Farsýslan og Samgöngustofa bjóða í sameiningu til fjölskyldudags í Húsdýragarðinum kl 17:00 miðvikudaginn 15. júní nk.
Starfsfólk, makar og börn munu fá frítt inn í garðinn og er veittur 50% afsláttur af aðgangi að leiktækjum. Boðið verður upp á grillaðar pylsur og hver veit nema það verði eitthvað fleira skemmtilegt fyrir börnin.
Nánari upplýsingar munu verða veittar þegar nær dregur.
Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, hefur ákveðið að fjölga atvinnuleyfum fyrir leigubifreiðaakstur um 100 á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum (takmörkunarsvæði I) samkvæmt frétt á vef innviðaráðuneytisins. Breytingarnar eru gerðar til að koma til móts við óskir í samfélaginu um meiri þjónustu á leigubifreiðamarkaði. Ráðherra hefur staðfest breytingu á reglugerð um leigubifreiðar (nr. 397/2003), sem tekur gildi á næstu dögum.
Með breytingunni verða atvinnuleyfin á þessu svæði 680 talsins. Um er að ræða mestu fjölgun atvinnuleyfa í einu frá því að lög um leigubifreiðar voru sett árið 2001 (nr. 134/2001).
Í fréttinni segir að Samgöngustofa, sem samkvæmt lögum skal meta tillögur að breytingum af þessu tagi, gerði ekki athugasemd við að fjölga leyfum á takmörkunarsvæði I. Á hinn bóginn taldi stofnunin ekki ástæðu til að fjölga atvinnuleyfum á öðrum takmörkunarsvæðum, þar sem leyfum var nýlega fjölgað á svæði III og þar sem atvinnuleyfi, sem í boði eru á svæði II, eru ekki fullnýtt.
Úthlutun nýrra atvinnuleyfa er fyrirhuguð á næstu vikum.
Nú er átakinu Hjólað í vinnuna lokið og samtals hjóluðu þátttakendur Samgöngustofu tæplega 2818 km sem eru rúmlega tveir hringir í kringum landið á hringveginum (sem er 1321 km). Það voru 17 þáttakendur frá Samgöngustofu og að meðaltali hjólaði hver einstaklingur um 166 km á tímabilinu og tóku þátt að meðaltali í 11 daga. Samkvæmt sérstakri reiknivél sem undirritaður fann á vefnum þá sparaði hópurinn um 0,37 tonn af CO2 ef miðað væri við að allir í hópnum hefðu keyrt sömu vegalengd á Toyota Auris árgerð 2018. Vel gert!
Það voru þær í Mótvindi sem unnu keppnina í flokknum Hlutfall daga en þær hjóluðu að meðaltali í 13 daga en Meðvindur kom þar á eftir með 11,3 daga. Sjá töflu hér að neðan:
Ef skoðað er meðalkílómetrafjölda hvers liðs eru það liðsmenn Hjólesta sem eru sigurvegarar með um 156 km að meðaltali á hvern þátttakanda:
Það voru svo liðsmenn Meðvinds sem unnu heildarkílómetrafjöldan enda liðið fullskipað með 10 þátttakendur en samtals hjóluðu liðsmenn Meðvinds tæplega 1420 km á tímabilinu:
Það eru því allir sigurvegarar í þessu átaki, alveg eins og það á að vera 🙂 Á næsta ári stefnum við á að gera enn betur og fá fleiri til þess að taka þátt í þessu skemmtilega átaki.
Árlegur fundur NSIM var haldinn af verndardeild Samgöngustofu 23. og 24. maí. NSIM er samráðsvettvangur Norðurlandanna um flugvernd, með þátttöku Eystrasaltsþjóða hin síðari ár og voru þátttakendur 28 að þessu sinni.
Hallgrímur skipulagði fundinn og stýrði honum auk þess sem Júlíus tók þátt af hálfu SGS og Hlín átti nokkra innkomu. Sérstakar þakkir eru færðar Hrafnhildi, Snorra, Sigfúsi og Gunnari vegna aðstoðar þeirra við framkvæmdina.
