Jóladagatal Samgöngustofu

Jóladagatal Samgöngustofu hefst næsta sunnudag (1. des). Um er að ræða 24 skemmtilegar sögur um jólasveinana og ævintýri þeirra, m.a. í umferðinni. Í sögunum fáum við ekki bara að heyra um jólasveinana 13 heldur kynnumst við einnig öðrum minna þekktum íslenskum jólasveinum.

Hægt er að lesa eða hlusta á sögurnar, svara einfaldri spurningu og senda inn svarið. Tvö svör eru dregin út daglega fram að jólum og hljóta þau heppnu veglegan endurskinsbakpoka. Í janúar er svo einn heppinn grunnskólabekkur dreginn út og hlýtur hann pizzu-veislu og borðspil.

Við hvetjum fólk til að lesa sögurnar eða hlusta á þær, leyfa börnunum að svara getrauninni og kannski taka smá umræðu um efni sögunnar.

Jóladagatalið má finna hér: http://joladagatal.umferd.is



Föstudagskaffi 29. nóvember

Dustið rykið af jólapeysum, fatnaði og fylgihlutum!

Fréttir af ráðningarmálum

Það er alltaf nóg um að vera í ráðningarmálum hjá Samgöngustofu.

Sigurður Torfi Helgason hefur verið ráðinn í tímabundið starf sérfræðings í þjálfunar- og skírteinamálum flugs. Hann hefur störf á morgun, 27. nóvember. Sigurður hefur starfað hjá Air Atlanda, Wow og nú síðast Icelandair. Hann hefur starfað við skráningu og uppsetningu í viðhaldskerfum, eftirlit með gæða- og öryggisstöðlum tengdum flugvélum og kostnaðargreiningu.

Þá er verið að ganga frá ráðningu á sérfræðing í deild siglinga- og hafnareftirlits og næst á dagskrá er deildarstjóri flugrektrar- og skírteinadeildar.

Samgöngustofa á aðventunni

Uppfærsla á verklögum fyrir ferðalög erlendis og bifreiðar

Verklag vegna ferðalaga erlendis (VER-0121) hefur verið uppfært ásamt verklagi fyrir bifreiðar Samgöngustofu, bílaleigubifreiðar og leigubifreiðar (VER-0151).

Verklögin er að finna í CCQ og er starfsfólk hvatt til að kynna sér þau.

Skógjafaskiptimarkaður jólasveinsins

Fyrir framan Aðalstræti frá 19 nóvember og fram að jólum

Myndir frá minningardeginum

Í gær haldin árleg athöfn til að vekja athygli á fórnarkostnaði umferðarslysa og þakka viðbragðsaðilum og heilbrigðisstarfsfólki fyrir að standa ávallt vaktina. Fjöldi fólks tók þátt í fallegu veðri og þrátt fyrir tilefnið var stemmingin ljúf. Einar Magnús var á staðnum og tók mjög fallegar ljósmyndir sem öllum er velkomið að skoða í ljósmyndamöppunni á sameiginlega K-drifinu okkar:
SGS-Sameign (K:) > Ljósmyndir > Minningardagurinn 2024

Minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa á sunnudaginn

Sameinuðu þjóðirnar hafa tileinkað þriðja sunnudag í nóvember alþjóðlegum minningardegi um fórnarlömb umferðarslysa og er sá dagur næsti sunnudagur. Á Íslandi höfum við haldið minningarathöfn þar sem við m.a. þökkum viðbragðsaðilum og heilbrigðisstarfsfólki fyrir þeirra þátt í umferðaröryggi. Í ár verður þemað þreyta og svefn undir stýri og munum við m.a. heyra frásögn móður manns sem lenti í mjög alvarlegu slysi í fyrra þar sem svefn ökumanns kom við sögu. 

Lesa má um daginn, dagskrá hans og fleira, á www.minningardagur.is

Athöfnin mun fara fram við þyrlupallinn við Landspítalann í Fossvogi og hvetjum við öll til að mæta og sýna hluttekningu.


Föstudagskaffi – breytingaskeiðið og vinnustaðurinn

Hlekk á Teams er að finna í fundarboði 📧

Tökum vel á móti nýju fólki

Tveir hófu nýlega störf hjá Samgöngustofu.

Björn Vilberg Jónsson starfar sem eftirlitsmaður í flugrektardeild og er staðsettur á 2.hæð.

Lína María Ingólfsdóttir starfar sem fulltrúi í skráningar og þjónustudeild og er staðsett á 1. hæð.

Laust starf

Starf deildarstjóra flugrekstrar- og skírteinadeildar er laust til umsóknar, þekkir þú rétta einstaklinginn?

Deildarstjóri flugrekstrar- og skírteinadeildar | Ísland.is

Umsóknarfrestur er til 18. nóvember nk.

Síðasti áfanginn fyrir aðild

Eftir tæpa tvo mánuði, eða 1. janúar 2025 verður Ísland fullgilt aðildarríki að Eurocontrol, sem er Evrópustofnun um öryggi í flugleiðsögu með höfuðstöðvar í Brussel. Aðildarviðræður hófust árið 2008, en haustið 2022 var skrifað undir aðlögunarsamning Íslands að Eurocontrol.

Ferlið frá aðlögunarsamningi að fullgildingu er markað nokkrum áföngum. Í dag barst staðfesting þess að utanríkisráðuneyti Belgíu hafi tekið við orðsendingu og fullgildingarskjölum Íslands að Eurocontrol. Það er síðasta skrefið áður en formleg aðild tekur gildi um áramótin.


Jólahlaðborð Farsýslunnar

Jólahlaðborð Farsýslunnar verður haldið með pompi og prakt föstudaginn 22. nóvember í Víkingsheimilinu, Safamýri 26.

Húsið opnar með fordrykk kl. 19 og borðhald hefst kl. 20. Farsýslan býður upp á fordrykk, vín, bjór og gos með matnum og á meðan birgðir endast.

Farsýslumeðlimir greiða 5.000 kr. fyrir herlegheitin og makar 10.000 kr.

Endilega skráið ykkur, stjórnin lofar miklu stuði!

Skráning hér!

Ert þú að bóka fundi?