Flugvallakort ICAO

Flugvallakort ICAO (World Airport Map) er stærsta gagnasafn um flugvelli í heiminum sem völ er á og er uppfært á þriggja mánaða fresti. Í gagnagrunninum geta notendur m.a. leitað eftir ICAO flugvallarkóða, IATA kóða, flugvallarheiti, nafni ríkis/borgar, heimilisfangi og einnig er hægt að nálgast opinberan DOC 7910 staðsetningarvísi ICAO.

Nú er hægt er að skoða flugvallakortið án endurgjalds en í framtíðinni má búast við að þjónustan verði í áskrift. ICAO kallar eftir endurgjöf og tillögur til að hjálpa þeim að bæta flugvallakortið og hægt að senda inn ábendingar hér.

Slóðin er: https://applications.icao.int/airport-map/

Sjá upplýsingar frá ICAO:

ICAO World Airport MapThe ICAO World Airport Map tool has the world’s largest airport dataset including ICAO’s official DOC 7910 Location Indicator. Users can search by ICAO airport code, IATA code, airport name, state/city name, and address. The airport map is updated every three months.

Explore our user-interactive web-based map now for free* and discover all the features.

We are open to receiving feedback and suggestions to help us improve this service. After you’ve had the chance to explore the features of this tool, we invite you to submit your feedback HERE! ACCESS



THE MAPS NOW

Flight routes, distance, and FIRs list
Draw runway polygons on the map
Filter by airport elevation, runway length, airport type…
Search by address, draw distance cycle to find available airports within 50km
ACCESS THE MAPS NOW * All ICAO World Airport Map features are available free of charge for a limited time only.
Charges may be applied in the future.

Sjolag.is – Ný kortasjá um veður og sjólag

Á síðasta ári fór í loftið fyrsta útgáfa nýrrar kortasjár Vegagerðarinnar fyrir sjófarendur, sjolag.is. Vefnum er ætlað að uppfæra eldri spákort Veðurs og sjólags, á vef Vegagerðarinnar.  Með vefnum er þjónusta við sjófarendur aukin til muna auk þess sem gögn úr mælitækjum og spár eru gerðar aðgengilegar í vefþjónustum. Um sinn verða gömlu spákortin enn aðgengileg á sínum stað á Vegagerðin.is.

Upphafið

Siglingastofnun þróaði upplýsingakerfi um veður og sjólag til notenda á hafi upp úr aldamótum 2000. Kerfið skiptist annars vegar í mælingar (öldudufl og veðurstöðvar) og hins vegar í spár (öldu- og veðurspá og sjávarfallaspá). Við sameiningu hluta Siglingastofnunar og Vegagerðarinnar árið 2013 tók Vegagerðin við þessu kerfi.

Hafnadeild Vegagerðarinnar hefur bætt við sértækum ölduspám á grunnslóð við þetta kerfi og til þess nýtt öldulíkön. Þau sýna ítarlegri spár um ölduhæð á völdum stöðum við landið sem úthafsölduspáin náði ekki yfir.

Niðurstaða heils árs vinnu

Vinna við þessa uppfærslu hefur verið í gangi síðastliðið ár. Vinnan hefur aðallega snúist um að setja upp þysjanlega kortasjá á vefnum þar sem hægt er að birta flest gögn og spákort í upplýsingakerfi Veðurs og Sjólags á einum stað, á einu korti. Úthafsölduspáin frá Evrópsku Veðurstofunni (sem var fengin í gegnum Veðurstofu Íslands) var uppfærð og hún er í hærri upplausn þannig að hún sýnir stærra svæði í kringum landið með hærri tímaupplausn.

Grunnslóðalíkönum var fjölgað og bætt við sömu kortasjá en þar má einnig sjá mælingar úr duflum og veðurstöðvum auk sjávarfallaupplýsinga.

Læsileiki vefsins og aðgengi var stórbætt, til dæmis fyrir þá sem eiga erfitt með að greina liti.

Til stendur að bæta við vefmyndavélum sem vísa út á sjó, koma að frekari upplýsingum um hafnirnar og mælingar á sjávarhæð og öldum í þeim. Mögulega verða einnig gerð sértæk sjávarfallalíkön á völdum stöðum en auk þess eru enn fleiri hugmyndir á lofti um þróun vefsins í framtíðinni. Með tilkomu nýs vefs Vegagerðarinnar verður upplýsingakerfið Veður og Sjólag svo í heild sinni uppfært.

