Rafrænn tiltektardagur

Þessi ungi herramaður heldur rafrænan tiltektardag hátíðlegan á fjögurra ára fresti.

Sæl öll! Eins og mörg okkar vita er hlaupársagur í dag og stemmning og gírun hjá stofnuninni er eðlilega samkvæmt því. Það er eitthvað alveg geggjað við það að fá auka dag í árið og mörg okkar velta fyrir sér hvernig þau eiga að ráðstafa þessum kærkomna aukadegi. Þau okkar sem velta því fyrir sér þurfa ekki að örvænta því stofnunin okkar er komin með alvöru prógram í dag. Jú jú – þið giskuðuð rétt. Í dag, fimmtu- og hlaupsársdaginn 29. febrúar, verður nefnilega rafrænn tiltektardagur.

En hvað felst í rafrænum tiltektardegi? Í ár ætlum við að einblína á málakerfið okkar með það að markmiði að loka málum sem eru ekki í notkun. Í málakerfi Samgöngustofu, One, eru samtals 208.087 mál og þar af eru 10.205 mál í vinnslu. Það þýðir að um 4.9% af öllum málum nokkurn tíman hjá Samgöngustofu eru í vinnslu en það hlýtur að teljast býsna hátt hlutfall. Kostir þess að loka málum eru margir; skjaladeildin getur andað hægar, mitt one stjórnborðið lítur betur út, það hjálpar til við gagnaskil til Þjóðskrár en fyrst og síðast er það er gott fyrir samviskuna að loka málum ásamt því að heilinn seytir dópamíni í kollinn manns.

Það er því ekki eftir neinu að bíða, starfsfólk kært. Setjið ykkur í stöður! Það verður mikið verk unnið í dag, á hlaupársdag. Skjalateymi verður starfsfólki innan handar við lokun mála og því ætti allt starfsfólk að geta tekið þátt. Skjalateymið er meira að segja svo almennilegt að það verður einnig til taks á morgun og svo eftir samkomulagi næstu vikur. Gangi ykkur vel!

Sumarstörf hjá Samgöngustofu – almenn umsókn

Opnað hefur verið fyrir almennar umsóknir um sumarstörf hjá Samgöngustofu fyrir sumarið 2024. Starfsfólki er velkomið að benda áhugasömum ungmennum á að leggja inn umsókn,

  • Leitað er eftir einstaklingi sem getur unnið frá ca. maí eða byrjun júní og helst fram yfir miðjan ágúst.
  • Ákjósanlegt ef viðkomandi hefur náð 18 ára aldri.

Sumar 2024 – almenn umsókn | Ísland.is (island.is)

ÍMARK Lúðurinn – þrjár tilnefningar

Samgöngustofa fékk í dag þrjár tilnefningar til Lúðursins sem eru íslensku auglýsingaverðlaunin. Tilnefningarnar fengum við fyrir herferðirnar Sjáumst, sem unnin var í samstarfi við 66° Norður og Ekki skúta uppá bak, sem var í samstarfi við Vís. Auglýsingastofan Bien vann báðar herferðirnar með okkur.

Verðlauna afhendingin fer fram eftir viku og við bíðum spennt þangað til!

Öryggismyndavélar í Ármúla 2

Verklag um öryggismyndavélar hefur verið birt í CCQ
VER-0389 | Öryggismyndavélar hjá Samgöngustofu | QM (ccq.cloud)

Stafrænar öryggismyndavélar eru staðsettar innan- og utanhúss hjá Samgöngustofu. Rafræn vöktun þjónar þeim tilgangi að varna því að farið sé um húsið í leyfisleysi, eigur skemmdar eða stolið. Myndavélar utanhúss beinast að bílastæðum og dyrum hússins. Innanhúss eru myndavélar í almennum rýmum, þ.e.a.s. stigagangi, mötuneyti og göngum en ekki inn á skrifstofum og salernum. Settir hafa verið límmiðar á þeim svæðum sem myndavélar ná til (í Ármúla 2).

