Samgöngustofa hlaut jafnlaunavottun fyrst árið 2020 og gilti sú vottun í þrjú ár, nú í byrjun júlí fór því fram stór endurvottunarúttekt sem stofnunin stóðst. Ný vottun gildir 2023 til 2026, árlega fer fram svokölluð milli úttekt eins og síðastliðin þrjú ár.
Upplýsingasíða um jafnlaunastjórnunarkerfi Samgöngustofu er hér á innri vefnum. Á upplýsingasíðunni má nálgast allar helstu upplýsingar um kerfið, kynningu á niðurstöðum launagreiningar ofl., öll gæðaskjöl tengd kerfinu eru í CCQ.
Frétt af ytri vef: Samgöngustofa vill árétta að farþegaflutningar í atvinnuskyni með bátum hér við land, svo sem skoðunarferðir og veiðiferðir ferðmanna, eru háðir leyfi Samgöngustofu. Gildir þetta um alla báta, svo sem RIB-báta, Zodiac báta eða aðra báta.
Um tvenns konar leyfi er að ræða:
Séu bátarnir undir 6 metrum þarf starfsleyfi fyrir þá, þar sem tekið er fram hvernig starfseminni verði háttað, tryggt sé að tryggingar séu fullnægjandi o.þ.h.
Séu bátarnir yfir 6 metrum að lengd þarf að sækja um farþegaleyfi fyrir bátana og þarf starfsemin að uppfylla sömu kröfur og getið er hér að framan.
Hafnarsvæði eru ekki undanþegin og geta hafnir því ekki leyft farþegaflutninga með förum sem ekki hafa til þess tilskilin leyfi.
Þessar upplýsingar hafa einnig verið sendar á umboðsmenn erlendra skipa varðandi notkun léttbáta erlendra skemmtiferðaskipa til skoðunarferða.
Samkvæmt 41. gr. skipalaga nr. 66/2021 þarf leyfi Samgöngustofu til farþegaflutninga í atvinnuskyni í lögsögu Íslands en erlend skemmtiferðaskip, sem falla undir SOLAS reglurnar, eru undanþegin reglunum, sem og skipsbátar þeirra þegar þeir eru eingöngu notaðir til þess að ferja fólk beint í land og til baka.
Sumarið er (loksins) komið með sól og hita. Á ákveðnum stöðum í Ármúla 2 finnur fólk mjög mikið fyrir hitanum, sérstaklega þeim sem snúa í suð-vestur. Í sumar verður því gerð sú tilraun að bjóða upp á laus rými á göngum 2b og 3b til notkunar.
Hér að neðan er skjal þar sem sjá má laus rými og dagsetningar. Starfsfólk getur þá tekið tölvuna sína, lyklaborð og mús og tengt sig. Sett hefur verið upp skjal þar sem starfsfólk á göngum 2b og 3b er beðið að skrá þá tíma sem það er í orlofi, starfsfólk sem nýtir rýmið skal einnig skrá í sama skjal
Framkvæmdastjóri siglinga, ráðinn var Geir Þór Geirsson sem sinnt hefur stöðunni skv. tímabundinni ráðningu sl. tvö ár.
Framkvæmdastjóri flugs, ráðinn var Páll S. Pálsson sem sinnt hefur stöðunni skv. tímabundinni ráðningu sl. tvö ár.
Sérfræðingur í þjálfunar og skírteinarmálum flugs, ráðin var Málfríður Dögg Sigurðardóttir sem kemur til starfa 15. september nk. Fríða starfar í dag sem cabin crew manager hjá flugfélaginu Erni en hefur einnig starfsreynslu frá WOW og Icelandair Express. Fríða er með BA gráðu í Spænsku, BS í ferðamálafræði og meistargráðu í Forystu og stjórnun.
