Vegvísir að vistvænum samgöngum

Samkvæmt frétt á vef innviðaráðuneytisins hafa áform um vegvísi að vistvænum samgöngum til ársins 2030 verið kynnt í samráðsgátt stjórnvalda. Hægt er að senda inn umsagnir eða ábendingar til og með 11. apríl næstkomandi.

Í fréttinni segir:

Ríkisstjórnin hefur sett loftslagsmál í forgang og eru markmið stjórnvalda metnaðarfull. Draga á úr losun gróðurhúsalofttegunda um 55% eða meira til ársins 2030 miðað við losun árið 2005. Þá skulu efldar aðgerðir í kolefnisbindingu og landnotkun sem miða að því að ná markmiði um kolefnishlutleysi árið 2040. Árið 2040 skal fullum orkuskiptum náð og þannig skal Ísland verða óháð jarðefnaeldsneyti fyrst ríkja. 

Skilgreindar tímasettar aðgerðir

Vegvísir að vistvænum samgöngum á Íslandi til ársins 2030 mun innihalda skilgreindar tímasettar aðgerðir sem miða að því að markmiðum um 55% samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda verði náð miðað við árið 2005. 

Á árunum 2005-2020 var um þriðjungur af losun gróðurhúsalofttegunda á beinni ábyrgð Íslands vegna samgangna. Framreikningar Umhverfisstofnunar á losun gróðurhúsalofttegunda sýna að frekari aðgerða er þörf til að uppfylla markmið um samdrátt í losun. Vegvísi um vistvænar samgöngur til 2030 er því ætlað að vinna að frekari aðgerðum í samdrætti í losun frá samgöngum til að vinna að því markmiði að Ísland standi við skuldbindingar sínar og uppfylli sjálfstæð markmið.

Viðfangsefni vegvísisins verður orkuskipti í samgöngum, þ.m.t. samgöngutæki, eldsneyti og uppbygging innviða sem og leiðir til að draga úr kolefnisspori vegna uppbyggingar og reksturs samgöngumannvirkja. Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbærni verða höfð að leiðarljósi.

Stýrihópur hefur verið skipaður um verkefnið en í honum verða fulltrúar innviðaráðuneytisins, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins, Isavia, Orkustofnun, Samgöngustofu og Vegagerðinni.

Hermann Sæmundsson skipaður ráðuneytisstjóri

Hermann Sæmundsson

Samkvæmt frétt á vef innviðaráðuneytisins hefur Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, skipað Hermann Sæmundsson, stjórnmálafræðing og skrifstofustjóra í forsætisráðuneytinu, í embætti ráðuneytisstjóra innviðaráðuneytisins. Hermann tekur við embættinu 1. maí nk. þegar Ragnhildur Hjaltadóttir lætur af störfum.

Hermann hefur starfað í Stjórnarráði Íslands frá því í október 1996 en þá réðst hann til starfa sem sérfræðingur hjá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga í félagsmálaráðuneytinu. Hann var skipaður í embætti skrifstofustjóra í sama ráðuneyti árið 2002. Frá 2004 til 2008 var hann fulltrúi félagsmálaráðuneytis og heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis í sendiráði Íslands í Brüssel en tók við sem skrifstofustjóri í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu að því loknu. Hermann var skipaður skrifstofustjóri skrifstofu mannréttinda og sveitarfélaga í innanríkisráðuneytinu í ársbyrjun 2011 en við uppskiptingu þess um mitt ár 2017 tók hann stöðu skrifstofustjóra skrifstofu sveitarfélaga og byggðamála í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu. Hermann var skipaður skrifstofustjóri stefnumála í forsætisráðuneytinu í október 2021.

Hermann var settur ráðuneytisstjóri í félagsmálaráðuneyti á árunum 2002 til 2004 og gegndi um langt skeið hlutverki staðgengils ráðuneytisstjóra. Hermann hefur því starfað í Stjórnarráði Íslands í hartnær 27 ár. Hann hefur samhliða embætti gegnt margvíslegum trúnaðarstörfum í umboði ráðherra. Hermann býr því yfir mikilli og fjölþættri reynslu innan Stjórnarráðsins og íslenskrar stjórnsýslu.

Hermann er fæddur árið 1965, hann tók stúdentspróf frá Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra 1986, lauk BA prófi í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands árið 1991 og meistaraprófi frá Háskólanum í Árósum árið 1996 í stjórnsýslu- og stjórnmálafræði.

Fjórar umsóknir bárust um embættið sem var auglýst í janúar sl. Ráðgefandi hæfnisnefnd var skipuð til að meta hæfni umsækjenda. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að Hermann væri hæfastur til að gegna embættinu. Eftir viðtöl ráðherra við umsækjendur og að teknu tilliti til álits hæfnisnefndar um hæfni umsækjenda var það ákvörðun ráðherra að veita Hermanni embættið.

Fréttin á vef innviðaráðuneytisins







Gleðilega páska!


Við óskum ykkur gleðilegra páska og vonum að þið hafið það gott í fríinu. Það er vor í loftinu, falleg birta og sumarið á næsta leyti.

