Fundur ECAC í vikunni


Samstarf evrópskra flugmálastjórna er mjög gott og haldnir eru reglulegir fundir undir hatti ráðstefnu evrópskra flugmálastjórna (ECAC). Einn slíkur fundur var í byrjun þessarar viku þar sem fulltrúar Samgöngustofu tóku þátt. Efni fundarins var nokkuð hefðbundið og má þar nefna upplýsingagjöf frá starfi aðalráðs Alþjóðaflugmálastofnunarinnar (ICAO) sem Valdís Aðalsteinsdóttir sá um en hún gegnir um þessar mundir hlutverki þess fulltrúa sem sér um samræmingu milli Evrópulanda í ráðinu.

Juan Carlos Salazar framkvæmdastjóri ICAO tók einnig þátt í fundinum ásamt fulltrúum EASA og EUROCONTROL. Stríðið í Úkraínu fékk töluverða umræðu og þá hvernig önnur lönd geta stutt við landið bæði nú og í þeirri uppbyggingu sem þarf að eiga sér stað að stríði loknu, sem vonandi verður fyrr en seinna. Málefni sem snúa að réttindum farþega með hreyfihömlun voru einnig rædd ásamt áformum um að styrkja áhersluna á fjölbreytileika og inngildingu, en síðara orðið er nýyrði fyrir orðið „inclusion“ sem einnig er þekkt sem, án aðgreiningar.

Umhverfismálin fengu töluverða athygli en áherslur Evrópu eru skýrar varðandi kolefnishlutleysi í flugi árið 2050. Tryggja þarf skýr markmið á þeirri vegferð og skapa aðstæður til að hvati verði til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Í alþjóðafluginu er gert ráð fyrir að mestur árangur náist með framleiðslu og notkun á umhverfisvænu flugvélaeldsneyti (Sustainable Aviation Fuels, SAF). Ríki Evrópu eru þessa dagana að undirbúa sig fyrir stóra ráðstefnu í haust á vegum ICAO sem mun einmitt fjalla um skuldbindingar og regluverk í kringum SAF, svokallaða CAAF/3 ráðstefnu (Conference on Alternative Aviation Fuels) sem verður haldin í Sameinuðu Arabísku furstadæmunum. Áherslur Evrópu eru m.a. að tilgreint verði lágmarkshlutfall SAF í flugvélaeldsneyti á hverjum tíma á heimsvísu.

Málefnin sem tilgreind eru hér að ofan skipta Ísland miklu máli og því mikilvægt að taka þátt í mótun til framtíðar.







Föstudagslagið í boði Drafnar

Það er hún Dröfn Gunnarsdóttir á stjórnsýslusviði sem velur föstudagslagið að þessu sinni:

Ég vel lagið Proud Mary til að heiðra minningu Tina Turner, The queen of rock‘n‘ Roll sem lést í gær 83 ára að aldri.

Ég er mikil Tina Turner kona og veit fátt betra en að vera í miðaldra partý og blasta Proud Mary og taka dans-kóreógrafíuna sem sést í myndbandinu alla leið, klikkar ekki!

Í meðfylgjandi myndbandi má sjá drottninguna á live tónleikunum sem fóru fram í Hollandi árið 2009, þar er hún 70 ára að taka Proud Mary sem var þá gefið út fyrir ca. 40 árum, eins og sést þá hefur hún engu gleymt. Í grunninn fjallar lagið um hugsjón sem á vel við í dag „ Að skilja eftir streituvaldandi hluti fyrir rólegra og innihaldsríkara líf“

Á tónlistarferlinu fékk Tina Turner 12 Grammy verðlaun ásamt fjölda annarra verðlauna, hún sló heimsmet árið 1988 og fékk sæti í Heimsmetabók Guinness fyrir að eiga „flesta miða sem solo söngvari hefur selt á tónleikum“. Tónleikarnir voru haldnir í Rio de Janeiro, Braziliu, en þá seldust 188 þúsund miðar.
Í síðasta opinbera viðtalinu sínu talar hún um að hún vilji vera minnst sem : “A woman who showed other women that it is okay to strive for success on their own terms.”