Vegagerðin hefur samið við Torghatten Nord um kaup á ferjunni Röst. Þetta kemur fram í frétt á vef Vegagerðarinnar. Skipið tekur að óbreyttu við ferjusiglingum á Breiðafirði í haust og leysir þar með ferjuna Baldur af hólmi. Kaupin koma í kjölfar útboðs þar sem einungis fékkst eitt tilboð. Upphaflega stóð til að leggja af ferjusiglingar á Breiðafirði við lok samnings við Sæferðir vorið 2023 en ákveðið var breyta þeirri ákvörðun og halda áfram siglingum í ljósi þess að miklar breytingar hafa orðið á atvinnustarfsemi á sunnanverðum Vestfjörðum bæði hvað varðar uppbyggingu fiskeldis og ferðaþjónustu.
Ferjan Röst er smíðuð 1991, tekur 250 farþega, rúmar fimm stóra flutningabíla. Í útboði Vegagerðarinnar um rekstur Breiðafjarðarferju 2023-2026 er miðað við að Röst sigli sömu áætlun og Baldur á ferjuleiðinni Stykkishólmur – Flatey – Brjánslækur – Flatey – Stykkishólmur.
Linsan Skólavörðustíg 41 býður starfsfólki og fjölskyldu 25-50% afslátt af umgjörðum til 19. júlí.´Auk þess er boið uppá fría sjónmælingu og auka sjóngler. Upplýsingar um þetta tilboð og tilboð á árskorti í WorldClass er að finna á tilboðssíðunni hér á innri vefnum.
Í vikunni hefur Alþjóðaflugmálastofnunin (ICAO) staðið fyrir jafnréttisráðstefnu í Madrid. Ísland átti fulltrúa á þessari ráðstefnu sem voru Valdís Ásta Aðalsteinsdóttir fulltrúi okkar í aðalráði ICAO, sem stjórnaði umræðum um reynslu þjóða við að hraða þróun í jafnréttisátt og Birna Katrín Gunnlaugsdóttir flugmaður hjá Icelandair sem tók þátt í umræðum um sýn næstu kynslóðar. Stóðu þær sig mjög vel í umræðum um þetta mikilvæga málefni. Nefnt var á fundinum að það sé ekki nóg að ryðja hindrunum úr vegi heldur þurfi einnig að skapa hvatningu til jafnréttis og jafnra tækifæra.
Við tökum hlé á föstudagslaginu yfir hásumarið en komum tvíefld til leiks á ný í ágúst. Í tilefni þess að margir eru á leið í sumarfrí er samt rétt að kveðja með lagi sem kemur öllum í sumarfrísfílinginn hvort sem leiðin liggur út á land í útilegu eða á suðræna sólarströnd. Læt ítölsku frumgerðina fylgja líka 🙂
„Eitt vinsælasta lag Sumargleðinnar er Ég fer í fríið sem Þorgeir syngur. Hann ætlaði sér ekki að syngja lagið og fékk vægt áfall þegar hann sá að Ragnar Bjarnason hafði tilkynnt þjóðinni í blaðaviðtali að Þorgeir Ástvaldsson kæmi með frumraun sína í dægurlagasöng á nýrri plötu Sumargleðinnar. Sagan á bak við lagið er þannig að Þorgeir sat í Hljóðrita ásamt þeim Ragnari Bjarnasyni og Gunnari Þórðarsyni þegar þeir uppgötva að það vantar sjómannalag á þessa fyrstu plötu Sumargleðinnar. Þorgeir átti gott safn af ítalskri tónlist heima hjá sér og bauðst til að finna gott lag sem væri hægt að íslenska. „Ég sem sagt hleyp heim og gríp þar tvær plötur, önnur var með Toto Cutogno og heitir Innamorati, einfaldur söngur um ást, unað og allt þetta ítalska,” segir Þorgeir. Hann hugsaði um hvað lagið ætti að vera og vildi fá texta sem fjallaði um sjómann á leið í frí í landi.
