Vinnustundaráminningum hætt

Eins og kynnt var fyrr í mánuðinum hefur mánaðarlegum póstum er varðar mánaðarlegar áminningar á starfsfólk um að yfirfara tímana í Vinnustund. Þetta á einnig við um áminningar til yfirmanna um að samþykkja tíma. Launatímabilin eru frá 16. hvers mánaðar til 15. næsta mánaðar.
Frestur til að skila launatengdum gögnum er almennt til 20. hvers mánaðar. 📆

Vinsamlegast passið að skilja ekki eftir tóma daga eða að vinnuskil séu í mínus, ef það gerist verður það fyllt upp með orlofi.

Nánari dagsetningar má finna undir “Hvað er planið” á innri vefnum.

Við hvetjum ykkur til að setja inn áminningar í dagatalið ykkar í Outlook.⏰

Úrslit í EM í körfuboltaleik Samgöngustofu

Samgöngustofa var með ,,hitta í körfuna” leik í matsalnum frá fyrsta leik Íslands til þriðjudagsins 10. september. Uppi stóðu 2 sigurvegarar, Ísrael og Bjössi.
Þeir fengu körfubolta í verðlaun fyrir árangurinn og óskum við þeim innilega til hamingju 🎉

Fræðsla um persónuvernd

Í gær fengum við fræðslu frá Rakel Jensdóttur persónuverndarfulltrúa um reglur sem gilda um persónuvernd. Markmiðið er að allt starfsfólk Samgöngustofu þekki til þeirrar skyldu sem stofnunin ber sem stjórnvald og hvert og eitt okkar fari rétt með persónuupplýsingar í daglegu starfi.

Hér má finna glærurnar frá kynningu Rakelar.


Forvarnardagur ungra ökumanna

Samgöngustofa tók í dag þátt í forvarnardegi ungra ökumanna sem haldinn var í 88 húsinu í Reykjanesbæ. Auk Samgöngustofu var Lögreglan með erindi og einnig fulltrúi frá TM og Reykjanesbæ og svo var veltibíllinn á staðnum. Í lok dagsins var sviðsett slys eins og sjá má á myndunum sem fylgja fréttinni. Þar mátti sjá viðbragðsaðila bregðast við slysi, lögreglan fjarlægði manneskju úr bíl sem var ofurölvi og slökkviliðið klippti hurð af bíl til þess að ná í einstaklinga sem voru þar fastir inni. Góð stemming var á deginum og ungmennin áhugasöm um þetta mikilvæga málefni

Sólgleraugu í bílana

Sólgleraugu eru nú komin í alla bíla Samgöngustofu 😎

Sólgleraugun eru merkt Samgöngustofu á vinstri arm og eru í glasahöldurunum í bílunum.
Í hólfunum á milli framsætanna er að finna gleraugnaklúta til að þurrka af sólgleraugunum.

Ef sólgleraugu vantar í bíl eða klútarnir klárast, vinsamlegast látið mannauðsteymið vita.

Matargatið

Matargatið hefur nú opnað inná ,,Stofunni”. Þar er hægt að koma með tillögur fyrir mötuneytið hjá Bjössa & Össa.

Endilega sendið inn ykkar tillögu hér. Tillögurnar eru nafnlausar þrátt fyrir að þú setur inn nafnið þitt.

Alþjóðleg úttekt á menntun og þjálfun sjómanna

Í byrjun september komu fulltrúar frá Siglingaöryggisstofnun Evrópu (EMSA) og Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) til Íslands. Erindið var úttekt á því hvort menntun og þjálfun sjómanna og skírteinisútgáfu til alþjóðlegra atvinnuskírteina til starfa á farþega- og flutningaskipum uppfyllti kröfur Evrópusambandsins og alþjóðasamninga. 

Þetta er í þriðja sinn sem slík úttekt fer fram, fyrri úttektir voru gerðar árin 2012 og 2018. Að þessu sinni heimsótti hópurinn mennta- og barnamálaráðuneytið, Tækniskólann og Samgöngustofu. Á meðfylgjandi mynd má sjá starfsfólk þeirra stofnana sem komu að verkefninu.

Úttektin beindist sérstaklega að:

  • innihaldi námskráa í skipa- og vélstjórn,
  • gæðastjórnun hjá stofnunum og við útgáfu atvinnuskírteina,
  • framkvæmd þjálfunar nema um borð í skipum.

