Jólahlaðborðið okkar er handan hornsins. Mæting kl. 19 í Gullhamra og borðhald hefst í kjölfarið.



Jólahlaðborðið okkar er handan hornsins. Mæting kl. 19 í Gullhamra og borðhald hefst í kjölfarið.




Í dag hefja leynivinir störf um allt hús. Óhætt er að segja að ekki sé allt sem sýnist því leynivinir í ár hafa ráðið sér aðstoðarfólk og hætta engu við að koma upp um sig. Leynivinaleikurinn verður í fullum gangi í næstu þrjá daga og lýkur á föstudaginn með lítilli athöfn þar sem hulunni verður svipt af leynimakkinu.
Skráning er hafin á jólaskemmtun barnanna í Guðmundarlundi þann 9. desember kl 12.00 🎄
Skráning fer fram hér: https://forms.gle/PZWtKdMgDgryQ9PQ6

Hlökkum til að sjá sem flesta í hátíðarskapi og njótum samverunnar úti í náttúrunni.
Kær kveðja,
Farsýslan
Í dag fer í loftið fyrsta myndbandið af fjórum í jóladagatali Samgöngustofu þetta árið. Nýtt myndband verður svo birt í hverri viku fram að jólum á samfélagsmiðlunum okkar.
Þetta árið setjum við fókusinn á ungt fólk með sérstaka áherslu á fólk á bílprófsaldri. Í myndböndunum fáum við fjölbreyttan hóp af sérfræðingum til að fjalla um mikilvæg öryggismál í umferðinni. Okkur þykir mikilvægt að leita fleiri leiða til að miðla upplýsingum til unga fólksins. Þess vegna ætlum við að láta reyna á þessa aðferð í ár, að hafa stutt og hnitmiðuð skilaboð beint frá sérfræðingum til þeirra þar sem þau eru, á samfélagsmiðlum.
Í fyrsta myndbandinu eru gefin góð ráð fyrir ökunámið og þar er það hún Sigurlína okkar sem fer með aðalhlutverk og rúllar því upp. Einnig kíktum við í Ökuskóla 3 og sýnum aðeins frá því flotta starfi sem fer þar fram. Í næstu myndböndum verður svo áhersla lögð á þreytu undir stýri, rafhlaupahjól og það að sleppa símanum undir stýri.
Við verðum með gjafaleik á Instagram í tengslum við myndböndin og hvetjum við starfsfólk að sjálfsögðu til að taka þátt og deila leiknum með unga fólkinu í kringum sig.
Fylgstu vel með á Instagram í desember!



Í gær hófst 33. aðalfundur Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar (IMO), stofnun SÞ sem setur alþjóðlegar reglur um siglingaöryggi og umhverfisvernd á sviði alþjóðasiglinga. Ísland er aðili að IMO og tekur Samgöngustofa því virkan þátt í starfinu árið um kring. Okkar fólk lætur heldur ekki sitt eftir liggja á aðalfundinum, sem haldinn er annað hvert ár. Hér má fylgjast með fundinum sem stendur til 6. desember.

Í dag, mánudag, býðst okkur bólusetning gegn árlegri inflúensu. Hjúkrunarfræðingur frá Heilsuvernd verður í Stéli 1 á þriðju hæð, kl. 13:45-14:45. Ekki þarf að skrá sig heldur er nóg að mæta.
Þau sem ekki geta notfært sér þessa tímasetningu geta komið til Heilsuverndar, Urðarhvarfi 14, 2. hæð. Opnir tímar eru alla virka daga til 15. desember. Aðrir tímar eftir samkomulagi.

Í nýrri skýrslu um aksturshegðun Íslendinga koma fram ýmsar áhugaverðar niðurstöður. Meðal annars minnkar notkun rafhlaupahjóla hjá fólki undir áhrifum milli ára, um heil 23%. Mikil umræða í samfélaginu, sem er ekki hvað síst að þakka hinni frábæru herferð Ekki skúta upp á bak, hefur því haft mælanlega jákvæð áhrif. Meira en helmingur svarenda vill auka takmarkanir á rafhlaupahjól. Til dæmis aldurstakmarkanir, lokun leiga á kvöldin eða jafnvel banna hjólin alfarið.
Fleiri merkilegar niðurstöður má sjá í skýrslunni. Farsímanotkun undir stýri eykst milli ára, nema notkun samfélagsmiðla sem minnkar eilítið. Farsímanotkun undir stýri er í engu samræmi við það sem við teljum hættulegt. 99% Íslendinga telja hættulegt að skoða samfélagsmiðla en 23% gera það samt stundum.

Síminn býður starfsfólki Samgöngustofu upp á gæða sjónvarpsþjónustu, net og farsíma á enn betri kjörum. Fulltrúar Símans munu koma í heimsókn til okkar 4. desember og kynna tilboðin en einnig er hægt að panta símtal frá þeim og fara yfir málin.

