Gæðamál og gæðavöfflur

Starfsfólk stjórnunarkerfa og alþjóðamála með vöfflumeisturum Samgöngustofu

Með morgunkaffinu var boðið upp á dýrindis vöfflur sem spilltu ekki ánægjunni á þessum góða föstudegi! Einnig fengum við kynningu á helstu verkefnum deildar stjórnunarkerfa og alþjóðamála sem varða starfsemina í heild og styðja við verkefni allra sviða. Í örstuttu máli miða þau að gæðum og stöðugum umbótum innan Samgöngustofu, tengslum við alþjóðastofnanir og varðveislu gagna. Við erum öll þátttakendur í þeirri vegferð að styðja við markmiðin með því að fylgja verklagsreglum, vinna að úrbótum og benda á hvað betur megi fara. Varðandi það síðasta, þá er Bendill góður og skilvirkur vettvangur fyrir ábendingar sem tilvalið er að nota sem mest. Í kynningunni var einnig fjallað um umhverfismálin hjá okkur og stöðuna varðandi innleiðingu á Grænum skrefum. Þar hefur margt áunnist, en við eigum enn mörg tækifæri til að gera betur.

Hér má sjá kynningu um stjórnkerfi, alþjóðamál og umhverfismál.

Föstudagslagið í boði Bjarklindar

Það er hún Bjarklind í öryggis- og fræðsludeild sem velur föstudagslagið að þessu sinni. Um val sitt segir hún:
Föstudagslagið að þessu sinni er eitt gamalt og gott frá því að ég var töffari í unglingadeild. Söngkonan Rihanna varð fyrir valinu en mér datt hún sérstaklega í hug því hún átti svo sturlað Halftime show í Superbowl fyrir stuttu. Hún á svo mörg frábær lög svo það var erfitt að velja úr.

Lagið We found love varð að lokum fyrir valinu því mér fannst mikilvægt að velja alvöru pepp lag sem ætti að koma þér í stuð á þessum annars frábæra föstudegi.

Að lokum skora ég á Kolbein Arnarson að koma með næsta föstudagslag!





Meginferlar Samgöngustofu og innleiðing ISO-27001

Undanfarið hafa Díana Björk og Kolbeinn unnið með framkvæmdar- og deildarstjórum Samgöngustofu að skilgreiningu meginferla stofnunarinnar. Þetta er hluti af innleiðingu ISO-27001 staðalsins sem Samgöngustofa hefur ákveðið að innleiða. ISO-27001 er upplýsingaröryggisstaðall en innleiðing hans rímar vel við gæðastefnu Samgöngustofu.

En hvað eru meginferlar? Hugsa má um þá sem helstu verkefni stofnunarinnar. Undir meginferlanna geta svo komið undirferlar sem lýsa verkefnum á nákvæmari máta. Eitt meginferli hjá Samgöngustofu gæti t.d. verið leyfisveitingar og undirferli þess myndi þá útlista nánar og nákvæmar mismunandi leyfisveitingar Samgöngustofu.

Meginferlafundirnir hafa einkennst af gleði, áhuga, hamingju og eftirvæntingu eftir innleiðingu staðalsins. Samgöngustofa er komin langleiðina með að skilgreina alla meginferla stofnunarinnar en þá getur gæðateymið farið af fullum þunga í innleiðingu ISO-27001.




Smástund auðveldar lífið

Smástund er app fyrir inn og útstimplanir
og það er hægt að sækja í Play store eða App store.

Númer Samgöngustofu til að skrá sig inn í fyrsta skipti er 1020

Í Smástund er hægt að:

  • Stimpla sig inn og út í símanum
  • Skoða orlof, vinnutíma og skrá fjarvistir.
  • Fá yfirlit yfir samstarfsfólk.

Þegar inn er komið byrjið þið á að skrá kóða Samgöngustofu í forritið sem er eins og áður segir 1020:

Eftir það er hægt að nota appið til að skrá sig inn og út og skoða orlofsstöðuna og margt fleira.