Sjá nánar frétt á vef Vegagerðarinnar

Almenningssamgöngur á landsbyggðinni

Vegagerðin stendur fyrir morgunverðarfundi um almenningssamgöngur á landsbyggðinni 31. mars 2022 klukkan 9.

Vegagerðin stendur fyrir morgunverðarfundi um almenningssamgöngur á landsbyggðinni fimmtudaginn 31. mars klukkan 9. Fundurinn fer fram í húsnæði Vegagerðarinnar í Suðurhrauni 3 í Garðabæ en einnig er hægt að fylgjast með í beinu streymi.

Vegagerðin hefur það verkefni að fylgja eftir stefnu stjórnvalda í almenningssamgöngum. Vegagerðin ber þannig ábyrgð á heildstæðu leiðarkerfi með ferjum, ríkisstyrktu flugi og almenningsvögnum á landsbyggðinni og að tryggja þannig örugga tengingu á milli byggðarlaga.

Á morgunverðarfundinum verður kynnt hvernig starfi Vegagerðarinnar í þessum málum er háttað og hvað framtíðin gæti borið í skauti sér. Einnig verður fjallað um Herjólf sem er dæmi um það þegar almenningssamgöngur eru eina leiðin til og frá byggðarlagi.

Dagskrá

  • Af hverju sinnir Vegagerðin almenningssamgöngum? – Bergþóra Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri þjónustusviðs Vegagerðarinnar.
  • Framtíð almenningssamgangna á landsbyggðinni. – Halldór Jörgensen, forstöðumaður almenningssamgöngudeildar Vegagerðarinnar.
  • Herjólfur, þjóðvegur á hafi – Hörður Orri Grettisson, framkvæmdastjóri Herjólfs ohf.

Morgunverðarfundurinn fer fram í húsnæði Vegagerðarinnar, Suðurhrauni 3 í Garðabæ klukkan 9.

Hægt er að skrá sig á fundinn hér.

Beint streymi verður frá fundinum sem má fylgjast með hér:  https://youtu.be/zY8s6cn0ePc

Saga íslenskra sjókvenna

Fiskifréttir - Konurnar sem hurfu

Hvar: Húsi Sjávarklasans, Grandagarði 16
Hvenær: Fimmtudaginn 30. mars kl. 17

Konur í sjávarútvegi í samstarfi við Innviðaráðuneytið og Íslenski Sjávarklasinn standa fyrir sögustund næsta fimmtudag um íslenskar sjókonur, sem réru til sjós frá landnámi fram að vélvæðingu báta.

Margaret Willson, mannfræðingur og aðstoðarprófessor við Washington háskóla og höfundur bókarinnar „Seawomen of Iceland“ hefur rannsakað sögu þeirra og mun fræða okkur um þær, en sjaldan er getið þessara kvenna í söguheimildum.

Allir velkomnir!

Kosning um nafn á ábendingakerfi

Spatial price comparison survey, Feb. 1 to Apr. 30, 2022 - Faxinfo

Dómnefnd hefur nú valið fimm tillögur að nafni á ábendingakerfinu til þess að taka þátt í kosningu á meðal starfsfólks. 73 tillögur bárust og þökkum við fyrir góða þátttöku. Nú er það ykkar að velja nafnið, eitt atkvæði á hvern starfsmann:

Sá eða sú sem á nafnið sem er valið fær gjafabréf að fjárhæð 20.000 kr fyrir máltíð á veitingahúsinu Kol. Komi til þess að fleiri en einn eigi sömu tillögu sem hlýtur fyrsta sæta mun dómnefnd draga þann aðila sem hlýtur gjafabréfið en færa hinum sem áttu sömu tillögu annan glaðning.

Kosningu lýkur á miðnætti miðvikudaginn 30. mars.

Stofnun ársins – kynning í morgunkaffi

Niðurstöður hinnar árlegu könnunar, Stofnun ársins, voru birtar þann 16. mars síðastliðinn. Könnunin náði til um 31 þúsund starfsmanna í opinberri þjónustu, bæði hjá ríki, Reykjavíkurborg, sveitarfélögunum og sjálfseignarstofnunum. Hún er unnin í samstarfi við Fjármála- og efnahagsráðuneytið og Mannauðsdeildar Reykjavíkurborgar og gefur mikilvægar upplýsingar um stöðu starfsmanna á opinbera vinnumarkaðnum. Í henni eru þátttakendur spurðir út í níu þætti í starfsumhverfinu þ.e. trúverðugleika stjórnenda, starfsanda, launakjör, vinnuskilyrði, sveigjanleika í starfi, sjálfstæði í starfi, ímynd stofnunar, ánægju og stolt og jafnrétti. Hér má nálgast helstu niðurstöður fyrir allar stofnanir og hér er hægt að nálgast samanburðartöflur (við tilheyrum Stórum stofnunum).

