Rauður dagur – 2.febrúar

Föstudaginn 2. febrúar nk. er rauði dagurinn 2024.
Þann dag eru öll hvött til þess að klæðast einhverju rauðu til að
vekja athygli á hjartasjúkdómum og meðfæddum hjartagöllum.

Orlof – réttindi, skipulag og Vinnustund

Tíminn flýgur og ekki seinna vænna að huga að því að skipuleggja orlofstöku sumarsins. Það getur verið bæði snjallt og hagnýtt að skipuleggja frí tímanlega því samkvæmt 3. mgr. 11. greinar starfsmannalaganna er starfsfólki skylt að taka orlof.

þessi skipulagði fríið með góðum fyrirvara

Réttindi
Starfsfólk safnar 30 daga orlofi (240 klst) og á rétt á að taka alla þá frídaga, þar af 15 daga samfellda, á orlofstímanum.
Tímabil sumarorlofs er frá 1. maí til og með 15. september.
Skrá skal orlofsbeiðnir í Vinnustund (eða Smástund).

Skipulag orlofstöku
Yfirmaður ákveður, í samráði við starfsfólk, hvenær orlof er veitt (orðalag í kjarasamningum). Yfirmanni er skylt að verða við óskum starfsfólks um orlofstöku verði því komið við vegna starfsemi stofnunar. Við skipulagningu orlofs skulu upplýsingar um stöðu þegar áunnins og ótekins orlofs vera starfsfólki aðgengilegar. Þessar upplýsingar eru alltaf aðgengilegar í Vinnustund (einnig gott að skoða í Smástund).

Í flestum kjarasamningum kemur fram að ákvörðun um sumarorlof skuli liggja fyrir eigi síðar en 31. mars og tilkynna skuli starfsmanni með sannanlegum hætti, svo sem í tímaskráningarkerfi stofnunar (Vinnustund).

Staða orlofs – hvernig á að lesa Vinnustund
Hægt er að skoða stöðu orlofs í Vinnustund undir Sjálfsþjónusta > Leyfi, í dálknum “staða til úttektar” sést hvað maður á til úttektar í dag. Talan í “úttekið” eru allir tímar sem skráðir hafa verið sem orlof nú þegar.
Hafi maður þegar skipulagt frí fram í tímann og það verið samþykkt er gerð grein fyrir því undir “úttekt skráð eftir dags.”

Þessi á ekkert orlof inni en hefur þegar tekið 16,19 klst af orlofi næsta árs (01.05.2024-30.04.2025). Viðkomandi hefur að auki skipulagt frítöku uppá 24 klst (3 vinnudagar). Ávinnslan (176,61 klst) er vel umfram úttektina svo þetta er í góðu lagi, að því gefnu að stjórnandi hafi samþykkt.

Þessi á inni orlof, 104,63 klst. sem kemur til með að fyrnast 1. maí nk. ef tímanir eru ekki fullnýttir fyrir þann tíma. Þessi þarf að skipuleggja frítöku og verður eflaust ánægð að heyra að Samgöngustofa heimilir að flytja 5 orlofsdaga (40 klst) á milli orlofsára.

Hér að ofan eru tvö skjáskot þar sem orlofsstaðar er nokkuð ólík, efri myndin er aðili sem hefur þegar gengið á 16,19 klst af næsta orlofsári. Neðra skjáskotið er aðili sem á til úttektar 104,63 klst. Neðri aðilinn verður eflaust ánægður að heyra að Samgöngustofa hefur ákveðið að heimila flutning á mest 5 orlofsdögum (40 klst.) á milli orlofsára.

Að skrá orlofsbeiðni
Í Vinnustund er orlofsbeiðni skrá með því að fara í sjálfsafgreiðslu > Fjarvistaróskir, og smella þar á litla plúsinn ofarlega í hægra horninu. Þar eru svo settar inn dagsetningar og ath.semd ef fólk vill. Athugið að kerfið hnippir ekki sjálfkrafa í næsta yfirmann og því gott að láta vita.
Einnig er hægt að skrá fjarvistarósk í Smástund, það er hnappur merktur “Fjarvistaróskir” fyrir miðju á forsíðu (þarf að draga aðeins til). Þar er litli plúsinn neðarlega hægra megin, svo eru valdar dagsetningar, skráð skýring ef vill og svo smellt á litla disklinginn í hægra horninu til að vista óskina.

Alltaf velkomið að heyra í mannauðsdeild ef ykkur vantar aðstoð, minnum á netfangið laun@samgongustofa.is – erum einnig allar duglegar að svara á teams 🙂

Árshátíð – takið daginn frá

Þá er komið að því sem öll hafa beðið etir – dagsetning fyrir árshátíð Farsýslunnar og Samgöngustofu er ákveðin – 20. apríl 2024. Endilega takið daginn frá.

Árshátíðin verður haldin í Víkingssalnum í Safamýrinni (áður Framsalurinn). Dagskrá og nánara fyrirkomulag auglýst síðar!

Samtal, kerfi og námskeið fyrir starfsmannasamtöl

Samtal er kerfi sem Samgöngustofa hefur tekið í notkun í þeim tilgangi að halda utan um formlega samtöl milli starfsfólks og stjórnenda.