Tinu Turner verður minnst sem goðsögn og frábær fyrirmynd.

Ég skora á Ernu Guðmundsdóttur fagstjóra fjármáladeildar að taka næsta föstudagslag.

Vorboðinn ljúfi?

Á vísindavef Háskóla Íslands er nokkuð efnismikil grein um það hvort vorboðinn ljúfi í kvæði Jónasar Hallgrímssonar, Ég bið að heilsa, sé lóa eða þröstur. Að ýmsu ber greinilega að huga við þessa greiningu og um að gera að lesa greinina og mynda sér skoðun á því hvort Jónas orti um þröst eða lóu 🙂

En þetta átti ekki að vera gáfumannahornið heldur krútthornið á innri vefnum. Það er nefnilega komið hreiður hér í Ármúlanum sem sést vel úr kaffistofunni á 2. hæð. Þar hefur skógarþröstur valið sér að byggja hreiður og og liggur þar á fjórum myndarlegum eggjum. Spurning um að koma upp vefmyndavél og auka þannig traffíkina á Fésbókinni okkar?

Á fuglavefnum er hægt að fræðast um skógarþröstinn sem og alla aðra fugla sem hafa fasta búsetu á Íslandi eða koma hér við á sumrin. Þar er t.d. hægt að spila hljóðdæmi og tilvalið að nýta sér það og fara í leik með fjölskyldunni í sumar þar sem spiluð eru hljóðdæmi og fólk á að geta til um hvaða fugl sé að ræða.

Vel valið, skjól fyrir öllum vindáttum
Eins gott að liggja sem mest á eggjunum í þessu tíðarfari


Ég bið að heilsa

Nú andar suðrið sæla vindum þýðum.
Á sjónum allar bárur smáar rísa
og flykkjast heim að fögru landi Ísa,
að fósturjarðar minnar strönd og hlíðum.

Ó, heilsið öllum heima rómi blíðum
um hæð og sund í drottins ást og friði.
Kyssið þið, bárur, bát á fiskimiði.
Blásið þið, vindar, hlýtt á kinnum fríðum.

Vorboðinn ljúfi, fuglinn trúr sem fer,
með fjaðrabliki háa vegaleysu
í sumardal að kveða kvæðin þín,

Heilsaðu einkum, ef að fyrir ber
engil með húfu og rauðan skúf, í peysu.
Þröstur minn góður, það er stúlkan mín.

Jónas Hallgrímson




Eldur í rafhlöðum um borð í skipum

Eldur í rafhlöðum um borð í skipum: 1st International symposium on fire in electric storage at sea

Þriðjudaginn 23. maí hélt Samgöngustofa ráðstefnu um hættu, afleiðingar og viðbrögð við rafmagnseldum um borð í skipum. Ráðstefnan var  í samvinnu við Siglingaöryggisstofnun Evrópu (EMSA), Eimskip, DNV, Slökkvilið Höfuðborgarsvæðisins, Slökkvilið Vestmanneyja, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Húsnæðis-og mannvirkjastofnun, Landhelgisgæslu Íslands, Smyril Line og fjölda annarra aðila á Íslandi.

Upptaka frá ráðstefnunni

Ráðstefnan var mjög fróðleg og tóku þátt í henni 198 manns bæði á Grand hótel og á vefnun. Erindi voru frá Noregi, Færeyjum, Svíþjóð, Danmörku og frá EMSA í Portúgal. Fulltrúi EMSA og fjöldi annarra  lýstu yfir mikill ánægju með ráðstefnuna og vorum við hvött til að halda aðra ráðstefnu á næsta ári með sama hætti.

Ljóst er að um alla Evrópu er þetta áskorun sem margir eru að takast á við og vandamál sem menn eru að reyna finna lausnir við til að bæta öryggi.