Í morgunkaffinu í morgun fór Jón Gunnar yfir niðurstöðurnar hvað Samgöngustofu varðar. Hægt er að nálgast kynninguna hér. Eins og fram kom í máli Jóns þá er hækkun í flestum liðum hjá okkur sem er ánægjuleg þróun. Þættir eins og jafnréttismál og sveigjanleiki vinnutíma koma sérstaklega vel út. Sóknarfæri í bætingu er t.d. varðandi loftgæði á vinnustað og hljóðvist.

Við hvetjum áhugasama til þess að kynna sér niðurstöðurnar betur, bæði með lestur kynningarinnar frá því í morgun og eins heildarniðurstöðurnar á vef Sameykis.

Föstudagslagið í boði Hafdísar

Það er hún Hafdís Bára Ólafsdóttir sem velur föstudagslagið að þessu sinni. Um val sitt segir Hafdís:

Fyrir þennan föstudag vel ég hljómsveitina lagið Friends will be Friends með Queen.

Ég hef verið Queen aðdáandi frá því að ég var lítil þar sem pabbi var mikill aðdáandi og spilaði reglulega kasettur og geisladiska með Queen. Mamma var ekki alveg sammála þar sem hún var meira ABBA megin í lífinu 🙂

Án efa allra besta hljómsveit fyrr eða síðar (að mínu mati allavega).

Ég skora á hana systir mína Ingu Birnu til að velja lag fyrir næsta föstudag.

Njótið vel og góða helgi 🙂

Samgöngumottan 2022

Í Mottumars tökum við höndum saman í vitundarvakningu um krabbamein hjá körlum og öflum fjár fyrir mikilvægri starfsemi. Í ár minnir Krabbameinsfélagið karlmenn sérstaklega á að kynna sér og þekkja hvaða einkenni geta bent til krabbameins og hvetur þá til að leita fljótt til læknis verði þeir varir við slík einkenni.

Hægt er að styrkja átakið á síðunni www.mottumars.is t.d. með kaupum á sokkum eða með því að styrkja einhverja af fjölmörgum sem taka þátt í Mottumars á síðunni safna.krabb.is.

Af þessu tilefni hvetjum við mottusafnara Samgöngustofu að senda okkur mynd af mottunni til birtingar hér á innri vefnum. Dómnefnd velur svo Samgöngumottuna 2022 og fær verðlaunahafinn heiðurinn ásamt verðlaunum sem verða sæt undir tönn (eða undir mottu kannski?). Sendið myndirnar á: vefur@samgongustofa.is.

Rafræn skírteini flugmanna og rafræn flugtaska

Rafræn skírteini flugmanna

EASA (Flugöryggisstofnun Evrópusambandsins) hefur sett af stað verkefni sem ætlað er að innleiða rafræn skírteini fyrir flugmenn. Verkefnið ber heitið dLAP (Digital licences for aviation pilots). Hugmyndin er að notkun slíkra skírteina verði örygg og auðveld og geri flugmönnum kleift að hafa skírteinin (bæði flugskírteini og heilbrigðisvottorð) í raftækjunum sínum, t.d. síma. Með kerfinu geta prófdómara, fluglæknar, flugmálastjórnir og SAFA/SACA eftirlitsmenn með auðveldum hætti uppfært, fullgilt og staðfest réttindi flugmanna í rauntíma. Verkefnið er hluti af aðgerðaráætlun um flugöryggi í Evrópu (EPAS).

Til lengri tíma ætti verkefnið að spara aðildarríkjum kostnað við útgáfu og eftirlit með flugskírteinishöfum.

Áætlað er að notkun rafrænna skírteina fyrir flugmenn verði komin í gagnið árið 2024. Í framhaldinu er svo hugsunin að nýta sömu tækni fyrir önnur skírteini, til dæmis skírteini flugumferðarstjóra og flugvéltækna.

