Norræn ráðstefna umferðarsviðs

Í gær stóð umferðarsvið fyrir norrænni ráðstefnu um ökutækjaskráningar og ökuskírteini, Nordic Registration Conference, sem Norðurlöndin skiptast á um að halda árlega. Kynningar Samgöngustofu fjölluðu um verkefni okkar um rafrænar forskráningar og samstarf við Starfrænt Ísland um að bæta þjónustu við viðskiptavini. Einnig var sagt frá fleiri stafrænum verkefnum á borð við ökunámsbókina og var mjög fín kynningarmynd okkar fólks og AWS Institute hluti þeirrar umfjöllunar. Ráðstefnan, sem að þessu sinni fór fram á Hótel Hilton Nordica, er hluti af mikilvægu samstarfi Norðurlandanna auk Álandseyja. Markmið hennar er að samnýta þekkingu nágrannaþjóða og fá um leið tækifæri til að segja frá góðum framfaramálum sem geta orðið öðrum að gagni.