Gengið hefur verið frá ráðningu deildarstjóra upplýsingatæknideildar. Lárus Long, forstöðumaður Business Central ráðgjafar hjá Advania, hefur verið ráðinn í stöðuna og kemur til starfa í byrjun ágúst. Lárus er viðskiptafræðingur að mennt og reynslumikill stjórnandi í upplýsingatækni. Hann hefur m.a. starfað hjá Advania í ýmsum hlutverkum og þar áður sem stjórnandi hjá Actavis Group.
Í föstudagskaffinu s.l. föstudag var farið yfir kynningar- og fræðslumál Samgöngustofu. Viðtalið við Ingvar Ómarsson atvinnumann í hjólreiðum í helgarblaði Fréttablaðsins er gott dæmi um aðferðir sem við notum til að ná til almennings. Öryggis- og fræðsludeild bentu ritstjóra helgarblaðsins á að taka viðtal við Ingvar og beðið var um að lögð væri sérstök áhersla á hjálmanotkunina og álit hans á mikilvægi hjálmanotkunar við hjólreiðar. Það tókst frábærlega og gaman að segja frá því að þetta er fjórða forsíðuviðtalið sem næst að koma að í Fréttablaðinu þar sem öryggismál eru undirliggjandi umfjöllunarefni.
Ingvar: „Þeir horfðu á mig og voru handvissir um að þetta væri búið spil“
Ingvar Ómarsson atvinnuhjólreiðamaður segir í viðtali við helgarblað Fréttablaðsins frá alvarlegu slysi sem hann varð fyrir þegar ferillinn var að hefjast árið 2015.
Ingvar er handhafi fjölmargra Íslandsmeistaratitla í hjólreiðum auk þess að vera okkar fyrsti og eini atvinnumaður í greininni. Litlu munaði þó að endi væri bundinn á þann feril í upphafi hans með alvarlegu slysi í Rotterdam. Segja má með vissu að án hjólreiðahjálms væri Ingvar ekki til frásagnar hér.
Rúmum mánuði eftir að Ingvar flutti til Rotterdam árið 2015 til að einbeita sér að atvinnumennsku í hjólreiðum lenti honum saman við mótorhjól á 80 kílómetra hraða. Ingvar kastaðist heila tuttugu metra, lenti á höfðinu og töldu sjúkraflutningamenn hann látinn þegar þeir komu á staðinn. Ingvar væri ekki til frásagnar um slysið hefði hann ekki verið með hjálm en gera þurfti tvær stórar aðgerðir á höfði hans til að forða honum frá lömun eða dauða.
En að degi slyssins örlagaríka, 11. nóvember 2015:
„Ég man ekki eftir deginum sjálfum en man eftir kvöldinu á undan. Ég hafði planað að hjóla svakalegan 120 kílómetra hring í borginni, hálfa leið í átt að landamærum Belgíu. Þetta var þremur dögum eftir Evrópumótið og ég var kominn á glænýtt götuhjól. Þetta var fyrsti hjólatúrinn á þessu hjóli og ég að hefja æfingaferlið fyrir sumarið á eftir.“
Hjólatúrinn átti að taka um fjórar klukkustundir og er frásögn Ingvars byggð á skýrslum lögreglu enda man hann eins og fyrr segir ekkert frá deginum né slysinu sjálfu.
„Ég var kominn að einum aðalveganna þar sem er grænt ljós og ég kem af minni vegi. Þar er bíll fyrir sem heftir útsýnið. Ég kem öðrum megin við hann en hinum megin kemur mótorhjól á 80 kílómetra hraða. Ökumaður mótorhjólsins hefur engan tíma til að bremsa og fer bara á fullri ferð á mig. Ég kastast yfir 20 metra, sem er rosaleg vegalengd og ég átti erfitt með að trúa henni. Ég var bara farinn yfir í næsta póstnúmer,“ lýsir hann með tilþrifum.
