Fréttir af ráðningarmálum

Það hefur verið nóg að gera í ráðningum hjá Samgöngustofu síðastliðnar vikur. Hér fyrir neðan má sjá ráðningar sem búið er að ganga frá.

Lína María Ingólfsdóttir var ráðin sem fulltrúi í skráningar og þjónustu og mun hefja störf 1. nóvember n.k. Lína María hefur mikla reynslu í viðskiptaþjónustu og starfaði nú síðast hjá Travelling Iceland og þar á undan í Heilsuhúsinu.

Hafdís Bára Ólafsdóttir var ráðin sem fulltrúi í NorType og mun hefja störf 1. desember n.k. Hún hefur síðustu sex ár unnið sem fulltrúi í skráningum og þjónustu hjá Samgöngustofu.

Gabríel A. Rodriquez var ráðinn sem fulltrúi í NorType og mun hefja störf 1. janúar n.k. Gabríel hefur síðastliðin tvö ár starfað í neyðarskýlinu á Granda og þar áður sem húsvörður hjá Þrótti. Hann er að klára viðskiptafræði við Háskólann á Bifröst og stundar einnig nám við NTV í bókhaldi.

Jón Skjöldur Níelsson var ráðinn sem fulltrúi í NorType og mun hefja störf 1. janúar n.k. Jón Skjöldur hefur starfað síðastliðin þrjú ár sem þjónusturáðgjafi hjá Toyota og þar áður hjá Mótormax. Þá hefur hann einnig starfað sem bormaður og sprengistjóri hjá Borgarvirki í um 16 ár. Jón Skjöldur er með B.A. próf í stjórnmálafræði og M.A. í Evrópufræðum frá Háskóla Íslands.

Ertu alveg græn/n/t?

Óskað er eftir áhugasömum aðilum til að sitja í umhverfishóp Samgöngustofu og taka þátt í gefandi og skemmtilegu starfi hópsins. 
Markmið hópsins er að efla þekkingu og vitund starfsfólks á umhverfismálum og stuðla að því að gera rekstur og starfsemi Samgöngustofu umhverfisvænni.

Hlutverk hópsins eru m.a.:

  • Móta umhverfis- og loftlagsstefnu stofnunarinnar
  • Leggja til mælanleg markmið umhverfismála í samræmi við loftlagsstefnu og í samráði við sérfræðinga Samgöngustofu
  • Skipuleggja fræðslu og kynningu umhverfismála innan SGS, t.d. föstudagsörerindi og kynnisferðir til annarra fyrirtækja 
  • Halda utan um vinnu og fylgja eftir verkefnum sem snúa að viðhaldi Grænna skrefa í ríkisrekstri
  • Halda utan um gagnaöflun fyrir skil á Grænu bókhaldi 
  • Framfylgja verkefnum á sviði umhverfismála sem framkvæmdastjórn felur hópnum 
  • Koma með tillögur að umbótaverkefnum á sviði umhverfismála fyrir rekstur stofnunarinnar (innri umbótaverkefni)
  • Koma með tillögur að samfélagslegum verkefnum á sviði umhverfismála (ytri umbótaverkefni)

Áhugasöm eru beðin að hafa samband við graen@samgongustofa.is  


Búbblur & prjón snýr aftur!

SKRÁNING HÉR: https://forms.office.com/e/Y7mCCVAKaW

Bronsdekkið

Á ársfundi Orkustofnunar á Akureyri í lok september var ríkisstofnunum veittar viðurkenningar fyrir árangur í orkuskiptum. Af bifreiðum Samgöngustofu gengur helmingurinn fyrir hreinorku og því fengum við “bronsdekkið”. Næst í röðinni er silfur og gull og svo að lokum platína þegar við náum fullkomnum árangri. Gaman að því!

Bleiki dagurinn

Í tilefni af bleika deginum klæðast mörg bleiku til stuðnings og samstöðu með þeim sem greinst hafa með krabbamein. Eftir hádegismatinn verður einnig hægt að fá sér bleika kökusneið til að toppa daginn!


Hrekkjavöku-skiptimarkaður!

Árlega hefðin heldur áfram að hafa lítinn hrekkjavöku skiptimarkað fyrir búninga hér í Ármúla 2. Það er frábært að geta nýtt áfram góða búninga, lengja líftíma flíkanna og hlutanna okkar og svo er þetta líka ein af aðgerðunum í Grænu skrefunum 🙂

Dagur breytingaskeiðsins

18. október er dagur breytingaskeiðsins. Breytingaskeiðið er tímabil sem öll ganga í gegnum, en hefur oft talsvert meiri áhrif á líf kvenna. Því er mikilvægt að vekja athygli á þeim líkamlegu og andlegu breytingum sem konur standa oft frammi fyrir á þessum tíma í lífinu. Opin umræða um breytingaskeiðið er mikilvægur liður í því að auka þekkingu, útrýma fordómum og stuðla að bættri heilsu kvenna.