Hann velti fyrir sér hver gæti snarað fram íslenskum texta og datt þá í hug að tala við Iðunni Steinsdóttur. „Ég fer til hennar að kvöldi til, ég er sjálfur á leiðinni til Ítalíu. Ég átti Ítalíutúrinn áður en ég kláraði plötuna. Ég hringi bjöllunni hjá Iðunni að kveldi, tíu eða hálf ellefu. Ég segi: „Komdu blessuð og sæl, löng saga stutt. Getur þú búið til texta fyrir þetta ítalska lag hérna?” Hann útskýrði í stuttu máli um hvað lagið átti að vera og spyr hvort hún geti klárað textann. Iðunn samþykkti að semja íslenskan texta við lagið en brá vissulega að hann þyrfti að helst að vera klár sama kvöld. „Ég veit ekkert hvernig hún fór að því en hún skilaði mér textanum á hádegi daginn eftir,” segir Þorgeir.
Þorgeir hélt svo til Ítalíu þar sem hann starfaði sem fararstjóri og í flugvélinni á leiðinni heim var hann að glugga í Morgunblaðið. „Þar var viðtal við Ragnar Bjarnason. Segir frá nýrri plötu sem er að koma út með Sumargleðinni. „Þetta er æðisleg plata. Þarna er Þorgeir með frumraun sína sem dægurlagasöngvari.” Flugvélin, hún féll um mörg þúsund fet,” segir Þorgeir. Lagið sló svo í gegn og Þorgeir gat hvergi komið fram án þess að syngja lagið. Hann sagði einmitt við Ragnar Bjarnason að hann yrði fegnastur því þegar hann myndi hætta í Sumargleðinni að þurfa ekki að syngja Ég fer í fríið hundrað sinnum á hverju kvöldi. „Þá sló hann á öxlina á mér. „Heyrðu Þorgeir, ég söng Vertu ekki að horfa svona alltaf á mig árið 1960, ég söng það síðast í gær,” segir Þorgeir.” “
Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, og Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar, vígðu í lok júní tvær nýjar tvíbreiðar brýr, annars vegar yfir Núpsvötn og hins vegar Hverfisfljót. Þetta kemur fram í frétt á vef innviðaráðuneytisins. Með tilkomu þeirra fækkar einbreiðum brúm enn frekar á Hringveginum. Þær eru nú 29 talsins og stefnt er að því að engin einbreið brú verði á Hringveginum í lok næstu samgönguáætlunar sem gildir til 2038.
Brúin yfir Núpsvötn
Nýja tvíbreiða brúin yfir Núpsvötn er 138 metra löng og kemur í stað brúarinnar sem reist var árið 1973 og er 420 metra löng. Í verkinu var einnig innifalin gerð vegtenginga og endurbygging núverandi vegar á um 2 kílómetra kafla auk áningarstaðar. Brúin, ásamt vegtengingum, var hönnuð af verkfræðistofunni VSÓ Ráðgjöf. Brúin er eftirspennt steinsteypt brú með steyptu gólfi í fimm höfum. Nýr vegur og ný brú eru í nýju vegstæði á 1,1 kílómetra löngum kafla. Einnig var byggður nýr áningarstaður vestan nýju brúarinnar
Nýja og gamla brúin yfir Núpsvötn
Brúin yfir Núpsvötn var opnuð fyrir umferð í byrjun júní 2023.
Brúin yfir Hverfisfljót
Nýja tvíbreiða brúin yfir Hverfisfljót er 74 metra löng og er staðsett um 20 metrum neðan við gömlu brúna sem reist var árið 1968 og var 60 metra löng. Einnig var innifalið í verkinu vegtenging og endurbygging á um 2 kílómetra kafla auk gerð áningarstaðar. Brúin og vegir voru hönnuð á hönnunardeild Vegagerðarinnar. Brúin er samverkandi stálbitabrú með steyptu gólfi í þremur höfum. Nýr vegur og brúin eru í nýju vegstæði á 1,1 kílómetra kafla og endurbyggður vegur í fyrra vegsvæði einn kílómetri. Byggður var nýr áningarstaður í stað fyrri áningarstaðar sem lenti undir vegtengingu brúarinnar.