Þyrla og sjúkrabíll send af stað
Ingvar lenti á þjóðveginum og líklega beint á höfðinu. „Ég hef verið á svona 20 kílómetra hraða enda svolítið að passa mig á leið inn á aðalveginn. Við vorum báðir jafn sekir og engum kennt um enda hafði bíllinn blokkað sjón beggja.
Þetta var greinilega það alvarlegt að það fer af stað svolítið fyndinn prósess,“ segir Ingvar sem er feginn að slysið hafi orðið í Hollandi. „Þegar svona svakalega alvarlegt slys verður fer af stað ferli sem aðeins er notað þegar um konungsfjölskylduna eða mjög alvarleg slys er að ræða. Þá er kölluð út bæði þyrla og sjúkrabíll og sá sem er fyrr á staðinn bregst við.“
Í þetta skiptið var sjúkrabíllinn undan á vettvang og leist sjúkraliðunum ekki á blikuna fyrst um sinn. „Þeir horfðu á mig og voru handvissir um að þetta væri búið spil.“
Fékk konunglega þjónustu Miðað við áverka lenti Ingvar á höfðinu enda lítið um önnur meiðsl og í raun aðeins handleggsbrot sem ekki var sinnt almennilega fyrr en síðar.
„Það var ekki einu sinni verið að spá í því – enda ekki aðalatriði. Ákveðið var að sjúkrabíllinn sem var fyrri til flytti mig á sjúkrahúsið og þá lokar lögreglan öllum vegum inn og út úr borginni. Þetta gera þeir fyrir konungsfjölskylduna og alvarleg slys svo ég fékk „royal treatment“,“ segir hann í léttum tón.
„Á meðan þetta er í gangi eru læknar spítalans mættir á neyðarfund því sjúkraliðunum virtist um tvo höfuðáverka að ræða sem vanalega er ekki gerð aðgerð á samtímis. Ég var höfuðkúpubrotinn, auk þess sem það var blæðing bæði utan og innan á hauskúpu,“ segir Ingvar og sýnir um 12 sentimetra langt ör á höfðinu.
„Í millitíðinni er hringt í kærustuna mína, sem fær afskaplega leiðinlegt samtal við komuna á spítalann, en læknirinn segir við hana: „Hann er að fara í aðgerð. Til öryggis skaltu fara og kveðja hann.“
Það var kannski ekki skrítið enda metið að einhverjar 10 prósent líkur væru á að ég lifði aðgerðina af.“
Er í lagi með hjólið mitt? Eftir kveðjustundina fór Ingvar beint í aðgerð enda mátti engan tíma missa.
„Aðgerðin gekk augljóslega glimrandi vel. Ég man svo fyrst eftir mér að borða morgunmat, í spítalarúmi, tveimur dögum síðar.“ Ingvar var þá löngu vaknaður en man ekki eftir sér fyrr. „Ég var á spítala í þrjár vikur en fyrstu vikuna gat ég hvorki gengið né setið. Ég átti mjög erfitt með að borða og mundi lítið. Ég þekkti fólk ekki. Það var eins og ég þekkti foreldra mína en samt ekki. Ég átti erfitt með að segja hvar ég væri.
Ingvar segist eiga svolítið erfitt með að lýsa líðaninni og ástandinu fyrstu vikurnar. „Þetta er ekki svart og hvítt. Maður er svolítið on/off. Ég man vel eftir einu spaugilegu atviki, því ég hafði greinilega nógu mikið vit á að spyrja læknana mjög fljótlega eftir að ég vaknaði: Er í lagi með hjólið mitt? Eitthvað var því enn tengt í hausnum,“ segir hann í léttum tón.
Karen Eva, Sara, Elín Edda, Kara, Ingibjörg og Arnar
Vorboðarnir ljúfu, sumarstarfsfólkið er nú byrjað mæta til starfa. Alls hafa sjö af þeim þrettán sem ráðin voru hafið störf og önnur munu skila sér eitt af öðru á næstu dögum. Aðkoma þeirra er nauðsynleg til að við getum tekið orlof og hlaðið batteríin.