Hópurinn lagði áherslu á jákvæð atriði eins og kennslufyrirkomulag, aðstöðu og notkun Skútunnar (skipaskrá, lögskráning sjómanna og eftirlit). Bent var á atriði sem betur megi fara og á næstu vikum er að vænta skýrslu um úttektina og þau frávik sem bæta þarf úr.



Gulur september

Nánar um gulan september hér á hlekknum fyrir neðan:

Gulur september

Síðustu skotin í körfuna🏀

Nú fer hver að verða síðust eða síðastur til að skjóta í körfuna í EM leikunum í matsalnum eða leysa þrautaboltann!

Nánari lýsingu á leikunum er að finna hér: EM leikarnir í körfu

Lokafrestur til þátttöku er til kl. 10 þriðjudaginn 9 september og veglegir vinningar í boði! 🏀

Skyndihjálparnámskeið

Við bjóðum upp á skyndihjálparnámskeið frá Auðnast dagana 15.-18. september.

Upplýsingar um námskeiðið:

🕘 Tími: 9:00 – 11:00 (2 klst.)

📍 Staðsetning: Matsalur, Ármúla 2

👥 Hámarksfjöldi: 25 þátttakendur á hvert námskeið.

Skráning:

Skráning fer fram hér Veldu þann dag sem hentar þér best – athugið að aðeins er hægt að velja eitt námskeið.

Þú færð fundarboð sent í tölvupóstinn þinn eftir skráningu.

Ef öll námskeiðin verða uppbókuð verður fundinn annar tími og tilkynnt um hann síðar.

Tímamót og tækifæri – starfslokanámskeið

Samgöngustofa býður starfsfólki 60 ára og eldri ásamt mökum upp á starfslokanámskeið í samstarfi við Auðnast í lok október.

Að kveðja starfshlutverk sitt og fara á eftirlaun er mikil breyting. Til að auka líkur á því að tímamótin auki ánægju og vellíðan komandi ára er mikilvægt að veita fólki tækifæri til að undirbúa starfslok sín af kostgæfni. Aðlögun og góður undirbúningur af hálfu vinnuveitanda er því lykilforenda að farsælum starfslokum. Starfslokanámskeiðið er ætlað að huga að félagslegri sjálfbærni á vinnustað og hefja nýtt æviskeið með jákvæða upplifun í garð vinnustaðarins og jafnframt til að sýna þakklæti fyrir framlag starfsmannsins.

Fréttir af ráðningum

Fyrir helgi fór í loftið auglýsing fyrir starf sérfræðings í skipatæknideild. Samgöngustofa leitar að einstaklingi með öguð vinnubrögð, tæknilega innsýn og góða samskiptahæfni sem nýtist í fjölbreyttu og þverfaglegu samstarfi. Nánar um starfið hér: https://island.is/starfatorg/x-43281

Í sumar var gengið frá ráðningu fagstjóra gagnamiðlunar og greininga. Ráðinn var Ragnar Páll Árnason og mun hann hefja störf um miðjan september hjá okkur. Hann hefur síðastliðin ár starfað hjá Össur og þar áður hjá Advania.

Sædís í námsleyfi – Rannveig leysir af

Sædís Jónasdóttir, deildarstjóri skráninga og þjónustu er farin í námsleyfi frá og með deginum í dag, 1 september. Hún kemur aftur til starfa 1 júní 2026. Við óskum Sædísi góðs gengis í náminu og hlökkum til að fá hana aftur að námi loknu.

Á meðan mun Rannveig Garðarsdóttir leysa Sædísi af sem deildarstjóri. Rannveig hefur mikla reynslu af starfsemi deildarinnar og við bjóðum hana velkomna í nýtt hlutverk.

Skjáhættan á innviðaþingi

Á fimmtudaginn hélt innviðaráðuneytið innviðaþing þar sem fjallað var um flest málefni ráðuneytisins. Þar á meðal fjallaði Gunnar Geir um herferðina Ekki taka skjáhættuna og hversu mikið sú herferð hefur sparað ríkinu með bættri hegðun og fækkun slysa.

Niðurstaða erindisins var sú að þeim fækkaði um 8,6% á einu ári sem eiga það til að lesa eða skrifa skilaboð eða nota símann í netið eða samfélagsmiðla á meðan þau aka. Þessi fækkun skilar sé svo í sparnaði upp á 718 milljónir króna fyrir samfélagið . Herferðin kostaði okkur um 27 milljónir króna og arðsemin af herferðinni því 25 til 30 föld á einu ári sem hlýtur að teljast gríðargóður árangur.