Rafræn flugtaska –  Electronic Flight Bag (EFB)

Reglur Evrópusambandsins um flugrekstur kveða á um þau gögn sem skylda er að hafa um borð í loftförum. Þar er ennþá að einhverju marki greint á milli gagna á pappírsformi og rafrænna gagna en EASA vinnur að gerð leiðbeiningarefnis um frekari útfærslu á formi rafrænna gagna. Þeir sem starfrækja loftför geta fengið heimild til þess að nota rafrænar flugtöskur (e. Electronic Flight Bag) þannig að handbækur, flugáætlanir og aðrar upplýsingar eru á rafrænu formi.

Málþing um öryggi í ferðaþjónustu

Í gær hélt Ferðamálastofa og Landsbjörg málþing um Öryggi í ferðaþjónustu og var það haldið í Grindavík. Lilja Alfreðsdóttir flutti erindi og afhenti lögreglunni á Suðurnesjum verðlaun fyrir mikilsvert framlag til öryggismála ferðamann í tengslum við eldgosið í Geldingadal. Gunnar Geir Gunnarsson deildarstjóri öryggis- og fræðsludeildar Samgöngustofu kynnti slysatölfræði erlendra ferðamanna í umferðinni.

Erindið fjallaði um umferðarslys erlendra ferðamanna. Voru slysatölur síðustu ára bornar saman og þá sérstaklega borin saman tvö síðustu ár (covid) við árin þar á undan. Í ljós kemur að árið 2020 var mjög gott hvað varðar slys á erlendum ferðamönnum og var hver ferðamaður mjög öruggur. Árið 2021 fjölgar slysunum talsvert og á því ári var hver og einn ferðamaður í meiri hættu heldur en síðustu ár. Árið 2021 eru áberandi slys á gangandi og hjólandi meðal erlendra ferðamanna og er það í samræmi við umferðarslys á Íslendingum það ár. Einnig kom fram að algengara er að Íslendingar valdi slysum á erlendum ferðamönnum heldur en að erlendir ferðamenn valdi slysum á Íslendingum.

Árshátíð Samgöngustofu

Hljómsveitin Allt í einu

Kæru meðlimir farsýslunnar

Árshátíð samgöngustofu verður haldinn á Stracta Hótel Hellu þann 30. apríl nk. og eru frekari upplýsingar um dagskrá, verð o.fl. hér að neðan.

Skráningarfrestur er út fimmtudaginn 31. mars. Skráning fer fram HÉR


Verð í kvöldverð fyrir Farsýslumeðlimi er 3.000 kr. og 6.000 kr. fyrir starfsmenn sem ekki eru í farsýslunni og maka. Verð fyrir standard hótelherbergi fyrir tvo á tilboði er 15.840 kr. nóttin og gildir tilboðið líka á föstudeginum. Vilji meðlimir gista auka nótt þarf þó að hafa samband við hótelið á eigin vegum. Jafnframt eru í boði einstaklingsherbergi á 13.040 kr. nóttina.

Magnús Hlynur Hreiðarsson veislustjóri


Farsýslan hefur ákveðið að greiða niður hótelherbergi meðlima árshátíðarnóttina um að lágmarki 3.000 kr. en ákveðin verður endanleg fjárhæð þegar nær dregur þegar allir kostnaðarliðir liggja fyrir.


Þar sem veislan er á suðurlandi eru heimamenn sem leiða okkur inn í gleðina. Veislustjóri verður Magnús Hlynur Hreiðarsson fréttamaður og hljómsveitin Allt í Einu spilar fyrir klassískri sveitaballastemmingu inn í nóttina.

Sjá matseðil og plakat í viðhengi.

Kær kveðja,

Stjórn Farsýslunnar

Matseðillinn

Bannsvæði dróna í vefsjá Landmælinga íslands

Settur hefur verið saman vinnuhópur verkefnis sem miðar að birtingu upplýsinga um gildandi bannsvæði fyrir dróna á vefsjá Landmælinga Íslands. Úrlausnarefni hópsins snúa að því að útfæra leiðir til miðlunar upplýsinga um takmarkanir í gildi fyrir drónaflug í kortaformi, bæði til lengri tími svo og um skyndilokanir.

Verkefnið verður unnið undir stjórn Samgöngustofu í samstarfi við Landmælingar Íslands, Isavia ANS, Isavia ohf og Isavia Innalands og einnig Lögregluna, Landhelgisgæsluna og Umhverfisstofnun en það eru m.a. þær stofnanir sem heimild hafa til að setja á bönn við flugi dróna.