Myndefni er einungis skoðað ef upp koma atvik er varða eignavörslu eða öryggi einstaklinga, s.s. slys, þjófnaður, skemmdarverk eða árekstrar á bílastæði. Vöktunin er í samræmi við lög og reglur um rafræna vöktun nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónupplýsinga. Einungis tilgreindir starfsmenn hafa aðgang og heimild til þess að skoða myndefni sem vistað er mest í 30 daga og eytt að þeim tíma loknum.

Hvetjum ykkur öll til að kynna ykkur verklagið í CCQ. Einnig er hægt að lesa nánar um persónuvernd og öryggismyndavélar inn á þessari slóð Eftirlitsmyndavélar | Allar spurningar og svör | Persónuvernd. Þínar upplýsingar, þitt einkalíf. (personuvernd.is)

Bíókvöld Farsýslunnar – lokaútkall

Nú styttist í bíókvöld Farsýslunnar sem haldið verður fimmtudaginn 22. febrúar kl. 16. Horft verður á hina bráðskemmtilegu Office Space og boðið verður uppp á veitingar í fljótandi og föstu formi.

skráning hér: https://forms.office.com/e/nyiU3zNKvz

Fréttir af ráðningarmálum

Auglýst hafa verið tvö stöðugildi til umsóknar hjá Samgöngustofu

  • Starf sérfræðings á skipatæknideild – smellið hér til að skoða auglýsingu starfsins
  • Starf skipaeftirlitsmanns – smellið hér til að skoða auglýsingu starfsins

Auglýsing er birt á Starfatorgi, heimasíðu Samgöngustofu á island.is, á Alfreð og samfélagsmiðlum Samgöngustofu.

Tiltektarvika hafin

Nú er tiltektarvika hafin.

Þess vegna er hafraklattar og sódavatn í miðrýmum og matsal á 1.hæð, enda er nauðsynlegt að hafa orku í tiltekt.

Gámar í miðrými koma í dag.

Vöndum okkur að flokka.

Möppur í almennt sorp

Gagneyðingartunnar eru aðeins fyrir trúnaðargögn

Einnig verða plast og pappa tunnur líka.

Húsgöng sem ekki er verið að nota, má setja það fram í miðrými eða heyra í Snorra.

Bolla, bolla!

Snillingarnir Bjössi og Össi bjóða upp á bollukaffi kl. 14 í dag, mánudag í matsalnum. Svona ættu náttúrulega allar vikur að byrja!




Umhverfishópur Samgöngustofu og grænt bókhald 2022

Það er gefandi að rækta umhverfið. Fólk á það til að fyllast ofsakæti við umhverfisstörf.

Síðastliðinn föstudag var umhverfishópur Samgöngustofu með erindi í föstudagskaffinu. Í því erindi var farið yfir græn skref og innleiðingu fimmta skrefsins og grænt bókhald stofnunarinnar 2022.

Samgöngustofa hefur fengið fjögur af fimm grænum skrefum vottuð. Vinna við innleiðingu fimmta skrefsins er mjög langt á veg komin og má þess má vænta að fimmta skrefið verið vottað á næstunni. Fimmta skrefið er ólíkt hinum – fyrstu fjögur skrefin halda utan um skilyrði sem stofnanir þurfa að uppfylla en fimmta skrefið er svokallað umhverfisstjórnunarkerfi (byggt á ISO 14001) sem heldur utan um umhverfisstarfið og viðheldur því.

Í erindinu var einnig farið yfir niðurstöður græns bókhalds 2022. Á árinu 2022 losaði Samgöngustofa 162.590 tonn CO2 ígilda. CO2 ígildi er mælieining sem staðlar hnatthlýnunarmátt (e. global warming potential) gróðurhúsalofttegunda. Eitt tonn af CO2 ígildum jafngildir því þeirri losun sem fylgir einu tonni af CO2. Til þess setja losunartölur okkar í samhengi má nefna nokkur önnur dæmi:

