Fréttir af ráðningum

Fyrr í vikunni rann út umsóknarfrestur um starf fulltrúa í NorType og er mikill áhugi um starfið. Enn er tækifæri til að sækja um starf sérfræðings í tæknimálum og innviðum, en umsóknarfrestur er út 2. júní n.k.

Þá hefur verið gengið frá ráðningu sérfræðinga í flugleiðsögu-, flugvalla- og flugverndardeild.
Ráðin voru Guðrún Margrét Jóhannesdóttir og Markús Benediktsson.

Guðrún Margrét Jóhannesdóttir hefur starfað hjá Isavia s.l. ár sem gagnasérfræðingur og í flugvernd. Hún hefur störf núna í júní.

Markús Benediktsson hefur starfað hjá Samgöngustofu í upplýsingavinnslu undanfarin ár og þar áður sem prófstjóri bóklegra flugprófa.

Flakk á milli hæða

Það er líf og fjör í húsnæðinu þessa dagana, því lofthæfis- og flugrekstrardeild og stjórnsýslusvið hafa skipt um ganga! Með því að endurraða skrifstofurýmum er markmiðið að bæta vinnuaðstöðu, efla samvinnu og skapa betra rými fyrir dagleg störf.

Loftæhæfi- og skrásetningardeild og flugrekstrar- og skírteinadeild hafa nú flutt upp á gang 3B og sameinast þar skírteinahluta flugrekstrardeildar og Stjórnsýslusvið hefur flutt sig niður á 2. hæð. Við hvetjum öll til að kíkja við og heilsa upp á nýju nágrannana – það er alltaf gott að tengjast betur yfir kaffibolla eða smá spjalli á ganginum.

Við vonum að þessi breyting verði öllum til hagsbóta og hlökkum til áframhaldandi samstarfs í nýju umhverfi.

Fundur með ökukennurum í Á2

Fimmtudaginn 22. maí var bryddað upp á þeirri nýlundu að bjóða öllum ökukennurum til upplýsingafundar í húsnæði Samgöngustofu. Markmiðið með fundinum var að veita upplýsingar en ekki síður að styrkja tengsl og virkja samtal. Ökunámsteymi hefur áður haldið upplýsingafundi í húsnæði Ökukennarafélags Íslands en ákvað að fara þessa leið, meðal annars í því augnamiði að ná til fleiri ökukennara. Fundurinn var mjög vel sóttur en rúmlega 60 ökukennarar sóttu hann, um það bil helmingur á teams.

Veittar voru almennar upplýsingar um rafrænu ökunámsbókina, rætt um villur sem hafa verið að koma upp við skráningu akstursmats, breytingar á lögum og reglugerðum og síðast en ekki síst var farið yfir tölfræði í bóklegum ökuprófum til almennra réttinda frá því að rafræn próftaka var tekin upp og helstu villur próftaka. Fall hefur aukist jafnt og þétt síðasta áratuginn og vafalaust eru ýmsar ástæður fyrir því, en þar má taka fram að stór hluti próftaka hefur ekki farið í gegnum ökunám. Fall jókst einnig við þá breytingu sem var gerð við innleiðingu rafrænnar próftöku en við sjáum þó að þróunin er jákvæð eftir því sem frá líður meðal þeirra sem taka ökupróf á íslensku, en meirihluti þeirra hefur sótt ökunám hjá ökuskólum og ökukennurum. Við sjáum þar hversu mikilvægu hlutverki ökukennarar gegna við að miðla námsefni og þekkingu til nemenda sinna.

Upplifun ökunámsteymis var að almenn ánægja væri með fundinn og fyrirkomulag hans þó umræður hafi hitnað á köflum. Stefnt er að því að gera slíka fundi að reglulegum viðburðum í framhaldinu.

Auglýst starf fulltrúa í NorType og sérfræðings í deild ökutækja og innviða

Samgöngustofa auglýsir nú tvö störf laus til umsóknar.

Staða fulltrúa í Nortype var auglýst sl. fimmtudag með umsóknarfresti til 26. maí nk. Auglýsinguna má finna hér.

Staða sérfræðings í deild ökutækja og innviða var auglýst í dag með umsóknarfresti til 2. júní nk. Auglýsinguna má finna hér.

Auglýsingarnar hafa verið birtar á Starfatorgi, Alfreð og verða birtar fljótlega á samfélagsmiðlum stofnunarinnar.

