Drög að nýju skipuriti

Drög að nýju skipuriti Samgöngustofu

Á miðvikudaginn fór Jón Gunnar yfir tillögur að breytingum á skipulagi Samgöngustofu sem miða að áframhaldandi þróun í samræmi við þarfir starfseminnar. Einnig eiga þær að styðja við stefnumótun sem unnið er að, með samlegð þar sem mögulegt er.

Eins og kom fram í tölvupósti frá Jóni Gunnari í dag þá er tillögunum ætlað að mæta ólíkum áskorunum einstakra fagsviða og auka samræmi innan þeirra í meira mæli en núverandi skipulag býður upp á. Skipurit er í sjálfu sér bara einföld teikning sem lýsir verkaskiptingu og að einhverju leyti ábyrgð á málaflokkum og einstökum verkefnasviðum. Skipulag verður ekki höggvið í stein til allrar framtíðar, heldur mun taka breytingum eftir þörfum og að fenginni reynslu.

Næstu vikurnar munum við skoða og ræða nánari útfærslur á einstökum stöðum svo niðurstaðan verði sem best. Ætlunin er að hægt verði að kynna nýja skipulagið formlega um miðjan júní, en þangað til er það verk í vinnslu og því ekki til dreifingar utanhúss. Tilfærslur starfstöðva innan húsnæðis verða svo skoðaðar í lok sumars.

Drög að siðareglum

Í morgunkaffinu kynnti Jón Gunnar drög að nýjum siðareglum Samgöngustofu. Þau voru undirbúin af litlum hópi sem grundvöllur umræðu að sameiginlegum sáttmála okkar um ábyrgð, heilindi og háttsemi. Drögin verða rædd áfram með það að markmiði að ná sameiginlegri niðurstöðu sem síðan verður birt og gerð sýnileg. Siðareglurnar verða ekki endanlegur úrskurður sem gildir að eilífu heldur verður hún tekin til endurskoðunar eftir því sem tilefni er til.

Drög að siðareglum Samgöngustofu

Staða forritara auglýst

Samgöngustofa auglýsir stöðu forritara. Auglýsingin er komin í loftið á starfatorgiheimasíðu Samgöngustofu og Alfreð

Umsóknarfrestur er til og með 16. maí nk. 

Föstudagslagið í boði Sigurlínu

Björgvin Halldórsson og Ragnhildur Gísladóttir í september árið 1980, um svipað leyti og platan Dagar og nætur kom út. Núna, þrjátíu árum síðar, liggja leiðir þeirra saman á nýjan leik.

Það er hún Sigurlína Freysteinsdóttir sem velur föstudagslagið þessa vikuna. Um val sitt segir hún:

Dagar og nætur með Bo og Röggu Gísla, reynið að sitja kyrr 🙂

Þetta lag fær alla til að dilla sér og því valdi ég það. Það er svo hollt og gott að sleppa sér aðeins og syngja með. Um leið og ég skora á ykkur kæru samstarfsfélagar að stíga nokkur spor á meðan þið hlustið vil ég nýta tækifærið og þakka fyrir góðar móttökur.

Ég skora á Kristínu Björgu að koma með næsta föstudagslag, ég hef mikla trú á að hún haldi uppi stuðinu áfram!

Innskot vefstjóra: Hér er skemmtilegt viðtal við Röggu Gísla um þetta samstarf hennar við Bó.

Hjólað í vinnuna – setningarhátíð í gær

Á myndinni eru Andri Stefánssón framkvæmdastjóri ÍSÍ, Dagur B. Eggertsson borgarstjóri, Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra, Jón Gunnar Jónsson forstjóri Samgöngustofu, Ingvar Ómarsson hjólreiðakappi og Sigrún Ágústsdóttir forstjóri Umhverfisstofnunar.


Setningarhátíð Hjólað í vinnuna fór fram í gærmorgun og hélt Jón Gunnar ræðu af því tilefni ásamt þeim Andra Stefánssyni framkvæmdarstjóra ÍSÍ, Willum Þór Þórssyni heilbrigðisráðherra, Degi B. Eggertssyni borgarstjóra Reykjavíkur, Sigrúnu Ágústsdóttur forstjóra Umhverfisstofnunar og Ingvari Ómarssyni hjólreiðakappa.