Breytt fyrirkomulag við skoðanir á skipum og búnaði þeirra

Innviðaráðuneytið hefur sett drög að tveimur reglugerðum í samráðsgátt, annars vegar nýja reglugerð um skoðanir á skipum og búnaði þeirra, sem kemur í stað reglugerðar sama heitis nr. 1017/2003, og reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 122/2004 um öryggi fiskiskipa sem eru 15 metrar eða lengri að mestu lengd

Með reglugerðunum eru gerðar breytingar á fyrirkomulagi við skoðanir skipa. Fyrirkomulag er til samræmis við Höfðaborgarsamþykktina um öryggi fiskiskipa sem íslenska ríkið hefur undirritað. Jafnframt er kerfið til samræmis við það sem gengur og gerist á Norðurlöndum og víðar.

Reglugerð nr. 1017/2003 um skoðanir á skipum og búnaði þeirra, með síðari breytingum, gerir almennt ráð fyrir að skoðanir skipa eigi sér stað með reglulegu millibili á fjögurra ára tímabili. Nefnist eitt slíkt tímabil skoðunarhringur. Skip sem falla alfarið undir alþjóðasamninga og farþegaskip, sem falla undir reglugerð nr. 666/2001, eru í fimm ára skoðunarhring.

Með nýrri reglugerð um skoðanir á skipum og búnaði þeirra er lagt til að öll skip verði færð í fimm ára skoðunarhring. Fer þá stærsta skoðun skips fram á fimm ára fresti í stað fjögurra sem áður var. Með breytingu á reglugerð nr. 122/2004 eru sambærilegar breytingar gerðar.

Samkvæmt reglunum verður ákvörðuð svokölluð afmælisdagsetning sem skoðanir hvers skips skal miðast við. Ákvarðast afmælisdagsetning af gildistíma öxulskoðunar. Almennt má ýmist framkvæma skoðun 3 mánuðum fyrir eða 3 mánuðum eftir þá dagsetningu ár hvert. Þá er afmarkað hvaða skoðanir skulu fara fram á tilteknu tímabili.







Hjólað í vinnuna… í fyndnustu alvöru

Föstudaginn 14. apríl ætlar Úlfar Linnet, fyndnasti maður Íslands, að halda fyrirlestur í tengslum við Hjólað í vinnuna. Fyrirlesturinn verður í morgunkaffinu kl. 8:30 og er markmiðið að hlæja saman, fræðast um hjólreiðar og hvetja alla til þátttöku í átaknu.

Úlfar hefur sjálfur notast við hjólið undanfarin 10 ár og hefur væntanlega frá mörgu skemmtilegu að segja 🙂






Konur við fjármálastýrið

Í morgun fengum við fína kynningu á verkefnum fjármáladeildar. Fyrir utan föst verkefni deildarinnar sem snúast um að fjármálin og það sem þeim tilheyrir sé á réttu róli, eru einnig umbótaverkefni í gangi sem skipta miklu máli. Má þar til dæmis nefna verkbókhaldið sem er grunnur að innheimtu fyrir útselda vinnu og svo sjálf forsendan fyrir fjárhagslegri heilsu Samgöngustofu sem er gjaldskráin. Sérstakt samþykki ráðherra þarf fyrir öllum breytingum á henni og því þurfa nauðsynlegar uppfærslur að vera vel undirbúnar. Um langtímaverkefni er að ræða, en nú þegar hefur framsetning gjaldskrárinnar verið stórlega endurbætt.

Kynninguna má finna hér.

Föstudagslagið í boði Egils


Það er hann Egill Þorsteinsson sem velur föstudagslagið að þessu sinni. Um val sitt segir hann:

Ég vel lagið All summer long með Kid Rock. Þetta lag kemur mér í helgarstuðið.

