Lárus Long í Stafræna spjallinu


Lárus Long, deildarstjóri upplýsingatæknideildar, mætti í Stafræna spjallið sem Stafrænt Ísland heldur úti en þar er stafræn umbreyting ríksins rædd á mannamáli. Markmiðið er að auka skilning og opna augu okkar allra fyrir þeim tækifærum sem leynast í stafrænni þróun. Hið stafræna snýst nefnilega um fólk og því ekkert mikilvægara en að fólk skilji og treysti stafrænni þjónustu.

Í spjallinu sem Lárus mætti í var rætt um Mínar síður Ísland.is en Mínar síður sem er ein af þeim kjarnaþjónustum sem standa stofnunum til boða hjá Stafrænu Íslandi:

„En hvað þýðir þetta fyrir notendur sem heima sitja, hefur þetta einhver áhrif á okkar daglega líf? Hver er hugsunin með Mínum síðum Ísland.is og hver er tilgangurinn? Við mælendur í spjallinu eru þau Lárus Long deildarstjóri upplýsingatæknideildar Samgöngustofu, Ragnheiður Þorleifsdóttir framkvæmdastjóri Hugsmiðjunnar og Ragnhildur Helga Ragnarsdóttir vörustjóri hjá Stafrænu Íslandi.“

Horfið á spjallið við þau Ragnheiði og Lalla hér:



Vorfagnaður Farsýslunnar

Skráningarfrestur fyrir vorfagnaðinn rennur út kl. 12 á þriðjudaginn.

Athugið að þessar tímasetningar eru birtar með fyrirvara um ófyrirséðar breytingar.

SKRÁNING

Endurgerð Titanic úr lego


Á skipaganginum er nú til sýnis líkan af Titanic sem Gunnar Karl og sonur hans settu saman en þeir feðgar eru miklir legoáhugamenn. Um smíðina segir Gunnar:

„Titanic, djásnið úr Legosafninu mínu er komið til sýnis á skipaganginum. Þetta er næst stærsta Legosett allra tíma, 9090 kubbar og algjör meistarasmíði. Endilega kíkið við á 3 hæðinni til að skoða gripinn. Annars er ég og strákurinn minn miklir Legoáhugamenn og erum að safna og gera upp gömul sett. Þannig ef einhver lumar á Lego-i í geymslunni og er til í að selja þá endilega hafið samband við mig :)“

Tíu merkilegar staðreyndir um Titanic

10. John Jacob Astor IV var um borð í skipinu þegar það sökk en hann var þá ríkasti maður heims. Astor fórst í slysinu en eiginkona hans lifði af. 

9. Hjúkrunarfræðingurinn Violet Jessop var um borð í Titanic þegar skipið sökk. Hún lifði aftur á móti af. Jessop var aftur á móti einnig um borð í systurskipi Titanic, Britannic fjórum árum síðar þegar það skip sökk. Hún lifði bæði slysin af. 

8. Það kostaði meira að framleiða kvikmyndina Titanic en skipið sjálft kostaði. Á núvirði kostaði kvikmyndin 360 milljónir dollara og skipið sjálft kostaði 190 milljónir dollara. Kvikmyndin malaði aftur á móti gull þegar hún kom út.

7. Það tók 73 ár að finna skipið á botninum í Norður-Atlantshafi og fannst skipsflakið árið 1985.

6. 97% af þeim konum sem voru á fyrsta farrými í skipinu var bjargað á meðan 32% af karlmönnunum á fyrsta farrými lifðu slysið af. Aðeins 14/168 konum um borð í skipinu á öðru farrými lifðu slysið af.