Jón Gunnar sagði frá því að hann hafi tekið þátt í átakinu í allmörg ár og haft mjög gaman af. Hann benti á að Hjólað í vinnuna væri sannkallaður vorboði en nauðsynlegt væri að vera vel búinn og að huga að örygginu, vera með hjálm og hafa hjólið í lagi. Hann benti á að hjólandi og gangandi þurfa að bera virðingu fyrir hvort öðru, sýna aðgát og tillitssemi. Sjá nánar frétt á vef átaksins.

Hjólað í vinnuna er ræst í 20. skiptið, Jón Gunnar lengst til vinstri.

Af þessu tilefni var einnig útbúið sérstakt kynningarmyndband sem birst hefur á samfélagsmiðlum þar sem Jón Gunnar ásamt þeim Sigrúnu forstjóra Umhverfissstofnunar, Andra Stefánssyni framkvæmdastjóra ÍSÍ:

Viðtal við Einar Magnús í Fréttablaðinu í dag

Einar Magnús er í viðtali í Bílablaði Fréttablaðsins í dag í tilefni Vorfagnaðar bifhjólaflokks sem sem Samgöngustofa hélt í samstarfi við Sniglana og Ökukennarafélagið.

Viðtalið/greinin:

Á sumardaginn fyrsta hélt Samgöngustofa í samstarfi við Sniglana og Ökukennarafélagið í fyrsta sinn svokallaðan Vorfagnað bifhjólafólks. Að sögn Einars Magnúsar Magnússonar, sérfræðings hjá öryggis- og fræðsludeild Samgöngustofu, hefur verið samstarf milli þeirra og Sniglanna um árlegan vorfund þar sem farið er yfir slysatölfræði bifhjólafólks. „Nú í ár langaði okkur að taka þetta lengra og fengum til liðs við okkar Ökukennarafélag Íslands og bifhjólakennara á þess vegum. Hugmyndin var að bjóða bifhjólafólki upp á vorfagnað þar sem boðið væri upp á fræðslu, æfingar og kennslu sem búið gæti bifhjólafólk sem best undir sumarið sem vitanlega er sá tími sem flestir eru á ferðinni á bifhjólum,“ sagði Einar.

Ökukennarafélagið bauð afnot af Ökuskóla 3 fyrir fundinn en þar er stórt æfingasvæði á braut Kvartmíluklúbbsins. „Í stuttu máli tókst í frábæru samstarfi við Sniglana, ökukennara, Ökuskóla 3 og Ökukennarafélagið að gera eftirminnilegan og gagnlegan dag sem ég held að muni lengi verða í minnum hafður. Þetta var hreint út sagt frábær dagur og eiga þessir aðilar miklar og góðar þakkirskildar fyrir framlag sitt,“ sagði Einar enn fremur.

Auk þessa flutti Einar erindi um þróun slysatölfræði meðal bifhjólafólks en í því kom fram að í dag eru mun minni líkur á slysum meðal bifhjólafólks. „Ljóst er að nú er mun betra og reynslumeira bifhjólafólk í umferðinni og almennt held ég að vitund almennra ökumanna sé mun meiri fyrir umferð bifhjólafólks en áður var. Í erindinu var jafnframt lögð mikil áhersla á notkun viðurkennds hlífðarfatnaðar sem væri merktur evrópskum CE-stöðlum en rannsóknarnefnd samgönguslysa hefur lagt ríka áherslu á það í ljósi fjölda banaslysa og alvarlegra slysa þar sem slíkur búnaður var ekki notaður,“ sagði Einar að lokum.

Þrjú lið skráð hjá Samgöngustofu


Hjólað í vinnuna hefst á morgun miðvikudag. Þrjú lið eru skráð hjá okkur á Samgöngustofu: Meðvindur, Mótvindur og Hjólhestar. Liðið Meðvindur er nú fullskipað (hámark 10 til að taka þátt í kílómetrakeppni) og ekki hægt að bæta fleirum við þar en enn eru laus sæti í liðunum Mótvindi (7 sæti laus) og Hjólhestum (5 sæti laus). Kristín Helga er liðstjóri Hjólhesta, Atle er leiðtogi Meðvinds en ekki er vitað hver leiðir lið Mótvinds, ábendingar vel þegnar :). Búist er við harðri keppni næstu vikurnar og ekkert verður gefið eftir hvort sem fólk fær meðvind eða lendir í mótvindi.

Aðeins um Hjólað í vinnuna:
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands stendur fyrir heilsu- og hvatningarverkefninu „Hjólað í vinnuna“. Vinnustaðir eru hvattir til að setja upp lið og liðsstjóra og skrá sig til leiks hér og vekja athygli á virkum ferðamáta sem heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta til og frá vinnu t.d. með því að hjóla, ganga, hlaupa eða nýta almenningssamgöngur. Ýmsan fróðleik má finna hér og mun Samgöngustofa vekja sérstaka athygli á umferðaröryggi hjólreiðamanna.