  • Framleiðsla rafmagns í aflstöð Landsvirkjunar á Fljótsdal er 1,2 g CO2 ígildi fyrir hverja framleidda kílóvattstund (kWst)
  • Kolefnisspor 1 kg af slægðum íslenskum eldislaxi er 2,7 kg CO2 ígildi reiknað með aðferðafræði vistferilsgreiningar
  • Losun meðal fólksbíls er um 2 tonn CO2 ígildi á ári. Í þeirri tölu er ekki gert ráð fyrir losun yfir vistferilinn það er framleiðsla bílsins eða förgun hans
  • Kolefnisspor flugferðar frá Keflavík til Berlínar og til baka, það er vegna bruna þotueldsneytis, eru um 670 tonn CO2 ígildi

Ef við setjum losnunartölu Samgöngustofu í samhengi við meðal losun fólksbíls mætti segja að það sé eins og Samgöngustofa reki tæplega 83.000 bíla sem séu í meðalnotkun. Árið 2022, sama ár og græna bókhaldið sem við erum að skoða, voru 285.623 bílar á Íslandi sem gengu fyrir eldsneyti. Losun Samgöngustofu árið 2022 var því jafn mikil og 29% af losun bílaflota Íslands sama ár.

Eitt umhugsunarvert kom úr grænu bókhaldi en árið 2022 notaði hver starfsmaður að meðaltali 4,56kg af pappír. Það er auðvitað ekki gott og mikil tilefni til þess að reyna að takmarka pappírsnotkun. Á móti kemur að við erum leyfisveitingastofnun og notum þ.a.l. meira af pappír en aðrar stofnanir – þetta batnar vonandi með aukinni notkun á rafrænum eyðublöðum.

Séu einhver innanhús áhugasöm um stöðu umhverfismála hjá stofnuninni er sjálfsagt að hafa samband við mig, Kolbein, og spyrja!

Í lokin langar mig að óska eftir umsóknum í umhverfishópinn. Ekki bara er umhverfisstarf gefandi og áhugavert heldur líka skemmtilegt. Áhugasöm geta sent póst á kolbeinn.arnarson@samgongustofa.is.

Tiltektarvika 12-15. febrúar

Tiltektarvika í Ármúla 2 vikuna 12-15.febrúar nk.

Samtal – starfsmannasamtöl

Ásdísi Eir Símonardóttur hélt í síðustu viku námskeiðið áhrifarík samtöl fyrir starfsfólk Samgöngustofu. Farið var yfir góð og gagnleg ráð tengd starfsmannasamtölum og samskiptum fólks. Einnig var haldið námskeið fyrir stjórnendur.
Mæting á námskeiðin fór fram úr björtustu vonum en fyrir þau sem ekki komust á námskeiðið er hér birt teams upptaka. Upptakan verður aðgengileg amk næstu tvo mánuði en við hvetjum fólk sem ætlar að nýta sér upptökuna að horfa sem fyrst.

Áhrifarík samtöl – fyrri hluti:
Áhrifarík samtöl – námskeið-20240201_130407-Upptaka fundar.mp4 (sharepoint.com)

Áhrifarík samtöl – seinni hluti
Áhrifarík samtöl – námskeið-20240201_141318-Upptaka fundar 1.mp4 (sharepoint.com)
.

samtal.advania.is

Starfsmannasamtöl Samgöngustofu verða nú í kerfinu Samtal, rafræn lausn hjá Advania. Eingöngu stjórnandi og starfsfólk hafa aðgang að samtölum sín á milli. Mannauðsdeild sér tölfræði fyrir stofnunina, þ.e.a.s hver hafa sett samtöl af stað og lokið þeim.
Hlekkur á Samtal er hér: Samtal (advania.is)
innskráning er með rafrænum skilríkjum.


Haldin verða örnámskeið í matsalnum til að sýna hvernig Samtal virkar og svara spurningum.
fyrir starfsfólk – föstudag kl. 10:30 – 11:00 (fundarboð mun berast)
fyrir stjórnendur – þriðjudag (fundarboð hefur þegar verið sent).

Minnum á að góður undirbúningur er dýrmætur, sérstaklega í hvirfilbyl hversdagsleikans. Stundum virka hlustun, fögnum endurgjöf og munum að það má alltaf setja á pásu og taka þráðinn upp aftur eftir smá umhugsun.