Vel heppnuð úttekt

Í síðustu viku fór fram úttekt EASA á lofthæfideildinni, en ytri úttektir eru nauðsynlegur hluti af starfsemi okkar. Umfangið er mikið, bæði í undirbúningi, framkvæmd og úrvinnslu. Bent er á það sem vel er gert en einnig það sem betur má fara. Úttektin gekk heilt yfir vel og með fáum frávikum og engum alvarlegum.

EASA teymið var skipað fólki frá Rúmeníu, Portúgal, Þýskalandi og Kýpur. Þau fóru einnig til þriggja starfsleyfishafa og komu þeir allir vel út með tiltölulega fá frávik. Við munum nýta niðurstöðurnar til að skerpa eftirlitsstarf okkar enn frekar.


Bifhjólafólk fagnar vorinu

Um helgina 17. og 18. stendur mikið til hjá bifhjólafólki með þátttöku Samgöngustofu – bæði norðan og sunnanlands. Bifhjólasamtök Lýðveldisins Sniglar og Tían standa fyrir Vorfagnaði bifhjólafólks á Akureyri á laugardag klukkan 14:00. Á sunnudag verður svo árlegur Vorfagnaður bifhjólafólks haldinn við Ökuskóla 3 í Hafnarfirði. Að því standa Sniglarnir, Kvartmíluklúbburinn, Ökuskóli 3 og Ökukennarafélagið ásamt Samgöngustofu. Dustað verður rykið af reynslu bifhjólafólks og lúnir liðir og viðbragð liðkað til svo auknar líkur séu á að allir geti átt öruggan og ánægjulegan akstur í sumar. Hér má sjá myndband frá vorfagnaði síðasta árs en talið er að um 300 manns hafi mætt þá.

Samhjól 19. maí 2025

Við ætlum að hafa samhjól á mánudaginn 19. maí þar sem veðrið þann dag á að verða rosa gott. Hittumst í portinu fyrir framan hjólagerðið kl. 15.15, hitum aðeins upp og leggjum svo í hann sem leið liggur út á Seltjarnarnes, hvar við munum staldra við á veitingastaðnum Ráðagerði og fá okkur hressingu. Hjólum svo áfram hinn svokallaða Reykjavíkurhring og fólk týnist heim eins og hentar. Þetta verður allt í rólegheitunum og öll geta hjólað með. Þátttaka í þessu samhjóli er að sjálfsögðu öllum opin og þau sem ekki hafa verið að hjóla í átakinu geta komið þennan hring með okkur og elft liðsandann auk þess að hafa gagn og gaman af!

Minni einnig á að þau sem eru gangandi eða með strætó eru einnig gjaldgeng í átakið og líka þau sem ákveða að taka bara einn dag á tímabilinu og nýta virkan ferðamáta til að koma sér í vinnu.

Skráning hér svo hægt sé að láta vita af okkur fyrirfram í Ráðagerði

https://www.hjoladivinnuna.is

Nýtt umhverfi – sömu frábæru andlitin

Undanfarna daga hafa orðið smá breytingar í húsinu og eru fleiri á dagskrá.

Jón Gunnar hefur flutt sína skrifstofu upp á 3 hæð á ganginn hjá Siglingasviði.
Mannauður hefur flutt sig um set á ganginum og eru nú komnar inn í rýmið þar sem Jón Gunnar var áður með skrifstofu.

Þá hefur gæðateymið flutt sig niður á gang 2B og eru þær í rýminu á móti mannauði.

Á sama tíma flutti Guðbjörn sig í rýmið innst á gangi 2B þar sem mannauður sat áður.

Grillveisla og Eurovision stuð á föstudaginn!

Það er komið að því að fagna – Ísland er komið áfram í Eurovision og það er loksins komið gott veður 🎉

Við ætlum að gera okkur glaðan dag í hádeginu á föstudaginn með grillveislu í portinu á bak við hús.

Við hvetjum öll til að mæta í Íslands litunum – blátt, rautt og hvítt – hvort sem það er treyja, hattur, slaufa eða eitthvað skemmtilegt Eurovisionlegt. 

Látum sólina og Eurovision andann taka völdin, hlökkum til að sjá ykkur öll með bros á vör og stemninguna í botni!

