Hér kemur uppskrift frá Bjössa að einstaklega ljúffengu döðlupestói sem boðið var upp á í mötuneytinu í dag. Fer vel sem meðlæti með allskyns mat, nú eða bara beint á hrökkbrauðið:
Döðlu- og ólífupestó
Ein krukka af rauðu pestói (t.d. frá Sacla) Hálf krukka fetaostur og smá af olíunni líka 1 1/2 dl. svartar ólífur, gróft saxaðar 1 1/2 dl. döðlur, smátt saxaðar 1 1/2 dl. steinselja, smátt söxuð 1 1/2 dl. brotnar kasjúhnetur Tvö hvítlauksrif, smátt skorin eða pressuð
Í dag fór Öryggis- og fræðsludeild aftur af stað eftir sumarfrí með umferðaröryggisfræðslu fyrir framhaldsskólanema. Fyrsta fræðsla haustsins fór fram í MK og gekk hún mjög vel. Margir skólar hafa nú þegar sýnt mikinn áhuga og bókað fræðslu. Bæði skólar sem voru ánægð með fræðsluna í vor og vilja fá hana fyrir nýja nemendur og einnig nýjir skólar sem ekki hafa fengið fræðsluna eftir covid pásuna. Frábært er að finna áhugann hjá framhaldsskólunum að fá fræðslu fyrir sína nemendur um umferðaröryggi.
Föstudaginn 25. ágúst var golfmót Samgöngustofu haldið í blíðskaparveðri á Grafarholtsvelli hjá Golfklúbbi Reykjavíkur. Keppnisfyrirkomulag var 4 manna Texas scramble og höfðu liðin komið sér saman um lit á liðsbúningum fyrir leik. Í ár voru það sjö lið sem kepptu um bikar og heiðurinn sem honum fylgir en að auki höfðu fjölmörg fyrirtæki veitt styrki í formi vinninga sem dregnir voru út. Ljóst er að golfmót Samgöngustofu er komið til að vera og fer vaxandi ár frá ári.
Úrslit mótsins:
Lið
Högg án forgj
Forgjöf
Nettó
Sæti
Driverar (Björn, Halldóra, Halldór og Bjarki)
72
15
57
1.
Púttarar (Atle, Þóra Sigurjón og Kolbeinn)
73
15
58
2.
Eldingarnar (Kristinn, Pétur, Steingrímur og Kristján)
72
14
58
3.
Draumahöggið (Hlín, Bjarklind, Kristinn og Ísleifur)
Í gær var haldið kveðjuboð fyrir Sverri Konráðsson, en hann hætti störfum nú í sumar vegna aldurs eftir langan og farsælan feril. Sverrir starfaði óslitið í þágu sjófarenda frá árinu 1998, fyrst hjá Siglingastofnun Íslands og síðar Samgöngustofu. Hjá Samgöngustofu var hann sérfræðingur um verkefni tengd siglingaöryggi og upplýsingagjöf um siglingamál, einkum á alþjóðavettvangi. Við þökkum Sverri fyrir gott og árangursríkt samstarf og óskum honum gæfu og gengis.
Rætt er við Þengil okkar í þætti #61 í Flugvarpinu og í kynningu á viðtalinu segir: ….hann á að baki magnaðan áratuga feril í bæði flugi og lækningum og er sá sem leitað er til þegar upp koma vafamál varðandi heilbrigðisvottorð fyrir flugáhafnir. Þengill sinnir alþjóðlegu samstarfi fyrir hönd Íslands og þekkir vel hvaða mál eru þar helst til umræðu og hefur frá ýmsu áhugaverðu að segja enda hefur hann um árabil verið forystumaður í fluglækningum á Íslandi og starfaði lengi sem héraðslæknir á Vopnafirði og síðar sem fluglæknir hjá Landhelgisgæslunni.
Á þriðjudaginn fóru þeir Ólafur Ragnarsson og Vivek Sharma í Port State skoðun um borð í rannsóknarskipið Neil Armstrong sem lá við bryggju í Grandagarði. Skipið var vígt af sjálfum geimfaranum Neil Armstrong og við það tilefni gaf hann skipinu orðu og einkennismerki sem hann bar þegar hann gekk á tunglinu.
Voru þessir hlutir til sýnis í skáp í brú skipsins og að sögn skipstjóra voru þessir hlutir ekta. Fengu þeir Ólafur og Vivek góðfúslegt leyfi til að taka myndir af þessum dýrgripum frá skipstjóranum.
Í dag kom út skýrsla með niðurstöðum úr könnuninni Öryggi barna í bíl. Könnunin var gerð við 46 leikskóla í 25 þéttbýliskjörnum víða um land og var búnaður hjá 1.854 börnum kannaður. Deildir Slysavarnarfélagsins Landsbjargar sáu um framkvæmd könnunarinnar.
Gaman er að segja frá því að niðurstöður könnunarinnar halda áfram að koma betur út á heildina litið með hverju skiptinu sem hún er framkvæmd.