Vel er hugsanlegt að fleiri tækifæri séu fyrir SGS að miðla upplýsingum á vefsjá og í samstarfi við LMÍ en um verkefnið Grunngerð stafrænna upplýsinga segir:

Grunngerð stafrænna landupplýsinga á Íslandi er verkefni sem felur í sér aðgengi og samtengingu við allar opinberar landupplýsingar á Íslandi. Grunngerð má því orða sem samræmt skipulag landupplýsinga. Undir þetta verkefni falla allar landupplýsingar sem stofnanir og sveitarfélög á Íslandi eiga. Með grunngerð landupplýsinga er þó ekki aðeins verið að tala um gögnin sjálf heldur nær hugtakið yfir alla tækni, stefnur, staðla og mannauð sem þarf til að afla, vinna úr, varðveita, miðla og auka nýtingu á landupplýsingum.

Fyrirmynd verkefnisins er evrópska tilskipunin INSPIRE (Infrastructure for Spatial Information in Europe) og eru aðgengismál opinberra landupplýsinga helsta ástæða þess að Evrópusambandið ákvað að gefa út tilskipun um að byggja upp grunngerð fyrir stafrænar landupplýsingar í Evrópu sem nefnd hefur verið INSPIRE. Verkefninu í Evrópu fer senn að ljúka og við tekur tilskipun sem heitir GreenData4All.

Markmið verkefnanna bæði hér á landi og í Evrópu er að auðvelda aðgengi að samræmdum landupplýsingum í þágu umhverfismála. En landupplýsingar hjálpa til við ákvarðanatöku í mismunandi samhengi, t.d. hvað varðar skipulagsmál, vernd, umferð, náttúrufar svo eitthvað sé nefnt.

Fundur norrænna samgönguráðherra

Sigurður Ingi, innviðaráðherra tók í gær þátt í fjarfundi norrænna samgönguráðherra. Meðal umræðuefna voru fjölmörg mál tengd flugsamgöngum, orkuskipti í flugi, félagslegar hliðar samgangna, kynjahlutföll á sviði samgangna og grænar samgöngur. Sjá frétt á vef innviðaráðuneytisins:

Norrænir samgönguráðherrar fordæma innrás Rússlands

Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, tók í morgun þátt í fjarfundi norrænna samgönguráðherra um ýmis málefni. Ráðherrarnir fordæmdu þar einróma innrás Rússlands í Úkraínu og voru sammála um mikilvægi þess að samræma ákvarðanir og viðbrögð samstarfsríkja. Þar væri samstaða norrænna ríkja ekki síst mikilvæg.

Á fundinum var rætt um fjölmörg mál tengd flugsamgöngum, þ.á m. áhrif COVID-19 faraldursins á flug á Norðurlöndum. Ráðherrarnir voru sammála um að horfa þurfi fram á við og undirbúa orkuskipti í flugi. Þá var einnig rætt um mikilvægi samvinnu á sviði flugumferðarstjórnar á norðurslóðum.

Ráðherrarnir fjölluðu um ýmsar félagslegar hliðar samgangna, áskoranir varðandi félagsleg undirboð og mikilvægi þess að jafna kynjahlutföll í störfum á sviði samgangna. 

Grænar samgöngur voru einnig til umfjöllunar. Sammæltust ráðherrarnir um að rétt væri að stefna að sameiginlegu áliti Norðurlandaþjóða um tillögu framkvæmdastjórnar ESB um innviði fyrir nýja orkugjafa (Alternative Fuels Infrastructure). Þar verði einkum horft til þess að tryggja hagsmuni neytenda með góðu aðgengi, sanngjörnu verðlagi og skilmálum við nýtingu slíkra innviða, þ.m.t. hleðslustöðva.

Norrænir samgönguráðherrar hafa átt reglulega fjarfundi á tímum heimsfaraldursins og var fundurinn liður í góðu samstarfi þjóðanna á þessu sviði.

Öryggi í ferðaþjónustu – málþing

Við viljum vekja athygli á málþingi um öryggi í ferðaþjónustu sem haldið verður þriðjudaginn 22. mars frá kl. 13:30-16:00. Málþingið er á vegum Ferðamálastofu og Slysavarnarfélagsins Landsbjörgu og fer fram í Grindavík en verður einnig streymt. Á meðal fyrirlesara er Gunnar Geir, deildarstjóri öryggis- og fræðsludeildar en hann mun fjalla um slysatölfræði erlendra ferðamanna. Skráning hér.