Samtal er aðgengilegt í vefviðmóti þar sem fólk skráir sig inn með rafrænum skilríkjum. Starfsfólk kemur til með að hafa aðgang að sínum samtölum, geta undirbúið sig fyrir komandi samtal þegar yfirmaður hefur boðað til þess og munu geta skoðað eldri samtöl. Aðrir sjá ekki samtölin, sýn mannausdeildar í kerfinu er eingöngu tölfræðilegar upplýsingar, þ.e.a.s. hvort stofnað hafi verið til samtals eða ekki.

Haustið ’23 var stofnaður vinnuhópur innanhúss þar sem unnið hefur verið að því að kynna Samtal og breyta fyrirkomulagi starfsmannasamtala hjá Samgöngustofu. Niðurstaðan er breyttur spurningalisti og eitt samtal á ári í stað fjögurra (hefð hafði myndast hjá mörgum að taka tvö og tvö saman). Framvegis er stefnt að því að hafa eitt starfsmannasamtal og eitt frammistöðusamtal hvert ár. Samtal kerfið mun framvegis halda utan um fastráðningarsamtöl, starfsmannasamtöl, frammistöðusamtöl og mögulega fleira.

Samhliða þessum breytingum verður boðið uppá námskeið í áhrifaríkum samtölum dagana 1. og 2. febrúar nk. og hefur Ólöf mannauðsstjóri þegar sent tölvupóst þess efnis og óskað eftir því að fólk skrái sig á dagsetningar.

Slóð á Samtal er: samtal.advania.is, starfsfólk og yfirmenn ættu nú þegar að hafa réttan aðgang í kerfinu.

Hægt er að fræðast aðeins meira um kerfið á heimasíðu advania,
Samtal – Advania, þar er t.d. gott stutt vídjó um notkun kerfisins.

Starfsmannahandbók, rafræn

Hér á innri vefnum er nú aðgengileg rafræn starfsmannhandbók. Hún er á forsíðu, á hliðarstikunni vinstra megin fyrir ca. miðja.

Dröfn Gunnarsdóttir á stjórnsýslusviði var starfsnemi mannauðsdeildar í sumar og skilaði af sér vel unnu verki sem tengist nýliðamóttöku (e. onboarding) hjá Samgöngustofu. Ein af afurðum starfsnáms hennar var ítarlegt uppkast að efnistökum starfsmannahandbókar þar sem Dröfn listaði upp ýmsa þætti og efnistök sem hún hafði leitað að og fundið á ýmsum stöðum, sumt fann hún alls ekki.

Starfsmannahandbók er ætlað að vera uppflettirit þar sem starfsfólk getur fundið allar helstu upplýsingar sem það leitar að tengt starfi sínu og stofnuninni sjálfri.

Starfsmannahandbókin er ekki fullunnin en birt strax í von um að starfsfólk gefi sér tíma til að lesa og senda inn ábendingar og athugasemdir.

Þessi gefur sér góðan tíma til að lesa 🙂

Afslættir til starfsfólks Samgöngustofu

Starfsfólki Samgöngustofu býðst 10% afsláttur af öllum vörum hjá Fjallakofanum gegn framvísun starfsmannakorts.

https://fjallakofinn.is/

Þá býður 66°Norður okkur 20-25% afslátt dagana 23.-26. janúar, einnig gegn framvísun starfsmannakorts.

https://www.66north.com/

Kveðja,

Stjórn Farsýslunnar

Félagsvist (AFLÝST) og stjórn Farsýslunnar

Hið gleðilega hefur gerst að stjórn Farsýslunnar hefur borist liðsauki! Við stjórnina hefur bæst Markús Benediktsson og erum við afar glöð með viðbótina. Eins og fram kemur í 4.gr reglna um starfsmannafélagið þá er heimilt að kalla hvaða varamann sem er til setu í stjórn án sérstakrar kosningar en auglýst var eftir liðsauka í stjórn á kynningu í föstudagskaffi í nóvember.

AFLÝST! Næsti viðburður á dagskrá er félagsvist í matsalnum fimmtudaginn 18. janúar. Skráningu lýkur þriðjudaginn 16. janúar kl. 16. Skráning hér: https://forms.gle/dFTzhFdQdnkQL85S6 Við hefjum spilamennskuna kl. 16 en tökum spilahlé kl. 17.30 til að fá okkur pizzu

Endurskinsmerkja herferð

Hér er myndband úr nýjustu herferð Samgöngustofu og 66° Norður. Herferðin ber nafnið Sjáumst og er til þess fallin að vekja athygli á mikilvægi endurskinsmerkja. Markmiðið er einnig að gera endurskins merkin meira töff fyrir unga fólkið.

Gæðamoli vikunnar

Það hlakkar í þessu starfsfólki enda eru þau í þann mund við að gefa út gæðaskjal.