Vefur ráðstefnunnar

Myndir

Frábær árangur í Hjólað í vinnuna

Hjólað í vinnuna lauk í gær og getum við hjá Samgöngustofu verið stolt af okkar þátttöku. Liðið Mótvindur var efst liða hjá okkur og endaði í 13. sæti í kílómetrakeppninni á landsvísu en þau hjóluðu rúma 1500 km. Samgöngustofa var í 7. sæti vinnustaða með 130-399 starfsmenn en liðin hjóluðu samtals rúma 2950 km á tímabilinu.

Úrslit í liðakeppni Samgöngustofu:


Samgöngustofa endaði í 7. sæti í flokki fyrirtækja með 130-399 starfsmenn:

Mótvindur endaði í 13. sæti yfir flesta hjólaða kílómetra með rúma 1500 km hjólaða:

Vel gert!

Tilkynning um eigendaskipti ökutækja komin á island.is

Nú hafa tilkynningar um eigendaskipti ökutækja og meðeigenda ökutækja flust yfir á Ísland.is. Ferlið er að fullu stafrænt, hefur verið endurbætt og er nú mun notendavænna en áður.

Tilkynnt er um eigendaskipti ökutækis á island.is og þarf það að gerast innan 7 daga frá sölu. Ferlið er eftirfarandi:

  1. Seljandi fyllir út tilkynninguna og greiðir fyrir skráningu.
  2. Kaupandi/meðeigandi/umráðamaður undirritar tilkynninguna rafrænt.
  3. Eigandaskiptin eru sjálfkrafa skráð í ökutækjaskrá.

Áður en eigendaskipti eru tilkynnt er mikilvægt að kanna stöðu ökutækisins með tilliti til veðbanda, tjónaferils og fleiri atriða sem útlistað er í grein um kaup og sölu ökutækis.

Nánari upplýsingar má finna á island.is.

Föstudagslagið í boði Ómars Sveinssonar

Hann Sverrir Konráðsson skoraði á Ómar Sveinsson fyrir þessa viku. Ómar velur lagið Nice ´N´Sleazy með The Stranglers. Ómar bendir á pistil Dr. Gunna þar sem hann fjallar stuttega um tónleika með Stranglers sem haldnir voru í Laugardalshöllinni þann 3. maí 1978:

„Enska pönksveitin The Stranglers (eða Kyrjararnir eins og íslenskir fjölmiðlar kynntu sveitina til leiks) spilaði í Laugardalshöll 3. maí 1978. Steinar Berg og félagar stóðu að innflutningi bandsins í samráði við útgáfuna UA, en þar fannst mönnum gott flipp að halda útgáfutónleika fyrir þriðju plötu sveitarinnar, Black & White, á Íslandi og smala erlendum blaðamönnum á þetta flippaða sker. Giggið var rækilega kynnt og meðal annars var nýjasta smáskífulag Stranglers, Five Minutes, spilað í sjónvarpinu. Ég og fleiri sáum þetta og fengum pönk í æð í fyrsta skipti.“

Á síðunni Strange reaction má einnig lesa áhugaverða grein sem ber yfirskriftina „How the Stranglers kickstarted Icelandic punk” sem fjallar einmitt um komu Stranglers til Íslands og þau áhrif sem þeir tónleikar höfðu á íslensku pönksenuna.







Fjölskyldugleði Samgöngustofu og Farsýslunnar

Endilega takið daginn frá og eigum góða stund með fjölskyldum okkar áður en allir halda í sumarfrí!

Breytingar á hafnalögum

Alþingi hefur samþykkt frumvarp innviðaráðherra um breytingar á hafnalögum. Meðal breytinga er að í gjaldskrám hafna, sem eru ekki í opinberri eigu, verður heimilt að taka mið af umhverfissjónarmiðum, orkunýtni eða kolefnisnýtni í siglingum. Nær þessi heimild til Faxaflóahafna, stærstu hafnar Íslands, en ráðuneytið hyggst nú í kjölfarið undirbúa ákvæði sem nær yfir aðrar hafnir landsins.