Föstudagslagið er að þessu sinni í boði Garðars Árnasonar í flugrekstrardeild og um val sitt segir hann:
Af því að ég er eftirlitsmaður í flugrekstrardeild þá varð ég að finna lag tengt flugi. „Fly on the wings of love“ er skemmtilegt, en ekki nógu mikið stuð. „Fly me to the moon“ er ágætt líka.
Hér er ekki gleymd perla en í raun falin perla. Nánast óþekkt nema innan afar þröngs hóps. En ég set mig í sæti kyndilbera til að þessi perla sem gæti orðið sígild fái að óma sem mest, sérstaklega ef þið hlustið á lagið á Spotify, því jú ótrúlega en satt þá hvílir lagið þar í skugga og myrkri og gæti fært lagahöfundi aukin stefgjöld, skilst að hann hafi þénað 125 kr. á síðasta ári.
Lagið er „Fluffudiskó“ sem flutt er af gleðisveitinni Faxarnir sem samanstóð af flugmönnum Flugfélags Íslands, áður en félagið bar nafnið Air Iceland Connect.
Sveitin hefur því miður, mörgum til ama lagt upp laupana því sumir úr sveitinni hafa farið til annarra flugrekenda og einn meðlimanna er látinn.
Myndbandið lýsir vel gleðinni sem fylgir því að starfa í flugi og bregður fyrir flugmönnum sem og flugfreyjum félagsins.
Til aðstoðar fékk sveitin hina margrómuðu Diskó Dívu, Helgu Möller.
Stjórn Farsýslunnar boðar til aðalfundar miðvikudaginn 6.september kl 16:30 í matsalnum í Ármúla 2. Að fundi loknum verður boðið uppá mat og drykk. Skráning fer fram HÉR
Tillögur að reglubreytingum þurfa að berast stjórn Farsýslunnar í síðasta lagi fyrir 12 á hádegi miðvikudaginn 30. ágúst. Reglurnar eru aðgengilegar á innri vef á meðfylgjandi hlekk:
Endurskoðaðir reikningar félagsins skulu lesnir og bornir upp til samþykktar.
Reglubreytingar, ef fram koma.
Ákvörðun um félagsgjald.
Kosning stjórnar og endurskoðenda samkvæmt 4. gr.
Önnur mál
Það eru laus sæti í næstu stjórn Farsýslunnar og við hvetjum öll sem hafa áhuga á því að bjóða sig fram í stjórn að hafa samband við einhvern núverandi stjórnarmeðlim.
Nú í sumar kom í hús nýtt sjálfvirkt hjartastuðtæki frá Zoll. Hjartastuðtækið er staðsett við starfsmannainngang Ármúla megin.
Hjartastuðtæki eins og þetta getur skipt sköpum ef einhver í húsinu fer í hjartastopp. Á meðfylgjandi myndböndum er sýnd notkun þessara tækja. Þessi myndbönd eru á ensku og sýna bæði notkun tækisins og ferlið þegar bregast þarf við vegna þess að líður yfir einhvern:
Einnig látum við fylgja hér með skemmtilegt myndband með breska leikaranum Vinnie Jones þar sem hann skýrir hjartahnoð á skemmtilegan og líflegan hátt:
Endilega kynnið ykkur myndböndin það getur skipt sköpum þegar mikið liggur við!
Starfsfólk upplifir mikla hamingju að lokinni yfirfærslu gæðaskjala, sum hafa jafnvel sagt að lífið þeirra hafi orðið innihaldsríkara fyrir vikið
Nýverið hefur gæðateymi Samgöngustofu tekið eftir því að ýmis gæðaskjöl leynast enn í Gæsku. Þessi gæðaskjöl hafa ekki ratað yfir í nýja og flotta gæðakerfið okkar, CCQ. Til þess að bæta úr þessu ófremdarástandi hefur gæðateymið haft samband við deildar- og framkvæmdarstjóra sviða Samgöngustofu og bent þeim á gæðaskjöl á þeirra ábyrgð sem þarf að færa yfir.
Segja mætti að yfirfærsluátak sé hafið en stefnt er að því að öll gæðaskjöl Gæsku sem eiga erindi í gæðakerfi stofunarinnar verði komin yfir í CCQ fyrir lok árs. Gæðadagar hjá Samgöngustofu – smá svona eins og danskir dagar hjá Hagkaup nema hér er verið að vinna með mikilvæg gæðaskjöl og engar pylsur í boði.
Flutningarnir hafa gengið vel hingað til en meirihluti gæðaskjala stofnunarinnar er kominn yfir í CCQ. Þrátt fyrir glæstan árangur í yfirfærslu gæðaskjala þýðir ekki að fagna sigri of snemma – þvert á móti er tilefni til þess að gefa í og klára verkefnið!
Þau ykkar sem vinnið við flutning skjala úr Gæsku getið leitað til Díönu eða Kolbeins ef þið rekist á vegg við yfirfærsluna.
