Föstudagslagið í boði Óskars

Louis Prima Exhibit To Open May 1, 2019 — New Orleans Jazz Museum

Margrét skoraði á Óskar Vatnsdal í síðustu viku og um val sitt segir Óskar:

Nú er kominn föstudagur og flest okkar kannast kannski við það að ætla koma sem flestu í verk fyrir mánudaginn en gleymum því að huga að sálartetrinu. Því vildi ég senda ykkur öll inn í helgina með ljúfum tónum og góðum boðskap með laginu Enjoy Yourself (It’s Later Than You Think) í flutningi Louis Prima.

Ég skora svo á Hugrúnu Ósk fyrir næstu viku.

Hamingjustund!

Fögnum frelsinu með starfsmannagleði í mötuneytinu næsta fimmtudag, 3. mars.
Þetta verður einfalt og á léttu nótunum, ýmis konar fljótandi veitingar, hvorutveggja áfengar og óáfengar sem og matur. Þá verður tónlist og skemmtun væntanlega ekki langt undan. Gamanið byrjar upp úr 16:00 og húsið lokar svo um 9, en þar sem öldurhús borgarinnar eru takmarkalaus geta þau sem vilja halda gleðinni áfram haldið á vit ævintýranna ef svo ber við.
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.

Kær kveðja,
Stjórn Farsýslunnar

Fundur vegna hugsanlegrar aðildar Íslands að Eurocontrol

Fundur fulltrúa Samgöngustofu og Eurocontrol stendur yfir dagana 23. og 24. febrúar. Er hann liður í viðræðum um hugsanlega aðild Íslands að Eurocontol, evrópskri milliríkjastofnun sem sinnir ýmsum flug- og flugleiðsögutengdum verkefnum. Með umsókninni er stefnt að því að Ísland verði fullgildur aðili að Eurocontrol frá og með 1. janúar 2025 og þar með 42. aðildarríki stofnunarinnar. Enn sem komið er, er Ísland eina land Evrópu sem er ekki aðili að stofnuninni ef frá eru talin nokkur smáríki innan Evrópu sem ekki sinna verkefnum sem tengjast loftrýminu. Rússland og Hvíta-Rússland eru einnig utan þessa samstarfs en á móti koma lönd utan Evrópu sem telja hag sínu borgið með aðild.

Ef samningar nást verður stigið mikilvægt skref í alþjóðastarfi sem Samgöngustofa mun leiða fyrir Íslands hönd. Helsti ávinningur aðildar er full þátttaka í miðlægri flæðisstjórnun flugumferðar fyrir samevrópska loftrýmið og samræmdri krísustjórnun vegna t.d. eldgosa og heimsfaraldra. Henni fylgir aðgangur að kerfum, gagnabönkum, greiningarvinnu, tæknilausnum, þjálfun og stuðningi við ýmsa þætti flugmála sem snúa að rekstrarstjórnun, skilvirkni, öryggi og netvernd svo nokkuð sé nefnt.

Alþjóðlegur minningardagur

Alþjóðaflugmálastofnunin (ICAO) hefur ákveðið að helga 20. febrúar ár hvert sem minningardag tileinkaðan fórnarlömbum flugslysa og aðstandendum þeirra. Ísland hefur átt aðild að ICAO síðan árið 1947 og tekið þátt í að hlúa að hagsmunum í flugmálum og flugöryggi á alþjóðavettvangi.

Á þessum fyrsta minningardegi verður dagurinn kynntur um allan heim í gegnum samfélagsmiðla og á sérstakri ICAO sjónvarpsrás. Ísland hefur átt aðild að ICAO síðan árið 1947 og tekið þátt í að hlúa að hagsmunum í flugmálum og flugöryggi á alþjóðavettvangi. Áhersla verður lögð á að 193 aðildarríki ICAO komi á formlegum stuðningi við þá sem hafa lent í flugslysum og aðstandendur þeirra.