Ég er hrifinn af öllu dóti og báturinn er flottur í þessu myndbandi. Fyrir þau ykkar sem eruð „bátaperrar“ þá er þetta bátur sem er smíðaður af Grand Craft verksmiðjunum í Michigan að ég held. Þessir bátar eru venjulega gerðir úr Mahogany og verðið er eftir því 🙂 (aka – ég er ekki að fara kaupa svona). Þessir bátar eru oft með flottri vél, kannski 5 lítra vél og hljóðið eftir því.

Páskabingó Farsýslunnar

Smellið á myndina til að fá upp skráningarvalmynd.

Fréttir af ráðningarmálum

Mikið er að gerast í ráðningum þessa dagana hjá Samgöngustofu. Hér fyrir neðan má sjá ráðningar sem búið er að ganga frá. Hlökkum til að taka á móti öllu þessu fólki.

Sérfræðingur í kerfis- og notendaþjónustu

Björn Friðriksson mun hefja störf 1. maí nk. Björn hefur unnið við kerfisrekstur frá árinu 2001. Var hjá Securitas í um 19 ár. Í dag starfar hann hjá Já hf. Hann lauk námi í vélstjórn á sínum tíma og hefur lokið MCSA námi frá Rafiðnaðarskólanum. Einnig hefur hann setið námskeið tengt kerfisstjórnun í gegnum árin.


Eftirlitsmaður flugvalla

Andri Hermannsson mun hefja störf 1. maí nk. Andri starfaði hjá Air Atlanta í um 17 ár, sem hleðslustjóri, vaktstjóri í flugumsjón, manager security og síðast sem flugverndarstjóri. Frá árinu 2020 hefur hann unnið sem ráðgjafi hjá Flight Nordic Flight Department og sem hópstjóri og deildarstjóri hjá Klettabæ. Hann lauk námi í flugrekstrarfræði frá Háskóla Íslands / Keili árið 2013.

Hákon Varmar Önnuson mun hefja störf 1. júlí nk. Hákon hefur starfað frá árinu 2017 hjá Air Atlanta við flugumsjón. Þar á undan starfaði hann sem fleet manager hjá Keili. Hann er með bakgrunn úr flugi en hann kláraði einkaflugmannsréttindi árið 2015 og hefur lokið bóklega hluta atvinnuflugmanns hjá Keili.

Forritarar

Eggert Bjarni Sævarsson hefur störf 1. apríl nk. Hann er með BS í tölvunarfræði frá Háskólanum á Akureyri. Hann hefur unnið við forritun í yfir 20 ár, mestan tíma hjá Umferðarstofu (Samgöngustofu) á árunum 2008-2018. Frá þeim tíma hefur hann unnið hjá Þjóðskrá, Ráðgjafamiðstöð landbúnaðarins og nú með eigin rekstur EBS ráðgjöf ehf.

Daði Magnússon er með BS í tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Hann hefur unnið hjá Umferðarstofu, Smartmedia, Arctic Andventures og Hey Digital / Sahara sem forritari. Daði var með tímabundna ráðningu hjá stofnuninni áður.

Magnús Elíasson er með BS í tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Hann vann á árunum 2004-2023 sem Senior Software Developer hjá Betware, einnig þekkt sem Novomatic Lottery Solutions og nú sem Next Generation Lotteris. Magnús var með tímabundna ráðningu hjá stofnuninni áður.



Teygjuæfingar á gangi 3A

Í þeim tilgangi að sigrast á vöðvabólgu sem herjað hefur á starfsfólk á gangi 3A var efnt til sameiginlegrar teygjustundar í morgun. Áformað er að taka nokkurrra mínútna teygjustundir tvisvar í viku. Það eru teygjumeistararnir Una og Sigurjóna sem leiða teygjurnar.

Styrkir til bílaleiga til kaupa á rafbílum

Orkusjóður hefur lokið við að meta umsóknir frá bílaleigum um styrk til kaupa á 100% rafbílum. Um sérátak Orkusjóðs er að ræða. Í matsnefnd sat Jón Hjalti Ásmundsson, deildarstjóri tæknimála ökutækja og innviða, fyrir hönd okkar í Samgöngustofu.

