Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið (uppfært) dagpeninga til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar á ferðalögum innanlands. Breytingin tekur gildi frá og með 1. maí 2023.
- Gisting og fæði í einn sólarhring kr. 49.500 (var 34.500 kr)
- Gisting í einn sólarhring kr. 34.300 (var 20.400 kr)
- Fæði hvern heilan dag, minnst 10 tíma ferðalag kr. 15.200 (var 14.100 kr)
- Fæði í hálfan dag, minnst 6 tíma ferðalag kr. 7.600 (var 7.050 kr)
Akstursgjald tekur einnig breytingum frá 1. maí 2023. Fyrstu 10.000 km, verða 141 kr. pr. km
Uppfært skjal “Ferðabeiðni innanlands, frá og með 1. maí 2023” má nálgast undir Samgöngustofa – verklagsreglur hér á innri vefnum (verður fært í CCQ).