Hér á innri vefnum er yfirflokkur sem við nefnum Verkfærakistan. Þar er að finna ýmsar gagnlegar upplýsingar og leiðbeiningar, t.d. er þar að finna bóksafnssíðu:
Yfirlit yfir þau tímarit og gagnagrunnum sem stofnunum er áskrifandi að og aðgangsorð að þeim. Dæmi: Snara, Morgunblaðið, Lögbirtingablaðið og IMDG og SOLAS.
Tengingar á ýmsar síður og hjálpargögn varðandi íslenskt mál svo sem Málfarsbanka Íslenskrar málstöðvar, Orðabanka Íslenskrar málstöðvar, skrá yfir íðorðasöfn o.sfrv.
Upplýsingar um landsaðganginn Hvar.is en þar höfum við Íslendingar aðgang að yfir 20.000 tímaritum og yfir 10.000 rafbókum hvar sem við erum staðsett á landinu. Samgöngustofa borgar ásamt fjölda annarra stofnana fyrir þennan landsaðgang.
Gott lag til koma sér í gírinn á föstudegi í lok sumars. Hljómsveitin var stofnuð árið 2004 og gaf einungis út tvær plötur, þar á meðal var lagið Barfly sem kom út 2005, sem er alvöru rokk og ról lag og hefur notið mikilla vinsælda.
Hér er smá texti úr umsögn RÚV um lagið:
„Gríðarlega grípandi og skemmtilegt og svo kemur þessi lokakafli sem hvert einasta mannsbarn á Íslandi getur lallað með. Það er algjör synd af við höfum ekki fengið meira af Jeff Who? því þetta band var alveg ofboðslega vel spilandi og hryllilega skemmtilegt live. Það heyrist vel á Barfly sem heldur uppi stuðinu allan tímann. Þetta á fólk eftir að lalla um aldir.“
Þess má til gamans geta að þetta lag var tekið af hljómsveitinni ErHedz á ballinu á flughátíðinni í Múlakoti þessa verslunarmannahelgina, en þar sáust einmitt nokkrir starfsmenn Samgöngustofu taka hressilega undir á dansgólfinu.
Ég skora á Garðar Árnason kollega minn í flugrekstrardeild.
Hér á innri vefnum er sérstök upplýsingasíða um fundaherbergi í Ármúlanum og Flugröst. Hún var sett í loftið eftir að starfsmaður hafði samband við vefstjóra og lýsti ákveðnu vandamáli sem hann var ítrekað að lenda í. Vandamálið fólst í því að þegar hann bókaði fundaherbergi var hann aldrei viss hversu marga það tók í sæti, hvernig sæti og borð væru í herberginu, hvaða búnaður væri í hverju herbergi o.s.frv.. Þetta varð til þess að viðkomandi eyddi óþarfa tíma í að fara í viðkomandi fundarherbergi og athuga þessi mál áður en hann bókaði. Eftir samtöl við fólk innanhúss kom í ljós að fleiri voru að lenda í því sama.
Í kjölfarið var þessi fundarherbergjasíða sett í loftið þar sem notendur eiga að geta kynnt sér hvert og eitt fundarherbergi, fá nauðsynlegar upplýsingar og meira að segja mynd og myndband :). Ágætis dæmi um það hvernig samvinna notenda og vefstjóra getur skilað sér í auknu notagildi innri vefs.
Upplýsingarnar á þessari síðu hafa nýlega verið uppfærðar en ef þið sjáið eitthvað misræmi í upplýsingunum sem þarna eru og hvernig aðstaðan er í raun og veru þá endilega látið vita með því að senda póst á netfangið vefur@samgongustofa.is. Eins ef þið eruð með hugmynd að viðbótum á innri vefnum sem gæti nýst okkur í okkar daglegu störfum.
Á heimasíðu Virk er mikið af góðum fróðleik og ráðum. Eitt af stóru verkefnu Virk er Velvirk sem snýr að jafnvægi í lífi og starfi. Virkni dagatal er gott verkfæri sem auðvelt er að nýta sér. Það er dagatal með jákvæðum tillögum fyrir hvern dag mánaðarins. Tillögurnar eru í anda þess sem rannsóknir hafa sýnt að geti hjálpað fólki að lifa hamingjuríkara lífi, svo sem að gefa af sér, tengjast öðrum, finna tilgang, leika sér og njóta augnabliksins. Flestar tillaganna eru bæði skemmtilegar og auðveldar í framkvæmd.
Virknidagatalið er aðgengilegt á fleiri tungumálum og einnig er hægt að skoða eldri dagatöl.
Nú í ágúst hófu Katrín Elfa og Guðrún Ásta störf hjá Samgöngustofu.
Katrín Elfa Ársælsdóttir gegnir stöðu fulltrúa í skráningum og þjónustu, hún er staðsett á fyrstu hæð. Guðrún Ásta Ólafsdóttir gegnir stöðu lögfræðings og er staðsett á þriðju hæð, gangi 3b.