félagsfunda skal boðað með minnst viku fyrirvara.
8. gr.
Formaður stjórnar fundum. Heimilt er honum þó að skipa sérstakan fundarstjóra. Fundarstjóri sker úr um ágreining í sambandi við fundarsköp. Halda skal gerðabók allra félags- og stjórnarfunda.
9. gr.
Reikningsár félagsins er frá 1. september til 31. ágúst. Ákvörðun um félagsgjald gildir frá 1. nóvember ár hvert.
10. gr.
Á félagsfundi er heimilt að kjósa nefndir til að fjalla um ákveðin málefni í samráði við félagsstjórn. Stjórninni er einnig heimilt að kveðja félagsmenn sér til aðstoðar í einstökum málum.
11. gr.
Stjórnarmenn skulu fá umbun fyrir störf sín í formi þess að þeir þurfa ekki að greiða fyrir aðgang að viðburðum félagsins innanlands. Gildir eingöngu fyrir stjórnarmenn en ekki maka þeirra.
12. gr.
Ákvörðun um slit félagsins skal taka á aðalfundi með einföldum meirihluta atkvæða og renna eignir þess til Barnaspítala Hringsins.
13. gr.
Reglur félagsins, eins og þær eru birtar hér, tóku gildi á aðalfundi félagsins þann 30. september 2022.