Á sunnudaginn var haldinn alþjóðlegur minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa. Þema dagsins var viðbrögð á slysstað og höfum við af því tilefni látið gera fræðslumynd þar um. Meginreglan þegar komið er að slysi er að muna fjóra punkta; Tryggja vettvang, meta aðstæður, hringja í 1-1-2 og hlúa að slösuðum. Er myndin þegar komin í birtingu á RÚV og verður birt á samfélagsmiðlum nú á næstu dögum.
Alþjóðlegur minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa var í gær og voru af því tilefni haldnar minningarathafnir víða um land. Áhrifamikil minningarathöfn fór fram við þyrlupallinn við Landspítalann í Fossvogi þar sem flutt voru ávörp og viðhöfð var mínútuþögn. Í ár var sérstök áhersla lögð á fyrstu viðbrögð á slysstað og neyðarhjálp.








Í dag hófst ráðstefna Alþjóðaflugmálastofnunarinnar ICAO um mögulega valkosti um eldsneyti í flugi. Er þetta þriðja ráðstefnan af þessum toga á vegum stofnunarinnar og fer nú fram í Dubai. Til umræðu verða framfarir í þróun vistvænni orkugjafa og skilgreining sameiginlegrar stefnu þjóða í þessum efnum. Fulltrúar frá 94 þjóðríkjum, þar á meðal Íslandi, taka þátt í ráðstefnunni sem stendur til föstudags.

Starfsdagur hjá deild leyfisveitinga og ökunáms var haldinn þann 16. nóvember. Að þessu sinni var starfsdagurinn haldinn á á Suðurlandi en lagt var af stað á Selfoss með nesti og nýja skó kl. 8 um morguninn. Dagurinn hófst með kaffi og bakkelsi á lögreglustöðinni á Selfossi en þaðan var farið, ásamt fulltrúum vegaeftirlits á Suður- og Vesturlandi, á nýja vigtarstæðið á Suðurlandsvegi (á milli Hveragerðis og Selfoss) og skoðaðir vörubílar með farm með tilliti til þyngdar og leyfa. Í framhaldi var ekið á Geysi þar sem fylgst var með leyfsskyldum akstri. Dagurinn var virkilega fróðlegur og skemmtilegur.







Sunnudaginn 19. nóvember er alþjóðlegur minningardagur um þau sem látist hafa í umferðinni. Í ár verður minningarathöfn við þyrlupallinn við Landspítalann í Fossvogi klukkan 14:00. Auk þess verða viðburðir víða um land á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjörg. Hægt er að sjá nánari upplýsingar á www.minningardagur.is. Öll eru velkomin.
14:00 Minningarathöfnin sett – Bergþóra Þorkelsdóttir forstjóri Vegagerðarinnar
14:05 Forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson flytur erindi
14:10 Einnar mínútu þögn
14:11 Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra flytur erindi
14:16 Inda Hrönn Björnsdóttir fjallar um sína reynslu
14:25 Formlegri athöfn slitið
14:25 Boðið upp á kaffi, kakó og með því


Í morgun hélt stjórn Farsýslunnar stutta kynningu á starfinu framundan og stjórnarmeðlimir kynntu sig. Framundar er margt spennandi, til dæmis leynivinaleikur, jólaskreytingakeppni, jólahlaðborð og jólaskemmtun barnanna í Guðmundarlundi. Auglýst var eftir liðsauka í stjórnina og eru áhugasöm beðin að senda póst á farsyslan@samgongustofa.is eða einhvern úr stjórninni.
Þá var minnt á facebook síðu Farsýslunnar og fólk minnt á að nota hana, til dæmis til að láta vita um skemmtilega viðburði sem starfsfólk ætlar að taka þátt í, setja inn myndir og fleira.

Dagur íslenskrar tungu er haldinn hátíðlegur á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar, hins ástsæla þjóðskálds og náttúrufræðings. Að því tilefni barst góð ábending um að flagga íslenska fánanum hér fyrir utan hús, eins og við viljum gera á fánadögum sem bera upp á virkan dag.
Í dag er tilvalið að nota okkar gróskumiklu íslensku sem mest því þannig dafnar hún best. Um leið er gaman að rifja upp að Jónas var mikill nýyrðasmiður. Hann bjó til dæmis til orð eins og láréttur, fjaðurmagnaður, mörgæs, líkindareikningur og ljóshraði. Fleiri nýyrði Jónasar má finna hér.

