
Eins og fram hefur komið hefst þjónustugreining Samgöngustofu á morgun 27. apríl og stendur yfir í tvær vikur, til 11. maí.
Kynningarglærur Stafræns Íslands frá því í morgun
Í tilefni dagsins verður boðið upp á sérstakt skráninga búst í mötuneytinu í fyrramálið til að koma öllum í skráninga gírinn. Hádegismaturinn á morgun verður heldur ekki af verri endanum því þá ætla Bjössi og Össi að framreiða skráninga bröns fyrir okkur, en brönsinn ku vera sérstaklega vel til þess fallinn til að auka skráninga úthald.
Miðlæga Excel skjalið er að finna hér en inn í það á að skrá allar spurningar og/eða erindi sem berast til Samgöngustofu frá notendum.
Miðlæga skjalið er hjartað og miðjan í þjónustugreiningarverkefninu og það gæti verið góð hugmynd að „pinna“ linkinn inn í „favorites“ í vafranum þínum.

Skjalið inniheldur átta flipa og hvert svið SGS hefur sinn flipa í skjalinu sem starfsmenn skrá inn í:
- Verkefnið: nánari lýsing á þjónustugreiningarverkefninu, sem gott er að kynna sér.
- Umferð: starfsfólk umferðarsviðs fyllir inn í þennan flipa.
- Flug: starfsfólk flugsviðs fyllir inn í þennan flipa.
- Siglingar: starfsfólk siglingasviðs fyllir inn í þennan flipa.
- Skrifstofa forstjóra: starfsfólk á skrifstofu forstjóra fyllir inn í þennan flipa.
- Stjórnsýsla: starfsfólk stjórnsýslusviðs fyllir inn í þennan flipa.
- Áframsent: ef þú þarft að áframsenda erindi innanhúss, þá á að fylla út í þennan flipa og þessi flipi á við um öll svið SGS.
- Málaflokkar: Forskriftir fyrir felliglugga skjalsins.

Gagnlegar upplýsingar varðandi verkefnið:
- Í tvær vikur (27. apríl til og með 11. maí) skrá starfsmenn niður allar spurningar sem þeim berast í gegnum síma, tölvupósti, netspjalli eða eftir öðrum leiðum frá viðskiptavinum og/eða hagsmunaaðilum.
- Það á að skrifa niður allar spurningar sem stofnuninni berast, þó sama spurningin komi oft fyrir. Það gefur okkur tölfræði yfir algengustu spurningarnar.
- Reyna á að skrá niður það orðalag sem notað var í spurningunni frá notanda/viðskiptavini. Það hjálpar til við leit á Google og Island.is
- Ef mál/fyrirspurn er send áfram skal skrá það í “Áframsent” flipann í skjalinu.
- Ef þér finnst vanta inn í skjalið málaflokk eða annað sem má bæta, ekki hika við að skrifa það inn í athugasemda dálkinn í skjalinu.
- Gæta þarf að því að draga “sleðann”, sem er fyrir ofan flipana, fremst svo dagsetning og tímasetning komi fremst í skjalinu, þegar byrjað er að skrá í skjalið.
- Við uppsetningu á góðum vef er mikilvægt að vita af hverju notendur hafa samband. Það bæði hjálpar okkur að skilja notendur betur og hjálpar okkur að skrifa greinar á vef Samgöngustofu með algengustu spurningarnar í huga.
- Við lok verkefnisins þann 11. maí verður boðið upp á grill & ísbílinn í hádeginu.
Ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi verkefnið, ábendingar um hvað má bæta eða vantar aðstoð við að fylla út í skjalið, ekki hika við að hafa samband við okkur á samskipti@samgongustofa.is
Hlökkum til að vinna með þér í þessu verkefni 🙂