Nokkrir vorboðar náðust á mynd í mötuneyti 19. maí. Á myndinni eru (frá vinstri):
Karen Eva Ómarsdóttir, þjónustudeild
Sara Stefánsdóttir, þjónustudeild
Elín Edda Guðmundsdóttir, þjónustudeild
Kara Ásta Magnúsdóttir, þjónustudeild
Ingibjörg Sigurðardóttir, fjármáladeild
Arnar Snær Pálsson, fjármáladeild
Aron Dagur Beck, skipatæknideild hefur einnig hafið störf en náðist ekki á mynd að þessu sinni, þegar öll verða mætt verður gerð tilraun til að festa þau öll á filmu 📸 🙂
Það er hann Gísli Friðrik Grétarsson sérfræðingur í Umferð og þjónustu sem velur föstudagslagið þessa vikuna. Um val sitt segir Gísli:
Með markhópinn í huga skulum við spóla til baka um nokkur ár, Rhiannon með Fleetwood Mac af samnefndri plötu sem kom út árið 1975 þar sem Stevie Nicks er í fararbroddi.
Mótvindur. Frá vinstri: Sigurlína, Margrét Birna, Halldóra og Anney
Nú hefur starfsfólk Samgöngustofu hjólað um 2200 km í átakinu Hjólað í vinnuna. Þrjú lið taka þátt, Meðvindur, Mótvindur og Hjólhestar, og er baráttan hörð um sigurvegara ársins 2022. Baráttan er hinsvegar ekki hörð er kemur að metnaði í stemningu og búningum en þar er liðið Mótvindur í algjörum sérflokki eins og sést á myndinni hér að ofan. Þær Sigurlína, Margrét Birna, Halldóra og Anney Þórunn eru komnar með liðsbúninga merktum liðinu. Það er ljóst að hin liðin þurfa að taka sig taki hvað þetta varðar og hefur frést að Kristín Helga sé að láta sérsauma fyrir sig búninga hjá Nike fyrir Hjólhestana…
Annars er staðan þessi á þessum tímapunkti keppninnar:
ESA var í úttekt á hafnarvernd í Vestmannaeyjum í gær og fyrradag. Júlíus Ó Einarsson er með í för ásamt fulltrúa íslenskra tollyfirvalda vegna farmverndar og fulltrúa frá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins.
Í dag og á morgun verður hópurinn staddur í Grindavík í sömu erindagjörðum.
Það er hvergi meiri kynjamunur í atvinnugreinum en í siglingum – en aðeins um 1% sjómanna eru konur. Það horfir þó nokkuð til bóta því heldur fleiri stelpur sækja nú nám í skipstjórn og vélstjórn, auk annarra siglinga – og sjávarútvegstengdra greina. Á undaförnum árum hefur orðið til sterkt tengslanet kvenna í siglingum og sjávarútvegi hér á landi þar sem konur hittast, miðla af þekkingu sinni og kynnast þeim fjölbreyttu nýjungum sem einkenna greinarnar, m.a. fullnýting þess sem áður var úrgangur en er nú nýtt í heilsu-, matvæla- og snyrtivörur.
Árið 2019 var í starfsemi IMO helgað konum í siglingum. Hérlendis var af því tilefni haldin góð ráðstefna síðla það ár með fjölda innlendra og erlendra fyrirlesara.
Eitt af mörgum hlutverkum Samgöngustofu er greining, forvarnir og fræðsla um öryggi hjólandi vegfaranda.
Núna í maí erum við í samstarfi við Slysavarnafélagið Landsbjörg að framkvæma könnun við valda stíga á höfuðborgarsvæðinu. Undanfarin ár hefur umferð meðal ökumanna á akbrautum verið könnuð en með þessu samstarfsverkefni er ætlunin að fá sem besta mynd af stöðunni utan akbrauta á göngu- og hjólastígum. Farartæki sem fara um stíginn eru skráð og hvort ökumaður sé með hjálm. Einnig aldur og kyn skráð, hvort ökumaður horfi eða haldi á síma, hvort að það sé farþegi auk ökumanns á farartækinu og hvort að farþeginn sé með hjálm. Ætlunin er að framkvæma könnunina með sama hætti næstu árin til að geta fengið sem besta mynd af þróun hegðunar á göngu- og hjólastígum.