Sjá nánar um alþjóðlegan minningardagur tileinkaður fórnarlömbum flugslysa og aðstandendum þeirra á vef ICAO

#AirCrashVictimsDay
https://bit.ly/3gWawGC

https://bit.ly/3gWawGC

Föstudagslagið í boðri Margrétar Gunnlaugs

Jethro Tull Locomotive Breath Live at AVO Sessions - YouTube

Margrét skoraði á nöfnu sína og kollega, Margréti Gunnlaugs, í síðustu viku. Um val sitt segir Margrét:

Þennan fallega föstudag , valdi ég lag með hljómsveitinni Jethro Tull  lagið Locomotive Breth. Hef hlustað á þá síðan 1980 þegar ég kolféll fyrir þeim. Og ekki spillir flautuleikur Ian Anderson fyrir,algjörlega gjeggjaður. Þetta lag hefur einhvern takt sem kemur mér alltaf til að dansa.

Góða helgi!

Ég skora á Óskar  Vatnsdal fyrir næstu viku.

Innviðaráðuneytið: eftirfylgniskýrsla um uppbyggingu innviða

Í nýrri eftirfylgniskýrslu innviðaráðuneytisins vegna aðgerðaráætlunnar ríkisstjórnarinnar sem sett fram í kjölfar fárviðrisins sem geisaði í september 2019 er sérstakur kafli um samgöngur og hefst hann á bls. 66 fyrir þau ykkar sem hafið áhuga á að kynna sér málið nánar.

Frétt á vef innviðaráðuneytisins:

Önnur eftirfylgniskýrsla um stöðu verkefna í aðgerðaáætlun um uppbyggingu innviða hefur verið birt. Aðgerðaáætlunin var samþykkt af ríkisstjórninni í lok febrúar 2020 en hún var sett fram í kjölfar fárviðrisins sem geisaði í desember 2019. Þar eru settar fram 287 aðgerðir um uppbyggingu innviða.

Vinnu við rúmlega 60% skammtímaaðgerða var að fullu lokið í lok síðasta árs og vinna var hafin við þær allar. Þá var vinna hafin við 95% langtímaaðgerða og er hún vel á veg komin við 30% aðgerða. Vinna við ríflega 100 aðgerðir hefur tafist, m.a. vegna heimsfaraldursins.

Aðgerðirnar snúa m.a. að úrbótum á varaafli, auknum áreiðanleika raforku- og fjarskiptakerfa, skilgreiningu á hlutverki og mönnun fyrirtækja og stofnana, samræmingu skipulags innviða, eflingu almannavarnakerfisins, fræðslu og upplýsingagjöf til almennings og eflingu rannsókna og vöktunar á náttúruvá.

Meðal þeirra verkefna sem er lokið er yfirferð á stöðu og skipulagi mikilvægra fjarskiptastaða, greining á þörf á endurbótum stoðþjónustu sendistöðva RÚV og fjarskiptafélaganna og verkefni um eflingu heilbrigðisþjónustu á Austurlandi.

Viðgerðum á raforkukerfinu í formi flýtingar jarðstrengjavæðingar er lokið með 10 aðgerðum á Norðurlandi. Fimm færanlegar varaaflsstöðvar eru nú í rekstri þegar á þarf að halda og aðrar fimm eru væntanlegar til landsins á fyrstu mánuðum ársins.

Þá er viðgerðum á sjóvarnargörðum á Norður- og Austurlandi á yfir 10 stöðum ýmist lokið eða næstum lokið sem og 13 aðgerðum sem lúta að öryggi vegfarenda, öryggi flugvalla og öryggi sjófarenda.

Nánari upplýsingar um einstök verkefni er að finna á sérstöku vefsvæði um uppbyggingu innviða.

Loftbrú

Frétt af vef Innviðaráðuneytisins:

Börn sem eiga lögheimili á höfuðborgarsvæðinu en eiga foreldra eða forráðamenn með búsetu á landsbyggðinni munu framvegis geta nýtt sér Loftbrú sem veitir 40% afslátt af heildarfargjaldi fyrir áætlunarflug innanlands til og frá höfuðborgarsvæðinu. Breytingin tók gildi mánudaginn 7. febrúar.