Í næstu viku er svo frábær vika því þá hefst tiltektarvika 🙂

Öryggi sjómanna í strandveiðum

Strandveiðitímabilið er hafið og öryggi sjómanna í forgrunni. Margvíslegur undirbúningur hefur farið fram svo tryggja megi sem best slysavarnir á sjó.

Sérstök áhersla á björgunarbáta

Samgöngustofa og skoðunarstöðva leggja í sameiningu áherslu á að öryggisbúnaður sé í samræmi við reglur. Í aðdraganda vertíðarinnar gerði Samgöngustofa skyndiskoðanir á yfir 150 smábátum, sérstaklega gúmmíbjörgunarbátum þeirra. Staðsetning og frágangur björgunarbáta skiptir miklu, svo auðvelt sé að grípa til þeirra og tryggt að þeir losni og komist á flot í neyð.

Öryggisefni smábáta á einum stað

Opnuð hefur verið samræmd öryggissíða fyrir sjómenn. Þar má finna leiðbeiningar, gátlista og fræðslumyndbönd sem hjálpa við undirbúning og auka vitund um öryggismál á sjó.

Aggan eykur öryggi

Öryggisappið Aggan, sem tekið var í notkun í fyrra, með stuðningi Fagráðs um siglingar, hefur vakið athygli meðal sjómanna. Um 300 bátar hafa þegar tekið það í notkun. Aggan inniheldur m.a. gátlista Samgöngustofu sem styður við gerð hættumats um borð.

Fræðsla með Þresti Leó

Í sumar mun Samgöngustofa, í samstarfi við Slysavarnafélagið Landsbjörg og Landsamband smábátaeigenda, taka þátt í fræðsluherferð með áherslu á öryggisbúnað og viðbrögð. Leikarinn og sjómaðurinn Þröstur Leó Gunnarsson fer yfir notkun á björgunarvestum, fjarskiptum, neyðarstigum, staðsetningu neyðarbúnaðar, björgunarhringjum og björgunarbátum.

Nýtt fræðslurit um fjarskipti á sjó

Gefið hefur verið út nýtt fræðslurit um VHF fjarskipti. Markmið þess er að auðvelda sjómönnum að rifja upp hvernig best sé að láta vita af sér og kalla eftir aðstoð ef þörf krefur.



Leggjabrjótur 28. júní

Upp kom sú hugmynd í deild leyfisveitinga og ökunáms að ganga Leggjabrjót frá Þingvöllum yfir í Hvalfjörð í sumar, nánar tiltekið 28. júní. Öll væru velkomin með, makar þar á meðal 🙂 

Endilega kommentið við færslu á Teams ef þið viljiðo slást í hópinn (undir SGS-Allir/Almennt)

Skipulag varðandi ferðir fram og til baka ræðst af fjölda.

Leiðin er rúmir 16 km, nokkuð grýtt en þó þægileg og gaman að ganga í góðum félagsskap!

Hér má t.d. sjá leiðarlýsingu: https://www.afstad.com/2020/06/23/leggjabrjotur/

Leiðin yfir Leggjabrjót var mikið farin hér áður fyrr og er ein fjölda þjóðleiða í nágrenni höfuðborgarinnar.



Auðkenning með rafrænum skilríkjum í notkun í Zendesk

Nú er hægt að auðkenna viðskiptavini með rafrænum skilríkjum beint í gegnum Zendesk þjónustukerfið — bæði í netspjalli og tölvupósti. 

Þessi lausn mun nýtast vel þegar þörf er á að sannreyna auðkenni viðskiptavina og einfaldar þannig þjónustuferlið, bætir öryggi og tryggir hraðari afgreiðslu. Sannkölluð gleðitíðindi!

Allar deildir geta nýtt sér Zendesk þjónustukerfið við afgreiðslu erinda. Deild skráningar og þjónustu hefur góða reynslu af notkun kerfisins og gefur sín meðmæli.


Samstarf við Samgöngustofu þykir til fyrirmyndar

Norðurflug lýsir ánægju með samskipti og samstarf við Samgöngustofu í viðtali í Morgunblaðinu í dag.

Í tilefni af komu nýrrar þyrlu til landsins, sem bætist í flota Norðurflugs, er viðtal við Birgi Ómar Haraldsson framkvæmdastjóra fyrirtækisins í Mogganum í dag. Í máli hans kemur fram að samstarfið við Samgöngustofu við innflutning og skráningu vélarinnar hafi gengið einstaklega vel og verið farsælt. Um er að ræða Airbus AS350B3+ þyrlu sem þegar er komin í fjölbreytt verkefni um landið.