5. Margir farþegar tóku með sér gæludýr um borð í skipið og lifðu aðeins tvö þeirra af.

4. Yngsti farþeginn var aðeins tveggja mánaða og lifðu stúlkan af. Eliza Gladys Dean lést sjálf árið 2009, þá 97 ára.

3. Titanic var 270 metra langt, fór í gegnum 825 tonn af kolum á dag og yfir tíu þúsund ljósaperur voru um borð. Tveir verkamenn létust við störf þegar skipið var smíðað. Skipið gat tekið á móti 3500 farþegum en rúmlega 2300 voru um borð þegar það sökk. Þrettán pör um borð voru að byrja brúðkaupsferð sína.

2. Titanic var stærsta skip heims til ársins 1936 þegar Queen Mary fór í sína fyrstu ferð.

1. Það var Frederick Fleet sem sá ísjakann sem skipið sigldi á. Hann tilkynnti strax um hættuna en það var of seint. Hann greindi síðar frá að kíkir sem vaktmenn höfðu oft notað var ekki að finna um borð í skipinu. Hann hefði mögulega getað komið í veg fyrir slysið.

Sjá frétt á visir.is

Myndband:



Föstudagslagið í boði mannauðsdeildarinnar

Það er mannauðsdeildin sem velur föstudagslagið að þessu sinni:

Eins og allir vita þá eru Backstreet boys komnir til Íslands og verða með tónleika í kvöld í höllinni. Strákarnir í Backstreet boys halda nú upp á þrjátíu ára afmæli og er um að ræða fyrsta stopp þeirra í nýrri hrinu tónleika. Þeir lofa ógleymanlegri kvöldstund og verða stelpurnar í mannauðsdeildinni að sjálfsögðu á staðnum og í alveg eins bolum. Helga verður á staðnum í kvöld, er heima í bolnum í dag:

Mannauðsdeildin er að sjálfsögðu í viðeigandi bol af þessu tilefni, Helga var ekki á staðnum þegar myndin var tekin en sendi selfie úr Mosó (mætir svo að sjálfsögðu á tónleikana í kvöld)


Backstreet Boys eru ein áhrifamesta popphljómsveit heims, margverðlaunaðir, með óteljandi slagara og metsölutúra á bakinu. Í byrjun 2019 gáfu þeir út Grammy-tilnefndu plötuna DNA og bættu þar með í safnið lögum sem hafa trónað á toppi vinsældarlista um allan heim.

Lagið sem við völdum heitir I Want It That Way sem kom út árið 1999;





Ekki skúta uppá bak!

Við í Öryggis og fræðsludeild höfum undanfarna mánuði unnið að herferð í samvinnu við Einar Ben og TeiknAra. Í herferðinni vara Eggert og félagar okkur við því að „skúta upp á bak.” Tilefnið er vaxandi fjöldi slysa sem tengjast akstri rafskúta. Um fjórðungur allra látinna og alvarlega slasaðra í umferðinni voru á rafhlaupahjólum (49 af 204, þar af einn látinn).

Myndefnið er handteiknað af TeiknAra og fundum við í sameiningu leið til þess að vekja athygli á mikilvægu málefni á skemmtilegan hátt. Tryggingarfélagið Vís kom svo inn í verkefnið sem styrktaraðilar og mun því vinna með okkur í því að deila þessum mikilvæga boðskap sem víðast. Herferðin var frumsýnd á blaðamannafundi núna í hádeginu en mun nú birtast í ýmsum útgáfum og miðlum.

Við erum afskaplega stolt af þessu verkefni og okkur langar að hvetja ykkur til að deila efninu á samfélagsmiðlunum ykkar til að vekja athygli á þessu mikilvæga málefni.

Hér í spilaranum fyrir neðan getur þú séð öll myndböndin í herferðinni.

Skráningarátak 27. apríl til 11. maí

Eins og fram hefur komið hefst þjónustugreining Samgöngustofu á morgun 27. apríl og stendur yfir í tvær vikur, til 11. maí.