Gerð er krafa um að fyrsta skráning bílanna verði fyrir tilteknar dagsetningar til að fá styrk og því má hugsanlega búast við einhverri pressu á afgreiðslu bílanna þegar kemur að þeim dagsetningum.

Yfirlit yfir þau fyrirtæki sem fengu styrk (betri upplausn og ítarlegri upplýsingar hér):


Sjá nánari upplýsingar á vef Orkusjóðs





Ábending um lagningu bíla Ármula megin


Við höfum fengið ábendingu tvisvar sinnum í gegnum Facebook um lagningu bíla í bílastæði við Samgöngustofu Ármúla megin. Ábendingin er svohljóðandi:

Hæ væri hægt að breyta því hvernig lagt er við Samgöngustofu Ármúla megin? Bílar og kúlur skaga langt inn á gangstéttina eins og þetta er núna

Biðjum starfsfólk um að hafa þetta í huga þegar lagt er í þessi stæði, þ.e. að passa upp á það að leggja ekki þannig að þrengi að gangandi og hjólandi vegfarendum á gangstéttinni.









Kynning á upplýsingatæknideild í morgunkaffinu


Í morgun fengum við góða kynningu á upplýsingatæknideildinni okkar og ýmsum verkefnum sem þar eru unnin í tölvuþjónustu, kerfisrekstri og hugbúnaðarþróun og varða alla málaflokka. Eins og gefur að skilja hefur framgangur þeirra veruleg áhrif á þjónustu við atvinnulíf og samfélagið allt, en ekki síst á starfsskilyrði okkar hjá Samgöngustofu.

Stór hluti verkefnanna er fyrir okkur hinum „ósýnilegur“ dags daglega en tekið er eftir ef eitthvað fer úrskeiðis á sama hátt og rafmagnið sem enginn hugsar um fyrr en það slær út. Listinn af verkefnum í vinnslu er langur og því skiptir forgangsröðunin og skipulag deildarinnar miklu. Mikið fagnaðarefni er að sjá að stór verkefni á borð við Skútuna eru ýmist í góðum gangi eða um það bil að sigla í höfn.

Kynningin (PDF)

Hnjúkahópur á Snæfellsjökli – myndband og myndir

Hópurinn á leiðinni upp. Lítill glaðningur frá vefstjóra fyrir fyrsta lesandann sem sendir nöfn allra í réttri röð frá vinstri til hægri á vefur@samgongustofa.is


Um síðustu helgi fór hópur starfsfólks Samgöngustofu í æfingagöngu á Snæfellsjökul. Gangan var hluti af undirbúningi fyrir göngu á Hvannadalshnjúk í vor. Veðrið var ekki jafn bjart og vonast hafði verið eftir svo tindurinn fékk að bíða í þetta skipti. Þó fréttist að ferðin hafi verið eftirminnilegt ævintýri eins og sést í skemmtilegu myndbandi neðst í fréttinni.

Það minnir okkur á að það er varla til neitt vont veður þegar útivist er annars vegar – bara rangur klæðnaður. Hópurinn okkar var í það minnsta við öllu búinn og tókst þannig á við mjög krefjandi aðstæður með bros á vör. Hitastig var u.þ.b. -30°C með vindkælingu og hópnum tókst að ganga hálfa leið upp að toppinum og endaði í 1000 m hæð. Þá var ákveðið að snúa við sökum snjóstorms sem var í vændum. 

Það eru þeir Einar Magnús og Þorsteinn starfsmenn öryggis- og fræðsludeildar sem hafa veg og vanda að þessu Hvannadalshnjúksævintýri.


