
Þorsteinn Þorkelsson, starfsmaður í öryggis- og fræðsludeild, kom fram í Landanum á sunnudaginn þar sem fjallað er um áfallastjórnun. Þorsteinn er einn kennara í nýju námi við Háskólann á Bifröst í áfallastjórnun (MA-MCM í áfallastjórnun) og er einnig björgunarsveitarmaður til margra ára og fór m.a. til Tyrklands árið 1999 og vann við hjálparstörf eftir stóra skjálfta þar. Mjög áhugaverð umfjöllun sem óhætt er að mæla með að horfa á.