Kynningarglærur Stafræns Íslands frá því í morgun

Í tilefni dagsins verður boðið upp á sérstakt skráninga búst í mötuneytinu í fyrramálið til að koma öllum í skráninga gírinn. Hádegismaturinn á morgun verður heldur ekki af verri endanum því þá ætla Bjössi og Össi að framreiða skráninga bröns fyrir okkur, en brönsinn ku vera sérstaklega vel til þess fallinn til að auka skráninga úthald.

Miðlæga Excel skjalið er að finna hér en inn í það á að skrá allar spurningar og/eða erindi sem berast til Samgöngustofu frá notendum.

Miðlæga skjalið er hjartað og miðjan í þjónustugreiningarverkefninu og það gæti verið góð hugmynd að „pinna“ linkinn inn í „favorites“ í vafranum þínum.

Skjalið inniheldur átta flipa og hvert svið SGS hefur sinn flipa í skjalinu sem starfsmenn skrá inn í:

  • Verkefnið: nánari lýsing á þjónustugreiningarverkefninu, sem gott er að kynna sér.
  • Umferð: starfsfólk umferðarsviðs fyllir inn í þennan flipa.
  • Flug: starfsfólk flugsviðs fyllir inn í þennan flipa.
  • Siglingar: starfsfólk siglingasviðs fyllir inn í þennan flipa.
  • Skrifstofa forstjóra: starfsfólk á skrifstofu forstjóra fyllir inn í þennan flipa.
  • Stjórnsýsla: starfsfólk stjórnsýslusviðs fyllir inn í þennan flipa.
  • Áframsent: ef þú þarft að áframsenda erindi innanhúss, þá á að fylla út í þennan flipa og þessi flipi á við um öll svið SGS.
  • Málaflokkar: Forskriftir fyrir felliglugga skjalsins.


Gagnlegar upplýsingar varðandi verkefnið:

  • Í tvær vikur (27. apríl til og með 11. maí)  skrá starfsmenn niður allar spurningar sem þeim berast í gegnum síma, tölvupósti, netspjalli eða eftir öðrum leiðum frá viðskiptavinum og/eða hagsmunaaðilum.
  • Það á að skrifa niður allar spurningar sem stofnuninni berast, þó sama spurningin komi oft fyrir. Það gefur okkur tölfræði yfir algengustu spurningarnar.
  • Reyna á að skrá niður það orðalag sem notað var í spurningunni frá notanda/viðskiptavini. Það hjálpar til við leit á Google og Island.is
  • Ef mál/fyrirspurn er send áfram skal skrá það í “Áframsent” flipann í skjalinu.
  • Ef þér finnst vanta inn í skjalið málaflokk eða annað sem má bæta, ekki hika við að skrifa það inn í athugasemda dálkinn í skjalinu.
  • Gæta þarf að því að draga “sleðann”, sem er fyrir ofan flipana,  fremst svo dagsetning og tímasetning komi fremst í skjalinu, þegar byrjað er að skrá í skjalið.
  • Við uppsetningu á góðum vef er mikilvægt að vita af hverju notendur hafa samband. Það bæði hjálpar okkur að skilja notendur betur og hjálpar okkur að skrifa greinar á vef Samgöngustofu með algengustu spurningarnar í huga.
  • Við lok verkefnisins þann 11. maí verður boðið upp á grill & ísbílinn í hádeginu.

Ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi verkefnið, ábendingar um hvað má bæta eða vantar aðstoð við að fylla út í skjalið, ekki hika við að hafa samband við okkur á samskipti@samgongustofa.is

Hlökkum til að vinna með þér í þessu verkefni 🙂






Kvennakórinn Katla með tónleika í kvöld


Þær Katrín og Rannveig eru í Kvennakórnum Kötlu og koma fram á tónleikum undir yfirskriftinni Máttur og mýkt í Seltjarnarneskirkju á kvöld fimmtudagskvöldið 27. apríl.

