Málþing um öryggi í ferðaþjónustu

Í gær hélt Ferðamálastofa og Landsbjörg málþing um Öryggi í ferðaþjónustu og var það haldið í Grindavík. Lilja Alfreðsdóttir flutti erindi og afhenti lögreglunni á Suðurnesjum verðlaun fyrir mikilsvert framlag til öryggismála ferðamann í tengslum við eldgosið í Geldingadal. Gunnar Geir Gunnarsson deildarstjóri öryggis- og fræðsludeildar Samgöngustofu kynnti slysatölfræði erlendra ferðamanna í umferðinni.

Erindið fjallaði um umferðarslys erlendra ferðamanna. Voru slysatölur síðustu ára bornar saman og þá sérstaklega borin saman tvö síðustu ár (covid) við árin þar á undan. Í ljós kemur að árið 2020 var mjög gott hvað varðar slys á erlendum ferðamönnum og var hver ferðamaður mjög öruggur. Árið 2021 fjölgar slysunum talsvert og á því ári var hver og einn ferðamaður í meiri hættu heldur en síðustu ár. Árið 2021 eru áberandi slys á gangandi og hjólandi meðal erlendra ferðamanna og er það í samræmi við umferðarslys á Íslendingum það ár. Einnig kom fram að algengara er að Íslendingar valdi slysum á erlendum ferðamönnum heldur en að erlendir ferðamenn valdi slysum á Íslendingum.