Það eru unglingadeildir Landsbjargar á höfuðborgarsvæðinu sem sjá um framkvæmd könnunarinnar en undanfarin ár hafa Samgöngustofa og Slysavarnafélagið Landsbjörg tekið höndum saman og lagt sérstaka áherslu á öryggi ungs fólks (15-20 ára) í umferðinni. Ráðstefnur, vinnustofur og málþing hafa verið haldin og sóttu fulltrúar Samgöngustofu og Landsbjargar, ásamt fjórum ungmennum, alþjóðlega ráðstefnu um umferðaröryggi sem haldin var í Svíþjóð árið 2020. Í aðdraganda ráðstefnunnar var vinnustofa fyrir ungmenni undir merkjum YOURS (Youth for Road Safety). Þar var lögð áhersla á að virkja unga fólkið til aðgerða með aukinni þátttöku og stefnumótun er varðar öryggi ungs fólks og með það að leiðarljósi að fræða jafnaldra um umferðaröryggi. Könnunin fer fram á sama tíma og verkefnið Hjólað í vinnuna stendur yfir þannig að það er mikil umferð um stígana.
Lokahóf samstarfsverkefnisins fer fram í Flugröst sal Samgöngustofu í Nauthólsvík, Nauthólsvegi 99. fimmtudaginn 19. maí kl. 19:00. Þar munu forsvarsmenn Samgöngustofu og Slysavarnafélagsins Landsbjargar m.a. veita unglingadeildum viðurkenningu fyrir störf sín í þágu umferðaröryggis í landinu.
Þann 6. apríl 2021 var samþykkt í framkvæmdastjórn verklag við yfirferð efnis á ytri vefjum Samgöngustofu (www.samgongustofa.is og www.icetra.is ). Ábyrgð á efni einstakra vefsíðna er skilgreint og mun vefstjóri senda viðkomandi ábyrgðaraðilum og deildarstjórum lista yfir þeirra síður á næstu dögum. Ábyrgðaraðilar fara svo yfir efni sinna síðna og annaðhvort staðfesta að engar úreldar upplýsingar séu þar að finna eða senda vefstjóra ábendingar um efni sem þarf að uppfæra. Sendur verður út tékklisti með þessum tölvupóstum. Ábyrgðaraðilar hafa frest til24. júní til þess að fara yfir efni sinna síðna og senda á vefstjóra stöðuna hjá sér.
Þetta er hið formlega ferli en einnig er mikilvægt að allt starfsfólk hjálpist að við að tryggja að efni á vefnum sé rétt og vel uppfært. Við viljum hvetja ykkur til þess að fara yfir það efni sem snertir ykkar starfsvið á www.samgongustofa.is og www.icetra.is og senda ábendingar í gegnum ábendingakerfi vefsins en þær ábendingar skila sér á netfangið vefur@samgongstofa.is. Neðst á hverri síðu á vefnum er sem sagt ábendingakerfi, þið veljið Var efnið hjálplegt: Nei. Sjá hér:
Þá kemur upp form þar sem þið skrifið hvað þurfi að laga á viðkomandi síðu. Þið ráðið hvort þið setjið netfangið ykkar með (betra upp á eftirfylgni) eða hvort þið viljið hafa ábendinguna nafnlausa:
Einn af kostunum við það að nota ábendingakerfið er að þá fylgir ábendingunni bein slóð á viðkomandi síðu. Einnig má senda ábendingar beint á netfangið vefur@samgongustofa.is ef fólki þykir það þægilegra.
Vinnum saman og bætum upplýsingarnar á vefnum okkar. Vefurinn er andlit stofnunarinnar út á við og mjög mikilvægt er að upplýsingar sem þar eru séu réttar og uppfærðar reglulega.