Kaupa miða á tix.is

=> Sérlegur afsláttarkóði fyrir starfsmenn Samgöngustofu: Hildurlilja

Gaman að kíkja og sjá samstarfskonur okkar koma fram með þessum líka skemmtilega kór 🙂

Nánar um tónleikana
Máttur og mýkt, vortónleikar Kvennakórsins Kötlu verða haldnir þann 27 apríl í Seltjarnarneskirkju kl 20:00. Þar sem mátturinn mætir mýktinni vaknar áhrifaríkt samspil. Mátturinn eins og eldur, kraftur, ástríða – mýktin eins og vatn, sem streymir og nærir. Á tónleikunum skiptast þessir tveir andstæðu pólar á að ríkja, sameinast öðru hvoru og skapa töfrandi harmóníu og hughrif. Á tónleikunum verður flutt tónlist eftir m.a. Hreiðar Inga Þorsteinsson, Maríu Magnúsdóttur, Atla Heimi Sveinsson, Radiohead, Björk og Robyn. Stjórnendur eru Lilja Dögg Gunnarsdóttir og Hildigunnur Einarsdóttir.

Tóndæmi







Merktir múmínbollar

Starfsfólk Samgöngustofa fékk merkta múmínbolla í innflutningsgjöf frá starfsmannafélagi Samgöngustofu þegar flutt var í Ármúla 2 á sínum tíma.
Síðar tók Samgöngustofa við keflinu og fær fólk merktan bolla ca. í kringum fastráðningu, það er auðvitað frábær hvatning til að nota fjölnota kaffimál og passa uppá sinn eina bolla yfir daginn.
Nú í vikunni afhentum við nokkra bolla og komumst að því að nokkrir af gömlu bollunum hafa því miður brotnað.
Þau sem hafa lent í því að bollinn þeirra brotnaði geta haft samband við laun@samgongustofa.is sem skoða málið.

Hjólað í vinnuna – hvernig skrái ég lið?


Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands stendur fyrir heilsu- og hvatningarverkefninu „Hjólað í vinnuna“. Vinnustaðir eru hvattir til að setja upp lið og liðsstjóra og skrá sig til leiks hér og vekja athygli á virkum ferðamáta sem heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta til og frá vinnu t.d. með því að hjóla, ganga, hlaupa eða nýta almenningssamgöngur. Ýmsan fróðleik má finna hér.

Allir eru hvattir til þess að taka þátt í Hjólað í vinnuna og hvetja aðra til þess að taka þátt með þeim. Undanfarin ár höfum við hjá Samgöngustofu verið með nokkur lið og hefur myndast samkeppni þeirra á milli. Skráum sem flest lið til leiks og tökum virkan þátt í þessu flotta framtaki!

Þið veljið sem sagt Samgöngustofu sem vinnustað og skráið liðið þar undir.

Upplýsingar um hvernig skráning fer fram má nálgast hér.





Þjónustugreining 27. apríl – 11. maí

Fimmtudaginn 27. apríl hefst þjónustugreining Samgöngustofu, í samstarfi við Stafrænt Ísland, en verkefnið tengist flutningi vefs stofnunarinnar yfir á island.is. Þjónustugreiningin mun m.a. nýtast við skipulag vefsins, uppsetningu þjónustusíðna og fyrirspurnarforms á vefnum, uppsetningu þjónustukerfis og spjallmennis/netspjalls sem tekið verður í notkun á nýja vefnum.

Markmiðið með verkefninu er m.a. að greina hvaða fyrirspurnir og þjónustubeiðnir berast frá okkar viðskiptavinum og hagaðilum sem og hvenær og hverjir hér innanhúss eru að fá slíkar fyrirspurnir. Stafrænt Ísland mun svo greina tölfræðina og skila okkur skýrslu um niðurstöður þjónustugreiningarinnar. Markmiðið er að nýta greininguna til þess að létta á álagi starfsfólks við að svara erindum með vel uppsettum vef, þjónustusíðum, fyrirspurnarformi, þjónustukerfi og spjallmenni.