Brúin yfir Hverfisfljót var opnuð fyrir umferð í nóvember 2022.
Í morgun birti ViðskiptaMogginn mjög gott opnuviðtal við Jón Gunnar. Tilefnið er 10 ára afmæli Samgöngustofu. Í viðtalinu er fjallað um starfsemina vítt og breitt, sérstaklega hvað varðar okkar mikilvæga markmið um öryggi í samgöngum. Hægt er að lesa blaðið hér í vinnunni á mbl.is með því að skrá sig inn á aðgangi Samgöngustofu.
Nú eru mörg okkar á leið í sumarfrí en þá er mikilvægt að huga að því hvernig við skiljum við skrifstofurnar okkar áður en haldið er í frí. Þar sem við erum með 4. græna skrefið vottað höfum við skuldbundið okkur til þess að lágmarka orkunotkun en það á líka við þegar við erum ekki í húsi. Því vil ég biðla til ykkar að ganga þannig frá skrifstofum ykkar að orkunotkun sé í algjöri lágmarki áður en haldið er í frí. Það er t.d. hægt að huga að þessu samhliða því þegar gengið er snyrtilega frá skrifborðum og fyllt er í skrifborðsskjal mannauðsdeildarinnar.
Hér að neðan má sjá orkusparandi tékklista sem gott er að hafa til hliðsjónar. Listinn er auðvitað ekki tæmandi og því eru allar aðrar orkusparandi ráðstafanir kærkomnar. Gangi ykkur vel að spara orku og hafið það sem allra best í sumarfríinu!
Stafræna ökunámið er mikið framfaraskref eins og foreldrar á þriðju vaktinni sem átt hafa ökunema í pappírsnámi geta vottað. Nú er úr sögunni endalaust skutl til sýslumanns, að ógleymdri streitunni við að passa upp á ökunámsbókina. Hugmyndin um stafræna ferlið fæddist hjá Samgöngustofu og deild leyfisveitinga og ökunáms leiddi verkefnið og samstarf við aðrar stofnanir sem að því koma.
Verkefnið er um það bil að vekja athygli víðar en á Íslandi, því þessa dagana vinnur AWS Institute að gerð kynningarmyndar (e. Case Study) um stafrænt ökunám á Íslandi. AWS Institute er batterí á vegum Amazon sem framleiðir fræðsluefni fyrir vefinn, til að styðja við stafræna umbreytingu hjá hinu opinbera um víða veröld.
Í síðustu viku voru tekin viðtöl við fulltrúa Samgöngustofu, þau Sigurjónu Sigurðardóttur og Lárus Long. Bæði stóðu þau sig einkar vel og voru okkur öllum til mikils sóma. Við hlökkum að sjálfsögðu mikið til að sjá afraksturinn!
Árlegt golfmót Samgöngustofu verður haldið föstudaginn 25. ágúst nk. í Grafarholtinu – Reykjavík. Mótsfyrirkomulag verður eins og síðast eða 4 manna texas scramble og svo verður einhver hliðarleikur líka sem verður kynntur á keppnisdegi. Þetta fyrirkomulag er skemmtilegt að því leiti að þeir sem eru óvanir geta samt verið með – það eina sem þarf er að kunna nokkurn veginn að halda á kylfunni og góða skapið.
Á síðasta ári voru það starfsmenn flugleiðsögu/flugvalla sem fóru með sigur af hólmi en keppnin var þó hnífjöfn í 3 efstu sætunum. Fjármáladeildin tók það að sér að vera í neðsta sæti – enda voru vegleg kennsluverðlaun fyrir það sæti, sem deildin nýtur nú góðs af fyrir næsta mót og eru æfingar þegar hafnar.