Sjá:

Hvað á barnið að heita?

Svona lítur Kol út | Hér er matseðillinn – Veitingageirinn.is – Fréttavefur  um mat og vín
Kol veitingahús

Við minnum á samkeppnina um nafn á nýja ábendingakerfið. Sá eða sú sem á bestu tillöguna fá gjafabréf að fjárhæð 20.000 kr fyrir máltíð á veitingahúsinu Kol.

Sjá fyrri frétt:

Nýtt ábendingakerfi er partur af CCQ gæðakerfinu og kemur til með að þjóna okkur sem innra ábendingakerfi. Undir innri ábendingar flokkast t.d. almennar ábendingar sem geta varðað ýmislegt svo sem umbætur á starfsumhverfi okkar, tilkynningar um frábrigði á verklagi og ábendingar vegna jafnlaunavottunar. Jafnlaunaábendingar, ábendingar um vinnuöryggi og ámælisverða háttsemi eru aðgangsstýrðar þannig að einungis mannauðsstjóri hefur aðgang að innsendum ábendingum. Valkvætt er að gefa upp persónurekjanlegar upplýsingar. Aðrar ábendingar berast gæðastjóra sem útdeilir eftir eðli máls. Tilkynningar um frábrigði berast gæðastjóra og er hugsað til að bæta starf okkar með stöðugum umbótum.

Samhliða innleiðingu vantar okkur hins vegar gott nafn fyrir ábendingakerfið og hefur því verið ákveðið að setja af stað nafnasamkeppni. Markmið keppninnar er að finna gott nafn fyrir ábendingakerfið og hvetja starfsmenn til að kynnast kerfinu með því að senda inn tillögu að nafni í gegnum ábendingakerfið.

Nafnasamkeppnin hefst samhliða opnun á nýjum innri vef og lýkur 21. mars. Dómnefnd mun velja fimm álitlegustu tillögurnar sem starfsmönnum mun síðan gefast kostur á að kjósa um á innri vef. Veitt verða verðlaun fyrir það nafn sem hlýtur fyrsta sæti og hlýtur vinningshafi gjafabréf að fjárhæð 20.000 kr. á Kol. Komi til þess að fleiri en einn eigi sömu tillögu sem hlýtur fyrsta sæta mun dómnefnd draga þann aðila sem hlýtur gjafabréfið en færa hinum sem áttu sömu tillögu annan glaðning.

Í dómnefnd sitja fulltrúar allra sviða:
Jón Gunnar Jónsson
Sigrún Henríetta Kristjánsdóttir
Leifur Gústafsson
Rakel Björk Benediktsdóttir
Rannveig Garðarsdóttir

Tillaga að nafni er sett í dálkinn “efni”. Athugið að ekki er þörf á að setja inn frekari upplýsingar í dálkinn þar fyrir neðan, ekki nema tillaga ykkar kalli á frekari skýringar.

Starfsauglýsingar – skipatækni og hafnarríkiseftirlit

Samgöngustofu auglýsir störf eftirlitsmanns í hafnarríkiseftirliti (e. Port State Control) og stöðu sérfræðings í skipatækni.
Auglýsingarnar voru birtar í gær, bæði á heimasíðu Samgöngustofu og Facebook síðu, einnig á Starfatorgi og Alfreð (heimasíðu og appi). Um helgina mun einnig birtast auglýsing í Fréttablaðinu.

Föstudagslagið í boði Sigríðar Guðrúnar

Krúttið hann Rick Allen

Áfram höldum við í NorType en að þessu sinni er það hún Sigríður Guðrún sem velur föstudaglagið:

Ég er alæta á tónlist, elska alla tónlist. Það sem stýrir því hvað ég er að hlusta á hverju sinni er í raun bara í hvernig stuði ég er eða hvað ég er að gera.

Frá ca. átta ára aldri þá var ég alltaf að fá „lánaðar“ kassettur hjá eldri bræðrum mínum sem voru alveg á kafi í bresku og bandarísku töffara rokki. Þessar spólur voru fín tilbreyting frá íslensku dægurlagatónlistinni sem mamma hámaði í sig.
Ákvað að taka „þá þránna“ á þetta og velja eitt gott frá Def leppard sem heitir „Pour some sugar on me“.

