Nú eru tíðarvörur aðgengilegar í boxum inná kvennasalernum í Ármúla 2.


Nú eru tíðarvörur aðgengilegar í boxum inná kvennasalernum í Ármúla 2.


Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins. Ferðakostnaður innanlands er reiknaður út frá verðkönnun þar sem kannað er vænt verð á algengum gististöðum, á höfuðborgarsvæðinu og utan þess. Almennt er ferðakostnaði innanlands breytt tvisvar sinnum á ári, að vori og að hausti, til þess að endurspegla árstíðarsveiflu í kostnaði gistingar.
Dagpeningar þessir gilda frá og með 1. nóvember 2023. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 1/2023.
Uppfært skjal “Ferðabeiðni innanlands, frá og með 1. nóv 2023” er komið hér á innri vefinn undir Samgöngustofa – verklagsreglur

Kompás var með mikilvæga umræðu í gær um áhættuna sem fylgir því að fara á rafhlaupahjól undir áhrifum. Fyrstu slysin á rafhlaupahjólum voru skráð árið 2020 og hlutdeild þeirra í slysatölum hefur vaxið hratt. Eva og Birna segja sínar sögur í þættinum en þær lentu báðar í lífshættu eftir alvarleg slys á rafhlaupahjóli. Gunnar Geir kemur einnig fram í þættinum talar um stöðuna í dag, tölfræði og hvaða aðgerða lönd í kringum okkur hafa gripið til vegna fjölda slysa.
Hér er hægt að horfa á þáttinn í heild sinni


Október átak í skráningu umbóta fer senn að ljúka.
Minnum á að skráning umbótatillagna í Bendil líkur á morgun, 31. október. Við hvetjum svo auðvitað til áframhaldandi skráningu stöðugra umbóta í Bendil eftir að átakinu líkur.
Það hafa nú þegar borist margar tillögur í Bendil og við höfum til lok dags á morgun til að koma okkar ábendingum á framfæri.
Eins og áður hefur komið fram þá drögum við einn heppinn vinningshafi úr skráðum tillögum í Bendil í október. Vinningshafi fær gjafakort að verðmæti 20 þúsund krónur.

Kveðja,
Umbótahópurinn
.

Í morgun hélt Guðbjörn Jensson kynningu á flugleiðsöguhluta sinnar deildar. Hann fór m.a. yfir verkefnin sem þau sinna, starfsfólkið, verklag, innlent samstarf og alþjóðlegt samstarf. Verkefnin eru fjölbreytt og felast m.a. í vottun og eftirlit veitenda flugleiðsöguþjónustu, eftirlit með stafrænum breytingum, grening öryggisframmistöðu, rýni flugferla, kögunarþjónustu, rekstrarstjórnun flugumferðar o.sfrv.
Glærurnar má nálgast hér fyrir þau ykkar sem misstuð af kynningunni.
Góða helgi!

Bjössi og Össi voru virkilega sniðugir í dag að tengja herferð Samgöngustofu við hádegismatinn. Þeir buðu okkur uppá frábæra Eggert eggjaköku. Skemmtileg leið hjá þeim til að vekja athygli á herferðinni. Förum varlega inn í helgina kæra samstarfsfólk og ekki skúta uppá bak!


Nýlega fóru fram prófanir á nýju kerfi til að auka öryggi sjóferenda. Þetta kemur fram í frétt í Morgunblaðinu í gær. Í fréttinni segir m.a.:
„Um er að ræða nýsköpunarverkefni sem gengur undir heitinu AI-ARC og hefur Landhelgisgæslan tekið þátt í verkefninu undanfarin tvö ár ásamt yfir 20 samstarfsaðilum í tólf Evrópuríkjum.
Fulltrúar samstarfsaðilanna voru hér á landi í síðustu viku í tilefni af prófunum á kerfinu sem ætlað er að bæta upplýsingaflæði. „Prófanirnar gengu vonum framar og lausnin lofar svo sannarlega góðu,“ segir Snorre Greil, stýrimaður hjá Landhelgisgæslunni og sérfræðingur á aðgerðasviði
„Tilgangur verkefnisins er að útbúa nýstárlegt, öflugt, skilvirkt og notendavænt upplýsingaumhverfi þangað sem unnt er að deila gögnum og upplýsingum um skipaumferð og annað sem sjónum tengist,“ útskýrir Snorre.“
Sjá nánar í frétt Morgunblaðsins.

