
Áfram höldum við í NorType en að þessu sinni er það hún Sigríður Guðrún sem velur föstudaglagið:
Ég er alæta á tónlist, elska alla tónlist. Það sem stýrir því hvað ég er að hlusta á hverju sinni er í raun bara í hvernig stuði ég er eða hvað ég er að gera.
Frá ca. átta ára aldri þá var ég alltaf að fá „lánaðar“ kassettur hjá eldri bræðrum mínum sem voru alveg á kafi í bresku og bandarísku töffara rokki. Þessar spólur voru fín tilbreyting frá íslensku dægurlagatónlistinni sem mamma hámaði í sig.
Ákvað að taka „þá þránna“ á þetta og velja eitt gott frá Def leppard sem heitir „Pour some sugar on me“.
Def leppard er enn að spila og koma fram í dag. Þeir stofnuðu hljómsveitina 1977 en tóku hlé eftir að trommarinn þeirra hann Rick Allen lenti í bílslysi þá 21 árs. Hann missti vinstri handlegginn í slysinu og eðlilega tók sinn tíma fyrir hann að jafna sig. En aldrei kom til greina hjá sveitinni að fá nýjan trommara. Hann spilar ekki á þessar hefðbundnu trommur því það sem vinstri hendin ætti að gera taka fæturnir hjá honum við.
Hann er alveg magnaður trommari og frábær persóna. Sinnir góðgerðarstarfsemi með konu sinni og málar flott málverk á milli þess að spila með sveitinni. Ef ykkur vantar smá pepp inn í daginn þá endilega kíkið á viðtöl við hann eða lesið ykkur til um hann, það er mannbætandi 🙂
Enjoy og góða helgi!
Skora á hana Hafdísi Báru Ólafsdóttir í þjónustuverinu að koma með föstudaglagið eftir viku.