Def leppard er enn að spila og koma fram í dag. Þeir stofnuðu hljómsveitina 1977 en tóku hlé eftir að trommarinn þeirra hann Rick Allen lenti í bílslysi þá 21 árs. Hann missti vinstri handlegginn í slysinu og eðlilega tók sinn tíma fyrir hann að jafna sig. En aldrei kom til greina hjá sveitinni að fá nýjan trommara. Hann spilar ekki á þessar hefðbundnu trommur því það sem vinstri hendin ætti að gera taka fæturnir hjá honum við.

Hann er alveg magnaður trommari og frábær persóna. Sinnir góðgerðarstarfsemi með konu sinni og málar flott málverk á milli þess að spila með sveitinni. Ef ykkur vantar smá pepp inn í daginn þá endilega kíkið á viðtöl við hann eða lesið ykkur til um hann, það er mannbætandi 🙂

Enjoy og góða helgi!

Skora á hana Hafdísi Báru Ólafsdóttir í þjónustuverinu að koma með föstudaglagið eftir viku.



900 milljónir í styrki til orkuskipta

Frétt af vef umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis:

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur ákveðið að auglýstir verðir styrkir til orkuskipta að upphæð 900 milljónir kr. af þeim fjárveitingum sem veittar eru til loftslagsmála í ár. Um er að ræða eina hæstu upphæð sem sjóðurinn hefur úthlutað um árabil.

Styrkirnir eru liður í aðgerðum stjórnvalda í loftslagsmálum og orkuskiptum og eru styrkflokkar í samræmi við stefnu stjórnvalda um að styðja við orkuskipti á landsvísu. Áhersla er lögð á vistvæna orkunýtingu, sem og að styðja við orkuskipti í samgöngum um land allt.

Áframhaldandi stuðningur er við uppbyggingu hleðslunets fyrir rafbíla.

 „Við stöndum frammi fyrir miklum áskorunum um það hvernig við náum metnaðarfullum markmiðum okkar í loftslagsmálum.  Þar eiga orkuskiptin stóran þátt að máli,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.

Styrkirnir geta að hámarki numið 33% af áætluðum stofnkostnaði.

Styrkir til verkefna:

  • Bætt orkunýting, t.d. búnaður sem minnkar raforkunotkun til beinnar upphitunar í rafkyntum varmaveitum og/eða dregur úr olíunotkun.
  • Verkefni sem minnka olíunotkun í iðnaði, t.d. búnaður sem nýtir vistvæna orku í stað olíu.
  • Líf- eða rafeldsneytisframleiðsla og orkugeymslur.
  • Veittir verða styrkir sem ætlaðir eru fyrir uppsetningu hleðslu- eða áfyllingastöðva til þéttingar nets hleðslustöðva við vegakerfi, fyrir vistvæn ökutæki við gististaði, frístundasvæði, verslanir og fjölsótta ferðamannastaði.
  • Aðgerðir sem nýta vistvæna orku í haftengdri starfsemi og í siglingu til og frá höfn.

Umsóknarfrestur er til 7. maí.

Orkusjóði hefur verið falin umsjón með auglýsingu og umsýslu styrkjanna. Umsóknir skulu sendar gegnum þjónustugátt Orkustofnunar: gattin.os.is.

Nánari upplýsingar: 

www.orkusjodur.is

Staða og áskoranir í orkumálum

Aðgerðaáætlun í loftslagsmálum

Orkustefna

Umferðarskólinn

Nú er undirbúningur umferðarskólans í fullum gangi og hafa tæplega 90 leikskólar um allt land skráð sig til leiks (á aðeins nokkrum dögum). Umferðarskólinn er hugsaður fyrir elsta hóp leikskólabarna en þar er fjallað um öryggi barna í bílum, hvernig best sé að fara yfir götu, hvar öruggast sé að hjóla og leika sér úti. Leikskólar fá sendar ítarlegar leiðbeiningar, glærur, handrit, myndir, viðurkenningarskjal og litabækur fyrir hópinn (gjaldfrjálst).

Sjá nánar á www.umferd.is/umferdarskolinn

Þórhildur í Reykjavík síðdegis

Þórhildur Elín var í viðtali í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í gær. Rætt var um ökupróf, fallhlutfall í þeim, námskrá ökunáms, starfrænt ökunámsferli og margt fleira.

Viðtalið má nálgast hér