Kynningarfundur miðvikudaginn 26. apríl

Miðvikudaginn 26. apríl ætla fulltrúar Stafræns Íslands að mæta til okkar til að kynna verkefnið og svara þeim spurningum sem á ykkur brenna. Tveir fundartímar verða í boði: 8:10 – 9:00 og 9:10 – 10:00. Fundarboð hafa verið send út og getur fólk valið á hvorn fundin er mætt.

Hvernig fer vinnan fram?

  • Í tvær vikur verða allir starfsmenn Samgöngustofu, sem eru í samskiptum við ytri hagaðila og/eða viðskiptavini stofnunarinnar, beðnir um að færa inn í miðlægt Excel skjal allar spurningar og/eða erindi sem þeim berast í síma, tölvupósti, netspjalli eða eftir öðrum leiðum.
  • Starfsfólk sem fær til sín erindi og/eða spurningar þarf að hafa skjalið opið alla daga, á þessu tveggja vikna tímabili, og skráir inn hvaða spurningu/m var svarað eða hvaða þjónusta var veitt. Skjalið verður miðlægt á vefnum og í því eru fyrirfram ákveðnir flokkar sem merkt er við og sumar breytur, eins og tímasetningar og flokkar, koma sjálfkrafa upp. Nánar verður farið yfir skráningu í skjalið á fundinum þann 26. apríl.

Afrakstur vinnunnar

Að þessum tveimur vikum liðnum taka þau hjá Stafrænu Íslandi saman tölfræði og skýrslu sem m.a. nýtast við:

  • að forgangsraða því efni sem flutt verður yfir á Island.is
  • að koma auga á fyrirspurnir sem almenningur finnur ekki á vefnum
  • tryggja samræmi í svörum stofnunarinnar
  • setja upp þjónustuvef og fyrirspurnarform
  • búa til beinagrind fyrir spjallmennið/netspjallið þannig að það geti svarað sem flestum spurningum


=>Í upphafi verkefnisins mun Bjössi bjóða upp á bröns og „boost“ (27. apríl) til að koma okkur öllum í gírinn. Á lokadag verkefnisins verður boðið uppá grill og ísvagninn í hádeginu til að fagna vel unnu verki 🙂




Vorfagnaður bifhjólafólks – myndir

Í gær, sumardaginn fyrsta, var haldinn Vorfagnaður bifhjólafólks á svæði Ökuskóla 3 við Álfahellu í Hafnarfirði. Við hjá Samgöngustofu stóðum að viðburðinum ásamt Ökukennarafélaginu, Ökuskóla 3 og Sniglunum en einnig kom Kvartmíluklúbburinn að undirbúningi dagsins. Haldin voru fræðsluerindi og síðan farið í akstur um æfingasvæði Ökuskólans undir leiðsögn ökukennara. Mæting var virkilega góð og gott að hittast í upphafi sumars og fara yfir öryggismálin í þessum góða hópi.

Nokkrar myndir frá gærdeginum:

Feðginin Ingólfur Snorrason og Ísabella María Ingólfsdóttir en þau stjórnuðu ásamt fleirum hringakstri um brautirnar á vegum Kvartmíluklúbbsins.

Föstudagslagið í boði Jakobs Andra

Það er hann Jakob Andri sem velur föstudagslagið að þessu sinni:

Eins og flestir þekkja þá er erfitt að velja bara eitt lag til að kynna fyrir samstarfsfólkinu. Ég þekki það hins vegar ekki því valið á þessu lagi var auðveldasta ákvörðun lífs míns. Lagið heitir Prettyboitjokko eftir tónlistarmanninn Patrik Atlason (PATRI!K). Í stuttu máli fjallar lagið um strák sem er úti á lífinu og er að eltast við stelpu en stelpan virðist hafa áhuga á öðrum strák (þekkjum við það ekki flestir?). Við það verður Patrik eitthvað leiður og spyr hann stelpuna, svo ég vitni í texta lagsins, „hvað ertu að gera fyrir þennan fávita?“ Að þessu sögðu þá talar texti lagsins fyrir sig sjálfan og eru þetta orð í tíma töluð. Ég valdi þetta lag því það hefur litað skemmtanalíf mitt síðustu helgar og þið getið verið 100% viss um að sjá mig dilla mér við þetta lag komandi helgar á AUTO Club.