Loftbrú var hleypt af stokkunum í september 2020 með það að markmiði að bæta aðgengi íbúa á landsbyggðinni að miðlægri þjónustu og efla byggðir með því að gera innanlandsflug að hagkvæmari samgöngukosti. Loftbrú veitir afsláttarkjör til þeirra sem eiga lögheimili á landsbyggðinni fjarri höfuðborgarsvæðinu og á eyjum án vegasambands. Undir Loftbrú falla Vestfirðir, hluti af Norðurlandi vestra, Norðurland eystra, Austurland, Hornafjörður og Vestmannaeyjar. Rúmlega 60 þúsund íbúar geta nýtt sér Loftbrú en hver einstaklingur getur fengið lægri fargjöld fyrir allt að sex flugleggi á ári.

Þá geta börn sem eiga lögheimili á höfuðborgarsvæðinu en foreldra eða forráðamenn á landsbyggðinni einnig nýtt sér Loftbrúna. Foreldrar og forráðamenn þessara barna geta nú pantað flugfar fyrir þau á afsláttarkjörum. Á þjónustuvefnum loftbru.island.is auðkennir fólk sig með rafrænum skilríkjum og þau sem eiga rétt á Loftbrú fá yfirlit yfir réttindi sín. Þau sem vilja nýta afsláttinn sækja sérstakan afsláttarkóða sem notaður er á bókunarsíðum flugfélaga þegar flug í áætlunarflugi er pantað. 

Loftbrú hefur verið vel tekið frá því hún var sett í loftið. Tæplega 70 þúsund flugleggir hafa verið bókaðir síðan Loftbrú fór í loftið fyrir tæpum 18 mánuðum. Á einu ári, frá janúar 2021 til janúar 2022, varð 36% aukning á nýtingu Loftbrúar.

Vegagerðin hefur umsjón með Loftbrú fyrir hönd ríkisins.

Morgunfundur Vegagerðarinnar um Samgöngusáttmálann

Samgöngusáttmáli milli ríkis og sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu var til umfjöllunar á morgunfundi hjá Vegagerðinni í dag. Þar var fjallað um aðdraganda og þýðingu sáttmálans, stofnvegaframkvæmdir kynntar og verkefni varðandi Borgarlínuna. Farið var yfir uppbyggingu göngu- og hjólastíga, rýnt í umferðarfæði og umferðarljósastýringar á höfuðborgarsvæðinu.

Hér má finna upptöku frá fundinum:

Um Samgöngusáttmálann:

  • Samgöngusáttmálinn var gerður milli ríkis og sveitarfélaganna sex á höfuðborgarsvæðinu haustið 2019. Markmiðið með honum er að auka umferðaröryggi, bæta samgöngur fyrir alla ferðamáta og minnka tafir, stórefla úrval ferðamáta, draga úr mengun af völdum svifryks og losun gróðurhúsalofttegunda til að standa við loftslagsmarkmið stjórnvalda og sveitarfélaga. Í því felst að byggja upp góða og örugga stofnvegi, byggja upp net hjóla- og göngustíga sem tengja saman sveitarfélög og hverfi, vinna að undirbúningi Borgarlínunnar og stýra flæði umferðar.
  • Betri samgöngur ohf. hafa yfirumsjón og eigendaeftirlit með uppbyggingu samgöngumannvirkjanna, auk þess að tryggja fjármögnun.
  • Vegagerðin annast undirbúning, hönnun og verklegar framkvæmdir á vegum Samgöngusáttmálans í góðu samstarfi við sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu.

Fréttabréf siglingaverndar

Starfsfólk verndardeildar hefur gefið út fréttabréf siglingaverndar undanfarin þrjú ár. Útgáfutíðnin hefur verið tvisvar á ári en trúlega verða tölublöðin þrjú þetta árið, hið minnsta. Fréttabréfið er sent út til hafnarstjóra og verndarfulltrúa hafnaraðstaða um allt land.

Fréttabréf siglingaverndar 1. tölblað 2022

Tilgangurinn með útgáfu fréttabréfsins er:

  • Auka samskipti milli verndardeildar og eftirlitsskyldra aðia, og bjóða fram liðsinni okkar við túlkun krafna, útfærslu á framkvæmd hafnarverndar o.þ.h.
  • Vekja athygli á þáttum sem eru efst á baugi hverju sinni, s.s. nýjungar eða breytingar á regluverki, leiðbeina um þætti sem er helst áfátt hjá höfnum almennt í ljósi tíðni frávika við úttektir undangengið ár o.s.frv.
  • Leitast við að bæta stöðugt framkvæmd hafnarverndar á landsvísu.