Hópurinn tók sér stutt hlé og stillti sér upp fyrir myndatöku. Lélegur brandari myndasmiðs kallaði fram þessi líka fínu bros
Í síðustu viku var haldin vinnustofa hér í Ármúlanum á vegum Eurocontrol vegna hugsanlegrar aðildar Íslands að stofnuninni. Vinnustofuna sóttu fulltrúar Landhelgisgæslunnar, Isavia, CERT-IS, Samgöngustofu auk starfsfólks Eurocontrol sem stýrði vinnustofunni. Hópurinn tók sér tíma fyrir myndatöku og var að sjálfsögðu farið út enda viðraði vel þennan daginn.
Í tilefni Eurovision er föstudagslagið að sjálfsöguð lag þeirra Systra; Með hækkandi sól. Við treystum á að lagið hljómi á öllum göngum í dag og allir verði í Eurostuði og syngji með. Látum fylgja eitt klassískt íslenskt Eurovisionlag sem oft er tekið í útilegum á sumrin og allir kunna textann við.
Samgöngustofa heldur Umferðarþing föstudaginn 23. september 2022 kl. 9-16 í Gamla bíói, Ingólfsstræti 2a í Reykjavík. Endilega takið daginn frá.
Umferðarþingið verður haldið í lok evrópsku samgönguvikunnar sem ber í ár yfirskriftina “Virkar samgöngur – betri hreyfing”. Áhersla þingsins í ár verður á óvarða vegfarendur í umferðinni sem mætti með réttu kalla “virka vegfarendur” – innan og utan akbrauta. Er þá helst átt við gangandi og hjólandi, bæði á reiðhjólum og hinum ýmsu smátækjum (þar á meðal rafhlaupahjólum) og samspil þeirra við aðra umferð. Dagskrá, skráning og frekari upplýsingar koma síðar.
Eins og áður segir eru þrjú lið Samgöngustofu skráð í Hjólað í vinnuna þetta árið. Þetta eru liðin Meðvindur, Mótvindur og Hjólhestar. Í morgun voru tveir liðsmenn Meðvinds að hjóla úr Garðabæ og við Kópavogshálsinn tók liðsmaður Hjólhesta fram úr þeim en hann var að koma alla leið úr Keflavíkinni. Hjólhesturinn hægði ferðina og spjallaði við Meðvindsmenn en kvaddi svo og brunaði á undan í Ármúlann. Ekki nema 60 km leið að fara fyrir Hjólhestinn og ekki laust við að Meðvindsmenn hafi verið nokkuð litlir í sér eftir þessa lífsreynslu…
Samtals hafa þessi þrjú lið hjólað um 805 km leið á þessu stigi átaksins en það er um 100 km lengra en vegalengdin til Neskaupsstaðar (suðurleiðin). Staðan innan Samgöngustofu er þessi:
Heildarvegalengd liða, liðið Meðvindur heldur forystu en Mótvindur fylgir fast á eftir
Hlutfall km, Mótvindur er með forystuna hvað varðar hlutfall km en Meðvindur í öðru:
Nýlega var gengið frá tveimur ráðningum í siglingastörf. Ingólfur Örn Þorbjörnsson var ráðinn sérfræðingur í skipatæknideild. Ingólfur er verkfræðingur að mennt, lærði í Danmörku og lauk þaðan bæði grunn- og meistaragráðu. Einnig hefur Ingólfur sveinspróf í stálskipasmíði. Síðast starfaði Ingólfur sem nýsköpunarstjóri hjá Íslenskum orkurannsóknum auk kennslu við Háskólann í Reykjavík. Ingólfur hefur störf 3. júní næstkomandi.
Vivek Sharma var ráðinn í starf eftirlitsmanns hafnarríkiseftirlits (e. Port State Control). Vivek hefur atvinnuskírteini skipstjóra auk BS gráðu í sjávarfræðum (e. nautical science). Vivek hefur starfað á sjó á skemmtiferða- og flutningaskipum sl. tíu ár. Vivek starfar í dag sem fyrsti stýrimaður á skipi National Geographic Expedition cruise sem siglir um norðurslóðir og Suðurskautslandið. Vivek hefur störf 3. ágúst næstkomandi.