Myndbandið frá æfingaferðinni á Snæfellsjökul:

Myndir frá ferðinni:








Starfsdagur stjórnsýslusviðs

Heimsókn til Landhelgisgæslunnar

Í gær var starfsdagur stjórnsýslusviðs og fór hann að mestu fram í Flugröst. Þar voru allar deildirnar með áhugaverða fyrirlestra. Dagurinn var svo brotinn upp með heimsókn til Landhelgisgæslunnar sem var mjög fróðleg og skemmtileg. Gaman að kynnast starfseminni þar betur og fá að sjá nýja húsnæðið þeirra sem er alveg að verða klárt. Eftir starfsdaginn var farið í spurningakeppni og svo var förinni haldið í Braggann þar sem við borðuðum saman kvöldmat. Frábær dagur í alla staði.

Fyrirlestrar í flugröst

Föstudagslagið í boði Gunnars


Það er hann Gunnar Thorarensen sem velur föstudagslagið að þessu sinni. Um val sitt segir hann:

Ég vel lagið Sweet Home Chicago með Blues brothers. Vegna þess að þetta er snildar lag sem kemur öllum í gott skap 🙂

Ég skora á Egil Þorsteinsson fyrir næstu viku




Samfélagsmiðlar á pappír

Í móttökunni eru komnar upp auglýsingar um þátttöku Samgöngustofu á samfélagsmiðlum í tilefni af því að nú erum við líka á Instagram. Þessi fína hugmynd um nýtingu á skiltinu kom frá Snorra og var framkvæmd fljótt og vel. Góðar hugmyndir vaxa á trjánum og um að gera að koma þeim á framfæri.




Samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins uppfærður

Samkvæmt frétt á vef innviðaráðuneytisins hafa ríkið og sex sveitarfélög sem standa að samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins ákveðið að hefja undirbúning að því að uppfæra sáttmálann og gera viðauka við hann. Verkáætlun um uppfærsluna var samþykkt á fundi forsætisráðherra, fjármálaráðherra og innviðaráðherra með bæjarstjórum sveitarfélaganna, borgarstjóra og Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu fyrir helgi. Gert er ráð fyrir að hægt verði að undirrita viðauka við samgöngusáttmálann í sumar.

Það markaði tímamót þegar ríki og öll sveitarfélögin á svæðinu staðfestu þann 26. september 2019 sameiginlega framtíðarsýn og markmið fyrir samgöngur á höfuðborgarsvæðinu með undirritun samgöngusáttmálans. Um er að ræða mestu fjárfestingar í samgönguinnviðum í sögu svæðisins og uppbyggingin hugsuð fyrir alla samgöngumáta.

Samgöngusáttmálinn hefur þegar bætt samgöngur á svæðinu og aukið greiðleika þeirra. Mikilvægar framkvæmdir hafa klárast, s.s. á Reykjanesbraut í Hafnarfirði, Suðurlandsvegi milli Vesturlandsvegar og Hádegismóa og á Vesturlandsvegi í Mosfellsbæ. Þá hafa einnig verið lagðir rúmlega 13 km af hjólastígum. Þá er stefnt að því að framkvæmdir við Fossvogsbrú hefjist á þessu ári.

Helstu áskoranir og verkefni framundan

Í undirbúningi að uppfærslu sáttmálans þarf að taka tillit til mikilla verðhækkana, einkum í verklegum framkvæmdum, sem 
hafa áhrif á kostnaðaráætlanir. Einnig verða einstök verkefni skoðuð, þar sem kostnaðaráætlanir voru vanáætlaðar. Kostnaðaráætlun vegna Sæbrautarstokks var t.a.m. ekki að fullu tilbúin þegar sem samgöngusáttmálinn var gerður.

Ýmis tækifæri felast einnig til uppfærslu sáttmálans, til að mynda með því að endurmeta mat á tekjumöguleikjum í kringum þróunarsvæði sem myndast vegna uppbyggingar stokka.

Ráðist verður í nokkur verkefni til að undirbúa viðauka við samgöngusáttmálann í samræmi við nýja verkáætlun.