Patrik tókst þá einnig að móðga alla íslenska karlmenn í viðtali hjá K100 en svo ég vitni í viðtalið þá sagði hann þetta: „Það þarf að vera eitthvað „game“ í gangi. Það þarf að vera hiti á þér. Þú þarft að vera með góða lykt. Svo þarftu að vera með eitthvað „drip“ í gangi. Þú þarft að vera með einhvern stíl. Vera í flottum fötum og aðeins að hugsa um útlitið. Það er það sem ég hef verið að impra á. Hjálpa ungum karlmönnum sem og gömlum mönnum. Hey strákar, förum aðeins út fyrir kassann. Aðeins að reyna meira. Ekki vera alltaf í sömu gömlu lufsunum.“ Tökum þetta til okkar strákar.

Endilega gefið þessu lagi eina hlustun.

Ég skora á Helga Jóhannesson úr siglingadeildinni fyrir næsta föstudag

Vorfagnaður bifhjólafólks á morgun


Sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 20. apríl (á morgun), verður haldinn Vorfagnaður bifhjólafólks á svæði Ökuskóla 3 við Álfahellu í Hafnarfirði. Samgöngustofa stendur að þessu með Ökukennarafélaginu, Ökuskóla 3 og Sniglunum en einnig kemur Kvartmíluklúbburinn að undirbúningi dagsins. Fagnaðurinn hefst kl. 13 og stendur yfir til kl. 16.

Kynningarmyndband:


Dagurinn er fyrst og fremst til að tryggja öryggi bifhjólafólks sem best og búa það undir áskoranir sumarsins. Það gleymist margt og fólk fer úr æfingu á meðan hjólið stendur óhreyft yfir veturinn. Haldin verða fræðsluerindi og síðan farið í akstur um æfingasvæði Ökuskólans undir leiðsögn ökukennara. Í fyrra mættu á annað hundrað manns og meira að segja stærsti hluti bifhjóladeildar lögreglu höfuðborgarsvæðisins. Samgöngustofa mun kynna slysatölfræði bifhjólafólks og þá þróun sem átt hefur sér stað í þeim efnum. Boðið verður upp á veitingar og eru allir velkomnir og þeir sem eiga mótorhjól eru hvattir til að koma á því. Við minnum svo alla hina vegfarendurna á að líta ætíð tvisvar til hliðar áður en ekið er af stað. Það gæti verið bifhjól að koma þvert á leið ykkar.



Reykingar á lóðinni

Þættinum hefur borist bréf um reykingar á lóðinni okkar hér í Ármúlanum. Bent er á að reykurinn sem kemur frá reykingum við húsið berst upp og inn um glugga starfsfólks á skrifstofunum fyrir ofan.

Sýnum samstarfsfólki tillitssemi og munum að reykingar eru bannaðar á lóðinni 🙂







Fréttir af ráðningarmálum

Nokkur ráðningarferli hafa verið í gangi undanfarnar vikur, nýlega var gengið frá ráðningum í eftirfarandi störf:

Sumarafleysing á Ísafirði

Ásgeir Hólm Agnarsson hóf sumarafleysingar starf á Ísafirði í dag, 18. apríl. Ásgeir þekkir vel til sjómennsku og skipa, er sjómaður í grunninn og hefur t.a.m. gert út nokkra báta. Ásgeir er vélstjórnarmenntaður og í skipstjórnarnámi.

