
Föstudaginn 25. ágúst var golfmót Samgöngustofu haldið í blíðskaparveðri á Grafarholtsvelli hjá Golfklúbbi Reykjavíkur. Keppnisfyrirkomulag var 4 manna Texas scramble og höfðu liðin komið sér saman um lit á liðsbúningum fyrir leik. Í ár voru það sjö lið sem kepptu um bikar og heiðurinn sem honum fylgir en að auki höfðu fjölmörg fyrirtæki veitt styrki í formi vinninga sem dregnir voru út. Ljóst er að golfmót Samgöngustofu er komið til að vera og fer vaxandi ár frá ári.
Úrslit mótsins:
| Lið | Högg án forgj | Forgjöf | Nettó | Sæti |
| Driverar (Björn, Halldóra, Halldór og Bjarki) | 72 | 15 | 57 | 1. |
| Púttarar (Atle, Þóra Sigurjón og Kolbeinn) | 73 | 15 | 58 | 2. |
| Eldingarnar (Kristinn, Pétur, Steingrímur og Kristján) | 72 | 14 | 58 | 3. |
| Draumahöggið (Hlín, Bjarklind, Kristinn og Ísleifur) | 73 | 14 | 59 | 4. |
| Sleggjurnar (Einar, Ómar, Davíð og Benóný) | 71 | 9 | 62 | 5. |
| Fuglarnir (Birgir, Anney, Svava og Bára) | 83 | 18 | 65 | 6. |
| Bomburnar (Rut, Laufey, Erna og Berglind) | 85 | 16 | 69 | 7. |
Sérstakar þakkir fyrir veglegan stuðning:
Farsýslan starfsmannafélag (niðurgreiðsla vallargjalda)
Samgöngustofa (niðurgreiðsla vallargjalda og samlokur a la Bjössi)
Rif restaurant
Húsgagnahöllin
Bombay bazaar
Lemon
Georgíuvín
Garri
Innes
Ölgerðin
Golfstöðin Glæsibæ
Íslenski barinn
MS