Þann 8. nóvember n.k. verður Halldóra Skúla frá Kvennaráð með fyrirlestur um breytingaskeiðið.

Kíkið endilega á Kvennaráð hér og lesið ykkur til um breytingaskeiðið.
Þar má finna ýmsar upplýsingar og fróðleik ásamt einkennalista.

Bleiki dagurinn – 23. október!

Mætum í bleiku og sýnum samstöðu og stuðning með þeim sem hafa greinst með krabbamein 💗

Ertu nokkuð að gleyma þér?

Minnum á Októberfest Farsýslunnar, með ítölsku ívafi, sem haldið verður í matsalnum næsta fimmtudag þann 17. október.

Pub-quiz, pizzur og sérvaldir bjórar.

Skráning hér!





Alþjóðlegur dagur geðheilbrigðis

Í dag, 10.október, er alþjóðlegur dagur geðheilbrigðis.

Til hamingju með nýja vegginn!

Framkvæmdirnar í mötuneytinu hafa ekki farið fram hjá nokkrum manni. Það er mikið gleðiefni að nýi veggurinn er kominn upp og hægt að nota mötuneytið aftur. Enn er verið að vinna í frágangi en útlitið verður betra með hverjum deginum.



Rannsóknarráðstefna Vegagerðarinnar

Vegagerðin hefur vakið athygli okkar á að opnað hefur verið fyrir skráningu á rannsóknaráðstefnu á þeirra vegum. Ráðstefnan verður haldin föstudaginn 1. nóvember á Hilton Reykjavík Nordica.

Hér má lesa nánar um dagskrána og skrá sig.


Tökum vel á móti nýju fólki

Í byrjun október hófu tveir nýir starfsmenn störf hjá Samgöngustofu.

Hilmar Þór Pétursson starfar sem sérfræðingur í skipatæknideild.

Sólveig Nielsen starfar sem sérfræðingur í deild stjórnunarkerfa og alþjóðamála.

Þau eru bæði staðsett á 3. hæð. Tökum vel á móti þeim 🙂

Forvarnadagar fyrir ungt fólk í umferðinni

Þetta árið hefur Samgöngustofa tekið þátt í forvarnadögum fyrir unga ökumenn á nokkrum stöðum um landið. Þátttaka Samgöngustofa var í formi umferðaröryggis fræðslu ásamt aðstoð við skipulagningu þar sem þess var þörf. 

Forvarnadagarnir byrja á umferðarfræðslu frá ólíkum aðilum og lýkur þannig að slys er sviðsett þar sem nemendur fá að fylgjast með viðbragðsaðilum bregðast við slysi.

Það er fagnaðarefni að fleiri framhaldsskólar séu farnir að leggja mikinn metnað í umferðarfræðslu fyrir unga fólkið. Það er svo mikilvægt að ná til þeirra á þeim aldri þar sem mörg þeirra eru að taka bílprófið. Með degi sem þessum vonumst við til að auka skilning unga fólksins á mikilvægi þess að taka skynsamar ákvarðanir í umferðinni.

Svona flottir dagar verða ekki til án virkilega góðrar samvinnu margra ólíkra aðila. Hverjir standa að deginum er ólíkt á hverjum stað fyrir sig en viðbragðsaðilar og skólinn leika þar aðalhlutverk. Við þökkum öllum þeim sem komu að forvarnadögunum í Akranesi, Borgarnesi, Reykjanesbæ og á Grundarfirði fyrir frábært samstarf.

Vegna umfjöllunar fjölmiðla um aðgang Samgöngustofu að sjúkraskrám

Í ljósi nýlegrar umfjöllunar fjölmiðla um aðgang Samgöngustofu að sjúkraskrám, vill stofnunin koma eftirfarandi upplýsingum á framfæri. Aðeins yfirlæknir flugsviðs Samgöngustofu hefur aðgang að sjúkraskrám og engir aðrir starfsmenn stofnunarinnar hafa haft eða hafa slíkan aðgang. Yfirlæknir flugsviðs Samgöngustofu vinnur eftir ströngum verklagsreglum og tilgangur skoðana í sjúkraskrá er að leggja mat á heilsufarsgögn umsækjanda um heilbrigðisvottorð fyrir flugliða og flugumferðarstjóra sem og læknaskýrslur fyrir öryggis- og þjónustuliða. Mikilvægt er að yfirlæknir hafi nauðsynleg gögn til þess að leggja mat á heilbrigði umsækjanda um heilbrigðisvottorð, um er að ræða mikilvægt flugöryggismál og mjög strangar kröfur gilda um heilbrigði flugliða, flugumferðarstjóra og þjónustu- og öryggisliða.

Laus störf!

Tvö störf eru laus til umsóknar, þekkir þú rétta einstaklinginn?
Sérfræðingur í þjálfunar- og skírteinamálum flugs
Sérfræðingur í deild siglinga- og hafnaeftirlits

Umsóknarfrestur er til 8. október n.k.