Tilboð í líkamsrækt

World Class býður starfsfólki Samgöngustofu 10% afslátt af árskortum í heildurækt og Betri stofu. Athygli er vakin á því að hægt er að fá heilsustyrk fyrir slíku árskorti að fjárhæð 55.000 kr eða nýta þann heilustyrk í annað.

10% afslátt af árskortum í heilsurækt og Betri stofu, ekki er veittur afsláttur af samningum. Hafið samband við Árnýju (arny@worldclass.is) úr vinnutengdu netfangi til þess að panta kortið, látið kennitölu fylgja með. Fljótlega verður hægt að ganga frá greiðslu í næstu móttöku.

Tilboð
Árskort í líkamsrækt 89.190 kr. (fullt verð 99.100 kr.)

Tilboð
Árskort 260.010 kr.  (fullt verð 288.900 kr.)

Innifalið:
Heilsurækt
Betri Stofa + Heilsurækt
Aðgangur að 18 heilsuræktarstöðvum World Class ásamt 8 sundlaugum (Árbæjarlaug,
Breiðholtslaug, Laugardalslaug, Lágafellslaug, Sundhöll Selfoss, Sundlaug Akureyrar,
Sundlaug Hellu og Sundlaug Seltjarnarness).

Betri stofan í Laugum er fyrsta flokks heilsulind þar sem slökunar- og lækningarmáttur íslenska vatnsins er í hávegum hafður. Misheitar blaut- og þurrgufur með mismunandi ilm, nuddpottur, heit og köld sjóböð og sérstakar fótalaugar eru á meðal þess sem Betri stofan býður upp á . Hvíldarherbergi Betri stofunnar er draumi líkast þar sem íslenskt landslag prýðir veggina.

Betri stofan á Seltjarnarnesi býður upp á rólegt umhverfi þar sem tilvalið er að slaka á. Í Betri stofunni eru þrjár tegundir af gufuböðum, saunarium, þurrgufubað og eimbað.
Róandi tónlist og hitinn gera stemninguna ómetanlega.

2 vinamiðar í hverjum mánuði.

Tækjakennsla hjá þjálfara í sal. Bóka þarf tíma á tímatöflu á worldclass.is.
Korthöfum í heilsurækt býðst 10% afsláttur af vörum og þjónustu Laugar Spa (gjafabréf undanskilin).

Korthöfum í Betri stofu býðst 15% afsláttur af vörum og þjónustu Laugar Spa (gjafabréf undanskilin).

BETRI KJÖR Í BETRI STOFUNA
Korthafar í heilsurækt greiða 5.000 kr. í stað 6.500 kr. fyrir stakan dag.
Betri stofu korthafar fá uppfærslu á árskorti í heilsurækt fyrir maka á 66.600 kr. (sama lögheimili).

12 hnútar – Veggspjald 2

Athygli er vakin á nýju veggspjaldi sem nú var að koma út í röðinni 12 hnútar og er ætlað að auka öryggi sjómanna.

Fyrsta spjaldið hlaut mikla dreifingu og athygli. Við viljum vekja sérstaka athygli á að nú er fyrsta spjaldið einnig til með enskum texta og verður svo með öll spjöldin hér eftir að þau koma samtímis út á ensku og íslensku. Íslensku spjöldin má nálgast hér á slóðinni: www.samgongustofa.is/12hnutar Enskar útgáfur má nálgast á slóðinni: www.icetra.is/12knots

Nú er komið út spjald nr. 2 en yfirskrift þess er „Kæru- og agaleysi.” Að baki hverju slysi eru yfirleitt mörg atriði og mistök sem geta m.a. grundvallast af kæru- og agaleysi. Það er því mikilvægt að slík hegðun sé upprætt – það gæti bjargað lífi.

Hægt er að senda tengingu á spjöldin til þeirra aðila sem málið varðar. Það má prenta þau út, nota sem skjámyndir, birta þau á samfélagsmiðlum eða nýta þau á annan þann hátt sem talinn er best henta.