Föstudagslagið er að þessu sinni í boði Andra Hermannssonar eftirlitsmanns í deild Flugleiðsögu, flugvöllum og flugvernd:
Valið er einfalt. Ég vel lagið Út á stoppistöð með Stuðmönnum. Lagið er kraftmikið og við feðgar elskum að syngja þetta saman þegar við förum út á land.
Ég skora á Lorik fyrir næstu viku.

Í gæðamola þessarar viku vil ég vekja athygli á Stefnu og áætlun Samgöngustofu gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni, ofbeldi og annarri ótilhlýðilegri háttsemi (STE-0015). Í fullkomnum heimi væri þetta stefnuskjal óþarft en þangað til heimurinn batnar styðjum við okkur við stefnuna.
Nær allar stofnanir hafa svokallaða EKKO-stefnu en EKKO stendur fyrir einelti, kynferðisleg áreitni, kynbundið áreiti og ofbeldi. EKKO-stefnur eru mikilvægar til þess að tryggja góða verkferla þegar samskipti starfsfólks eru ekki nógu góð. Okkur langar auðvitað öllum að líða vel í vinnunni og þessi stefna aðstoðar okkur við að uppfylla það markmið.
Ég er viss um að allt starfsfólk hefur gagn af því að renna fljótlega yfir stefnuna – í það minnsta fyrstu 4 kaflana. Gildismat hvers tíma er auðvitað breytilegt og samskipti sem þóttu eðlileg áður fyrr þykja ekki endilega eðlileg núna. Því er um að gera að eyða öllum vafa um hvort samskipti manns séu boðleg m.v. stefnuna og lesa hana yfir. Markmiðið um góða vinnustaðamenningu og að öllum líði vel í vinnunni er auðvitað á ábyrgð okkar allra og því mikilvægt að fólk kynni sér “leikreglurnar” (stefnuna í þessu tilviki) vel og vandlega. Vöndum okkur í samskiptum og verum góð við hvort annað! 🙂
Umferðaröryggisfræðslan fyrir framhaldsskóla hefur gengið vel þetta haustið. Nú þegar hefur Bjarklind í öryggis- og fræðsludeild farið fyrir hönd Samgöngustofu í MS, FÁ, Tækniskólann, Borgarholtsskóla, MK, Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi og Menntaskólan Ásbrú í Keili. Þar hefur hún rætt við fjölmarga nýnema sem eru mörg hver að stíga sín fyrstu skref í ökunáminu. Í fræðslunni fer Bjarklind yfir ökunáms ferlið og hvernig þau geta sýnt ábyrgð í umferðinni.


Nú er komið haust hjá Eggert og félögum. Ný myndbönd fóru í loftið í gær sem hluti af herferðinni okkar Ekki skúta uppá bak! Í myndböndunum eru bæði nýjar staðsetningar og nýjar árstíðir, bæði haust og vetur. Myndböndunum verður deilt á samfélagsmiðla næsta mánuðinn og verður tengt við veðurfar eins og hægt er. Hér er hægt að sjá öll fimm nýju myndböndin á Youtube síðunni okkar.


Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar 2023 verður haldin föstudaginn 27. október á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut, kl. 09.00-16.15.
Almenn skráning – smelltu á hlekkinn.
Dagskráin er fjölbreytt að venju og endurspeglar það margháttaða rannsókna- og þróunarstarf sem styrkt er af rannsóknasjóði Vegagerðarinnar.
Sextán rannsóknaverkefni verða til umfjöllunar og samhliða veggspjaldasýning með um tólf verkefnum.
Ráðstefnan hefur alla jafna verið fjölsótt af starfsfólki Vegagerðarinnar, starfsfólki ráðgjafa- og verkfræðistofa, verktaka og almenns áhugafólks um samgöngur og rannsóknir.
Á ráðstefnunni í ár verður mest fjallað um rannsóknir sem fengu fjárveitingar úr rannsóknasjóði Vegagerðarinnar árið 2022.
Styrkur rannsóknasjóðs Vegagerðarinnar liggur í því að styrkja verkefni á mjög breiðu fræðasviði þar sem ekki er endilega einblínt á hefðbundna vegagerð. Verkefnin falla þó undir fjóra almenna flokka sem eru: mannvirki, umferð, umhverfi og samfélag.
Ráðstefnustjóri verður Páll Valdimar Kolka.
| Dagskrá rannsóknaráðstefnu Vegagerðarinnar | |
|---|---|
| 09:00 | Setning ráðstefnu, Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar. |
| 09:05 | Eldvirkni á Íslandi og hugsanleg áhrif á innviði, Dr. Þorvaldur Þórðarson, eldfjallafræðingur og prófessor við Háskóla Íslands. |
| 09:30 | Kolefnishluthlaus bindiefni, Björk Úlfarsdóttir, Colas Ísland. |
| 09:45 | Vindaðstæður við brýr – hermun til stuðnings hönnunarviðmiðum, Darri Kristmundsson, Vatnaskil. |
| 10:00 | Sigmælingar með LiDAR skanna á þyrildi, Sólveig Kristín Sigurðardóttir, Verkís. |
| 10:15 | Kaffihlé og veggspjaldasýning |
| 10:45 | Kostir hástyrkleikasteypu á brýr, Ólafur H. Wallevik, Háskólinn í Reykjavík. |
| 11:00 | Ástandsskoðun sprautusteypu í jarðgöngum með tilliti til þykktar og væntanlegs líftíma, Benedikt Ó. Steingrímsson og Guðbjartur Jón Einarsson, Mannvit. |
| 11:15 | Kolefnisfótsporsgreining á brimvarnargörðum og sjóvörnum, Majid Eskafi, EFLA (erindi á ensku). |
| 11:30 | Fyrirspurnir |
| 11:45 | Hádegismatur |
| 13:00 | Áhrif á öryggi virkra ferðamáta vegna algrænna umferðarljósa, Davíð Guðbergsson, VSÓ ráðgjöf. |
| 13:15 | Umferðaröryggisaðgerðir og áhrif á leiðarval, Berglind Hallgrímsdóttir, EFLA. |
| 13:30 | Leiðbeiningar um hönnun gatna í þéttbýli, Thijs Kreukels, VSB verkfræðistofa (erindi á ensku). |
| 13:45 | Áhrif fjarvinnu á vegakerfið, Sæunn Gísladóttir, Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri. |
| 14:00 | Grímsvötn: vatnsgeymir, jökulhlaup, upphaf og rennsli, Finnur Pálsson, Jöklahópur Jarðvísindastofnunar Háskóla Íslands. |
| 14:15 | Fyrirspurnir |
| 14:30 | Kaffihlé |
| 15:00 | Rannsóknir á tengslum veðurfarsbreytinga og hreyfinga á og við vegstæði Siglufjarðarvegar um Almenninga, Þorsteinn Sæmundsson, Halldór Geirsson og Hafdís Jónsdóttir, Háskóli Íslands og Vegagerðin. |
| 15:15 | Mælaborð úrkomuvöktunar í Almenningum, Einar Sveinbjörnsson, Veðurvaktin. |
| 15:30 | Opna fjallvegir hlið fyrir landnám innfluttra plöntutegunda á hálendi Íslands, Rannveig Thoroddsen, Náttúrufræðistofnun Íslands. |
| 15:45 | Örmengunarefni í ofanvatni af vegum, Ásta Ósk Hlöðversdóttir, VSB verkfræðistofa. |
| 16:00 | Fyrirspurnir |
| 16:15 | Ráðstefnuslit – léttar veitingar |
Glærur og ágrip fyrirlestra verður hægt að finna á vef Vegagerðarinnar að ráðstefnu lokinni. Listi yfir veggspjöld verður birtur innan skamms.
Sjá einnig á vef Vegagerðarinnar
Myndir úr myndakassanum frá árshátíðinni eru komnar inn á K:\Ljósmyndir\Árshátíð 2023 myndakassi.
Myndirnar hafa ekki verið ritskoðaðar sérstaklega að öðru leyti en að mjög hreyfðum myndum var eytt.