Svo má líka nýta sér ráð Ásdísar um gagnrýni og endurgjöf og gefa fólki í kringum sig tígla og hjörtu og spaða þegar við á.

Samantekt ársins 2023 á umferðarsviði

Umferðarsvið hefur haft forgöngu um birtingu tölfræði á sérstökum skýrsluvef, sem er aðgengilegur innan Samgöngustofu. Þar má finna margvíslegar upplýsingar sviða og deilda sem fróðlegt er að kynna sér. Nú hefur í fyrsta skipti verið gerð árssamantekt fyrir umferðarsvið, vegna ársins 2023. Skiptist hún í annars vegar samantektina sjálfa og hins vegar töluleg gögn ársins. Þarna má uppgötva ýmislegt sem við vissum ekki áður. Til dæmis fóru 63.352 símtöl í gegnum skiptiborðið í fyrra og við fengum 37.225 heimsóknir í móttöku. Stafrænum eigendaskiptum ársins fjölgaði um 15% en nýskráningar ökutækja drógust saman um 2%. Bara svo nokkuð sé nefnt. Áhugafólk um tölfræði mun ekki bíða boðanna með að skoða þessa flottu samantekt ársins 2023.


Lífshlaupið 7.-27. febrúar

Lífshlaupið (https://lifshlaupid.is) hefst á miðvikudaginn og hvetjum við öll til að taka þátt og skrá sig til leiks. Samgöngustofa tekur að sjálfsögðu þátt í vinnustaðakeppninni og er eitt lið komið á lista. Hægt er að bæta sér á þann lista eða stofna nýtt lið.

Hvað má skrá?
Alla miðlungserfiða eða erfiða hreyfingu sem stunduð er utan vinnutíma.
Til þess að fá einn dag skráðan þarf að hreyfa sig að lágmarki í 30 mínútur sem skipta má upp í nokkur skipti yfir daginn, t.d. 10 – 15 mínútur í senn.

Hvað má ekki skrá? 
Ekki er heimilt að skrá þá hreyfingu sem fellst í starfi einstaklinga. Til dæmis ef einstaklingur vinnur við það að bera út póst 8 klukkustundir á dag er honum ekki heimilt að skrá 8 klukkustundur í göngu fyrir þann dag.

Framlag hvers og eins telur:
Í anda almenningsíþrótta er leikurinn byggður upp með það að markmiði að framlag hvers og eins telur, ef starfsmaður skráir einn dag þá telur það. 

Allt er betra en ekkert!

Þungur janúar

Eins og alþjóð veit hefur janúar verið mjög þungur og erfiður i umferðinni. Þessi mörgu alvarlegu slys taka virkilega á okkur sem vinnum að því á hverjum degi að gera það sem við getum til að draga úr umferðarslysum.

Það er vissulega margt sem þarf að bæta og laga í umferðinni en okkar áhersla hjá Samgöngustofu er að vinna með mannlega þáttinn sem skiptir svo miklu máli í umferðinni.

Okkur langaði vekja athygli á því innanhúss hvað við höfum verið að gera aukalega vegna þessara mörgu slysa. Við höfum m.a. bætt verulega í auglýsingar okkar á samfélagsmiðlum á vetrar fræðslumyndböndunum okkar. Einnig höfum við verið áberandi í fjölmiðlum að ræða um þessi slys og umferðaröryggi almennt.

Ekki liggur almennilega fyrir hvað gerðist í þessum slysum en klárt er að niðurstöður rannsókna munu kalla á frekari viðbrögð, hvort sem þau verða okkar eða annarra.

Ráðuneytisstjóri, forstjóri Vegagerðarinnar, ríkislögreglustjóri og Jón Gunnar forstjóri mynda saman umferðaröryggisráð en á þeim vettvangi eru dregnar sameiginlegar línur um hvað skuli gera í umferðaröryggismálum. Það ráð mun koma saman þegar niðurstöður rannsókna liggja fyrir og stilla saman strengi sína verðandi viðbrögð.

Með von um að febrúar færi okkur meiri birtu og betri fréttir úr umferðinni!