12 hnútar eru unnið af Samgöngustofu í samstarfi við helstu sérfræðinga í öryggismálum sjómanna, sem eru skólastjóri, kennarar og leiðbeinendur Slysavarnaskóla sjómanna.

Hér er skjámynd sem sýnir veggspjaldið sem nú er kynnt en við vísum annars, eins og fyrr sagði, á vefsíðuna: www.samgongustofa.is/12hnutar

Tilslakanir og fyrirkomulag í næstu viku

Slakað verður á sóttvarnaraðgerðum á miðnætti eins og búist var við. Almennar fjöldatakmarkanir fara úr 50 í 200 manns. Áfram verður grímuskylda þar sem ekki er hægt að viðhalda nándartakmörkunum.

Almennt getum við nú reiknað með að vinnustaður fólks sé í Ármúlanum (fyrir utan þau sem staðsett eru á landsbyggðinni). Frá og með nk. mánudegi hættum við því með hæðaskiptingar og tímasetningar í mat.

Við minnum áfram á almennar reglur um persónulegar sóttvarnir og tíðan handþvott. Ef fólk finnur fyrir einkennum þá biðjum við það að halda sig heima og fara í pcr próf / hraðpróf.

Góða helgi,
Ólöf Friðriksdóttir

Föstudagslagið í boði Margrétar Birnu

Redbone - Come and Get Your Love (Official Music Video) - YouTube

Þennan fallega föstudag valdi ég lagið Come and get your love frá árinu 1974 með hljómsveitinni Redbone. Ástæðan fyrir valinu er ekki sú að ég sé sérleg áhugamanneskja um lítt þekktar bandarískar hljómsveitir frá áttunda áratug síðustu aldar. Nei, þetta lag er upphafslagið í hinni stórgóðu kvikmynd Guardians of the Galaxy með þeim Chris Pratt og Zoe Saldana í aðalhlutverkum en sú mynd kom út árið 2014 og markaði upphaf nýs kafla í Marvel söguheiminum.

Síðan ég sá myndina fyrst hefur þetta lag verið á ófáum partýplaylistum hjá mér og ekki útlit fyrir að þar verði breyting á í bráð. Frábært lag sem óhætt er að mæla með á föstudegi!

Ég skora á nöfnu mína í NorType, Möggu Gunnlaugs fyrir næsta föstudag 🙂

Árshátíð og dagskráin framundan

Nú stefnir til bjartari tíma og afléttingar hafa verið boðaðar og verða væntanlega kynntar á föstudaginn. Stjórn Farsýslunnar hefur ekki setið auðum höndum þótt takmarkanir hafi verið við lýði og er unnið að skipulagningu árshátíðar eins og stendur.

Stefnt er að því að halda Árshátíð á Stracta Hotel á Hellu þann 30. apríl næstkomandi. Tilboð verða fyrir farsýslumeðlimi á hótelherbergjum fyrir þá sem vilja gista. Önnur atriði munu skýrast á næstkomandi vikum og munum við kynna viðburðinn nánar þegar nær dregur. Hvetjum þó öll til að taka daginn frá og byrja að hlakka til.

Þar sem stefnir í að takmörkunum verði aflétt verður blásið til starfsmannagleði í mötuneyti stofnunarinnar eða flugröst við fyrsta tækifæri. Að teknu tilliti þó til vetrarfría skóla svo ekki þurfi að velja á milli skemmtunar með vinnufélögunum og að komast út fyrir bæjarmörkin þegar frí er í skólum.

Þá verður páskabingóið á sínum stað en nánar verður kynnt um tímasetningu og fyrirkomulag þess þegar nær dregur.

Það má þó segja að bjartari tímar virðast vera framundan

Kær kveðja,

Stjórn Farsýslunnar

Fundargerðir framkvæmdastjórnar

Framkvæmdastjórn Samgöngustofu fundar að jafnaði vikulega. Samþykktar fundargerðir eru birtar í málaskrá og öllu starfsfólki aðgengilegar. Á nýrri síðu hér á innri vefnum er hægt að nálgast tengla á fundargerðir framkvæmdastjórnar eftir árum.