Með breytingunum er opnað á umhverfismiðaða gjaldtöku sem hefur rutt sér til rúms í Evrópu. Í dag eru einungis skemmtiferðaskip metin samkvæmt þessum alþjóðlegu vísitölum en þegar fram líða stundir gætu flutningaskip bæst við. Með þessu verður til fjárhagslegt hvatakerfi til umhverfisvænni og sjálfbærari skipareksturs. Afslættir eða álögur af þessu tagi skulu samkvæmt breyttum lögum vera gagnsæjar, hlutlægar og án mismunar og samræmast samkeppnislögum.

Sjá nánar á vef innviðaráðuneytisins.


Skútan siglir!

Hin langþráða Skúta hefur verið tekin í notkun. Skútan er nýtt tölvukerfi fyrir skipaskrá og lögskráningar sjómanna sem hefur verið lengi í smíðum en er loks komin í loftið. Hún gerir kleift að fylgja alþjóðlega viðurkenndu fyrirkomulagi um skipaskoðanir, gefur möguleika á stafrænni útgáfu til framtíðar og auðveldar eftirlit. Vaskur hópur starfsfólks hjá Samgöngustofu hefur unnið hörðum höndum að verkefninu sem nú hefur litið dagsins ljós. Til hamingju!



Strandveiðar í Landanum

Í þættinum Landinn sem sýndur verður á sunnudaginn í Sjónvarpinu verður m.a. fjallað um Sigríði Dagbjörtu Jónsdóttur útgerðarkonu og son hennar Hauk Einarsson en saman stunda þau strandveiðar. Samgöngustofu laumaði hugmynd að þáttastjórnendum Landans um mögulega umfjöllun um þau og þá m.a. með vísan í öryggismál og undirbúning fyrir veiðarnar. 

Strandveiðarnar hófust 1. maí og Samgöngustofu er mjög í mun að sjómenn nýti sér m.a. gátlista sem finna má hér á heimasíðu okkar. 

Þátturinn var tekinn upp á Tálknafirði. Okkar maður á Ísafirði, Trausti Ægir Ólafsson sérfræðingur skipsskírteina, var á staðnum og staðfesti fyrir þáttarstjórnendum gæði og öryggi báts og áhafnar og því var hlutverki Samgöngustofu gerð góð skil – að minnsta kosti í upptökum þáttarins. 

Við þökkum Gísla Einarssyni þáttastjórnanda, Trausta Ægi, Hauki og Sigríði fyrir frábærar viðtökur og samstarf sem vonandi verður til að efla enn frekar öryggismenningu og -vitund strandveiðisjómanna.



Kynning Sigurjónu í morgun

Í föstudagskaffinu í morgun fræddi Sigurjóna Sigurðardóttir, deildarstjóri leyfisveitinga og ökunáms, okkur um verkefni deildarinnar. Þau er fjölbreytt og varða margskonar leyfisveitingar, nám, þjónustu og eftirlit. Viðskiptavinirnir eru t.d. bílaleigur, leigubílstjórar, rekstarleyfishafar í farþega- og farmflutningum og risastór hópur ökunema. Einnig var gaman að heyra af góðum gangi verkefnis um stafrænt ökunám sem deildin leiðir. Þeir áfangar sem þegar hafa náðst bæta gríðarlega mikið þjónustu við ökunema til B-réttinda (sem er almenna bílprófið), aðstandendur þeirra, ökukennara og ökuskóla.

Hér má sjá kynningu um verkefni leyfisveitinga og ökunáms.





Föstudagslagið í boði Sverris


Það er hann Sverrir Konráðsson sem velur föstudagslagið að þessu sinni og um val sitt skrifar hann:

Ég tók áskoruninni frá Helga Jóhannessyni og vel Take it Easy með Eagles. Upptakan er frá lokatónleikaferð sveitarinnar árið 2004 og nefndist Farewell Tour 1. Hins vegar urðu tónleikaferðirnar fleiri.

