
Frá 1. janúar 2025 er Ísland formlega orðið aðili að EUROCONTROL, hið 42. í röð Evrópuríkja.
EUROCONTROL er evrópsk milliríkjastofnun sem styður við flug og flugleiðsögu í Evrópu. Við Íslendingar höfum haft náið samstarf við stofnunina í meira en aldarfjórðung, í gegnum áheyrnaraðild. Aðildarviðræður stóðu yfir með hléum frá 2008, en haustið 2022 var undirritaður aðlögunarsamningur sem lagði grunninn að fullri aðild Íslands nú.
Samgöngustofa tekur þátt í starfinu fyrir Íslands hönd. Með aðildinni fáum við aðgang að kerfum, gagnabönkum, greiningarvinnu, tæknilausnum, þjálfun og stuðningi við ýmsa þætti flugmála sem snúa að rekstrarstjórnun flugumferðar, rekstri flugvalla, skilvirkni, öryggi og netvernd svo nokkuð sé nefnt.