Fagstjóri náms- og skírteinamála sjóferanda

Bjarki Sigþórsson, hefur störf 1. ágúst nk., mögulega fyrr. Bjarki hefur lokið bæði skipstjórnarmenntun og lögfræðinámi. Bjarki hefur undanfarin ár starfað sem vakstjóri á stjórnstöð Landhelgisgæslunnar, þar áður starfaði hann lengi sem skipstjóri á ýmsum skipum og hefur gilt STWC II skírteini.

Sérfræðingur í skipatæknideild

Sören Marahrens, hefur störf 1. september nk. . Sören lauk BS og MS gráðu í rafmagnsverkfræði og upplýsingatækni frá Karlsruhe Institute of Technology í Þýskalandi. Starfsfreynsla Sören er m.a. frá Karlsruhe Institute of Technology við rannsóknir og kennslu. Frá 2021 hefur Sören starfað sem verkfræðingur hjá Nemko Gembh.

Umferðarslys árið 2022


Öryggis- og fræðsludeild hefur lokið skráningu umferðarslysa í fyrra og út er komin skýrsla um umferðarslys á Íslandi 2022. Slysakortið okkar hefur líka verið uppfært og hér má finna nokkur gröf með slysatölfræði ársins í fyrra.

Árið í fyrra má segja að hafi verið sérstakt. Heildartölurnar voru mjög nálægt því sem þær voru árið áður (þó ívið skárri) en það ár var það versta í langan tíma. Hins vegar eru margir þættir að batna en á móti kemur að rafhlaupahjólin vega á móti öllum árangri sem næst annars staðar. Látnir og alvarlega slasaðir voru 204 í fyrra (samanborið við 208 árið á undan). Af þeim voru 96 gangandi eða hjólandi, þ.e. næstum helmingur, og af þessum 96 voru 49 á rafhlaupahjóli eða rúmlega helmingur. Því var tæpur fjórðungur allra látinna eða alvarlega slasaðra í umferðinni á rafhlaupahjóli. Það þýðir að í staðinn fyrir rúmlega 200 látna og alvarlega slasaðra væru þeir rúmlega 150. Munurinn þarna á milli er einmitt munurinn á því að ná markmiðum okkar og vera gríðarlega langt frá því (eins og við erum nú).

Fjögur gröf, smellið áfram til þess að sjá þau öll:

Í fyrra létust 9 manns í umferðinni eins og árið áður. Af þeim létust fimm innanbæjar en fjórir utan þéttbýlis. Er þetta í fyrsta sinn síðan 1992 sem fleiri látast innan þéttbýlis en utan þess. Af þessum níu manns sem létust voru fjórir fótgangandi, einn á rafhlaupahjóli og fjórir í bifreið. Er þetta í fyrsta sinn síðan 1973 sem meirihluti látinna er í hópi gangandi og hjólandi.

Auk þessara frétta má nefna að ungir ökumenn standa sig mun betur en árið áður og eru aftur komnir á sama ról og þeir voru árið 2020 og áður. Slys vegna ölvunar og fíkniefna eru á pari við markmiðin sem má teljast gott því markmiðin eru nokkuð metnaðarfull.

Erlendu ferðamennirnir voru mjög öryggir í fyrra og þrátt fyrir að fjöldi þeirra hafi verið tæplega 1,7 milljónir þá slösuðust aðeins 75 þeirra. Er þetta langbesti árangurinn sem við höfum séð hvað varðar slasaða ferðamenn m.v. fjölda þeirra á landinu. Hvað varðar alvarlega slasaða ferðamenn þá voru þeir 20 og höfum við aðeins einu sinni séð færri alvarlega slasaða m.v. fjölda ferðamanna á landinu og það var árið 2020 þegar Covid geisaði og þarf að taka með ákveðnum fyrirvara. Þess má einnig geta að Kínverjar slösuðust mjög lítið í fyrra. Það hefur auðvitað dregið úr komum þeirra til landsins en þó svo að við deilum fjölda þeirra sem slösuðust með fjölda þeirra sem hingað kom þá eru Kínverjar á pari við flestar aðrar þjóðir.