Þessi ummæli eru hvetjandi og staðfesting á mikilvægi þess að byggja upp jákvæð og lausnamiðuð samskipti við atvinnulífið. Samgöngustofa þakkar Norðurflugi traustið og samstarfið og óskar þeim velfarnaðar með nýjustu viðbót í flotann.


Góðir gestir frá EUROCONTROL

Í síðustu viku fengum við góða gesti frá EUROCONTROL, þá Raúl Medina Caballero, forstjóra stofnunarinnar og Enrique Fraile-Riesco, sviðsstjóra. Tilefni heimsóknarinnar var nýleg aðild Íslands og tilgangurinn að kynna starfsemi hér á landi og styrkja samvinnuna enn frekar.

Eftir góðan fund hér í Ármúla var haldið á fund innviðaráðherra. Þar var farið yfir hlutverk okkar í stjórnun flugumferðar, reglugerðarsetningu og eftirliti. Einnig var rætt um næstu skref í samræmingu við sameiginlega áætlun Evrópu um þróun flugumferðarstjórnunar. Eftir fundinn heimsóttu gestirnir Isavia ANS, Landhelgisgæsluna og Isaiva ohf. Móttökurnar voru alls staðar góðar og dagurinn í alla staði hinn ánægjulegasti.

Nýtt og betra kerfi hjá NorType tekið í notkun

Nýtt og öflugra upplýsingakerfi hefur nú verið gangsett hjá NorType. Kerfið ber vinnuheitið „Nova Status“ og kemur í stað tveggja eldri kerfa. Með þessu stígum við mikilvægt skref í átt að einfaldari, skilvirkari og öruggari vinnslu hjá NorType.

Nova Status kerfið er skrifað frá grunni af okkar eigin fólki. Hönnun og forritun fór fram í UT-deild Samgöngustofu, þar sem Bjarni og Óskar voru í fararbroddi þróunar með dyggum stuðningi frá NorType-teyminu. Verkefnið er gott dæmi um það þegar þekking og samvinna skila árangri sem nýtist bæði starfsfólki og starfsemi.

Með nýja kerfinu verður gerðarskráning einfaldari og hraðari fyrir starfsfólk NorType. Þá hefur forvinnsluhluti kerfisins verið endurbættur og endurskilgreindur, sem gerir villumeðhöndlun markvissari og eykur vinnsluhraða skráninga. Síðast en ekki síst fylgir Nova Status aukið rekstraröryggi. 

Frábær áfangi sem við getum verið stolt af!


Halinn styttur

Frá árinu 2024 hefur náðst verulegur árangur í að stytta málahala vegna kvartana flugfarþega. Þessi árangur er fyrst og fremst tilkominn vegna breytts verklags í lögfræði- og farþegadeild.

Meðal aðgerða í breyttu verklagi má nefna:

  • Nýtt málasniðmát, sem hefur stytt tíma sem fer í ritun úrskurða umtalsvert. Sniðmátið keyrir sjálfkrafa út staðlaðar upplýsingar úr kvörtuninni og sníður textann að tegund málsins áður en ritun úrskurðar hefst.
  • Skýrari gagnagrunnur yfir útgefna úrskurði sem auðveldar að finna fordæmi og gæta samræmis í niðurstöðum, þegar um sambærileg álitaefni er að ræða.
  • Skýrari upplýsingar fyrir flugfarþega á heimasíðu Samgöngustofu.
  • Málskotsgjaldi fyrir afgreiðslu kvartana komið á, fæst endurgreitt ef úrskurður fellur kvartanda í vil.
  • Símatími hefur verið tekinn upp sem gefur starfsfólki meira svigrúm til úrvinnslu mála á öðrum tímum.

Á fyrstu fjórum mánuðum ársins 2025 voru gefnir út 88 úrskurðir og ákvarðanir, samanborið við 19 á sama tímabili árið 2024. Í lok apríl 2025 voru aðeins 26 mál í bið eftir úrskurði, en í byrjun árs 2024 voru þau 218 talsins.

Málsmeðferðartími hjá Samgöngustofu, frá því að kvörtun berst og þar til máli er lokið er nú kominn niður í þrjá mánuði, sem er það markmið sem deildin hafði sett sér.  

Upplýsingar um stöðu farþegamála munu fljótlega birtast á skýrsluvef Samgöngustofu.