Allir eru hvattir til þess að taka þátt í Hjólað í vinnuna og hvetja aðra til þess að taka þátt með þeim. Undanfarin ár höfum við hjá Samgöngustofu verið með nokkur lið og hefur myndast samkeppni þeirra á milli. Skráum sem flest lið til leiks og tökum virkan þátt í þessu flotta framtaki!

Upplýsingar um hvernig skráning fer fram má nálgast hér.






Þórhildur í síðdegisútvarpinu

Þórhildur var í síðdegisútvarpinu í gær og minnti landsmenn á að maí er nýr skoðunarmánuður fyrir húsbíla, hjólhýsi, fellihýsi, tjaldvagna, bifhjól, létt bifhjól í flokki II og fornökutæki. Sjá nánar í frétt hér á innri vefnum frá því í gær. Viðtalið byrjar á mínútu 35. Þið megið endilega láta orðið berast ef þið þekkið fólk sem á slík tæki og tól 🙂









Viðtal við Gunnar Geir í Morgunblaðinu

Gunnar Geir, deildarstjóri öryggis- og fræðsludeildar, er í viðtali í Morgunblaðinu í dag. Umfjöllunarefnið er m.a. mikil fjölgun slysa á rafmagnshlaupahjólum og í viðtalinu segir m.a.:

„Slys­um á reiðhjól­um, raf­magns­reiðhjól­um og raf­magns­hlaupa­hjól­um fjölgaði mjög mikið í fyrra en það má að stærst­um eða öll­um hluta rekja til mik­ill­ar fjölg­un­ar slysa á raf­magns­hlaupa­hjól­um. Al­var­leg­um slys­um á þess­um tækj­um fjölg­ar einnig mikið á milli ára, eða úr 4 í 35 og seg­ir sér­fræðing­ur hjá Sam­göngu­stofu að slys á þess­um tækj­um séu nú orðin stór hluti af heild­ar­mynd­inni þegar kem­ur að um­ferðarslys­um. Stór­an hluta þess­ara slysa má þó rekja til tveggja not­enda­hópa og hægt eigi að vera að fyr­iyggja þau að miklu leyti.

„Í fyrra varð al­gjör spreng­ing í þess­um slys­um. Við sáum þetta fyrst árið 2020, en þetta marg­faldaðist í fyrra,“ seg­ir Gunn­ar Geir Gunn­ars­son, deild­ar­stjóri ör­ygg­is- og fræðslu­deild­ar Sam­göngu­stofu, í sam­tali við Morg­un­blaðið. „Þetta er orðið stórt vanda­mál og áber­andi hluti af heild­ar­mynd­inni varðandi um­ferðarslys.“ “

Viðtalið í heild má lesa hér.

Maí er nýr skoðunarmánuður fyrir húsbíla, hjólhýsi, fellihýsi, tjaldvagna, bifhjól, létt bifhjól í flokki II og fornökutæki

Við erum þessa dagana (fréttatilkynning, samfélagsmiðlar o.fl.) að vekja athygli á að með reglugerð nr. 414/2021 um skoðun ökutækja hafa ökutæki í ákveðnum ökutækja- og notkunarflokkum fengið nýjan skoðunarmánuð. Skal nú og framvegis færa þau til skoðunar eins og þau hefðu 5 í endastaf skráningarmerkis, sem þýðir að skoðunarmánuðurinn er maí. Þetta á við um húsbíla, hjólhýsi, fellihýsi, tjaldvagna, bifhjól, létt bifhjól í flokki II og fornökutæki. Vanrækslugjald leggst á óskoðuð ökutæki í þessum flokkum þann 1. ágúst.

Reglubundin skoðun ökutækja þar sem farið er yfir ástand og búnað er lögbundin, enda mikilvæg fyrir umferðaröryggi. Samgöngustofa hvetur því eigendur ofangreindra ökutækja að huga að skoðun sem fyrst og fara þannig öruggari á göturnar og inn í sumarið. Ítarlegri upplýsingar má finna á www.samgongustofa.is/skodun

Hægt er að sjá skoðunarmánuð bifreiðar með því að fletta upp bílnúmerinu á vefsíðunni www.samgongustofa.is/okutaekjaskra eða á Mínu svæði Samgöngustofu.