Skýrsla um umferðarslys á Íslandi 2022

Slysakort Samgöngustofu

Nokkur gröf um slysatölfræðina í fyrra







Umbótahópur Samgöngustofu

Margvísilegar tilfinningar geta sprottið fram þegar umbætur eiga sér stað en ofsagleði er ein þeirra.

Samgöngustofa hefur ákveðið að setja á laggirnar umbótahóp fyrir stofnunina. Markmið hópsins er að virkja ábendingakerfið Bendil.

Hópurinn mun stýra einni til tveimur innri herferðum á ári þar sem kallað er eftir umbótatillögum út frá fyrirfram ákveðnu þema. Að auki mun hópurinn vinna úr tillögunum sem berast og afhenda framkvæmdastjórn til frekari úrvinnslu.

Við óskum eftir áhugasömum fulltrúum frá hverju sviði í úmbótahópinn. Heyrst hefur að það verði kex í boði á þriðja hverjum fundi hjá umbótahópnum.

Þau sem geta hugsað sér að tilheyra umbótahópnum, taka þátt í kraftmiklu umbótastarfi og maula kex af og til er bent á að senda Díönu Björk tölvupóst á diana.b.eythorsdottir@samgongustofa.is.

Fyndnasti maður Íslands

Úlfur Linnet, fyndnasti maður Íslands, hélt skemmtilegan fyrirlestur í morgun í tengslum við Hjólað í vinnuna sem hefst 3. maí næstkomandi. Hann hefur sjálfur hjólað í vinnuna í 10 ár og á fimm hjól. Það var mikið hlegið enda nálgaðist hann umfjöllunarefnið á skemmtilegan hátt en fræddi okkur jafnramt um ýmislegt tengt hjólreiðum. Við ættum t.d. öll núna að þekkja muninn á latex göllum og spandex 🙂

Skráning í Hjólað í vinnuna hefst 19. apríl og hvetjum við starfsfólk til þess að stofna lið undir Samgöngustofu og taka þátt í átakinu. Verkefnið stendur svo yfir frá 3.- til 23. maí og má kynna sér allt um Hjólað í vinnuna á vef átaksins. Í fyrra tókku nokkur lið þátt frá Samgöngustofu og myndaðist skemmtileg stemning á milli liðanna og árangurinn var mjög góður.




Föstudagslagið í boði Kolbeins

Föstudagslagið er að þessu sinni í boði Kolbeins Arnarsonar og um val sitt segir hann:

Það er gífurlega mikil áskorun að velja eitt föstudagslag hafandi víðan tónlistarsmekk. Ég fór fram og til baka með þetta, valið stóð á milli kórtónlistar, djass, hip hops, rapps, rokks, popps eða klassískrar tónlistar. Á endanum ákvað ég þó að velja Water get no Enemy með Fela Kuti. Þetta lag hefur mikla föstudagstengingu fyrir mig en þegar ég vann á vínbarnum Port 9 spilaði ég þetta iðulega og oft á föstudögum. Lagið einkennst af stemmningu (helst oft í hendur við föstudaga) og verandi stemmningsmaður stóðst ég ekki mátið um að velja þetta lag.

Þið sem hafið ekki hlustað á þetta lag – gefið því séns! Það er vissulega tæpar tíu mínútur en ég hugsa að fæst okkar séu á Tik Tok og ættu því að vera með þokkalega góða athyglisgáfu 😉

Ég skora á Jakob Andra Þórarinsson, elskulega laganemann okkar allra, að velja næsta föstudagslag.





COS sjal í óskilum

Þetta líka lekkera COS sjal fannst á bílastæðinu í morgun. Eiguleg flík og mikilvægt að hún rati aftur til eiganda síns. Látið orðið berast! Hangir til þerris hjá vefstjóra á 2. hæð.

P.S. Þetta er tilraun til að mæla mátt innri vefsins, þ.e. hvort hann geti keppt við hinn fræga Alla R…