Eagles er bandarísk hljómsveit. Hún var stofnuð í Los Angeles árið 1971 af Glenn Frey, Don Henley, Bernie Leadon og Randy Meisner. Ég varð strax aðdáandi þessar sveitar sem söng sig inn í hjörtu landsmanna og alls heimsins með sínum melódísku lögum og skemmtilegum hrynjanda. Þetta flokkaðist undir Country Rock, eða létt rokk. Allir kannast við Hotel California, sem var eitt sinn föstudagslagið hjá okkur, með sínu glæsilega gítarsólói sem er orðið sígilt í rokksögunni.

Sveitin vann Grammy-verðlaunin sex sinnum. Hljómsveitin er í 75. sæti yfir bestu hljómsveitir allra tíma að mati tímaritsins Rolling Stone og á breiðskífu í 37. sæti yfir bestu breiðskífur allra tíma. Þeir eiga jafnframt mest seldu plötu í Bandaríkjunum, Their Greatest Hits 1971-1975.

Eagles hættu í júlí 1980 en tóku aftur saman árið 1994 fyrir breiðskífuna Hell Freezes over. Þeir voru á stífu tónleikaferðalagi síðan þá og komust inn í Rock and Roll Hall of Fame árið 1998. Árið 2007 gáfu þeir út Long Road out of Eden, fyrstu breiðskífu sína í 28 ár. Glenn Frey lést í New York þann 18. janúar 2016 eftir baráttu við veikindi. Eftir andlát Frey ákvað The Eagles að leggja upp laupana árið 2016. Samt sem áður hélt hljómsveitin áfram næsta ár.

Ég skora á Ómar Sveinsson að velja næsta lag.

https://youtu.be/tS2Z12egw1o?t=1





Hjólað í vinnuna – staðan

Hjólað í vinnuna hófst þann 3. maí síðastliðinn og því búnir fimm heilir dagar í átakinu. Við stöndum okkur ágætlega í keppninni milli stofnana og fyrirtækja en í okkar flokki (vinnustaðir með 130-399 starfsmenn) erum við í 6. sæti hvað varðar heildar vegalengd, 2. sæti þegar hlutfall km er skoðað og 4. sæti þegar kemur að hlutfalli daga. Sjá töflur:

Heildar vegalengd:

Hlutfall kílómetra:

Hlutfall daga:


Staðan í liðakeppninni hjá okkur á Samgöngustofu er þannig að Mótvindur hefur hjólað flesta kílómetra og þau eru einnig með hæst hlutfall daga:

Þegar kemur að hlutfalli kílómetra er eru það svo Rúnar og félagar í liðinu Einmanna sem eru í forystu. Rúnar stofnaði liðið þar sem fullt var í bæði liðin sem fyrir voru og nefndi liðið sitt einmanna þar sem honum fannst hann vera útundan. En svo bættust tveir við og því má segja að um rangnefni sé að ræða:


Það er ljóst að við í Meðvindi þurfum að fara að gefa í ef ekki á illa að fara. Meðvindurinn virðist lítið hjálpa okkur í þessari æsispennandi keppni…








Þjónustugreining – lokaspretturinn

Nú eru tveir dagar eftir af skráningarátakinu vegna þjónustugreiningarinnar en fimmtudagurinn er lokadagurinn.

Miðlæga Excel skjalið er að finna hér en inn í það á að skrá allar spurningar og/eða erindi sem berast til Samgöngustofu frá notendum.

Staðan núna, rúmlega 2800 skráningar komnar:

Tökum góða törn síðustu tvo dagana og verum dugleg að skrá! Það væri frábært að ná 3500 skráningum fyrir lok dags á fimmtudag.

Miðlæga skjalið er hjartað og miðjan í þjónustugreiningarverkefninu og það gæti verið góð hugmynd að „pinna“ linkinn inn í „favorites“ í vafranum þínum.

Nánari upplýsingar um skráningarátakið má finna í þessari frétt.