Gleðilegan mánudag kæra samstarfsfólk! Í þessum gæðamola langar mig að kynna fyrir ykkur stórmerkilegt gæðaskjal: Ritun gæðaskjala (VER-0181). Þetta gæðaskjal er hugsað fyrir það starfsfólk sem hefur ritleyfi í CCQ (getur búið til og breytt skjölum) til þess að samhæfa útlit og lýsigögn gæðaskjala. Ef þessum leiðbeiningum er fylgt eftir við ritun gæðaskjala ætti enginn að þurfa að lenda í gæðaskjala(jóla)kettinum!

Í VER-0181 Ritun Gæðaskjala er farið yfir ýmis mikilvæg atriði eins og t.d. hvaða leturgerð við notum. Þar er Calibri 14 pkt letur málið en því miður eru mörg gæðaskjöl í öðrum leturgerðum sem er auðvitað bagalegt. Gæðaskjalið hefur að geyma ýmsar aðrar gagnlegar upplýsingar um uppsetningu gæðaskjala, m.a. hvernig á að tengja gæðaskjöl við önnur gæðaskjöl eða lög og reglugerðir.

Við nálgumst fullkomna heiminn þar sem öll gæðaskjöl eru með staðlað útlit óðfluga. Það hlakkar í okkur í gæðateyminu að komast á þann stað en til þess þurfum við allt starfsfólk með okkur í lið. Við erum öll saman í þessu!

Kynning jafnréttisnefndar í föstudagskaffi

Í morgun hélt jafnréttisnefnd kynningu á verkefnum sínum í föstudagskaffinu. Kynningin gekk vel og í framhaldinu spruttu upp líflegar umræður um málefni kynjanna – m.a. var rætt um hvað kynjasamþætting þýðir og hvers vegna karlar hafi meiri ábata af reistum hjólastígum.

Í jafnréttisnefnd sitja 7 einstaklingar sem vinna hjá Samgöngustofu. Þetta eru þau Katrín Pálsdóttir (jafnréttisfulltrúi), Dröfn Gunnarsdóttir, Guðbjörn Jensson, Kara Ásta Magnúsdóttir, Kolbeinn Arnarson, Markús Benediktsson og Rannveig Garðarsdóttir.

Jafnréttisnefndin er stórhuga og er að ná vopnum sínum aftur eftir ákveðna lægð í covid. Helstu verkefni nefndarinnar eru að fylgja eftir aðgerðaráætlun jafnréttisáætlunar Samgöngustofu, að endurskoða jafnréttisáætlun og að fara árlega yfir stöðu jafnréttismála innan Samgöngustofu. Auk þessara verkefna leggur nefndin áherslu á að finna fræðslu handa starfsfólki á sviði jafnréttismála en nú er verið að velja á milli erindis Samtakanna 78 og Jafnréttisstofu. Nefndin ætlar á næstunni að móta og gefa út verklag til þess að skýra betur hlutverk og stefnu nefndarinnar.

Á innri vefnum er hægt að finna ítarlegri upplýsingar um jafnréttisnefndina. Ef smellt er á Samgöngustofa á borðanum til vinstri er svo í framhaldinu hægt að velja “Jafnréttisnefnd og jafnréttisáætlun”. Það getur verið gagnlegt og forvitnilegt fyrir starfsfólk að kynna sér jafnréttisáætlunina.

Að neðan má svo sjá pdf af kynningu nefndarinnar í nýliðnu föstudagskaffi.

Góða helgi!

Ný gjaldskrá

Þann 1. janúar 2024 tók gildi ný gjaldskrá Samgöngustofu. Þjónustur sem einstaklingar nýta sér hækkuðu um 3,5% en aðrar þjónustur almennt um 7%. Samanborið við verðbólgu og almennar hækkanir á verðlagi undanfarna mánuði og ár teljast breytingarnar afar hóflegar.

Nýja gjaldskráin var auglýst opinberlega hér á vef Stjórnartíðanda.



Sjáumst!

Samgöngustofa í samstarfi við 66° norður er að fara af stað með nýja endurskins herferð sem ber titilinn Sjáumst. Markmiðið er að höfða til unga fólksins og gera endurskinsmerki meira töff. Módelin í herferðinni eru áhrifavaldar á TikTok og munu fjalla um herferðina og endurskinsmerki á sínum miðlum.

Hér að neðan má sjá hvernig auglýsingarnar koma út í strætóskýlum en eins og sjá má er endurskinsmerki í auglýsingunni sem lýsist upp þegar keyrt er framhjá.

Við hvetjum ykkur til að kíkja á heimasíðu herferðarinnar www.sjaumst.is

Í hádeginu verður starfsfólki Samgöngustofu boðið uppá að næla sér í endurskinsmerki í matsalnum áður en þau fara í almenna dreifingu. Endurskinsmerkin sem við erum að gefa eru svartir límmiðar sem haldast best á hörðum flötum eins og töskum, barnavögnum og hjólum. Þau má einnig líma á föt og límið er þannig gert að það er lítil hætta á að það skemmi flíkur.

Skiptimarkaður fyrir jólakonfekt

Minnum á skiptimarkað fyrir jólakonfektið sem verður í Ármúlanum á morgun, 3. janúar. Endilega komið með afgangs konfekt eða smákökur frá jólunum og setjið í skálar á hverri hæð við kaffivélarnar.