Að þessu sinni fjallar gæðamoli vikunnar um skipulag lesborðs CCQ. Við notum lesborðið mis mikið en það er hægt að skipuleggja það þannig það sé gagnlegt. Þarfir starfsfólks og notkun þess á CCQ er mismunandi og því er um að gera að skipuleggja lesborðið sitt eftir sínum þörfum.
Efst í hægra horni lesborðsins eru þrír mismunandi valmöguleikar í boð til þess að breyta skipulagi þess, sjá mynd:

Best er að byrja á því að skoða “Velja töflur”-valmöguleikann. Þar, eins og nafnið gefur til kynna, getur starfsfólk valið þær töflur sem það vill að birtast á lesborðinu. Fyrir þau ykkar sem nota CCQ fyrst og fremst til þess að lesa gæðaskjöl mælum við í gæðateyminu með eftirfarandi stillingum:

Þetta val gefur notendum fína yfirsýn yfir þau gæðaskjöl sem tengjast þeim ásamt því að gefa gott yfirlit yfir ábendingar. Athugið að þetta er einungis tillaga, öllum er frjálst að stilla sitt lesborð eftir eigin þörfum, enda er þetta ykkar lesborð <3
Til þess að breyta uppsetningu lesborðsins veljum við “Breyta dálkum” efst upp í hægra horni lesborðins. Þá fáum við eftirfarandi valmynd upp:

Hér er hægt að velja sex mismunandi leiðir til þess að setja upp lesborðið. Mér finnst sú sem er neðst til vinstri vera góð en þetta er auðvitað bara spurning um kjörstillingu (e. preference) hvers og eins.
Að lokum er hægt að skoða “Raða töflum” efst upp í hægra horni lesborðsins. Þar er hægt að raða töflunum eftir þörfum. Mér finnst gott að nýta dálkana eftir tegund taflna þ.e.a.s. “Mín skjöl” í einn dálk, “Mínar ábendingar” og “Ábendingar með minni aðild” í annan o.s.frv. Sjá mynd:

Ég mæli heilshugar með því að starfólk gefi sér tíma til þess að skipuleggja lesborðið sitt enda mikill ávinningur fólginn í því. Ykkur er velkomið að hafa samband við mig, Kolbein, ef þetta vefst fyrir ykkur. Muniði svo, þetta er ykkar lesborð. Lesborð hvers og eins er þeirra konungsdæmi þar sem viðkomandi ræður ríkjum. Rétt eins og með kosningaréttinn þá er vitleysa að kasta frá sér þeim sjálfsögðu réttindum sínum að skipuleggja lesborðið eftir eigin þörfum. Skipuleggjum lesborðin okkar!

Nú hefur enn eitt framfaraskrefið í stafrænni þróun Samgöngustofu verið stigið: Umsókn ökumannskorta á Ísland.is. Atvinnubílstjórar geta nú sótt um ökumannskort með rafrænni auðkenningu þar sem upplýsingar um ökuréttindi, ljósmynd og undirskrift eru sótt í gagnagrunn sýslumanns. Áður þurfti að fylla út og undirrita umsókn á pappír og skila til okkar ásamt afriti af ökuskírteini og passamynd.
Stafrænt umsóknarferli hefði ekki verið mögulegt nema með tilkomu nýs pöntunarkerfis sem tekið var í notkun í lok ágúst eftir langa bið. Nýja pöntunarkerfið, sem ber nafnið Fajitas, leysti af hólmi tvö eldri kerfi og einfaldaði þar til muna alla umsýslu hér innanhúss.
Eins og er er einungis hægt að sækja um ökumannskort með stafrænum hætti en stefnt er að því að síðar verði einnig mögulegt að sækja um fyrirtækjakort.
Á heimasíðu Virk er mikið af góðum fróðleik og ráðum. Vel-virk er verkefni þar sem markmiðið er að stuðla að jafnvægi í lífi og starfi. Virkni dagatal er verkfæri sem gott er að styðjast við í þessari vegferð. Virkni dagatal gefur jákvæðar hugmyndir fyrir hvern dag mánaðarins. Tillögurnar eru í anda þess sem rannsóknir hafa sýnt að geti hjálpað fólki að lifa hamingjuríkara lífi, svo sem að gefa af sér, tengjast öðrum, finna tilgang, leika sér og njóta augnabliksins. Tillögurnar eru bæði skemmtilegar og auðveldar í framkvæmd.
Virknidagatalið er aðgengilegt á fleiri tungumálum og einnig er hægt að skoða eldri dagatöl.
Hér að neðan er virkni dagatal fyrir nóvember mánuð.
og hér er hlekkur á dagatalið:
PowerPoint Presentation (velvirk.is)


Nú er Eggert farinn að taka strætó eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Hann skútar þá vonandi ekki uppá bak á næstunni!
Ef þið rekist á Eggert í strætó væri gaman ef þið mynduð setja mynd af því á ykkar samfélagsmiðla og tagga/merkja Samgöngustofu 🙂