Ráðstefna um eld í rafhlöðum í skipum


Þriðjudaginn 23. maí næstkomandi munum við á Samgöngustofu halda ráðstefnu um hættu, afleiðingar og viðbrögð við rafmagnseldum um borð í skipum. Undirbúningurinn hefur verið í samvinnu við m.a. Siglingaöryggisstofnun Evrópu (EMSA), Eimskip, DNV, Slökkvilið Höfuðborgarsvæðisins, Slökkvilið Vestmanneyja, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Húsnæðis-og mannvirkjastofnun, Landhelgisgæslu Íslands, Smyril Line og fjölda annarra aðila á Íslandi.

Kveikjan að ráðstefnunni eru áskoranir vegna eldhættu sem birst hafa með tilkomu nýrra orkugjafa í ökutækjum. Tilgangurinn er samtal og samvinna um leiðir og lausnir til að tryggja öryggi um borð.

Staðsetning

Ráðstefnan um rafmagnselda í skipum verður haldin á Grand hótel í Reykjavík og samtímis streymt á vefnum.


Skráning og upplýsingar

Upplýsingar um ráðstefnuna og skráning er á slóðinni:
www.icetra.is/electricalfires

Dagskrá

12.30 Opening remarks; Halldór Zoega, ICETRA
12.40 Norway’s experience with litium-ion fires and what we learned from them –Kurt Tofte Rusas Bergen fire department Norway
13:40 Presentation on Smyril line 2023 response to growing number of electrical vehicles and uncharted fire hazards.
14:10 Changes in rules on battery safety based on recent incidents, -Lars Laanke, Product Responsible Systems & Components DNV- On Teams
15.00 Coffee break
15:20 Battery fires and the science behind them, Per Ola Malmquist former battalion chief from Helsingborg Fire Brigade- On Teams
16:00 Battery fires from an Administration’s point of view, Sifis Papageorgiou Norwegian Maritime Authority
16:45 Incidents in Energy Storage Systems, Kurt Vollmacher Independent Expert New Energies-On Teams
17:20 EMSA Work on the topic and discussions about next steps? Mr Lanfranco Benedetti, Project Officer for Ship Safety in Unit Safety, EMSA Department Safety, Security and Surveillance-On Teams
17:50 The content summarized, what did we learn from the presentations today? Aron Freyr Jóhannesson, Legal Adviser ICETRA
18:00 Closing remarks

Ráðstefnan fer fram á ensku.

Kynning Helga Jóhannessonar í morgun


Helgi Jóhannesson, deildarstjóri Áhafna, skráningar og leyfa á siglingasviði, kynnti deildina í morgunkaffinu og var mjög fróðlegt að heyra af þeim fjölmörgu verkefnum sem þau sinna.

Glærurnar má nálgast hér

Í erindinu kom m.a. eftirarandi fram:

Hverjir leita helst til deildarinnar?

  • Sjómenn
  • Útgerðir
  • Stéttarfélög sjómanna
  • Sjómannalæknar
  • Erlend fánaríki skipa (verification)
  • Erlendir sjómenn á íslenskum skipum

Hver eru helstu verkefni deildarinnar?

  • Skipaskrá
  • Sjómannamenntun – eftirlit með sjómannaskólum
  • Útgáfa atvinnuskírteina (skip- og vélstjórnarmenn)
  • Skemmtibátaskírteini
  • Skírteini fyrir hafnsögu- og leiðsögumenn
  • Atvinnukafaraskírteini
  • Útgáfa sjóferðabóka
  • Sjómannalæknar
  • Erlent samstarf (IMO-EMSA-ESB, COSS-STCW vinnuhópar)
  • Undirbúningur úttekta
    • IMO – hvítlisti
    • EMSA – Evrópukröfur
    • Vottun – gæðastjórnun
  • Lögskráning sjómanna

Sjá nánar í glærupakkanum frá því í morgun








Föstudagslagið í boði Helga


Það er hann Helgi Jóhannesson sem velur föstudagslagið að þessu sinni og um val sitt segir hann:

Það er gaman að fá þessa áskorun frá Jakobi Andra laganema, einkum vegna þess að þegar ég vann á Siglingastofun Ísland fékk ég laganema á hverju sumri til starfa á mínu sviði. Þeir reyndust afskaplega góðir starfsmenn og starfa nú sem lögfræðingar á ýmsum stöðum í þjóðfélaginu og einn þeirra leikur auk þess nokkuð stórt hlutverk í sjónvarpsseríunni “Afturelding” sem sýnd er á RÚV þessa dagana.