Í gær stóð umferðarsvið fyrir norrænni ráðstefnu um ökutækjaskráningar og ökuskírteini, Nordic Registration Conference, sem Norðurlöndin skiptast á um að halda árlega. Kynningar Samgöngustofu fjölluðu um verkefni okkar um rafrænar forskráningar og samstarf við Starfrænt Ísland um að bæta þjónustu við viðskiptavini. Einnig var sagt frá fleiri stafrænum verkefnum á borð við ökunámsbókina og var mjög fín kynningarmynd okkar fólks og AWS Institute hluti þeirrar umfjöllunar. Ráðstefnan, sem að þessu sinni fór fram á Hótel Hilton Nordica, er hluti af mikilvægu samstarfi Norðurlandanna auk Álandseyja. Markmið hennar er að samnýta þekkingu nágrannaþjóða og fá um leið tækifæri til að segja frá góðum framfaramálum sem geta orðið öðrum að gagni.

Föstudagslagið er að þessu sinni í boði Hákons:
Ég valdi þetta lag sem var efst á Spotify og ekki af ástæðulausu :Þ
Ég skora á Andra Hermannsson að velja lagið í næstu viku.

Það er góður gangur í skráningu tillagna í Bendil, vel gert starfsfólk Samgöngustofu!
Hvetjum alla til að skrá inn hugmyndir og nýta tækifærið til að hafa áhrif á að gera vinnustaðinn okkar enn betri.

Bendum á að það er hægt að senda inn nafnlausar umbótatillögur, eins verður ekki gert grein fyrir efni tillögu þess vinningshafa sem verður dreginn.
Kveðja, umbótahópurinn
Það stefnir í að verða árleg hefð að hafa lítinn hrekkjavöku skiptimarkað fyrir búninga hér í Ármúla 2. Það er frábært að geta nýtt áfram góða búninga, lengja líftíma flíkanna og hlutanna okkar og svo er þetta líka ein af aðgerðunum í Grænu skrefunum 🙂

Fatasláin er nú komin upp fyrir framan Vörina, litla fundarherbergið í miðrými á 2rri hæð.
Kíkið endilega við, takið ykkur búning eða hengið búning á slána 🙂


Farsýslan minnir á Októberfest Samgöngustofu föstudaginn 20. október. Mæting á Samgöngustofa Bistro 1. hæð Ármúla 2, kl 16.00. Boðið verður upp á sausages, pretzels, bjór, léttvín, gosbjór og góðan félagsskap. Öllum frjálst að mæta í búning😘
Stefán Pálsson mætir til okkar með stórskemmtilega bjórkynningu og annan fróðleik.

Skráning stendur yfir hér og líkur kl 16.00 á morgun 18.okt: https://docs.google.com/forms/d/e/1FAIpQLSdeTHAjMl3AWhgN2jOkHkxa-3FrHfsOd0BHtluqzM8zpmDpzA/viewform kostar 1 þús. á mann.
Leben und Freude, Prost!

Kveðja, Farsýslan
Föstudaginn 20. október er bleiki dagurinn 2023.
Á bleika deginum er fólk hvatt til að vera bleik – fyrir okkur öll, bera bleiku slaufuna, klæðast bleiku og lýsa upp skammdegið upp í bleikum ljóma svo allar konur sem greinst hafa með krabbamein finni stuðning okkar og samstöðu.

Hjá Samgöngustofu er virk jafnréttisnefnd skipuð starfsfólki. Hlutverk nefndarinnar er að endurskoða árlega jafnréttisáætlun og fara yfir stöðu jafnréttismála innan Samgöngustofu.
Nefndin skipa í dag:
Dröfn Gunnarsdóttir
Guðbjörn Jensson
Kara Ásta Magnúsdóttir
Katrín Pálsdóttir – jafnréttisfulltrúi
Kolbeinn Arnarson
Markús Benediktsson
Rannveig Garðarsdóttir
– sameiginlegt netfang jafnréttisnefndar er: jafnrettisnefnd@samgongustofa.is
Upplýsingar um jafnréttisnefnd sem og gildandi jafnréttisáætlun Samgöngustofu eru aðgengileg á síðu hér á innri vefnum
Jafnréttisnefnd og jafnréttisáætlun – Samgöngustofa (samgongustofa.is)
