Samgöngusáttmáli milli ríkis og sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu var til umfjöllunar á morgunfundi hjá Vegagerðinni í dag. Þar var fjallað um aðdraganda og þýðingu sáttmálans, stofnvegaframkvæmdir kynntar og verkefni varðandi Borgarlínuna. Farið var yfir uppbyggingu göngu- og hjólastíga, rýnt í umferðarfæði og umferðarljósastýringar á höfuðborgarsvæðinu.
Hér má finna upptöku frá fundinum:

Um Samgöngusáttmálann:
- Samgöngusáttmálinn var gerður milli ríkis og sveitarfélaganna sex á höfuðborgarsvæðinu haustið 2019. Markmiðið með honum er að auka umferðaröryggi, bæta samgöngur fyrir alla ferðamáta og minnka tafir, stórefla úrval ferðamáta, draga úr mengun af völdum svifryks og losun gróðurhúsalofttegunda til að standa við loftslagsmarkmið stjórnvalda og sveitarfélaga. Í því felst að byggja upp góða og örugga stofnvegi, byggja upp net hjóla- og göngustíga sem tengja saman sveitarfélög og hverfi, vinna að undirbúningi Borgarlínunnar og stýra flæði umferðar.
- Betri samgöngur ohf. hafa yfirumsjón og eigendaeftirlit með uppbyggingu samgöngumannvirkjanna, auk þess að tryggja fjármögnun.
- Vegagerðin annast undirbúning, hönnun og verklegar framkvæmdir á vegum Samgöngusáttmálans í góðu samstarfi við sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu.
