Fimmtudaginn 22. maí var bryddað upp á þeirri nýlundu að bjóða öllum ökukennurum til upplýsingafundar í húsnæði Samgöngustofu. Markmiðið með fundinum var að veita upplýsingar en ekki síður að styrkja tengsl og virkja samtal. Ökunámsteymi hefur áður haldið upplýsingafundi í húsnæði Ökukennarafélags Íslands en ákvað að fara þessa leið, meðal annars í því augnamiði að ná til fleiri ökukennara. Fundurinn var mjög vel sóttur en rúmlega 60 ökukennarar sóttu hann, um það bil helmingur á teams.
Veittar voru almennar upplýsingar um rafrænu ökunámsbókina, rætt um villur sem hafa verið að koma upp við skráningu akstursmats, breytingar á lögum og reglugerðum og síðast en ekki síst var farið yfir tölfræði í bóklegum ökuprófum til almennra réttinda frá því að rafræn próftaka var tekin upp og helstu villur próftaka. Fall hefur aukist jafnt og þétt síðasta áratuginn og vafalaust eru ýmsar ástæður fyrir því, en þar má taka fram að stór hluti próftaka hefur ekki farið í gegnum ökunám. Fall jókst einnig við þá breytingu sem var gerð við innleiðingu rafrænnar próftöku en við sjáum þó að þróunin er jákvæð eftir því sem frá líður meðal þeirra sem taka ökupróf á íslensku, en meirihluti þeirra hefur sótt ökunám hjá ökuskólum og ökukennurum. Við sjáum þar hversu mikilvægu hlutverki ökukennarar gegna við að miðla námsefni og þekkingu til nemenda sinna.
Upplifun ökunámsteymis var að almenn ánægja væri með fundinn og fyrirkomulag hans þó umræður hafi hitnað á köflum. Stefnt er að því að gera slíka fundi að reglulegum viðburðum í framhaldinu.





