Mörg lög koma upp í hugann hjá mér þegar velja á föstudagslagið; t.d. Bítlarnir, Rolling Stones, Billy Joel, Roger Whittaker, Dubliners og Supertramp.

Ég ætla að velja Bítlalagið “When I´m Sixty four”, einkum vegna þess að samstarfsmaður okkar og stórvinur minn Steingrímur Hauksson, sönglar þetta lag stöðugt þegar maður mætir honum á göngunum og í matsalnum, enda nýorðinn 64 ára.

Lagið var samið árið 1967 af Bítl­un­um og kom fyrst á plöt­unni Sgt. Pepp­er’s Lonely Hearts Club Band. Paul McCart­ney og John Lennon eru skrifaðir fyr­ir lag­inu, þó er sá fyrr­nefndi sagður aðalsmiður þess og syng­ur það einnig. Þetta er lag sem mikið var gert grín að á sín­um tíma. Mörg­um þótti lagið hallæris­legt því hann samdi það fyr­ir pabba sinn, en faðir McCart­neys varð 64 ára árið sem þeir tóku upp plöt­una. Lagið fjall­ar um ung­an mann sem syng­ur til kær­ustu sinn­ar um hvernig þau eld­ast sam­an. Lagið er eitt af þeim fyrstu sem McCart­ney samdi en hann var þá ein­ung­is sex­tán ára gam­all.

Ég skora á Sverrir Konráðsson, samstarfsfélaga hér á Samgöngustofu og áður í Siglingastofnun Íslands til 25 ára, gítarleikara, skipstjórnarmann, og löggiltan skjalaþýðanda til að velja næsta föstudagslag.








Nýtt starfsfólk

Frá vinstri: Andri, Berglind Ýr, Björn og Hrönn


Í vikunni hófu Andri, Berglind Ýr, Björn og Hrönn störf hjá Samgöngustofu.

Andri Hermannsson gegnir stöðu eftirlitsmanns flugvalla og er staðsettur á gangi 2b.

Berglind Ýr Jónasdóttir gegnir stöðu sérfræðings í flugrekstrar- og skírteinadeild og er staðsett á gangi 2c.

Björn Friðriksson gegnir stöðu sérfræðings í kerfis- og notendaþjónustu og er staðsettur á gangi 1c.

Hrönn Þórisdóttir gegnir stöðu sérfræðings í skipatæknideild og verður staðsett á Akureyri.

Tökum vel á móti þeim J







Prófanir á lögskráningu í Skútunni

Eins og áður hefur komið fram þá verður Skútan (nýtt tölvukerfi fyrir skipaskrá og lögskráningar sjómanna) tekin í notkun þann 15. maí næstkomandi.

  • Dagana 6.-11. maí býðst notendum að prófa nýja lögskráningarkerfið. 
  • Slóð á prófunarkerfið er: skutantest.samgongustofa.is  
  • Innskráning fer fram með rafrænum skilríkjum.

Nánari upplýsingar um nýja kerfið og kennslumyndband er að finna á sérstakri upplýsingasíðu: www.samgongustofa.is/skutan

Tekið er á móti ábendingum og athugasemdum á tölvupóstfanginu: skutan@samgongustofa.is

Mikilvægt er að koma því á framfæri við þá sem eru að lögskrá og afskrá að það þarf að gera með sama hætti og verið hefur í gamla lögskráningarkerfið til kl. 12.00 föstudaginn 12. maí nk., þegar því verður lokað.