
Nú stefnir til bjartari tíma og afléttingar hafa verið boðaðar og verða væntanlega kynntar á föstudaginn. Stjórn Farsýslunnar hefur ekki setið auðum höndum þótt takmarkanir hafi verið við lýði og er unnið að skipulagningu árshátíðar eins og stendur.
Stefnt er að því að halda Árshátíð á Stracta Hotel á Hellu þann 30. apríl næstkomandi. Tilboð verða fyrir farsýslumeðlimi á hótelherbergjum fyrir þá sem vilja gista. Önnur atriði munu skýrast á næstkomandi vikum og munum við kynna viðburðinn nánar þegar nær dregur. Hvetjum þó öll til að taka daginn frá og byrja að hlakka til.
Þar sem stefnir í að takmörkunum verði aflétt verður blásið til starfsmannagleði í mötuneyti stofnunarinnar eða flugröst við fyrsta tækifæri. Að teknu tilliti þó til vetrarfría skóla svo ekki þurfi að velja á milli skemmtunar með vinnufélögunum og að komast út fyrir bæjarmörkin þegar frí er í skólum.
Þá verður páskabingóið á sínum stað en nánar verður kynnt um tímasetningu og fyrirkomulag þess þegar nær dregur.
Það má þó segja að bjartari tímar virðast vera framundan
Kær kveðja,
Stjórn Farsýslunnar