Betri samgöngum verður falið að uppfæra framkvæmdatöflu sáttmálans, þ.m.t. tíma- og kostnaðaráætlanir. Einnig að meta áhrif stofnvega- og Borgarlínuinnviða m.t.t. markmiða um greiðar samgöngur, fjölbreytta ferðamáta, kolefnishlutlaust samfélag og umferðaröryggi. Á þeim grunni verði sett mælanleg undirmarkmið og árangursvísar.

Þá hefur Betri samgöngum verið falið að móta leiðir að bæta stjórnskipulag verkefnisins og einstakra verkefna. 
Loks er stefnt að því að viðræðuhópur ríkis og sveitarfélaga klári drög að samningi um eflingu almenningssamgangna. Rekstur almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu verði tryggður með aðkomu sveitarfélaga og ríkisins.




Hvítbók um samgöngur

Drög að hvítbók um samgöngur ásamt umhverfismatsskýrslu hennar hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Þetta kemu fram í frétt á vef innviðaráðuneytisins. Allir hafa tækifæri til að senda inn umsögn eða ábendingar um hvítbókina og umhverfismatsskýrsluna. Frestur til að skila umsögn er til og með 21. apríl 2023. 

Hvítbók um samgöngumál er hluti af stefnumótunarferli samgönguáætlunar. Samgönguáætlun er unnin á grunni laga um samgönguáætlun, nr. 33/2008. Drög að stefnumörkun hvítbókarinnar byggir m.a. á stöðumati grænbókarinnar, sem kom út í september 2021 ásamt upplýsingum af opnum samráðsfundum sem haldnir voru fyrir alla landshluta í október 2022 undir heitinu Vörðum leiðina saman. Á fundunum var kastljósinu beint að framtíðaráskorunum landshluta m.t.t. allra málaflokka ráðuneytisins í samgöngu-, sveitarstjórnar-, byggða-, húsnæðis- og skipulagsmálum og unnið út frá hugtakinu búsetufrelsi, sem samnefnara allra stefna og áætlana ráðuneytisins. Var leitað svara við því hverjar væru helstu áherslur til að ná markmiðum um búsetufrelsi og hvaða leiðir væru að því markmiði.

Þá er í hvítbókinni einnig byggt á nýjum greiningum, svo sem á stöðu fatlaðs fólks í samgöngum, heildstæðu mati á mikilvægi lendingarstaða á Íslandi út frá öryggishlutverki þeirra, um smáfarartæki, um stöðu reiðvegamála, lokun Reykjanesbrautar. Þá er byggt á drögum að öryggisáætlunum í samgöngum.

Hvítbók er umræðuskjal sem lagt er fram í opnu samráði á netinu. Tilgangurinn er að hvetja til umræðu um stefnuna og möguleg áhrif hennar á íslenskt samfélag til skemmri eða lengri tíma. 

Fyrsta hvítbók um samgöngumál

Um er að ræða fyrstu hvítbókina sem tekin hefur verið saman um samgöngumál í samræmi við stefnumótunarferli Stjórnarráðsins og samhæfingu áætlana á sviði byggða-, húsnæðis-, skipulags- og sveitarstjórnarmála. Samhliða drögum að hvítbók er birt til kynningar umhverfismatsskýrsla. Skýrslan tekur til stærri framkvæmda sem verða í undirbúningi og skoðun á tímabilinu. Gerður er fyrirvari um að það ræðst af fjármagni og framvindu undirbúnings í hvaða framkvæmdir hægt verður að ráðast á tímabilinu.

Hvítbók birtist í opnu samráðsferli og að því loknu er farið yfir helstu sjónarmið sem fram koma áður en hin endanleg stefna er útfærð. Í kjölfarið verður svo lögð fram á Alþingi tillaga að þingsályktun um samgönguáætlun.

Fréttin á vef innviðaráðuneytisins

Skoða drög að hvítbók um samgöngur í samráðsgátt stjórnvalda