Nýjustu fundargerðir má nálgast hér og bera þær tvær nýjustu heitin „3. fundur 24.1.2022“ og „11.1.2022.docx“. Ekki er hægt að tengja beint á einstaka fundargerðir og er því tengillinn á árið 2022 þar sem fundargerðum ársins er safnað saman.

Föstudagslagið í boði Hörpu

Í síðustu viku skoraði Leifur Gústafsson á Hörpu Þuríði Böðvarsdóttur og var hún að sjálfsögðu til í slaginn. Um val sitt segir Harpa:

Það er náttúrulega úr mörgu að velja en ég ætla að velja Feels like sugar með Hjaltalín. Hjaltalín er ein af perlum íslensku tónlistarsenunnar og Feels like sugar er frábært lag með þessari stórgóðu hljómsveit. Lagið kemur mér alltaf í stuð, það er auðvelt að syngja og tromma með og ekki síður að dansa.

Sigríður Thorlacius og Högni Egilsson eru frontmenn hljómsveitarinnar og eru þau bæði einstakir listamenn þó ólík séu. Aðrir hljómsveitarmeðlimir eru einnig mjög færir á sínu sviði og er klassískur blær oft yfir tónlist Hjaltalín. Hjólmsveitin hefur gefið út fimm plötur og var platan Terminal valin pop-plata ársins 2009 á Íslensku tónlistarverðlaununum.

Feels like sugar er frábært föstudagslag að mínu viti.

Næsta áskorun:
Margrét Birna Björnsdóttir, skráningarfulltrúi NorType

Þorsteinn í Landanum

Þorsteinn Þorkelsson, starfsmaður í öryggis- og fræðsludeild, kom fram í Landanum á sunnudaginn þar sem fjallað er um áfallastjórnun. Þorsteinn er einn kennara í nýju námi við Háskólann á Bifröst í áfallastjórnun (MA-MCM í áfallastjórnun) og er einnig björgunarsveitarmaður til margra ára og fór m.a. til Tyrklands árið 1999 og vann við hjálparstörf eftir stóra skjálfta þar. Mjög áhugaverð umfjöllun sem óhætt er að mæla með að horfa á.

Umfjöllunina má nálgast hér og byrjar á mínútu 1:45

Lending á Suðurskautslandinu

Fréttin á visir.is um lendingu vélar Loftleiða Icelandic á Troll-vellinum á Suðurskautslandinu hefur væntanlega ekki farið framhjá flugáhugafólki hér innanhúss. En ef svo ólíklega vill til er óhætt að mæla með því að horfa á þetta skemmtilega myndband sem sýnir bæði lendingu og flugtak Boeing 767 vélar félagsins á vellinum:

Nýr starfsmaður í deild leyfisveitinga og ökunáms

Í gær 1. febrúar hóf störf Anney Þórunn Þorvaldsdóttir, hún mun starfa sem sérfræðingur ökunáms í deild leyfisveitinga og ökunáms.

Anney verður staðsett á þriðju hæð, gangi 3A, á sömu skrifstofu og Sigurlína sem einnig er sérfræðingur ökunáms.

Skipulag í Ármúla miðað við nýjar samkomutakmarkanir

Nýjar reglur um samkomutakmarkanir tóku gildi sl. laugardag og gilda næstu þrjár vikurnar. Almennar fjöldatakmarkanir 50 manns og nándarregla 1 meter. Skipulag svæða í Ármúla verður með þremur aðskildum svæðun, eins og við þekkjum.

Almennt getum við því nú reiknað með að vinnustaður fólks sé í Ármúlanum (fyrir utan þau sem staðsett eru á landsbyggðinni). Heimavinna verður einnig heimil í samráði við stjórnendur, t.a.m. fyrir viðkvæma einstaklinga eða fólk með undirliggjandi sjúkdóma.

Áfram gilda almennar reglur um persónulegar sóttvarnir, tíðan handþvott og grímunotkun þar sem ekki er unnt að virða eins metra regluna. Einnig er mikilvægt að taka einkennum alvarlega og fara í pcr próf ef minnsti grunur vaknar um smit.

Við vonum svo að næstu skref verði í átt að enn meira frelsi.