Það er ekkert föstudagslag þessa vikuna en í tilefni þess að lóan er mætt til landsins er tilvalið að hlusta á lag um hana þennan síðasta vinnudag fyrir páska. Njótið frísins!

Lóan er komin að kveða burt snjóinn,
að kveða burt leiðindin, það getur hún.
Hún hefur sagt mér, að senn komi spóinn,
sólskin í dali og blómstur í tún.

Hún hefir sagt mér til syndanna minna,
ég sofi of mikið og vinni ekki hót.
Hún hefir sagt mér að vakna og vinna
og vonglaður taka nú sumrinu mót.

Á fuglavefnum er hægt að nálgast miklar upplýsingar um lóuna, m.a. hægt að hlusta á söng hennar. Óhætt að mæla með fuglavefnum fyrir þau ykkar sem ekki hafið uppgötvað hann enn.










Samstarfssamningur um ökukennaranám endurnýjaður

Samgöngustofa, Endurmenntun Háskóla Íslands (EHÍ) og Menntavísindasvið Háskóla Íslands hafa endurnýjað samstarfssamning sín á milli um ökukennaranám til ársins 2028.

Samkvæmt reglugerð um ökuskírteini nr. 830/2011 skal Samgöngustofa gera samning við skóla á háskólastigi til fimm ára í senn um að þar fari fram ökukennaranám. Í samningnum er kveðið á um tilhögun og tíðni námsins og að námið fari fram samkvæmt námskrá sem Samgöngustofa setur og ráðherra staðfestir.

Samningurinn sem var undirritaður á dögunum gildir í fimm ár eða til 1. apríl 2028 og leysir af hólmi fyrri samstarfssamning sem sömu aðilar gerðu árið 2018.

Upplýsingar um ökukennaranám til almennra réttinda má finna á vef EHÍ 

Þann 8. maí næstkomandi verður haldinn kynningarfundur um ökukennaranám til almennra réttinda, skráning og nánari upplýsingar hér.





Fréttir af ráðningarmálum

Gengið hefur verið frá ráðningu sérfræðings í flugrekstrar- og skírteinadeild.
Ráðin var Berglind Ýr Jónasdóttir.

Berglind Ýr hefur lokið einkaflugmannsprófi frá Flugskóla Íslands og atvinnuflugmannsprófi frá Orlando Flight Training school. Árið 2009 hóf hún störf hjá Iceland Express og starfaði þar sem fulltrúi í fjármáladeild, aðstoðarmaður flugkostnaðarstjóra og sem flugkostnaðarstjóri. Árið 2012 hóf hún störf hjá WOW air og starfaði þar sem flugfreyja, flugkostnaðarstjóri og sérfræðingur á flugrekstrarsviði. Undanfarið hefur Berglind unnið sem ljósmyndari.

Berglind Ýr mun hefja störf í allra síðasta lagi 1. júní nk. og verður staðsett á annarri hæð.

Ný leigubifreiðalög tóku gildi á laugardaginn


Ný lög um leigubifreiðaakstur nr. 120/2022 tóku gildi á laugardaginn (1. apríl). Markmiðið með lögunum er að tryggja gott aðgengi að hagkvæmri, skilvirkri og öruggri leigubifreiðaþjónustu fyrir neytendur á Íslandi. Þá er lögunum ætlað að tryggja að íslenska ríkið uppfylli skuldbindingar sínar samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið (EES-samningnum).

Helstu breytingar með lögunum

  • Fjöldatakmarkanir verða afnumdar en skýr skilyrði sett um leyfisveitingar. Fjöldatakmarkanir voru áður í gildi á Akureyri, Árborg, höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum, á öðrum stöðum á landinu voru engar fjöldatakmarkanir.
  • Rekstrarleyfi veitir rétt til reksturs eins eða fleiri leigubíla. Áður veitti leyfið aðeins rétt til reksturs á einum bíl.
  • Veita má bæði einstaklingum og lögaðilum rekstrarleyfi. Áður mátti aðeins veita einstaklingum slíkt leyfi.
  • Rekstarleyfishafar skulu hafa afgreiðslu á leigubílastöð sem hefur fengið starfsleyfi hjá Samgöngustofu. Þó getur rekstarleyfishafi með einn leigubíl í sinni eigu eða umráðum rekið stöð án starfsleyfis frá Samgöngustofu.
  • Leigubílar skulu búnir gjaldmæli en þó er heimilt að aka án gjaldmælis þegar ferð er seld fyrir fyrirfram umsamið áætlað eða endanlegt heildargjald. Eftir sem áður skal verðskrá og þær forsendur sem umsamið gjald byggist á vera aðgengilegar viðskiptavini.


Samhliða lögunum tekur gildi reglugerð um leigubifreiðaakstur nr. 324/2023 þar sem nánar er kveðið á um útfærslu laganna. Nánari upplýsingar fyrir leyfishafa og umsækjendur má nálgast á vef Samgöngustofu www.samgongustofa.is/leigubilar

Lög um leigubifreiðaakstur nr. 120/2022
Reglugerð um leigubifreiðaakstur nr. 324/2023
Upplýsingasíða fyrir leyfishafa og umsækjendur