Starfshópur um strandsiglingar

Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra, hefur skipað starfshóp sem á að leggja fram aðgerðaáætlun til að efla strandsiglingar við Ísland. Markmiðið er að draga úr álagi á þjóðvegum og minnka umhverfisáhrif.

Starfshópnum er ætlað að skila tillögum fyrir 1. desember 2025. Í honum sitja m.a. fulltrúar frá Samgöngustofu, Vegagerðinni, Samtökum atvinnulífsins og Samtökum verslunar og þjónustu. Jón Gunnar Jónsson er fulltrúi Samgöngustofu í starfshópnum.

Sjá nánar í frétt á vef Stjórnarráðsins.


Stafræn vegferð í júlí

Nýjustu tölur frá Stafrænu Íslandi sýna að uppflettingar í ökutækjaskrá nutu mikillar aðsóknar í júlí, en alls voru skráðar rúmlega 48 þúsund heimsóknir í mánuðinum. Þessi mikla aðsókn undirstrikar mikilvægi ökutækjaskrár fyrir almenning.

Samhliða heldur notkun Ísland.is áfram að aukast. Forsíða vefsins var heimsótt yfir 230 þúsund sinnum og notkun á Mínum síðum jókst um tæp helming milli ára. Þá hefur Ísland.is appið fest sig í sessi sem lykill að stafrænni þjónustu, með nærri 230 þúsund uppsetningar í júlí. Í stafræna pósthólfinu var einnig mikið líf, þar sem yfir 1,2 milljón skjöl voru send og rúmlega 600 þúsund lesin.

Tölurnar sýna glöggt vaxandi traust á rafrænni þjónustu hins opinbera. Auknar væntingar um einfaldar og aðgengilegar lausnir hvetja til áframhaldandi þróunar á stafrænni þjónustu.

  • Forsíða Ísland.is fékk 233.492 heimsóknir
  • Tryggingastofnun fékk 48.506 heimsóknir
  • Uppfletting í ökutækjaskrá fékk 48.304 heimsóknir
  • Vinnumálastofnun fékk 30.851 heimsóknir


Samstarf evrópskra flugmálstjórna

Jón Gunnar, forstjóri Samgöngustofu, skrifaði í gær undir uppfærðan sáttmála Evrópusamtaka flugmálayfirvalda (ECAC) Samgöngustofa fer með aðild Íslands að ECAC.

ECAC var stofnað árið 1955 og á Ísland aðild frá upphafi. Í dag taka 44 ríki þátt í samstarfinu sem hefur aðsetur í París. Markmiðið er að efla öruggar, skilvirkar og sjálfbærar flugsamgöngur í Evrópu.

Helstu áherslur ECAC snúa að öryggi í flugi, hagkvæmni í rekstri flugiðnaðarins og umhverfismálum.


EM leikarnir í körfubolta 🏀

…í matsalnum

Ertu á fundi?

Dæmi um hvernig eigi að skilja fundarherbergi eftir sig:

Samgöngustofa hafnar órökstuddum fullyrðingum

Fyrrverandi ráðherra samgöngumála var í viðtali á Bylgjunni í fyrradag. Þar kom fram að hann telur ýmislegt hafa farið úrskeiðis í undirbúningi og framkvæmd laga nr. 120/2022 um leigubifreiðaakstur, laga sem hann sjálfur lagði fram, mælti fyrir og skrifaði undir.

Við höfum brugðist við og höfnum þeim órökstuddu fullyrðingum að stofnunin framfylgi ekki lögunum. Þvert á móti eru gildandi lög og reglugerðir grundvöllur starfseminnar, í leigubifreiðamálum sem öðrum. Við höfum undirstrikað að starfsfólk Samgöngustofu vinnur af heilindum að lögbundnum verkefnum, svo sem að veita starfsleyfi, sinna eftirliti og beita þeim heimildum sem lögin kveða á um. Það á einnig við um lög um leigubifreiðaakstur.

Við tökum málefnalegri gagnrýni alvarlega og nýtum ábendingar um það sem betur má fara til umbóta. Órökstuddar fullyrðingar eru hins vegar ekki viðeigandi né til þess fallnar að efla traust á því hlutverki stofnunarinnar að efla öryggi í samgöngum.